Ísafold - 26.06.1889, Page 3

Ísafold - 26.06.1889, Page 3
203 Blöndal sýslum. Samþ. áskorun til þingsins um, að „framfylgfja stjörnarskráarbreyting- nnni á næsta þingi i líka stefnu og á und- anförnum þingum, einkum 1887, þannig, að ísland fái innlenda stjórn með fullu fjárforræði og ábyrgð fyrir alþingi". Enn- fremur var fundurinn meðmæltur búsetu fasta kaupmanna, tolli á kaffi. kaffibæti sykri, sýrópi, óáfengnum drykkjum, inn- fluttu smjöri og smjörlíki, og bækkun á tóbaks- og vinfangatolli; sömul. meðmælt- ur almennum hundaskatti (ikr. í sveitum, 3 kr. í kaupstöðum), niðurfærslu hæstu embættislauna og að eptirlaun sjeu ákveð- in með lögum í hvert skipti, og sem hagan- legastri tilhögun á gufuskipsferðum fyrir norðurland. Möðruvallaskóli skuli settur í samband við latinuskólann. Möðruvell- ingar fái ölmusustyrk. í>ingmálafundur Dalamanna. Samkvæmt fundarboðun alþingismanns Dalamanna (Jak. Guðm.) var settur og haldinn þingmálafundur að Hvammi í Hvammssveit þriðjudaginn 11. júní i88g, til þess að ræða ýms þau mál, sem vænta má að komi til umræðu og úrslita á al- þingi í sumar. þ>ingmaðurinn hafði sent fundarboðun- ina til allra sýslunefndarmanna sýslunnar, og höfðu þeir hver um sig kvatt til fundar í sínum hreppi, og voru málin þar rædd til undirbúnings undir þingmála- fundinn, og síðan kosnir 2 til 4 menn á þingmálafundinn úr hreppi hverjum. Voru þannig mættir úr sýslunni alis 22 kosnir menn, og auk þess mættu nokkrir menn ókosnir. 1. Var rætt um stjórnarskrárbreytingar- máliff, og voru allir fundarmenn eindreg- ið á því, að alþingi hjeldi áfram því máli i sömu aðalstefnu og á hinum síðustu al- þingum. 2. Ræddi fundurinn um samgöngumálið. og kom mönnum saman um, að inniend- ir gufubátar væru hið bezta samgöngu- meðal, og lofuðu fundarmenn, að gera sitt hið bezta til þess, að safna „actium“ til gufubátskaupa, er gengi sunnan og vestan lands, með því skilyrði, að lands- sjóður ábyrgist hæfilegar rentur af „acti- unum“, og sjái um, að Hvammsfjörður og Gilsfjörður verði upp mældir fyrir á- gústmánaðarlok i8go. Fundurinn hjelt hentugast, að þingið færi því fram, að stjórnin legði til 2 mælingarfróða menn á kostnað rikissjóðs, en landssjóður kosti uppmælinguna að öðru leyti. 3. Var rætt um hjerlenda búsetu kaup- manna, og voru allir á því, að löggjöfin ætti að sjá um, að allir þeir, sem hefðu atvinnu af atvinnuvegum landsins, sjeu búsettir í landinu. 4. J>á kom til umræðu alpýðumenntun- armáliff' og voru flestir fundarmenn á því, að góðir sveitakennarar væru ómiss- andi, einkum til sveita, þar sem ekki væri hægt að koma við reglulegum skól- um, og óskuðu því fundarmenn, að lands- sjóður vildi styrkja slíka sveitakennslu ríflega, meðan reglulegir skólar geta ekki komizt á. 5. Var rætt um eptirlaun embættis- manna, og voru allir fundarmenn ein- dregið á því, að fastákveðin eptirlaun væru úr lögum numin. 6. Var rætt um skattamálið, og voru aJlir fundarmenn á, að auka tekjur lands- sjóðs með tollum, og samþykktu allir fundarmenn 5 aura toll á kaffi og kaffi- r°t>_ 3 a. af sykurpundinu, að tvöfalda tollinn af tóbaki, en fjórfalda hann á vindlum, tvöfalda toll á brennivíni og öli, en þrefalda hann á hinum dýru vínum, tolla gosdrykki eins og öl, 20 a. toll á hvert pund af aðfluttu smjöri, 10 a. á pund af ostum og niðursoðnum mat. legrgja á alla álnavöru, tvinna og litar- efni 10%, á glysvarning 20%. 