Ísafold - 19.01.1889, Síða 1

Ísafold - 19.01.1889, Síða 1
Kemur ót á miðvikudögum og laugardögum. Verð árgangsins (l04arka) 4 kr.; erlendis S kr. Borgist fyrir miðjan júlímánuð. ISAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bundin við áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir i.okt. Af- greiðslust. í Austurstrœti 8. XVI 6. Reykjavík, laugardaginn 19. jan. 1889. Verzlun með áfengisdrykki. Eptir Jón Ólafsson. það má virðast nokkuð undarlegt, að leyfa verzlun með sum áfengisefni, en banna verzl- un með önnur. f>ó á þetta sjer stað nú hjer á Islandi, án þess að nein veruleg ástæða sje sýnileg til þessa mismunar, sem þannig er 4 ger. Með ópíum og fleiri áfengisefni má eigi verzla hjer á landi, utan hvað lyfsalar mega selja það eptir læknisráði. En með alls kon- ar alkóhól-blöndur er leyft að verzla. Og þó er neyzla hvers áfengisefnis sem er aldrei til neins annars en tjóns fyrir líkatna nokkurrar heilbrigðrar skepnu. f>að er því auðsætt, að annaðhvort er rjettast að banna verzlun með •öll áfengisefni sem skaðvæn, eða að skipta sjer af engu þeirra og þá leyfa verzlun með morfín og ópíum. Allt er hjer undir því komið, hvort tjón það, sem leiðir af frjálsri tíðkun þessara á- fengisefna eða eiturtegunda í þjóðfjelaginu, sje svo megnt, svo almennt, svo sóttnæmt og svo voðalegt fyrir velferð þjóðarinnar, að sá háski rjettlæti það, að löggjafarvaldið láti málíð til sín taka og takmarki frelsið í þessu •efni. Eins og bent er á í bænarskrá þeirri til alþingis 1889, sem framkvæmdarnefnd Stór- Stúku íslands af Óháðri Reglu Good-Templ- •ara sendir þessa daga út víðsvegar um allar sýslur og sveitir til undirskripta, þá má válíta það sannað með reynslunni, að nautn áfengis- drykkja sje landi voru og þjóð að eins til skaða, að hún eyði fje manna, heilsu og vinnu- krapti og valdi örbirgð, leiði menn til glœpa, tortími að fullu mörgum nýtum mönnum, leiði böivun og sorg yfir ótetjandi heimiti á landinu, baki ótai konum og bórnum harm og liungur, spilli æskulýðnum og sje til fyrirstöðu mennt- un og framför í tandvnu^.—Svo heldur bænar- skráin áfram : »Af því vjer þess vegna telj- um það varða framtíð lands vors og heill þjóðar vorrar mjög miklu, að fyrirbyggð sje með öllu nautn áfengra vína til drykkjar og að það sje gjört sem fyrst og á sem tryggi- legastan hátt, þá leyfum vjer oss virðingar- fyllst að skora á alþingi 1889 : 1., að það banni með lögum tilbúning, að- flutning og verzlun með áfenga drykki hjcr á iandi ; 2., að það nemi úr gildi öll tög um aðfiutn- ingsgjald af áfengum drykkjum.n Vjer viljum vona, að hávaði hugsandi manna meðal þjóðar vorrar, þeirra er hafa hjarta og tilfinningu, verði samhuga að því, að styðja bænarskrá þessa með undirskriptum sínum og með þvi að sannfæra sem flesta og hvetja þá til stuðnings. í>jóð VOr þarf á öllu harð- fylgi sínu og dáð að halda í baráttu við ó- blíð lífskjör, þótt hún lami ekki víss vitandi sálar-þrótt sinn og líkamlega velfarnan með Bautn áfengisefna. I>að er nú auðvitað, að undir eins og slíku anni yrði framgengt gegn tilbúningi og að- utningi áfengisefna til drykkju, þá yrði að ojálfsögðu að nema úr lögum aðflutningstoll á þeim. Um það geta væntanlega allir orð- ið ásáttir. En þar til það hefst fram, er þá ekki gott að halda tollinum á meðan ? Meðan öðrum orðum : ef alþingi í sumar vill eigi verða við áskoruninni um bannið (1. tölulið í niðurlagsatriðum bænarskrárinnar), óska þá beiðendurnir, og er það æskilegt í sjálfu sjer, að fá þá samt síðara atriðinu (afnámi vínfanga-tollsins) framgengt? f>að liggur í augum uppi af bænarskránni, eptir því sem niðurlagsatriðin eru orðuð, sem tveir sjálfstæðir liðir, að sú er ósk beiðend- anna, að fá vínfangatollinn skilyrðislaust af numinn. Og vjer álítum hiklaust og vafalaust, að beiðendurnir hafi rjett fyrir sjer. Ef litið er fjárhagglegu auga að eins á málið, þá eru áfengisefni mjög illur álögu- stofn eða tollstofn, hvort heldur litið er á, hve rjettvís hann sje eða hve hagkvæmur hann sje. Rjettlæti og sanngirni krefja þess, að álagan komi með nokkrum jöfnuði niður á menn eptir tekjum og megun; að álagan komi til- tölulega eigi síður niður á efnamanninum með miklum tekjum, heldur en á fátæklingn- um með lágum tekjum. — f>etta gerir vín- fangatollurinn ekki; áfengisdrykkjanna er ekki neytt eptir efnahag. f>að eru mestmegnis snauðir menn eða menn með litlum tekjum, sem kaupa þá og neyta þeirra. Og það er fjarri því, að menn almennt eyði því