Ísafold - 30.01.1889, Qupperneq 2
34
reiðir nú til smiðshöggs, er hann býður sig
fram til kosninga í París 27. þ. m. Sjálfsagt
er talið, að einveldismenn fylgi honum. Sjálf-
ur segist hann hafa sigurinn sjer í höndum.
Auðvitað er, að sú kosning eykur enn á bráð-
læti lýðsins, að sjá átrúnaðargoði sínu lypt á
veldisstalla. — Ef rúm væri, mætti af mörgu
segja, sem fram fer á þingi og utanþings, en
hjer skal við nema að sinni, en herma þá
meira, er betur heiðir til. Eins má þó spyrja :
Mundi þeim, sem nú steypir þjóðveldinu, ef
að því kemur, auðskipaðri stjórn og þing ráð-
vöndum mönnum, en Napóleoni þriðja varð,
þegar hann brauzt til valda?
Panamafjelag Lesseps lenti fyrir skömmu
f fjeþrotum, og þingið synjaði, er stjórnin fór
fram á liðveizlu af ríkis hálfu. Nú er samt
úr bráðasta vanda bætt.
Ital'ia. »Hver dregur dám af sínum
sessunaut«, og þó fjárhagurinn sje ekki glæsi-
legur, þá vilja Italir sízt vera eptirbátar
bandamanna sinna, þar sem til framlaganna
kemur til herkostnaðarins. þó er sumum far-
ið að bregða meir í brún á þinginu en fyr,
og nú hafa mótmæli heyrzt móti ýmsum
kvöðum, er rætt var um aukaútgjöldin til
hers og varna, rúmar 100 miljónir kr. Minnzt
hefir verið á sera nýbrigði, að Italir sæktu
nú til Vesturheims á hverju ári, þúsund-
um saman, af því vesöldin þrengdi svo að
þeim heima.
Dáinn er Mancini, 72 ára að aldri (26.
des.), einn af stjórnskörungum Itala. Hann
var fyrir utanríkismálum í ráðaneyti Depre-
tis, þegar förin til Bauðahafs var ráðin ; einn-
ig fulltrúi Ítalíu á Berlínarfundinum 1878.
S e rbía . Til þessa 'hefir Mílan konungi
vegnað betur en ætlað var, og kjarkurinn bil-
aði ekki er beita skyldi. Hann skipaði þinginu
að samþykkja hin nýju ríkislög breytingalaust,
og að því var farið. Hitt er þó sjálfsagt tal-
ið, að hann hljóti eptirleiðis að leita halds
og trausts hjá Bússavinum, en til þeirra má
meginþorra fólksins télja.—Natalía drottning
komin til vistar á Krim, en við henni tekið
með mestu virktum af yfirvöldum Bússa.
Norður-Ameríka. Við forsetakosn-
inguna hlaut Harrison hershöfðingi 233 at-
kvæði, Cleveland að eins 168. Ósigur sjer-
veldismanna var ósamþykki þeirra sjálfra að
kenna. Sumir mótfallnir tollnýmælum Cleve-
lands, en sumum líkaði ekki, að hann leit
miður á flokka en dugnað, þar sem embætti
skyldi skipa.
Hafi, sem sagt er, forsetakosningin kostað
22 miljónir dollara (nær 80 milj. kr.), má sjá,
að menn leggja líka í þjóðveldunum mikið við
borð, er um völdin skal tefla.
Nýlega hefir öldungadeildin í Washington
skorað á ríkisforsetann, að láta Evrópuhöfðingja
vita, að Bandaríkin mundu virða sjer til meins
og miska gert, ef nokkurt Evrópuríkí hlutað-
ist til um farsundagerð um Mið-Ameríku
(»dariska eiðið«), eða tæki tilsjárrjett um slíkt
mannvirki. Menn vita, hver frumrjettindi
Bandarikin kallast hjer eiga, en nú mundi
svo upp kveðið frönsku bræðrunum tíl áminn-
ingar, þegar stjórnin fer fram á hjálpræðið
við Lesseps.