7. Var rætt um, hvort afnema skyidi ábiíðar- og lausafjárskatt. Eptir langar umræður var gengið til atkvæða með nafnakalli, og sögðu allir já, nema Torfi i Olafsdal, síra Olafur á Staðarhóli og prófastur Jón Guttormsson. 8. þ»á kom til umræðn lækkun á laun- um nokkurra hinna hálaunuðustu embætt- ismanna, og álitu fundarmenn, að uppá- stunga hinna síðustu alþinga i þessu til- liti hafi verið mjög sanngjörn. 9. pá kom til umræðu um vaxandi sveitarpyngsli. Fundarmenn voru á því, að menn hefðu nú allt of greiðan aðgang að ráðstöfun sveitarstjórnanna og styrk úr sveitarsjóðurn, og komust því til þeirr- ar niðurstöðu, að afnema alla lagaskyldu til að annast þá menn og fjölskyldur þeirra, sem hafa heilsu til að vinna fyr- ir sjer og sínum. Fundurinn vildi. að þingið sæi fyrir, að til sje eitt vinnuhús fyrir þá menn, sem sveitastjórnirnar geta ekki notað innsveitis og ekki geta sjeð fyrir sjer sjálfir. Fundurinn gaf atkvæði fyrir, að vistarskyldan væri af numin, ef sveitarsjóðum væri iokað fyrir vinnandi mönnum. Gengið til atkvæða með nafna- kalli, og sögðu alfir já, nema (þorvarður hreppstjóri á Leikskálum og Ásmundur hreppstjóri á Sauðafelli. 10. £>á kom til umræðu, að reglugjörð fyrir bankann þyrfti breytingar við, og þótti fundarmönnum rentur bankans of háar og afborgunarskilmálar of strangir. f>að var þvi eindregin ósk fundarmanna, að vextir af bankalánum verði hjeðan af 4-—4V'2%’ og renturnar ekki teknar fyrir fram, og bágstöddum lántakendum gefinn allt að 10 ára frestur með afborgun, ef þeir standa í skilum með renturnar ár- lega og útvega sjer áreiðanleg vottorð um, að hinar veðsettu jarðir sjeu i sæmi- legri ábúð. Fundarmenn voru eindregið á því, að bezt væri, að bankastjórinn hefði engum öðrum störfum að sinna. 11. þ>á kom til umræðu brjefleg uppá- stunga um breyting á lögum um friðun œðarfugla, sem fylgir fundargjörðunum, og voru fundarmenn samþykkir uppá- stungunni í öllum aðalatriðum. 12. pá var rætt um læknis-leysið í Dala- sýslu, og þar sem reynsla er orðin á, að enginn læknir hefir fengizt, þrátt fyrir hinar lofuðu 1000 kr., þá áleit fundurinn ástæðu til að óska, að alþingi ákveði, að Dalasýsla, ásamt Bæjarhrepp í Stranda- sýslu, verði hjer eptir læknishjerað með 1500 kr. launum. 13. þ>á var rætt nm tillag það, sem þingið leggur til búnaðarlegra framfara, og sem þegar er ákveðið að landshöfð- ingi útbýti til búnaðarfjelaga, og fann fundurinn ástæðu til að óska, að þingið láti semja glöggar reglur fyrir því, hvað telja skuli til jarðabóta og búnaðarlegra framfara, og hvað leggja skuli í fullgilt dagsverk af hverri jarðabótategund fyrir sig, svo að reglur þessar verði sjálfum sjer samkvæmar um allt land. 14. J>á var rætt um sjómannaskóla, og þótti fundinum ástæða til, að skora á al- þingi, að leggja fram fje til gagngjörðr- ar sjómannakennslu, og til að styrkja efnilegan mann til að læra að fara með gufubát og gangvjel gufubáta. 