Ísafold - 04.01.1888, Blaðsíða 3

Ísafold - 04.01.1888, Blaðsíða 3
3 loks játningu sína, og þau hjón Jóhannes og Elízabet á eptir. f>eir höfðu ekki lagt af stað hjeðan fyr en kl. 12 sömu nóttina sem brann, og lagt eldinn í húsið áður, með þeim ummerkj- um, er áður hefir lýst verið, með vitorði konunnar, er hafði þá á laun í hinum ný- byggða bæjarenda í 2 daga áður og sagði þá þá vera farna upp í Borgarfjörð. Tilgangurinn með glæp þessum hefir sjálfsagt verið, að reyna að ná í bruna- bótafjeð, sjer til hagsmuna, — af ófróð- leik um, að brunabót á húsum hjer fæst eigi greidd fyr en hús það, er brunnið hefir, er endurreist, eigi minna nje miður vandað en hitt var. Fólk þetta fær auðvitað þunga hegningu, og er vonandi, að það verði til þess, að mönnum þyki »íkveikjur« miður fýsilegt gróðabragð eptir en áður. Kr. O. f>orgrímsson og kappar hans tólf. |>essir tólf landsstólpar, sem greiddu Kr. 6. þorgrímssyni atkvæði í bæjarstjórn í gær, voru: Beniditt Asgrímsson gullsmiður, Krlendur Hannesson á Melnum, Halldór Guðmundsson, f. adjunkt, Hannes Hansson póstur, Jón ívarsson veitingamaður, Jónas Jónsson næturvörður, Kristinn Oiafssor. bóndi á Steinum, Magnús Magnússon í Litlaholti, Ole Joh. Halldorsen timburmaðúr, Sigurður Hansson steinsmiður, Sveinn Bjarnason bóndi í Sauðagerði, Valgarður 0. Breiðfjörð kaupmaður. Erlendur á Melnum mun hafa verið sá eini, sem hafði nafnið í hámælum, — las það samt upp af seðli úr vasa sínum. Hinir laumuðu kjörseðli sínum þegjandi á borðið. Auk þessara hafði Guðmundur Ingi- mundarson næturvörður skrifað á sinn at- kvæðis-seðil meðal annara »Kr. Ó. Frið- rikssom; en með því að kjörstjórnin kann- aðist ekki við þann mann og nafnið stóð bvergi á kjörskrá, þá var seðillinn metinn ógildur. Einhver gat þess til, að þetta mundi vera ný-upptekið firma-nafn. — »þar sem upplýsingum í þessu máli er svo ábótavant« o. s. frv., sagði hæsti- rjettur! Skiptapar tveir urðu enn í Keflavík, á gamlársdag, í fiskiróðri, 5 á öðru skip- inu, en 6 á hinu, og drukknuðu allir. Ann- að skipið átti þorvarður beykir Helgason, sá sami sem missti son sinn í sjóinn í fyrra vetur á öðru skipi; en hitt Bartels verzlunarstjóri. Veður var hægt að morgni dags, en rokhvessti á norðan eptir hádegi, og fórust bæði skipin á uppsiglingu, og hafa sokkið undir eins vegna hinnar miklu segl- festu, eins og vant er í flestum skiptöpum hjer við Eaxaflóa.—Margir sjómenn kenna þessi hin voðalegu slys hjer um pláss jafn- framt skipalaginu, sem hjer er tíðkað, en aðrir telja það hina mestu villukenningu. Er þó sjón sögu ríkari, hversu skiptapar eru langmestir hjer um sveitir, þó víða sje illt. Rofið aðflutningsbann á Qenaði. Herra ritstjóri! það getur fyrir komið, að góðum smölum sjáist yfir kindur, og það getur fyrir komið, að góðir blaðamenn gleymi að geta alls þess, sem frjettir mega heita, hvort heldur er gott eða illt. það hefur borizt hjer upp til sveitanna, eins og hundafárið, með ferðamönnum, að með síðustu póstskipsferð hafa verið flutt- ir til Beykjavíkur 2 hrútar af útlendu fjárkyni. — það hefur líka fylgt sögunni, að allir hlutaðeigendur hafi verið svo grænir, grannvitrir, ólögfróðir eða ljettúðugir, að þeir hafa ekki hirt um að reyna að íá sjer löglega heimild fyrir innflutningi þess- um, fyr en hrútarnir voru hjer komnir. — Jeg efast nú ekki um að allirhlutaðeigendur hafi verið stranglega sektaðir fyrir þetta lagabrot, ef satt er, samkvæmt lögum 17. marz 1882. En það má furðu sæta, ef svo er, sem líka er sagt, að hjer hafi átt hlut að máli lyfsali, alþingismaður og hreppstjóri, og enginn af þeim hafa þekkt svona ný lög. þettað er alvarlegt mál, sem mig furð- ar á að blöðin skuli ekki hafa enn getið um.