Ísafold - 10.04.1889, Síða 2

Ísafold - 10.04.1889, Síða 2
114 við Eyjafjörð — heldur út þilskipi sínu í há- karl á vetrum ; fór hann í legu fyrir skömmu og kom aptur með 42 tunnur lifrar. Nú er hann nýfarinn í aðra legu». Norður-þingeyjarsýslu 9. marz : #Níu hnis- ur rak fyrir skemmstu að Skinnalóni á Mel- rakkasljettu, og skjöldung einn í Leirhöfn». Norður-Núlasýslu 26. febr. : »Dæmafátt aflaleysi á öllum Austfjörðum síðan í haust ; síld hvergi nema á Seyðisfirðí frá því í miðj- um janúar tíl viku af febrúar ; var fremur strjál, og erfitt að stunda veiðina í lagnet, sökum hinna sífelldu storma, enda í engu verði; kaupmenn gáfu mest 4 kr. fyrir mál- tunnu af henni nýrri, sem er 1 eyrir fyrir hverja hafsíld. En bændur gefa ekki um að kaupa síld til heimilanna, að örfáum undan- teknum. Islendiugar þyrftu að fara að brúka meiri síld í landinu en þeir hafa gert til þessa». Hjer um pláss, við Faxaflóa m. m., er lítið sem ekkert um afla enn á inn-miðunum — Innnesjum og Akranesi — en syðra nú farið vel að lifna, einnig í net. Skrifað er 4. þ. m. úr Garði: »Hjer hefir aflazt dável þessa viku, og vænni fiskur en áður, og eru nú komnir tölu- verðir vertíðarhlutir hjá ýmsum ; en misjafn er aflinn —• frá um 200 til 450 — mestallt þorskur. því nær allur aflinn er fenginn á lóðir, beittar gotu ásamt nokkru af maðki. Að eins einn formaður, ágæt skytta, hefir aflað dável á færi á fuglakjöt. Almennt- á- litið hjer, að sárlítill afli mundi hjer á land kominn, ef lóðir hefðu eigi verið notaðar, af því að færabeitu hefir til þessa vantað, þar eð hrognkelsanet hafa eigi orðið notuð sakir brims. Nú leggja menu almennt hrognkelsa- net úr þessu, ef, spekir sjó, og verður þá tekið til færanna eptir því sem beita hrekk- ur til. Aflabrögð á Miðnesi voru, þá er jeg síðast frjetti, mjög rýr». í gær fiskaðist mikið vel á Bollaslóð, Alpt- nesingamiði. Hjeðan er einnig sóttur góður afli suður í Garðsjó á degi hverjum. Verzlun og siglingar- Til Stykk- ishólms kom vöruskíp 25. fyrra mánaðar, »Peter», frá Esbjærg á Jótlandi, rneð lið- ugar 100 tunnur af matvöru, og nokkuð af kaffi og sykri, til Grams verzlurtar. Eúgur, sem með því korn, seldur á 14 kr. tunnan, bankabygg 24 kr., kaífi 1 kr. 10 a. (eu áður 85 a.), og kandissykur 36 a. Skipið á að verða á fiskiveiðum hjer við land í sumar. Engin sigling komin til annara hafna, svo frjetzt hafi, nema hingað til Bvíkur. í morgun kom hingað með vörur Margrethe, hið nýja fiskiskip kaupmanns G. Zoega, skip- stjóri Guðm. Kristjánsson, eptir 14 daga ferð frá Helsingjaeyri, hafði verið dregið út eptir þangað af gufuskipi tveim dögum áður frá Khöfn ; hefir þá fyrst verið að koma los á ísinn. Mörg skip nokkuð önnur hingað til lands komust út um sama leyti. Enn fremur komu hingað í morgun 2 hval- veiðagufuskip ný frá Norvegi (þrándheimí), Nora, er hingað kom í haust, að stærð 28 smálestir, og Othar, 33 smálestir. Fyrir þeim ræður H. Ellefsen frá Túnsbergi, og er hann útgerðarmaður beggja. Skipin fart, bæði á- leiðis í kvöld til ísafjarðar. Þingmálafundi liafði þingmaður Norður- þ>ingeyinga, Jón bóndi Jónsson á Stóru-Eeykj- um, haldið í sínu