Fr á Stanley og Eminpasja. Af
þeim eru að vísu frjettir bornar, sem margir
trúa, þó allir kjósi þær áreiðanlegri og sam-
stæðari, en þær virðast að svo stöddu. Póst-
arnir eru flestir Arabakyns, hvort sem það
eru ferðamenn, eða þeir kalla sig boðberend-
ur. Emín og Scanley eiga að hafa fundizt í
fyrra í Vadelai, 20. janúar. Stanley vildi
hafa hinn á burt með sjer, en það þekktist
Emín ekki. Meðan Stanley dvaldi hjá honum,
komu boð frá falsspámanninum, sem hótaði
hörðu, ef löndin gengju ekki sjer á vald.
þeim var enginn gaumur gefinn. I apríl
vendir Stanley aptur vestur á bóginn, og átti
að vera kominn þar að Aruvímifljótinu (við
Jambuga) í miðjum ágúst, sem hann tók sig
upp í hitt eð fyrra. f>ví er bætt við, að
hann vildi sækja sjer meiri föng og mannafla,
en snúa síðan aptur til Emíns pasja. Sein-
asta fleygifregnin ber, að Belgíukonungur
eígi von innan skamms á brjefi frá Stanley,
sem komið hafi til Zanzibars.
Annan fróðleik hefir falsspámaðurinn látið
flytja frá Khartum. Hann segist hafa þá
báða í varðhaldi hjá sjer, Emín og Stanley,
en því til sönnunar ljet hann Osman Digma
afhenda Grefell hershöfðingja (við Suakim)
eptirrit af því brjefi, serii Stanley fjekk í
Kairo frá Egiptajarli, þegar hann var á ferð-
inni til Zanzibars. — það er satt, að fals-
spámaðurinn hefði átt að eiga kost á betri
jarteinum; en þó verður hjer margt að liggja
fyrst um sinn milli hluta.
Hollands k o nun g ur lengi þungt
haldinn. Seinustu frjettir telja hann af.
Póstskipið Laura, skipstjóri Christian-
sen, kom hjer í fyrra morgun (28.). Hafði
farið frá Khöfn 15., eins og til stóð, og geng-
ið ferðin allvel. Lá samt við voðalegu slysi
á leiðinni milli Skotlands og Pæreyja : hafði
kviknað í olíufatnaði niðri í kössum í lestinni,
af sjálfu sjer, og vissu menn eigi fyr til en
káetur fylltust af reyk. Lestin var opnuð,
og lagði þar upp úr kafþykka svælu. Var
tekið að ryðja upp varningnum, og fannst þá
eldurinn brátt og varð slökktur. En nærri
honum var fullt af steinolíutunnum ogeinnig
eldspýtnakassar, og því mjórra muna vant,
að ekki yrði úr óslökkvanda bál og líf allra
í veði, sem innanborðs voru. þetta var um
hánótt, og voru farþegar vaktir upp, er
voðans varð vart.
Með skipinu komu ýmsir kaupmenn og
verzlunarmenn : Bartels frá Keflavík, Guðm.
Isleifsson frá Eyrarbakka, Jón Gunnarsson
frá Keflavík, J. O. V. Jónsson frá Bvík, Snæ-
björn þorvaldsson af Akranesi, Símon S. Al-
exíusson frá Isafirði. Enn fremur J. E. Jensen
bakari, er hjer var áður, og kona hans, Jón
Sveinsson snikkari, Bjarni Jóhannesson frá
Stykkishólmi.
Brauð veitt. Kirkjubær í Hróarstungu
veittur af landshöfðingja 24. þ. m. síra Ein-
ari Jónssyni i Miklabæ. Auk hans sóttu og
voru í kjöri Halldór Bjarnarson, aðstoðar-
prestur á Sauðanesi, og Eggert Pálsson presta-
skólakandídat. Síra Ilalldór Bjarnarson bafði
að vísu fengið flest atkvæði, enda kom um-
sókn síra Einars, sem er upp runninn í því
byggðarlagi, ekki fyr en fylgismenn hinna
voru búnir að undirbúa kosninguna. En
nokkur atkvæði síra Halldórs reynd ust ógild,
og var kosningin fyrir það metin ónýt.
Prófastur settur af biskupi 29. þ. m. í
Suður-þingeyjarprófastsdæmi síra Arni Jóns-
son á Skútustöðum, í stað síra Ben. Kristj-
ánssonar í Múla, er sagt hefir af sjer.
Dannebrogsmenn hafa þessir verið
gerðir af konungi 8. des. f. á.
Ólafur Sigurðsson, fyrrum umboðsmaður f
Asi, Magnús bóndi Magnússon í Skaptárdal f
Skaptafellssýslu, og Magnús hreppstjóri Brynj-
ólfsson á Dysjum í Garðahreppi á Alptanesi.
