Ísafold - 14.12.1887, Side 3
231
verður að láta yfirvaldið vita, og gefa sig
undir sjerstakt eptirlit.
Á f>ýzkalandi hlutu ný lög um sama efni
gildi 1. okt. þ. á., og mjög lík hinum ensku
að mörgu leyti. þó eru þau heldur strang-
ari og nákvæmari. þar er eigi einungis
skipað að láta nafnið »margarin» stauda á
öllum ílátum o.s. frv., heldur líka nafnþess
eða þeirra, sem smjörið hefir til búið. Og
í smákaupum má ekki selja það öðruvísi
en í umbúðum, þar sem enn fremur er
prentað á nafn seljandans.
I hverri búð, þar sem selt er óekta smjör,
á að standa einhverstaðar þar sem mest
ber á, orðið nmargarinn-sala.
Aðalmunurinn á hinum þýzku og ensku
lögum er sá, að í þýzku lögunum er með
berum orðum gjörsamlega bannað að blanda
óekta smjöri eða neinu öðru feitmeti sam-
an við ekta smjör, og sömuleiðis bannað
að verzla með neinn slíkan »bræðing». f>ar
með er girt fyrir þess konar pretti, er mjög
mikil brögð hafa verið að víða, og eigi ein-
ungis hafðar til þess sjerstakar verksmiðj-
ur, heldur einnig gert almennt hjá bænd-
um sjálfum og á stórum mjólkurbúum, og
hefir það gert ráðvöndum smjörgerðarmönn-
um miklu meiri hnekki, heldur en óbland-
að óekta smjör.
Hitt og þetta.
Málþráður sem skrifar. Ein merkileg upp-
götvufi ný er það, að maður getur skrifað nafn sitt
sjálfur eða hvað sem maöur vill á pappír, sem
er 1000 mílur í burtu eða meira. Rafmagns-
þráður er settur í samband við pennann, sem
maður skrifar með, en við hinn endann á þræð-
inum, í annari heimsálfu t. a. m., er annar
penni, sem hreifist alveg á sama hátt og penn-
inn í hendinni á brjefritaranum, og ritar þann-
ig annað brjef þar með sömu hendi. Má þann-
ig t. d. skrifa undir áríðandi samninga o. s. frv.,
þótt máispartar sjeu sinn á hvorum heims-
enda. Meðal annara hlunninda, er þessari ný-
breytni fylgir, er það, að með því móti má
skrifast á um leyndarmál með málþræði, svo að
enginn viti nema rjettir hlutaðeigendur; en
annars verður jafnan að eiga undir þagmælsku
málþráðarmanna, sem ekki er ætíð óyggjandi,
þðtt þeir sjeu jafnan látnir vinna þagnarheit
dýrum eiði.
Kvennlæknar. í New-York eru eigi færri en
150 kvennlæknar. Ein þeirra hefir 90,000 kr. í
tekjur um árið, en margar þetta frá 10,000 til
40,000 kr. þær fást mest við kvennsjúk-
dóma.
Drykkjurúturinn. „Sá skal svei mjer fá það,
gestgjafinn, sem fleygði mjer út í gær, þó jeg
væri alveg ófullur. Jeg stefni honum undir
eins. Bara aö jeg myndi hvar þaö var!“
Drukknanir á hafskipum verða miklu
sjaldgæfari því meira sem fjölgar gufuskip-
um.
Árin 1871 til 1874 drukknuðu að meðaltali
1928 sjómenn á ári á öllum hinum mikla kaup-
skipaflota Breta.
Á árunum 1875 til 1883 var meðaltal þetta
komið ofan í 1583. og á árunum 1884 til 1886
ofan í 1146. Hafði þó kaupskipaflotinn aukizt
stórum á þessu tímabili. Árið 1862 var liann
4,872,000 smálestir, en 1882 6,921,000 smá-
lestir.
„Jeg stend við það sem jeg hefi talað“
Hefðarfrú keypti páfagauk hjá fuglasala. „Og
þjer ábyrgist, að hann getur haft eptir hvert
orð, sem hann heyrir“, sagði hún að skilnaði,
þegar hún var búin að borga páfagaukinn dýr-
um dómum. „Jeg stend við það sem jeg hefi
talað“, sagði fuglasalinn, „jú, hvert orð, sem
hann heyrir; en því miður er haun heyrnar-
laus“.
Auður Kotschildanna. Barón Alfons
Rotschild í París á 800miljónir króna; Gustav
Rotschild og Edmund Rotschild 500 milj. kr.
hvor; ekkja Salomons Rotschild 400 milj. kr.
og barón Arthur Rotschild 500 milj. kr.
Atvinnuleysið í Xiundúnum. Tala at-
vinnulausra manna í Lundúnnm var í haust
130,000, en að skylduliði þeirra meðtöldu
600,000,
Rjettvisin er blind. Maður var dæmdur í
10 kr. sekt. Hann fer undir eins ofan í vasa
sinn og dregur upp falsaðan 10 króna seðil og
rjettir hann öruggur að dómaranum. Hann
vissi, að — „rjettvísin er blind“.