kjördæmi dagana 27. febr. til 8. marz, sinn í hverjum hreppi, nema 2 í Presthólahreppi. »Alstaðar voru menn á því, að halda áfram glímunni við Dana- stjórno. Þingmannaefni er ekki enn getið um önnur til kosninga í Norður-Múlasýslu í vor en síra Pál Pálsson á þingmúla og Jón Jóns- son bónda á Sleðbrjót. Bindindismálefni- Af Seyðisfirði skrif- að 26. febr.: »6ðum fjölgar í Good-Templ- ara-Stúkunni á Seyðisfirði, sem var næstum frá í haust sökum burtflutnings margra með- limanna og úrgöngu annara. Er sem nýtt líf hafi í hana færzt nú um áramótin. Bind- indisfjelagið (hitt) mun og heldur stækka. — Er svo að sjá, sem vinum Bakkusar fækki stöðugt, og má víst telja, að almenningur hjer geri góðan róm að uppástungu Stór- Stúkunnar um, að alþingi banni með lögum innflutning áfengra drykkja og tilbúning þeirra í landinu». Snæfellsnesi 31. marz : »Fjórir menn hjer í sýslu hafa leitazt við, að safna undirskript- um undir bænarskrá Stór-Stúkunnar til al- þingis, um að nema úr lögum heimild til þess að flytja hingað til lands áfengisdrykki. Hafa þeir fengið mjög daufar undirtektir ; enda má svo að orði kveða, að fjöldi manna hjer sjeu drykkjumenn, ef á það er litið frá bindindis- legu sjónarmiði». Isafirði 22. marz : »Bindindisfjelagið í kaup- staðnum er liðið undír lok». Barnasliólar í Isafjarðarsýslu : »1 barna- skóla kaupstaðarins, kennari kand. Grímur Jónsson, ganga í vetur 20 börn ; hjá Ara Jochnmssyni hjer í bænum eru í kennslu 9 börn ; í Hnífsdalsskólanum, kennari Eggert Jochnmsson, eru 13 börn ; í skólanum 1 Bol- ungarvík, kennari J. Gr. Kjærnestæd, eru 19 börn, og í skólanum í Haukadal í Dýrafirði er sagt að sjeu í vetur að eins 2 börn». Afmæli konungs, 71 árs, var hátíðlegt haldið í fyrra dag hjer í bænum með sam- kvæmi rúmra 20 embættismanna o. fl. á hótel «Alexandra» og dansveizlu í latínuskól- anum og hjá Good-Templurum. Mannalát og slysfarir- Frú Sigríður Einarsdóttir, ekkja prófast síra Björns Hall- dórssonar í Laufási, andaðist 19. f. m. í Kaupangi í Eyjafirði, nær sjötug (f. 25. júlí 1819). f>au hjón voru um 30 ár saman f hjónabandi. Syríir þeirra eru Vilhjálmur bóndi í Kaupangi og þórhallur prestaskóla- kennari. Tvær dætur áttu þau og, er önnur náði fullorðins aldri, Laufey, dáin ógipt fyrir nokkrum árum. Hinn 17. f. m. andaðist merkisbóndinn Olafnr Gislason á Kolbeinsá í Strandasýslu, kominn á níræðisaldur, mesti röskleikamaður fram á elliár, bezti sjómaður, mjög lengi hafnsögumaður á Hrritafirði. Hinn 28. f. m. drukknuðu 2 menn í Hauka- dalsvatni í Dölum, «Jón bóndi Benidiktsson frá Vörðufelli á Skógarströnd (albróðir Egils heitins, sem úti varð frá Köldukinn í Hauka- dal) og Jónas bóndi frá' Ketilsstöðum 1 Hörðudal, nýgiptur systur Jóns þessa Beni- diktssonar. f>eir höfðu átt að vera líkmenn að ömmu Jóns sál., riðu vatnið, en í það hvað renna kaldavermslisgil, sem aldrei er traustur ís fram undan, og þar lentu þeir, þvl báðir voru þessu ókunnir». ATHXJGASEMD. Maðurinn, sem sagt var frá \ frjettum af Eyjafirði að skemmzt hefði á hölði við brennu á gamlárskvöld af tjörukjagga, sem datt ofan á hann, svo mikið, að óv-st væri að hann fengi vitið