15. J>á var rætt um, að póstgöngur til Vesturlandsins væru ónógar að sumrinu, og óskaði því fundurinn, að þessar póst- göngur yrðu að minnsta kosti einu sinni í mánuði hverjum. J>ar eð ekki kom fleira til umræðu var fundi slitið, ár og dag sem fyr greinir. 'Jakob Guðmundsson. fundarstjóri. Magnús Magnnsson, fundarskrifari. Barðastr.sýslu (vestanv.) 18. júní. Siðan um kveldið 25. f. m. hefir yfir höfuð verið vætutíð, og optast fremur óstöð- ugt veður. en þó sjaldan stórkostleg rigning nje miklir stormar, og alltaf hlýtt, allt að 12° hiti R. um hádegi opt og tíðum. Kring um uppstigningardaginn krapa, og snjóaði á fjöll, en tók óðar upp aptur, og i gærkveldi og nótt var mikil rigning. Gróðrarveður hefir verið hið bezta þennan tíma, en alltaf slæmar gæftir til sjávar. Tún eru víða orðin vel slæg, einkum kring um bæi og önnur hús, og má án efa taka í lang-fyrsta lagi til sláttar. Engjar og úthagar er og orðið töiuvert sprottið ; jafnvel uppi á fjöllum er allt orðið skrúðgrænt. Sauðburður hefir yfir höfuð gengið á- gætlega, enda þótt nokkur lömb færust á sumum hæjum í upp-tigningardags-kast- inu, og allar skepnur eru nú i bezta standi. Kýr þegar komnar í hjer um bil fulla hásumars-nyt; beitt út fyrir hjer um bil mánuði eða meira. Fremur er hjer aflalítið á opin skip, enda gefur mjög sjaldan. þnlskipin hafa aflað dável.—Um hvítasunnu var sagt 3000 komið á skip í Dölum, og hæst um 1200 í Tálkn'afirði.—Dágóður afli á Barða- strönd \Siglunesi,. ísafirði 17. júní: Hjer er bezta tíð, grasvöxtur sýnist ætla að verða ágætur. Fiskiafli á opnum skipum með minnsta móti síðan á páskum, og engin síld feng- izt í beitu. Hákdrlsafli góður, á 4. hundr- að tunnur á skipi mest, og allgóður þorskafli á þilskipurn. Hvalamennirnir á Flateyri hafa fengið 16 hvali, og þeir á Langeyrinni 17. Straiulasýslu (sunnanv.). 10. júní: „ Fíð- arfarið er ágætlega gott, og hefir verið svo í allt vor. Jegman ekki til, að nokk- urn tíma hafi komið frost síðan 23. apríl. Mjög vætusamt hefif verið nú um tíma og gróðrarveður ágætt, enda lítur ágæt- lega út með grasvöxt. þ>að mun langt siðan, að tún hafa verið jafnvel sprottin hjer um slóðir, eins og þau eru nú. £>að mun óhætt að fullyrða, að það sjeu að eins „gömlu mennirnir“, sem muna eptir jafngóðu vori sem þetta hefir verið. Vonandi er, að þetta góðæri líði ekki svo hjá, að menn vinni sjer ekkert til gagns og sóma. Fyrsta verzlunar-skip kom til Borð- eyrar 9. f. m., hlaðið vörum til Clausens- verzlunar. 2 skip önnur eru nýkomin. Oss Strandamönnum er nýtt um að fá „siglinguna“ svona snemma, þvf undan- farin ár hafa ekki skip komið á Borðeyri fyr en um 20. júní. Ekki eru hjer nein- ar hreyfingar með pöntunarfjelag; má vera að menn sjeu hjersvo ánægðir með Borð- eyrarverzlanirnar, að þeir vilji ekki breyta til. Líklegast á þá ekki hjer við hið fornkveðna: „jþangað er klárinn fúsastur, sem hann er mest þrælkaður“. Hilnavatnssýslu (vestanv.) 10. júní:„Nú eru tún orðin betur sprottin en í júlibyrj- un árin að undanförnu frá 1884 að telja og úthagi eins, en hjer hafa líka verið að heita hefir mátt óvanalega miklar úrkom- ur; öll fjenaðarhöld hafa orðið með lang- bezta móti; við fáum unnvörpum tvílembt og fæðir vel. Aflavart er farið að verða norður f Nesjum á Skaga, og er það í fyrsta lagi“.

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.