Ísafold - 19.12.1888, Qupperneq 4
240
fyrir svellbunkum. Fyrir framan ármótin höf-
um vjer þar á móti opt heyrt kvartað yfir
miklum svellalögum, sem óþægileg væru yfir-
ferðar einkum fyrir gangandi fólk, heizt í
hlíðinni frá Hlíðarklifi heim að Bólstaðarhlíð.
fegar ofan fyrir Æsustaði kemur virðist al-
gjörlega kasta tólfunum hjá J. J>., þar hann
segir, að á vetrum verði að fara upp í fjalli og
dalurinn hafi þar lítið undirlendi o. s. frv.
Fyrir neðan Æsustaði myndast einmitt talsvert
undirlendi, sem er óslitið þaðan að alla Jleið að
Holtastöðum. Undirlendi þetta er nálega allt
flæðiengi (uppistaða), er á vetrum er ávallt
sem glær is yfir að riða eður sljettar eyrar,
enda er ætíð bezta færi alla leið frá Æsustöð-
um að HoIta8töðum; okki einu sinni að hinn
ómunalegi ruðningur síðastliðinn vetur gjörði
nokkurn farartálma á nefndri leið.
J>að er og eigi rjett lýst að Blanda sje svo
straumhörð undir Æsustaðaskriðu að hún leggi
þar eigi nema í aftakahörkum; miklu fremur
er Blanda fijótari til að leggja, en margar
smærri og 6traumharðari ár, svo sem Svartá,
sjer í lagi þegar kemur • ofan fyrir það sem
Svartá fellur í Blöndu, sem er eðlileg afleið-
ing þess, hversu straumlítil hún er í Langa-
dalnum. J>að mun og hrein undantekning i
fyrra vetur, að Blanda varð eigi riðin hjer um
bil sjónhending frá Ytra-Tungukoti á Mjósund,
og það opt ekki miklu seinna en Svínavatn er
orðið alfært. Að Blöndudaishólaprestur hafi
farið vestur yfir Blöndu og út að vestan sýnir,
að presturinn hefir fulltreyst því að komast
aptur yfir hana niður í Langadalnum að Holta-
stöðum, því þangað var ferðinni heitið, og ætti
póstur ekki að þurfa þar frá að hverfa, sem
prestur kemst áfram. {>að var alls ekki færðin
eptir Langadal sem orsakaði að prestur fór út
að vestan, því þar mun sjaldan betri færð;
heldur var það Svartá, er opt stendur full af
kröpum framan af vetri, enda leggur seint og
ófryggt, samt ryður sig opt þó í hörku frosti
sje, eins og líka eigi er allsjaldan að Blanda
ryðji sig fram i Blöndudal og út fyrir ármót,
þó ekki haggi hið minnsta við is niður í
Langadal. (Niðurl.).
AUGLÝSINGAR
i samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þakkaráv.
3 a.) hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða
setning I kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg.útíhönd.
Proclama.
Eptir lögum 12. apríl 1878 og op. br. 4.
jan. 1861 er hjer með skorað á alla þá, sem
til skulda telja í dánarbúi Markúsar Sí-
mona.rsonar frá Flankastöðum í Miðnes-
hreppi, sem andaðist hinn 31. ágúst 1885,
að tilkynna og sanna kröfur sínar fyrir
undiiskrifuðum skiptaráðanda innan 6 mán-
aða frá síðustu birtingu auglýsingar þessarar.
Skiptaráðandinn í Kjósar- og Uullbringusýslu,
12. desember 1888.
Franz Siemsen.
í samþykkt þeirri, er gildir fyrir bruna-
fjelög hinna dönsku kaupstaða, 28. gr., er
svo fyrirskipað, að pegar eigandaskipti verða
á húsum, skuli hinn nýi eigandi áður en
hálft ár er liðið frá pví hann hefir eignazt
húsið, tilkynna það brunamálastjóra, og sýna
honum eignarskjal sitt fyrir húseigninni til
þess að hinn nýi eigandi aptur geti fengið
nýtt ábyrgðarskjal, er hljóðar upp á hans
nafn. Samkvœmt þessari ákvörðun skora
jeg á alla þá húseigendur hjer i bcenum, er
eignazt hafa vátryggð hús, og ekki þegar eru
búnir að fá ný ábyrgðarskjöl upp á sitt
nafn, að sýna mjer eignarskjöl sín, til þess
að jeg geti látið þá fá ný ábyrgðarskjöl, og
skal þess getið, að ef út af þessu er brugð-
ið, varðar pað sektum frá 2—10 kr.
Reykjavík, 14. dea. 1888.