aptur, hefir að vitni hjeraðslæknis orðið brátt alveg jafngóður ; „það sprakk að eins fyrir á höfði hans, án þess að höfuðbeinin skemmd- ust að nokkru“. Hólakirkja og orgel í hana- Nýlega kom grein í ísafold um kirkjur á íslandi, er var fróðleg og skemmtileg. Eptir því sem þar stóð, eru guðshús á ís- landi að taka miklum umbótum og framför- * um, og er það gleðilegt. Einungis er hætt við, að fleiri kirkjur sjeu sagðar þar í góðu standi, en í raun og veru á sjer stað. f>ar stóð, að Hólakirkja væri einhver elzta kirkjan, og vil eg lítið eitt minnast á hana,. og vekja athygli á henni. Hólalrirkja var í smíðurn árin 1757-1763, í 6 ár. Hún er byggð úr íslenzku grjóti úr Hólabyrðu. Hún er 40 ál. á lengd með for- kirkjunni, breidiin er samsvarandi, hæðin undir loptið er 7 ál. Hún er gerð alhvít inn- an með hvítu kalki; kórinn er upphækkaður. Að utan var hún einnig hvít, en 1886, er sjóði hennar var öllurn varið henni til að- gerðar, var hún sementeruð utan; hún er því grá nú á að sjá, og eigi jafn tilkomu- mikil til að sjá álengdar sem fyr, vegna lit- arins. En í námunda er hún tignarleg á að sjá og í að koma. Hún er vafalaust með merkustu kirkjum hjer á landi. Hún er liið eina, sem eptir stendur á Hólum af hefðar- byggingunum fornu, þegar þar var biskups- setur, skóli og prentsmiðja; en hú.n er líka veglegt minnismark hinnar fornu frægðar staðarins, og minnir augljóslega á hana. I henni éru enn margir merkir hlutir og leg- steinar, svo sem hin mjög merkilega altaris- tafla, er hvergi á laudinu er önnur eins, að minni ætlan, og er fnælt að páfinn hafi sent Jóni biskupi Arasyni hana að gjöf, í virðing- arskyni fyrir hina óbifanlegu staðfestu hans við sína trú; ennfremur skírnarfontur snild- arlega höggvinn úr íslenzku grjóti 1674, af íslenzkum snilling á sinni tíð, Guðmundi snikkara Guðmundssyni, er bjó í Bjarnastaða- hlíð í Goðdalasókn; ennfremur stórt líkneski af Kristi á krossinum, með blóðlækjum úr höndum og fótum, til vinstri handar, er inn er gengið; fagurlega gjörður prjedikunarstóll með himni yfir o. fl. Kirkjau ætti ávallt að viðhaldast í því formi, er nú er á henni, setn mjög merkur forngripur, ásamt því sem í henni er. f>að er landinu til sóma, og prýði staðarins og landsins; hún tninnir stöðugt á forna frægð liðinna tíma. Með enga kirkju hjer á landi hefir verið farið jafn-illa sem Hólakirkju; því að allar hennar miklu eignir hafa venð teknar af henni og seldar snemma á þessari öld, án þess að skilja henni nokkuð eptir, henni til viðhalds. Fjeð fyrir eignirnar rann ínn í ríkisjóðinn. Nú verður að álíta, að landssjóð- urinn njóti mikils góðs af þessari seldu eign, og að kirkjan því hafi sanngirniskröfu til hans, að styrkja sig, að því leyti sem hinar litlu árlegu tekjur hrökkva ekki henni til viðhalds í þessu formi, sem hún er nú í. En árlegar tekjur hennar af 24 bæjurn eru svo litlar, að með þeim verður henni eigi sýndur sómi. Sem stendur hefir hún þó fengið töluverða viðgerð, en enn þá hefir eigi verið gert álit á, hversu hún er af hendi leyst. Nú upp á síðkastið hefir þjóðlegur og rjett-

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.