„En taktu nú ekki til aptur“. Erægur
málfærslumaður franskur, er Lachaud hjet,
hafði fengið sakborning sýknaðan fyrir dómi,
sem opt bar við. „f>ú ert nú dæmdur sýkn
saka“, mælti hann; „það er nú gott og blessað;
en taktu nú ekki til aptur!“
Læknisþóknun. 150,000 kr. gaf Vilhjálmur
þýzkalandskeisari líflækni sínum, von Lauer,
daginn, sem keisarinn varð áttræður, en 300,000
kr. þegar hann varð níræður, en það var 22.
marz 1887.
Enska kirkjan. Erkibiskupinn í Kantara-
borg hefir í árslaun pd. sterl. 18,000=270,000 kr.
en lægstu biskupslaun á Englandi
eru pd. sterl. 2000 ............= 36,000 —
og meðaltal biskupslaunanna, en þau
eru 29 alls, pd.sterl. 5—6000, eða um 100,000 —
f>ar að auki hafa biskupar ókeypis bústað, og
það veglegar hallir.
Auk erkibiskupsins er 1 dómkirkjuprestur við
dómkirkjuna i Kantaraborg, og 6 kanúkar eða
kapellánar. Dómkirkjupresturinn hefir í laun
36,000 kr., og kapelánarnir 18,000kr., auk leigu-
lauss bústaðar. Margir af kapelánunum hafa
þar að auki annað arðsamt embætti eða at-
vinnu í Lundúnum. f>að bagar þá ekki ann-
ríkið við dómkirkjuna, þvi að dómkirkjusöfn-
uðurinn er, eptir því sem uppvíst varð í sumar
og frá er skýrt í blöðum, — ein einasta sál!
Bæjarmenn i Kantaraborg eru nefnilega hjer
um I il allir í öðrum söfnuðum þar!
þetta má nú segja að sje að feta í fótspor
Krists og postulanna.
Hálf milj. króna liefir stjórnin í nýlendu-
rikinu Nýja-Suður-Wales i Astralíu heitið þeim
manni að verðlaunum, er flnni ráð til að eyða
kanínum þar í landi. J>að er orðið svo mikið
af þeim þar, að þær eru orðnar að verulegri
land]>!águ. Stjórnin í Sidney hefir og lagt fje
til hiduðs kanínum, og hafa þar verið drepnar
1 mil j. kanínur, og sjer þó varla högg á vatni.
f>að er komin þar upp heil stjett manna, sem
lifir ekki á öðru en að drepa kanfnur, og eru
allt af úti i skógum og á víðavangi við þær
veiðnr. En það stoðar harla lítið; þær rexlast
svo ótt.
AUGLÝSINGAR
sam 'eldu máli með smáletri kosta 2 a. (þ.ikkaráv.
3 a.) hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða
setning I kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg.útí hönd.
Með því að hn Jóns Magnússonar frd
Heynesi á Akranesi, sem farinn er af landi
burt, er tekið til opinberrar skiptameðferðar
sem þrotabú, þd er hjer með skorað d alla
þd, er telja til skulda í nefndu búi, að
gefa sig fram og sanna kröfur sínar fyrir
skiptaráðanda hjer í sýslu innan 6 mánaða
frd síðustu birtingu þessarar auglýsingar.
Skrifstofu Mýra- og Borgarfj.s. 25. nóv.br. 1887.
Sigurður |»órðarson.
Með því viðskiptabók fyrir sparisjóðs-
innlagi, nr. 120, höfuðbók F 501. bls., hefir
glatazt, stefnist lijer með samkvœmt 10. gr.
laga um stofnun landsbanka 18. sept. 1885
handhafa tjeðrar viðskiptabókar með 6 mdn-
\aða fyrirvara til þess að segja til sin.
I landsbankanum, Reykjavík 6. des. 1887.
L. E. Sveinbjörnsson.
A slciptafundi sem lialdinn var 15. þ. m.
i dánarbúi Eyjólfs Eyjólfssonar d Lauga-
vatni í Grímsneshreppi, er andaðist 12. maí
þ. á., var ákveðið að gefa út innköllun til
skuldaheimtumanna í búi þessu : því er hjer
með samkvœmt lög. 12. ap>ríl 1878 og opnu
brjefi 4. jan. 1861 skorað d alla þá, sem til
skuldar telja í ofannefndu dánarbid, að koma
fram með kröfwr sínar og sanna þœr fyrir
skiptardðanda Árnessýslu innan 6 mánaða
frd síðíistu birtingu þessarar auglýsingar.
Skrifstofu Arnessýslu 18. dag nóvemberm. 1887.
Björn Bjarnarson
settur.
Uppboðsauglýsing.
Eptir beiðni frú Herdísar Benediktsen
verður miðvikudaginn 28. þ. m. og ncesta
dag, ef þörf gjörist, haldið opinbert uppboð
á miklu bókasafni, sem hefur tilheyrt Boga
stúdent Benediktsen á Staðarfelli og Brynj-