Ísafold - 22.08.1888, Blaðsíða 2
154
til umræðu (flutningsmaður Skúli Thor-
oddsen) og voru lesnar áskoranir því við-
víkjandi frá konum í ísafjarðarsýslu og
þingeyjarsýslu. Eptir litlar umræður var
kosin 3 manna nefnd til að íhuga það og
koma fram með tillögur til fundarálykt-
unar. (Sk. Th., P. J. og H. Hafstein).
Klukkan 8J var fundi frestað til næsta
dags.
þriðjudag 21. ágúst kl. 9þ f. hád. var
fundurinn settur aptur.
Var þá fyrst tekið til umræðu málið
um afnám amtmannaembœttanna (flutnings-
menn fulltrúar þingeyinga), og eptir nokkr-
ar umræður samþykkt svo látandi fundar-
ályktun, með öllum atkv. gegn 3:
Fundurinn skorar á alþingi að halda enn
fastlega fram afnámi amtmánnaembœttanna
og koma á fót fjórðungsráðum.
þá kom til umræðu málið um gufu-
skipaferðir kringum landið (flutningsm.
Frb. Steinsson o. fl.). Eptir talsverðar
umræður lagði fundarstjóri til, að skorað
væri á alþingi að taka gufuskipsferðamálið
til sjerstaklegrar íhugunar og að fundurinn
kvæði sig einkanlega meðmæltan gufuskips-
ferðum eingöngu með ströndum fram og
innfjarða. Skúli Thoroddsen lagði til, að
bætt væri inn í ályktunina, að veita fram-
vegis ekkert fje til hins danska gufuskipa-
fjelags, og var sú tiilaga samþykkt með
meiri hluta atkvæða. Jón Einarsson lagði
til að skorað væri á þingið, að leggja
eptirleiðis alls ekkert fje til útlendra
gufuskipaferða kringum landið, en styrkja
gufuskipaferðir með ströndum fram og
innfjarða; en sú tillaga var felld með öll-
um atkv. gegn 1. Loks var samþykkt
með öllum þorra atkv. samhljóða svolát-
andi fundarályktun :
Fundurinn skorar á alþingi að veita
framvegis ekkert fje til hins danska gufu-
skipafjelags, og vill mæla einkanlega með
gufubátsferðum eingöngu með ströndum
fram og innfjarða.
þá var tekið til umræðu málið um af-
nám dómsvalds hœstarjettar í íslenzkum
málum (flutningsm. Páll prestur Pálsson).
Var eptir nokkrar umræður samþykkt í
einu hlj. svo látandi tillaga til fundará-
lyktunar frá honum :
Fundurinn skorar á alþingi að hlutast
til um, að dómsvald landsins verði skipað
með lögum, þannig, að hœstirjettur í Kaup-
mannahöfn verði eigi lengur œðsti dómstóll
i íslenzkum málum.
f>á var kvennfrelsismálið tekið aptur til
umræðu, og samþykktar í einu hljóði svo
látandi tillögur til fundarályktunar frá
nefndinni (framsögumaður Hannes Haf-
stein):
pingvallafundurinn skorar á alþingi, að
gefa málinu um jafnrjetti kvenna við karla
sem mestan gaum, svo sem með þvi, f y r s t
og fremst að samþykkja frumvarp, er
veiti konum í sjálfstœðri stöðu kjörgengi í
sveita- og safnaðarmálum, í ö ðru lagi
með því, að taka til rœkilegrar íhugunar,
hvernig eignar- og fjárráðum giptra kvenna
verði skipað svo, að rjettur þeirra gagnvart
bóndanum sje betur tryggður en nú er,
i þriðja lagi með því, að gjöra konum
sem auðveldast að afla sjer menntunar.
Málið um stofun landsskóla kom þá til
umræðu (flutningsm. síra Jón Steingríms-
son). Var eptir litlar umræður samþykkt
án ágreinings svolátandi tillaga:
Fundurinn skorar á alþingi að semja og
sampykkja á ný frumvarp um stofnun
landsskóla á Islandi.
— f>á var tollmál næst á dagskrá (flutn-
ingsmaður Björn Jónsson). Eptir talsverðar
umræður var samþykkt nær í einu hljóði
(gegn 1 atkv., J. Ein.) svolátandi tillaga
til fundarályktunar :
Fundurinn skorar á alpingi að leitast við
að rjetta við fjárhag landssjóðs með tollum
á óhófs- og munaðarvöru, þar á meðal kaffi
og sykri.
Arnór Árnason m. fl. báru upp svofelld-
an viðauka við þessa tillögu : svo og á
álnavöru, glysvarningi og aðfluttu smjöri,
og var hann samþykktur með lð atkv.
gegn 8.
