Ísafold


Ísafold - 09.01.1889, Qupperneq 3

Ísafold - 09.01.1889, Qupperneq 3
n við bætast svo hin miklu reikningsþrot við síðustu árslok, á annað hundrað þúsund krón- ur, er þá vantaði á að tekjur landssjóðs hrykkju fyrir gjöldunum, og enn fremur ef frumvarpið um brúargjörð á Olfusá nær stað- festingu og framkvæmd á þessu ári. þetta hvorttveggja liöggur mikið skarð í viðlaga- sjóð og þá einnig í leigurnar af honum, er taldar eru með tekjumegin í áætluninni, hvað þá heldur ef enn skyldi koma fram reikn- ingshalli í lok þessa reikningsárs. Nokkrir helztu útgjaldaliðirnir eru : Laun (landsyfirrjettar)-dómara og sýslu- manna ........................ 70,500 kr. Laun lækna og styrkur til auka- lækna......................... 44,500 — Alþingiskostnaður, ásamt yfirskoð- un landsreikninganna og kostn- aður við væntanlega málshöfð- un út af vanskilum C. Fens- marks (5000 kr.) ............. 38,600 — Lærði skólinn ... ............... 35,000 — Póstflutningar og póststjórn .... 31,500 — Eptirlaun embættismanna og styrktarfje .................. 30,000 — Vegabótafje ..................... 20,000 — Laun umboðslegraembættismanna 19,000 — Búnaðarstyrkur................... 18,000 — Gjöld til hinnar æðstu stjórnar innanlands og fulltrúa stjórn- arinnar á alþingi ............ 14,400 — Brauðauppbót .................... 14,000 — Brestaskólinn.................... 12,000 — Gufuskipsferðir................... 9,000 — Möðruvallaskóli............. ... 8,100 — Laun biskups...................... 7,600 — Ymislegur skrifstofukostnaður (áð- ur ótalinn)................... 6,200 — Hreppstjóralaun .................. 6,000 — Læknaskólinn ................... 5,500 — Kvennaskólar ..................... 4,300 —- Hegningarhús og fangelsi ......... 3,700 — Landsbókasafn .................... 3,600 — Alþýðuskólar...................... 3,000 — Barnaskólar og sveitakennarar ... 3,000 — Eptirlauna-auki handa fátækum prestum og prestaekkjum ....... 3,000 — Vísindastyrkur ................... 3,000 — Endurskoðun landsreikninganna (umboðsleg) ................... 3,000 — Reykjanesviti..................... 3,000 — Forngripasafn ................ . 2,200 — Sjómannakennsla .................. 1,800 — Eiðaskóli. Nýr forstöðumaður var skip- aður í fyrra fyrir búnaðarskóla Austfirðinga á Eiðum, Jónas Eiríksson búfræðingur. Er von um, að álit og traust á skólanum batni við þau forstöðumannaskipti, hvort sem það nú hefir verið á rökum byggt eða ekki, að ýmsir lögðu þúst á hann áður. Hann var settur í haust, 22. okt., með 6 lærisveinum, öllum úr Múlasýslunum, nema 1 úr Austur- Skaptafellssýlu. Einn af þeim ,er útlærður Möðruvallaskólamaður. Fjórir piltar aðrir höfðu sótt um skólann, en fengu ekki inn- göngu sökum þess, að skólastjórniu áleit ó- hentugra að taka svo marga pilta að haust- inu. Verða þeir líklega teknir að vori kom- anda. »Eitt af því, er gert hefir Eiðaskólanum svo örðugt uppdráttar«, skrifar kunnugur maður að austan, »er það, að bændur hafa verið ó- óánægðir með, hve mikið fje þyrfti að leggja til skólans, og margir hafa ímyndað sjer, að sýslusjóðsgjald það, sem hver hreppur hefir greitt þessi 6 undanfaiti ár, hafi gengið til Eiðaskólans, þar sem þar í eru, eins og skyn- berandi menn vita, fólgin öll