O. Finsen,
p. t. brunamálastjóri.
Andleg hressing
fyrir Jólin.
A laugardaginn kemur 22. þ. mán. kl. 84
verður haldinn í Good-Templarahúsinu
Stór Concert
af söngfjelaginu „SVAVAil,
f>ó þetta söngfjelag sje lítið þekkt með-
al almennings, þá eru í því ágætir söng-
menn, með æskunnar fjörugu og mann-
dómsins kröptugu tónum.
þessi Concert er undir forustu vors á-
gæta, ötula og óþreytandi söngkennara
herra organista Jónasar Helgasonar.
Til þess að krydda þennan samsöng
syngur hinn ágæti söngmeistari
herra tannlæknir Nickolin
nokkra SOLOS0>(iVA
og hefir herra kaupm. Steingr. Johnsen
söngkennari hins lærða skóla lofað að
aecompagnera á Fortepiano.
Bílæti fást allan laugardaginn í búð
undirskrifaðs og við inngangin kl. 8 og kosta
sjerstök sæti 7ð aur.
almenn 50 —
Reykjavík 19. des. 1888.
Ipozt. ö. cJofmoovt.
SfC Concertinn byrjar presfs 8’/2.
í Good-Templarhúsinu
fimmtud., föstud. og laugard.
á milli Jóla og Nýárs
verða margbreyttar
Skemmtanir fyrir fólkið,
sem seinna verða nákvæmar auglýstar.
J»orl. Ó. Johnson.
Viðbætir þann, við hina fjórrödduðu
Kirkjusöngsbók mína, af fjórrödduðum lög-
um við sálma þá og vers hinnar nýju
sálmabókar frá 1886, sem auglýstur var í
11. tölubl. Isafoldar 1887, og litlu síðar í
pjóðólfi og Fjallkonunni, er nú verið að
prenta. Vona jeg að prentuninni verði
lokið í næstkomandi apríl eða maímánuði.
Verð og tilhögun hið sama og í nefndum
auglýsingum er tekið fram, o: 2 kr. eintak-
ið af viðbætinum sjerstökum. En þeir
sem kaupa Kirkjusöngsbókina, eptir að
viðbætirinn er kominn út, fá hvorttveggja
fyrir 5 kr.
Reykjavik 18. desember 1888
Jónas Helgason.
Fornleifafjelagið. Aðalfundur fje-
lagsins verður haldinn laugardaginn hinn
22. des. 1888 kl. 5 e. m. í leikfimishúsi
barnaskólans. Sigurður Vigfússon talar
um nokkra kafla úrferð sinni á Vestfjörð-
um í sumar. Lagður fram reikningur, og
kosinn skrifari og 2 fulltrúar.
er því að eins
e k t a,
að hver pakki sje útbúinn með eptirfylgjandi
einkenni:
MANUPACTURED EXPRESSLY
by
J. LICHTINGER
Copenhagen.
RJ
(þAKKARÁV.). Hjer með vil jeg þakka
herra skipstjóra Hendrik Hanssen í Hafnarfirði
fyrir bjálp hans þann 12. nóv. á mjer og há-
seta mínum, með að bjarga okkur, sem af völd-
um stórfisks vórum í hættu staddir. J>ví næst
vil jeg þakka hinum heiðruðu Hafnfirðingum
hjálp þá, er þeir með fjegjöfum hafa mjer auð-
sýnt til aðgjörðar á bát mínum, sem um leið
til muna skemmdist.
Skuld við Hafnarfjörð, 15. des. 1888
Jens. N. Egilsson.
2 lömb hafa dregizt í næstliðnum rjettum,
með marki Egils Símonarsonar á Skuld, sýlt
hægra og gat, er hann ekki á; rjettur eigandi
má vitja andvirðis tjeðra lamba að frádregnum
kostnaði til mín og semja um markið.
Skuld við Hafnarfjörð, ltí. des. 1888.
Jens N. Egilsson.
ÓSKILAKINDUR seldar i Skorradalshreppi
haustið 1888.—Hvítt hrútlamb: hamrað hægra.
Hvítt gimbrarlamb: gagnbitað hægra, sýlt og
gat vinstra (þetta mark á maður hjer innan
sýslu, en á ekki lambið).
Grund 10. des. 1888. Pjetur porsteinsson.
T 'í* X i Reykjavik, fyrirlestur eptir Gest Páls-
AJiU.\Ison, eru allir ólmir i að lesa. Bækl-
ingur þessi fæst á afgreiðslustofu Isafoldar, fyrir
35 aura.
Ritstjóri Björn Jónsson, cand. phil.
Prentsmiðja ísafoldar.