— Alþýðumenntamálið kom þá til umræðu
(flutningsmaður Páll prestur Pálsson o. fl.),
og voru eptir nokkrar umræður samþykktar
svolátandi fundarályktanir í því máli:
1. Fundurinn skorar á a.lþingi að styðja
alþýðumenntamálið eptir því sem efni og
ástœður landsins leyfa. Samþ. með öllum
þorra atkvæða.
2. Fundurinn skorar á alþingi að afnema
Möðruvallaskólann og verja heldur því fje,
sem til hans gengur, til alþýðumenntunar
á annan hátt. Samþ. með 14 atkv. gegn
13, að viðhöfðu nafnakalli.
Meðan tvö hin síðast nefndu mál voru
rædd, stýrði varafundarstjóri (Sk. Thor-
oddsen) fundinum.
f>ví næst var haft fundarhlje frá kl. 1
til 2£, með því að nefndin í stjórnarskrár-
málinu átti ólokið við álit sitt.
Kl. 2J var fundur settur aptur, og stjómar-
skrármálið tekið til ályktunarumræðu.
Aðaltillaga nefndarinnar (framsögumaður
Skúli Thoroddsen) var svo látandi, eins og
hún var samþykkt að umræðunni lokinnij
með 26 atkv. gegn 1 (H. Hafstein), að
viðhöfðu nafnakalli:
Fundurinn skor ar á alþing i
að semjaog samþykkja frum-
varp til endurskoðaðra stjórn-
arskipunarlaga fyrir ísland,
erbyggtsje á sama g rundv elli
og fariilíka s t efnu og frum-
vörpin frá síðustu þingum,
p annig,að landið fái alinnlenda
stjórnmeð fullri ábyrgð fyrir
alpingi.
Sem aukatillögu kom nefndin fram með,
að fundurinn skoraði á hina þjóðkjörnu
minnihlutamenn frá í fyrra að heita kjós-
endum sínum því, að framfylgja eptirleiðis
stjórnarskrárbreytingunni í frumvarpsformi,
en leggja ella tafarlaust niður þing-
mennsku. Eundarstjóri (B. J.) lagði til,
að ályktun þessi væri þannig orðuð, að
fundurinn lýsti því yfir, að hann áliti
æskilegt, að kjördæmi þeirra þingmanna,
er eigi fylgdu stjórnarskrárendurskoðuninni
á síðasta alþingi, skoruðu á þá að leggja
niður þingmennsku sína, nema þeir lofi
því skýlaust, að halda eptirleiðis hiklaust
fram stjórnarskrárendurskoðuninni, í þá
stefnu, sem til er tekin í aðalályktuninni.
En fyrir þeirri breytingartillögu urðu að
eins 4 atkv., með nafnakalli. (Arnór Árna-
son, Einar Jónsson, Jón Einarsson og
Stefán M. Jónsson. Fundarstjóri greiddi
eigi sjálfur atkv., hvorki í þessu máli nje
öðrum).
Var síðan aukatillaga nefndarinnar sam-
þykkt með öllum atkvæðum gegn 1 (H.
Hafstein) svolátandi:
Fundurinn skorar á þá alþingismenn, er
eigi fylgdu stjórnarskrárfrumvarpinu 1887,
að gefa nú þegar kjósöndum sinum full-
ncegjandi loforð um að framfylgja framvegis
stjórnarskrárbreytingunni í frumvarpsformi,
hiklaust og röksamlega, en leggja ella tafar-
laust niður þingmennsku.
—Stjórnarskrármálinu var lokið kl. 4| e.h.
þá var eptir litlar umræður samþykkt
nær í einu hljóði (Jón Einarsson greiddi
eigi atkv., H. Hafstein var eigi víðstadd-
ur) svolátandi fundarályktun um fjölgun
þingmanna, er Skúli Thóroddsen var flutn-
ingsmaður að:
Fundurinn skorar á alþingi að sampykkja
lög um breyting á 15. gr. stjórnarskrárinn-
ar, í þá átt, að tekin verði upp 6 ný kjör-
dœmi, svo að í efri deild alþingis sitji fram-
vegis 14 þingmenn og í neðri deildinni 28.
Síðan var eptir tillögu Sk. Thóroddsens
því nær umræðulaust og með öllum þorra
atkv. (J. Einarsson og H. Hafstein eigi
viðstaddir) fsamþykkt svolátandi fundar-
ályktun um stofnun sjómannaskóta:
Fundurinn skorar á alþingi að koma á
j stofn sjómannaskóla á Islandi.