þau gjöld og fjárframlög, sem greiða hefir þurft í þarfir sýslnanna, þar á meðal einnig afborgun á landssjóðsláni, 1020 kr. á ári, en með því eru sýslurnar að borga Eiðastólinn, og þegar hann er fullborgaður, er fasteign fengin, sem tekur þátt í kostnaðinum«. ' Annálsverður afli- Til fyllingar skýrsl- unni í Isafold 2. þ. m. um haustvertíðina sfðustu við Faxaflóa sunnanverðan, má geta þess, að í Njarðvíkum hafafengizt 3000 í hlut á 1 bát frá haustvertíðarbyrjun til jóla, og frek 3000 á annan bát í sömu veiðistöðu. þar af er gizkað á, að helmingur muni hafa verið þorskur. Margir nokkuð hafa fengið eitthvað á 3. þúsund, meira eða minna, í Njarðvíkum og í Keflavík. Einn bóndi í Njarðvíkum átti 18,000 fiskjar í salti eptir haustvertíðina. Af salti hefir gengið upp meira þar nú á haust- vertíðinDÍ, heldur ella gerist á góðum vetrar- vertíðum. Söfnunarsjóðurinn. það lítur út fyr- ir, að nú ætli menn að fara að vakna við og gefa gaum þessari mjög svo nytsömu og mikilvægu stofnun, sem minnzt var á síðast, og lýst nokkuð í ísaf. 21. nóv. f. á. Meðal annars var lagður inn í Söfnunar- arsjóðinn í fyrra dag Brceðrasjóður Beykja- víkurskóla, að upphæð 10,000 kr. Bræðrasjóður Beykjavíkurskóla er ætlaður til styrktar fátækum, efnilegum piltum, þeim er brýnustu hjálpar eru þurfandi. Hann var stofnaður fyrir 40 árum, af bátsverði, sem ekki nam meiru en rúmum 37 rd. (74 kr.)— verði bátsins, sem Bessastaðaskólapiltar höfðu til milliferða yfir Skerjafjörð, en þurftu eigi á að halda lengur, er skólinn fluttist til Reykjavíkur. Úr þessum rúmum 70 kr. eru nú orðnar 10,000 kr., og það á ekki lengri tfma, svona rúmum einum mannsáldri. Og þó,—þó hef- ir verið varið sjálfsagt öðrum S—10,000 krón- uvi af þessum stofni, þessum sama sjóði með þessum örsmáa vísi, til þess að styrkja fá- tæka skólapilta síðan hann var stofnaður! þetta er eitthvert hið átakanlegasta dæmi vor á meðal fyrir því, hve ótnilegt þroskun- arafl fjeð hefir, ef því er lofað að ávaxtast skaplega. Hugsum vjer oss nú hitt, sem tíðast er, þegar líkt ber við og hjer átti sjer stað, að eigendur bátsins hefðu t. d. varið því sem fyrir hann fjekkst til þess að gera sjer einn »glaðan dag«, sem kallað er. Enginn maður hefði nú tekið hót til þess, eptir því sem hugsunarhátturinn var þá, og eptir því, sem hann er enn almennt. En hverju getur verið ólíkara saman að jafna, þessum eina »glaða degi« til handa fáum mönnum, þ. e. ölvímukæti fyrir þá, með tilheyrandi ókæti næsta dag, þ. e. »timburmönnum« m. m., og hinum óteljandi glöðu æfidögum (í góðri merkingu), sem sjóð- ur þessi hefir aflað fjölda manns, beinlínis og óbeinlínis, og mun afla margfalt fleiri á ókomnum tíma, með því að hjálpa þeim í kröggum og bágindum ? það er vitaskuld, að þessi mikli vöxtur og viðgangur Bræðrasjóðsins er eigi eingöngu sjálfum honum að þakka, ekki . eingöngu að þakka beinlínis þessum litla fyrsta vísi hans, skólabátsverðinu, heldur hefir hann jafnframt eflzt stórum fyrir gjafir margra góðra manna, ásamt árlegum tillögum skólapilta sjálfra, hin síðustu árin að minnsta kosti, þótt smá sjeu. En—óheinlínis má með fullum sanni eigna það allt frumstofnendum sjóðs þessa. þvi það er sannreynt, og hefir líka komið greini- lega fram við þessa