— Jeg hefi talað við marga merka menn, sem hafa óskað að blöðin vildu alvarlega minnast á þetta lagabrot, sem getur, ef illa tekst til, stofnað öllu landinu í voða. Gamall kláðahreppstjóri. það er ekki neitt tiltökumál, þótt blöð- in hafi ekki frætt almenning um þessi tíð- indi enn, því þeim hafa eflaust verið þau ókunn til þessa. Enda er og engin furða, þótt þau hafi ekki orðið mikils vör í því efni, úr því að öll hin margfalda valdstjórn í höfuðstaðnum gengur dulin þess. En það hlýtur hún að gjöra, úr því að ekki er enn hafin sakamálsrannsókn eða- lögsókn gegn hlutaðeigendum, fyrst og fremst skipstjór- anum á póstskipinu og þar næst þeim sem hrútana eiga að hafa pantað, allt sam- kvæmt tilvitnuðum lögum frá 17. marz 1882, er leggja 100 kr. sekt við í minnsta lagi til handa skipstjóranum og eiganda hins innflutta fjenaðar, auk skaðabóta, nema fengið sje fyrir fram leyfi lands- höfðingja fyrir því með ráði dýralæknis, á- samt tryggjandi reglum, og sje hvort- tveggja birt í Stjórnartíðindunum. Enn fremur skal fjenaðurinn upptækur og drep- inn að tilhlutun lögreglustjórnarinnar. það er sjálfsagt fyrst nú, er þetta blað kemur út, að lögreglustjórnin fær pata af þessu, og má gera ráð fyrir, að hiin verði ekki sein á sjer að komast fyrir sann- leikann í því og sýna rögg af sjer að beita lögunum vægðarlaust, ef svo reynist, sem »kláða-hreppstjóranum« hefir borizt til eyrna. Bitstj. Hitt og þetta. —„Slæm matarkaup", sagði maðurinn,hann gaf 5 kr. fyrir hvern atkvœða-gemsa, en missti meira en helmiug fyrir vanheimtur. —8á sem á mikið af kunningjum, rekur smá- skamtaverzlun, sem liefir marga snúninga í för með sjer, en litið í aðra hönd — Hinn vísasti vegur til að láta hlunnfara sig eða gabba, er að ímynda sjer, að maður sje hverjum manni slægvitrari. —„Hversvegna má jeg nú ekki giptast hon- um Jakob, faðir minn ? Hann er nú kominn í góða stöðu“. „Hann gerir ekki annað en strýkur frá |)jer, barnið mitt: hann er gjaldkeri“. AUGLÝSINGAR í samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.) hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða setning I kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg.útíhönd. Uppboðsauglýsing. Eptir kröfu Sigurðar Jónssonar járnsmiðs og að undangenginni fjárnámsgjórð hinn 25. f. m., verður íbiíðarhús Benidikts gullsmiðs Asgrimssonar í Lœknisgötu (gagnvart hótel Beykjavík) hjer i bcenum samkvœmt opnu brjefi 22. apríl 1817 og lögum 16. des. 1885 selt við 3 opinber uppboð, sem haldin verða: 2 hin fyrstu á skrifstofu bœjarfógeta miðviku- dagana 4. og 18. janúar 1888 og hið siðasta í húsinu sjálfu miðvikudaginn 1. febrúar ncest á eptir, til lukningar veðskuld að upp- hœð 700 kr. Uppboðin byrja kl. 12 á hád. nefnda daga og verða söluskilmálar til sýnis hjer á skrifstofunni degi fyrir hið fyrsta uppboð. Bæjarfógetinn i Reykjavík 27. desember 1887, Halldór Daníelsson. Uppboðsauglýsing. Eptir kröfu landsbankans og að undan- genginni fjárnámsgjörð hinn 29. f. m. verð- ur húseignin hálf Bræðraborg hjer í bcenum samkvœmt opnu brjefi 22. apríl 1817 og lögum 16. des. 1885, seld við 3 opinber uppboð, sem haldin verða 2 hin fyrstu á skrifstofu bcejarfógeta föstudccgana 20. þ. m. og 3. febr. mcest á eptir og hið síðasta í

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.