meira í áfenga drykki, sem menn hafa hærri tekjur. |>að mun naumast nokkur t. d. af hinum bezt launuðu embættismönnum landsins greiða sviplíkt eins mikið í vínfangatoll eins og marg- ir sjávarbændur og útvegsmenn gera, af þeirri einföldu ástæðu, að t. d. Gullbringusýslu- bóndinn, sem kaupir svo tunnum skiptir af brennivíni um árið, eyöir meiru pottatali en t. d. landshöfðinginn með öllum sínum skyldu- veizlum. J>á er annar ranglætis-agnbnúi á tolli þess- um, og hann er sá, að hann kemur að eins niður á rúmfangi vörunnar, en ekki verði. pannig er jafnhár tollur á ódýrasta hvítöli og sterkasta bjór; jafnhár tollur af drykk, sem kostar fáeina aura flaskan af, og öðrum, sem kostar 10, 12, 15 krónur flaskan af. Enn er það hið þriðja, sem ekki bætir um til að gera áfengisdrykki að sanngjarnlegri toll-stofni, en það er það, að það getur hver komizt undan þessum tolli, sem vill. |>að er enginn knúður til að borga hann. jpað getur hver sem vill látið vera að kaupa einn dropa af áfengisefni, og þar með sleppa þeir hjá toll- inum. Hjer í Reykjavík, þar sem að minnsta kosti 6.-7. hver fullorðinn karlmaður mun vera Good Templar, sýnir það sig bezt, hve auðvelt er að komast undan þessu gjaldi, sem 1887 mun þó hafa numið um 10 kr. á hvert karlkennt mannsbarn í bænum. Ekki er áfengisefnið betri toll-stofn þegar á það er litið, hvað heimta má af tekjustofni, til þess að hann geti hagkvcemur heitið. Frá þeirri hlið skoðað er það ein hin helzta krafa, er gera verður til tekjustofns, að hann sje svo stöðugur, vís, semauðið er; að minnsta kosti ekki allt af flögrandi og flöktandi; ekki svo vaxinn, að hann geti tekið vaxtar eða þurðar-breyt- ingum til helminga eða meir á örstuttum tíma. Svo lagaður tekjustofn er algerlega ófær til að byggja nokkra verulega álögu á. Hann hlýt- ur að freista löggjafarvaldsins til að sníða útgjöld eptir væntanlegum tekjum, og getur á stuttum tíma, ef stórkostleg breyting verð- ur á honum, komið öllum fjárhagnum í mestu óreiðn og voða. En einmitt þennan stór-löst hefir vínfanga- tollurinn öllum öðrum #tollum fremur. 1876 nam hann af öllu landinu 87 þús. kr.; 1877: 864 þús., 1878: 98 þ.; 1879: 126 þ., 1880 : 1064 þ., 1881: 126 þ., 1882: 1474 þ., 1883: 170 þ., 1884: 163 þ., 1885: 118 þ., 1886: 80 þ., og 1 8 8 7 liðlega 7 3 þ ú s . — Á tveim árum fellur hann úr 163 þús. niður í 80 þús., þ. e. um meira en helming. fetta sýnir, að einnig frá fjárhagslegu sjón- armiði er tollur þessi hinn óhagkvæmasti tekjustofn. Frá siðferðislegu sjónarmiði er hann þessa verstur. Að gera aðflutning slíks ólyfjans sem áfengisdrykkja að tekjugrein fyrir lands- sjóð, það er að leggja eins konar helgi á verzlunina með þessa vöru, eins konar heiðar- leika og þarfa blæ, sem að eins getur orðið til að villa sjónir fyrir siðferðismeðvitnnd manna. Auk þessa er það, að viðhalda tolli á henni, eitt hið öflugasta, sem gert verður, til að sporna við því, að áfengisvaran verði nokkru sinni lögbönnuð. |>ótt undarlegur hjegómi megi virðast, þá láta jafnvel þingmenn sjer sæma, að nota aðra eins fjarstæðu fyrir á- stæðu gegn tilbúnings- og aðflutniugsbanni á þessari vöru, eins og það, að landssjóður megi ekki missa tekjurnar af henni. Lands- sjóðurinn á þannig að hafa hag af andlegu, líkamiegu og efnalegu tjóni þjóða.rinnar —, af því að hann fær dálitinn part af blóðpening- unum ! Til þess að borga annan eins toll af áfeng- nm drykkjum eins og vjer Islendingar borguð- um árin 1882 til 1884, höfum vjer orðið að kasta út árlega þau árin talsverðu yfir hálfa miljón króna á ári eingöngu fyrir áfenga drykki. Og hvað kostuðu svo verkföll, heilsu- spillir, slys, óspilun og margvíslegt fjártjón, er leitt hefir af neyzlu þessara drykkja ? Slíkt er éigi auðið tölum að telja; en líkindi, sem sönnunum ganga nærri, mun mega færa til þess, að þessar og þvílíkar afieiðingar af nautn áfengisdrykkjanna kosti oss árs árlega munum meira en sjálfu andvirðinu némur; og hafa því áfengisdrykkirnir þessi ár kostað oss á aðra rniljón króna. Síðasta ár (1887) var vínfangatollurinn alls sem næst 75 þúsundir króna (74,773 kr. 6 aur.)1. En ef fara skal nærri um beinllnis andvirði þeirra áfengisdrykkja, sem þessi toll- ur var goldinn af, þá mun óhætt að gera það 250,000 kr., eða fjórðung úr miljón. Vjer 1) Allar tölur þær, er ádur eru nefndar, eiga við tollinn eins og hann rann í landssjóð; en í reynd- inm var hann 2% hærri (innheimtulaununum).

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.