Ísafold - 30.01.1889, Blaðsíða 1

Ísafold - 30.01.1889, Blaðsíða 1
ÍSAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bundin við áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir i.okt. Af- greiðslust. í Austurstrœti 8. Kemur út á miðvikudögum og laugardögum. Verð árgangsins (ÍO4 arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist fyrir miðjan júlímánuð. XVI 9. Útlendar frjettir. Khöín, 13. jan. 1889. JJugleiðing við áramótin. Veðr- ■á t ta. I friði náði árið að líða, hvað sem hinu nýja tekst. Að undanförnu hafa blöðin haft það í vjefrjetta stað, um frið eða styrjöld, sem stórhöfðingjar mæltu á nýársdag til er- indreka ríkja eða annara. En nú hafa þeir allir orða bundizt um það efni, nema Italíu- konungur, sem kvaðst vona, að friðurinn hjeldist árlangt, og Carnot, forseti á Erakk- landi, sem benti á það vinaboð allra heims- þjóða, sem efnt væri til á Marzvellinum í París og halda skyldi í sumar komanda, en það er heimssýningin mikla í aldarminningu stjórnarbyltingarinnar frakknesku 1789. “Enginn hefir á þögninni» —; en þó taka blöðin ýmist á þögn keisaranna. Stjórn- vitringar þeirra láta allvel yfir táknum tímauna, en kalla sem fyr þá nauðsyn allra brýnasta, að efla æ betur og betur allar her- varnir á sjó og landi. Sama kveður við á Frakklandi og Eússlandi. Til dæmis um hin geysiiegu útgjöld ríkjanna til hervarna er nóg að nefna, að Frakkar hafi lagt fram árið sem leið nálsegt 60O milj. króna 1 aukakostnað (!), en arsutsvarið, eða »hið reglulega framlag», var 455 milj. kr. Hve lengi orka þjóðirnar undir slíku að rísa ? " Veðráttan hefir verið hagfelld á norður- löndum til þessa, og í vesturhluta álfu vorr- ar' Erostlítið og snjókomulaust að kalla. En 1 austurhluta hennar, t. d. á Rússlandi og við Svartahaf, fádæma frost og harðindi. Fregnir ^omnar af miklum mannsköðum frá þeim slóðum, og á einum stað í Rússlandi rakjárn- brautarlest svo í einum feiknabylnum í þá fannfergju, að hvergi gekk fram, en allir fengu bana, sem með henni voru, í frostgrimdinni (um 200manns). Seinustu frjettir bera, að 4000 manna hafi farizt í frostbyljum á Suður- Rússlandi. — Meðfram austurströndum Ame- ríku óðastormur í lok nóvembermán., og hlut- ust af honum miklir mannskaðar og marg- vísleg tjón á landi. — 8,þ. m. nýr fellibylur, f Pennsylvaníu og víðar nyrðra, með stórsköðum og manntjóni. f þeim byl brúin yfir Níagara sögð slitin úr festum og hrunin niður í djúpið. Danmör k. þingstappið sama og að venju, og minni líkur en tíðum fyr til sam- komulags hvað fjárlögin snertir. Ríkisstjórnarafmæli konungs vors var veg- lega haldið (15. nóv.) í höfuðborginni og um allt land. Mikið í Khöfn um uppljóman og blómaskruð, og hjer stóðu hátíðarhöldin og veizlurnar 1 fjóra daga, bæði innan hirðar og utan. — I ávarpsbrjefi til þjóðarinnar galt konungur henni ljuflegustu þakkir fyrir þá trúfesti og kærleik, sem hun hefði sjer og drottningu sinni enn vottað. Vinstrimenn ljetu sjer fátt um fögnuðinn finnast, þó sumir þeirra drægjust nreð straumn- um og settu kerti í glugga sína. Sú áminning kom í blöð þeirra, að, sem ástatt væri, sæmdi þeim bezt að draga sig í hlje. því var svo Raykjavik, miðvikudaginn 30. jan. hlýtt af vinstrimönnum þingsins, að Högsbro, forseti fólksþingsins, flutti konungi engar lotn- ingaróskir af þess hálfu 15. nóvbr. þann dag lögðu nokkrir af forstumönnum vinstrimanna silfursveig á legkistu Friðriks heitins 7. í Hróarskeldu. Látins er að geta B. S. Jörgensens, prófes- sors við landbúnaðarskólann. Noregur og Svíaríki. Hjeðan eng- in markverð tíðindi, hvað sem í kann að ger- ast, þegar þingin taka til starfa. Snemma í nóvembermán. kom ljót saga af hneyxlisbragði ungs sveitarforingja við 19 vetra stvilku bæjarlýðnum í Kristjaníu í róstumóð, og var atsúgur gerður að lögreglu- stjóranum fyrir afskiptaleysi hans. Hávað- anum fylgdu gluggabrot og grjótkast, er mót var risið, en liðið varð að skerast í leikinn, og við það fengu nokkrir menn áverka. þær sakir, er hjer af hafa gerzt, eru fyrir rann- sóknum, en foringinn þegar liðrækur. Nansen doktor hefir orðið að láta fyrirber- ast í Godthaab á Grænlandi. þar ritar hann nú ferðasögu sína. þar sem hann kom hæst, var 10,000 feta fyrir hafflöt ofan. Carl Johan Schlyter dáinn 26.des., prófessor í lagasögu við háskólann í Lundi ; hafði 4 ár um nírætt. Hann hefir staðið fyrir útgáfu fornlaga og miðaldarlaga Svía. E n g l a n d. Parnellsmálinu miðar enn harðla lítið áleiðis, og á