' Lýsi á þilskipum. Eyrir skömmu átti
kaupmaður Geir Zoéga hjer í bænum fund
með fjórum af skipstjórum sínum og tveimur
stýrimönnum ásamt Jóni Jónssyni skipstjóra
frá Mýrarhúsum og Jóni Ólafssyni þilskips-
eiganda í Yesturgötu hjer í bænum. Til-
gangur fundarins var, að ræða og taka á-
kvarðanir um notkun lýsis á þilskipum f
stormi og stórsjó. Öllum fundarmönnum kom
saman um, að það væri mjög æskilegt, að lýsi
væri haft á þilskipum til þess að verja þau
áföllum, eins og farið er að tíðkast erlendis.
A fundinum var sýndur poki til að hafa í
lýsi og hafði hann verið tilbúinn að fyrirsögn
G. Zoega. Er saumaður á pokann tvöfaldur
koparskjöldur með götum til þess að láta
lýsið vætla út um. Er ytri piata skjaldarins
skrúfuð á hina innri og má láta götin á báð-
um standast meira eða minna á, og tempra
þannig útrennsli lýsisins eptir vild sinni.
Leizt öllum fundarmönnum vel á áhald þetta
og hugðu það mundu samsvara betur tilgang-
inum og vera í alla staði hentugra en þau
ílát, er þeir áður höfðu sjeð eður heyrt getið
um til notkunar í sama tilgangi. A fundin-
um var þegar ákveðið, að hafa framvegis lýsi
á þilskipum þeirra manna, er þar voru við-
staddir og not.a samskonar ílát og það er
sýnt var; 2—3 ílát voru álitin nægileg á
hverju skipi. Síðan þetta gjörðist, hefir
þórður bóndi Jónsson í Báðagerði og Bun-
ólfur Ólafsson í Mýrarhúsum beðið um áhöld
þessi, til notkunar á sínum skipum.
Lýsis-ílát þetta, sem einnig má nota á
opnum skipum, er til sýnis hjá kaupmanni
G. Zoega.
^ Vöruverð í Khöfn, 14. jan. Fyrir
haustull gefnir síðast 55—57 aurar. Af salt-
fiski hjer um bil 1000 skpd. óseld frá f. á.
Eyrir vestfirzkan hnakkakýldan gefnar 45—48
kr. skippundið, fyrir sunnlenzkan hnakka-
kýldan 45 kr., og fyrir austfirzkan sömuleiðis
42—43 kr. Smáfisk vantar; seldist síðast á
50 kr. Ysu vantar; seldist síðast á 40 kr.
Earmur af vestfirzkum Spánarfiski, sem kom
til Englands og beið þar boða, seldist til
Spánar á 55 rm. (49J kr.). Fyrir hákarls-
lýsi, pottbrætt, var síðast gefið 35 kr., og
gufubrætt 36 kr., fyrir tunnuna (210 pd.),
grómlaust; fyrir dökkt hákarlslýsi 32 kr., fyr-
ir tært þorskalýsi 33 kr., fyrir dökkt þorska-
lýsi 28—30 kr. Sundmagar 40 aur. pundið.
Æðardúnn 14J kr. Harðfislcur 60 kr. Sauða-
kjöt saltað 52—54 kr. tunnan (14 skpd. auk
íláts). Sauðskinn 4—4| kr. vöndullinn (2
gærur), 6£ til 7f pd. Lambskinn 45—50 kr.
fyrir hundraðið.
Bugur, rússneskur, 4 kr. 60 a. 4 kr. 45 a.
fyrir 100 pd. eptir gæðum. Búgmjöl kr. 5,20
—5,10, Bankabygg 7|—8£ aur. pundið eptir
gæðum. Kaffi 69—70 a. Kandís 21 aur.
Hvítasykur 20 aur. Púðursykur 14J aur.
Hrísgrjón heil 9 kr. 100 pd., meðallagi 8 kr.
Kaupskipum hlekkzt á. Ýmsum kaup-
skipum hefir hlekkzt á á útleið í haust. þar
á meðal er eitt frá Isafirði, eígn Asgeirs kaup-
manns, Johanne, er lagði af stað þaðan 16.
nóv., og var hvergi komið fram. Máþví telja
það vafalaust frá. Farþegi með því var Th.