stofnun, að þegar veru- lega nytsamri og fagurri stofnun er einu sinni komið á fót, þá vekjast jafnan einhverjir upp til að styrkja hana, —þá hænast góðir menn að henni og rjetta henni hjálpar hönd, ýmist ótilkvaddir, eingöngu af góðvild og rækt við fagra hugmynd, eða þá t. d. í umbuna- skyni og viðurkenningar fyrir þá hjálp og hlunnindi, er þeir hafa sjálfir eða einhverjir þeim nákomnir orðið aðnjótandi af stofnun þe3sari á sínum tíma. Bræðrasjóðurinn er lærdómsrík hugvekja, ekki meiri en hann er á lopti. Leiðarvísir ísafoldar. 17. Við kuldabólgu er þetta bezti áburðurr 'þ pd. af sauðartólg, 2b kvint af glyceríni og 10 kvint af matarolíu, brætt saman og vel hrært saman ; skal hræra i þangað til bræðingurinn er orðinn alveg kahlur. 18. Við fótakulda. Einu sinni voru tveir menn á ferð saman. þeir komu að kvöldi á gistinga- stað og fóru að þvo sjer um hendurnar. þá segir annar þeirra : „það er nú reyndar mesta heimska og óþarfi, að vera sí og æ að þvo sjer um hend- urnar; aldrei þvær maður sjer um fæturna“. Ykjur eru nú það, að maður þvoi sjer aldrei um fæturnar; en hitt er víst, að fótaþvottur er langt of h'tið tíðkaður. það mun þykja gott, ef menn þvo sjer um fætur einu sinni í viku; sumir gera það ekki nema einu 1—2 á ári eða alirei. það vill til, að þeir sem stunda útivinnu, verða opt og tíðum votir í fætur hinseginn. Að þvo sjer sjaldan eða aldrei um fætur, er bæði mesti óþrifnaður og óhollusta. í stígvjelum eru fæturnir inni klemmdir og í loptleysu að kalla má ; en það er mjög óholt fyrir alla parta líkam- ans, ef eigi kemst hæfileg loptbreyting að hörundinu. þess vegna eru ullarföt svo holl; ullin er svo gljúp, að loptið kemst svo liðugt gegn um hana. Að sama skapi og af sömu orsök eru skinnföt eða skinnklæði óholl. Vilji maður fara vel með fæturna á sjer og einkanlega verjast fótakulda og fótraka, þá á maður að þvo sjer um fæturna á hverju kvöldi úr köldu vatni og uudda þá vel ; það hreinsar burtu ryk og svita, er safnazt hefir fyrir liðlangan dag- inn, og þá fær loptið greiðan gang að loptsmug- unum i hörundinu. I öðru lagi á maður að hafa sokkaskipti á hverjum degi, viðra sokkana, sem maður fer úr, úti (eða í hjalli) allan daginn út- hverfa, og dusta úr þeim, og má svo fara í þá aptur daginn eptir. Með þvi móti haldast sokk- arnir furðulengi hreinir, og er þetta miklu betra en að vera allt af að þvo þá, því þá hættir þeim svo við að hlaupa.— Loks á maður aldrei að vera í sömu skóm eða stígvjelum úti og inni. þessar reglur mun flestum duga, ef rækilega er eptir þeim farið. 19. Til að varðveita góða sjón þarf að var- ast að lesa þreyttur eða veikur (t. d. í apturbata); birtuna á að bera að hliðinni, en hvorki framan að nje aptan; maður á aldrei að lesa liggjandi ; mjög óvarlegt er lika að lesa nema við allgðða birtu, þó að maður þykist sjá til í hálfdimmu. Hitt og þetta. SVO SEGIR HÚN ALLT HITT! Kunn- ingjar tveir kvæntir höfðu verið í samdrykkju seint um kvöld og urðu samferða heim á leið. Annar fer að inna eitthvað eptir því við hinn, nokkuð svona áhyggjufullur, hvað hann segi við konuna sína, þegar hann komi svona seint heim. „Jeg segi bara gott kvöldl‘, svarar hann, „svo segir liún allt hitt“.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.