sjálfsagt óravegfyrir höndum, að því flestir ætla. Á írlandi herðir stjórnin heldur á öllum höptum. Einn af þingmönnum Ira, Harring- ton að nafni, nýlega dæmdur til 6 mánaða betrunarvinnu fyrir fundartölur á fundi þjóð- vinafjelags Ira, og birting þeirra í blaðinu nUnited Ireland». Við kvennamorðin í Lundúnum hefir enn bæzt eitt eða tvö, en uppgötvunarleysið sama. Súdans-lið Osmans Digma hrakið á burt við mikið mannfall frá Súakim af enskum og egipzkum sveitum með forustu Grefells hers- höfðingja (20. desember). Stjórnin tekur öllu fjarri um nýja herför á hendur falsspámann- inum, eða kalífa Súdansmanna í Khartum, en segir hitt ekki umtölumál, að England hljóti að halda lrafnarlegunni við Súakim á valdi sínu, ef vel eigi að fara með flotavörð meðfram Afríkuströndum, ogfleira. Gladstone gamli suður á Italíu sjer til hress- ingar. Hann kom fyrir skömmu til Napóll, og var þar móti honum tekið með háværum fögnuði. Hann hafði fullt í fangi að aptra stúdentunum, er þeir vildu taka hestana frá vagni hans og draga hann sjálfir. pýzkaland. Niður er fallin saksóknin gegn Geffcken doktori, og honum hleypt laus- um eptir 99 daga varðhald. það var Bis- marck, sem rak mest eptir þeirri sök, og nú bíða menn eptir nánari greinargerð af stjórn- arinnar hálfu, en hann er nú kominn til Berlínar, og mun þá gera menn fróðari um ýms málefni á alríkisþinginu. Af einu máli vilja menn sjer í lagi að öll hulda hverfi, en það 1889. er áburður þýzkra blaða móti sendiboða Eng- lendinga í Pjetursborg, Robert Morier að nafni. Hann var erindreki í Darmstadt 1870, en sú saga höfð eptir tveim merkustu mönn- um, sem hafa haft tal af Bazaine sáluga, að frá sendiherranum hafi (í ágúst 1870) skeyti farið til Lundúna um framsókn þess hers yfir Mosel, sem krónprins Prússa (Friðrik keisari) var fyrir, en komið frá Lundúnum til Eugeníu drottningar, og frá henni til Ba- zaines. Sendiboðinn á brjeflegt vottorð frá Bazaine, fengið frá honum í ágúst umliðið ár, og það ber þá sögu aptur. Morier lýsir áburðinn lygi, en blöðin þýzku vilja ekkert aptur taka, og kalla það vottorð tortryggi- legt, sem hann vísar til. Blöð Englendinga tala styggðarlega um málið, og hjer tekið sem greiðlegast undir heima af mótstöðu- mönnum Bismarcks. þeir kalla hjer eitt dæmið koma fram, sem sýni, hvernig fylgilið hans, og þeirra feðga, vilji koma óhróðurs- blettum á þá menn, sem hafa verið góðkunn- ingjar eða vinir Friðriks keisara. Samningurinn á kominn við Englendinga um herskipavörð fram með Zanzibarströnd- um við Afríku, mót flutningi þræla úr landi eða vopna í laud. það er nú ráðið, að auka liðsaflann þar syðra sem þarf til þess, að þjóðverjar nái að rjetta hjer hlut sinn, en bæði Zanzibars-soldán, þegnar hans og aðr- ir virði sem vert er hlífðarskjöld þýzkalands. Nýlega þaðan saga borin af viðureign við uppreisnarmeun og drjúgu mannfalli í sveit- um þeirra fyrir skothríð sjóliðsins þýzka. A öðrum stað, á Samoa-eyjum í Kyrrahafi, hefir bólfesta eða landnám þjóðverja bakað þeirn erfiði. Fyrir rúmu ári tóku þeir þaðan á burt óvinveittan konung, og settu þann í stól lians, sem þeim var eptirlátur. Margir af eyjamönnum fylktust mi um annað kon- ungsefni, en skipalið þjóðverja veitti sltjól- stæðing þeirra sitt fulltingi. Englendingar og Norður-Ameríkumenn hafa horft á leikinn. Stjórn Englendinga segist hjer unna þjóð- verjum góðs gengis, en um hina ekki allt trútt, og sagt, að frá þeim hafi uppreisnar- menn fengið vopn og vistir. Fyrir eigi löngu sendu þjóðverjar menn með liði á land til milligöngu, en eyjaskeggjar runnu þegar á móti með meiri afla, og í þeim bardaga fjellu af sveit þjóðverja 20 manns, en 40 særðust. Foringi uppreisnarmanna var hjer frá Ame- ríku, Klein að nafni (þýzkur?). Nú líkast ekki til minna ætlazt, en að þjóðverjar leggi undir sig eyjarnar til fulls. Frakkland. þaðan svo skemmst frá að segja, að flokkarnir pólitisku flýta—næst- urn allir — fyrir forlögum þjóðveldisin3, þó enginn geti enn sagt, hver þau muni verða. Einveldissinnar og Boulangersliðar fylgdu þá stjórninni, þeim Floquet og frelsisgörpum hans, þegar frumvarpið kom fram um breyting rík- islaganna. þeim hló hugur við, að hjer losn- aði um þá skriðu, sem stjórnin yrði fyrst undir, en viðkvæði þeirra er ávallt, að völd- in sje í fávitringa og fanta höndum, land og ríki sje við fallanda forað. Boulanger ein- ráðinn í að ganga í berhögg við stjórnina, og

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.