Ísafold - 31.07.1889, Blaðsíða 1

Ísafold - 31.07.1889, Blaðsíða 1
K.emu? iit á miðvikudögum og laugardögum. Verð árgangsins {T04arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist fyrir miðjan júlímánuð. ISAFOLD. Uppsögn (skrifieg) bundin við áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir i.okt. Af- greiðslust. í Austurstrœti 8. XVI 61. Reykjavík, miðvikudaginr 31. júlí. 1889 Ísíiifolilfæst fyrir 2 kr frá byr]un júlímán. þ. á. til ársloka, 52 blöð alls, og er þessi hálfi árgangur miklu meira mál en heill árgangur af öðrum blöð- um hjer á iandi, sem kosta allt að 4 kr. þar að auki fá nýir kaupendur að þessum hálfa árgangi, þegar þeir eru búnir að borga hann, ókeypis hið ágœta Sögusafn Isafoldar Þ- á. sjerprentað sem bók, á að giz.ka 300—400 bls. Sullaveikin og hundaskattur Ef það er satt, sem læknar hafa sagt, að 15. hver íslendingur sje sullaveikur, og ef þess einnig er gætt, hvílíkum harmkvælum, manntjóni, fjártjóni og sorg sjúkdómur þessi veldur, þá sýnist það vera ein með hinum alvarlegri spurningum, er íhuga þarf á þess- um tímum: hvernig auðið sje að útrýma sulla- veikinni. Væri veiki þessi ein af þeim sjúk- •dómum, er menn vita ekki hvernig á stendur, þá dygði ef til vill ekki að tala um böl þetta, heldur bera það sem hverja aðra landplágu. En nú vita menn vel um orsök sullaveikinnar, vita, að hún myndast af því, að bandormaegg úr hundunum komast í menn. Er þessi orsök þannig löguð, að ómögu- legt sje að koma i veg fyrir hana? Sje svo, þá liggur ómögulegleikinn í áhuga- leysi og samtakaleysi að miklu leyti. I sjálfu sjer ætti ekki að vera ómögulegt að varna því, að bandormaegg úr hundum berist í menn, svo að brögð sjeu að. En eina ráðið til að varna því er, eptir því sem tilhagar hjer á landi, það, að eyðileggja band- ormana í öllum hundum á, landinu með orm- drepandi lyfjum. þetta ráð er þannig lagað, að seint myndu allir landsbúar fást til að vera samtaka í því, og því verður lögjafarvaldið að koma til sögunn- ar, og gefa út lög um það. þau lög væru harla þarlleg. Ef slík lög væru gefin út, þá væri mikið undir því komið, að allar ákvarðanir í þeim væru hyggilegar. þar til tel jeg fyrst og fremst það, að engin sú ákvörðun sje gjör, er fæli almenning frá að gefa fram hvern einasta hund til lækninga. þess vsgna er það hið mesta óráð, að leggja á almennan hundaskatt. Hvað er á móti skatti þessum? Astæður til að leggja á almennan hunda- skatt geta að eins verið tvær; önnur sú, að fá tekjur, hin su, að útrýma sullaveikinni. þegar um fyrri ástæðuna er að ræða, þá þarf að athuga, hvort hundar eru rjettlátleg- ur gjaldstofn. Hjer koma þá til skoðunar að eins nauðsynlegir hundar; því á hinum ó- nauðsynlegu hundum er þegar 4 kr. skattur eptir tilskip. 25. júní 1869. En hinir nauðsynlegu hundar — hvað eru þeir ? Neyðar-illendi (malum necessarium) við sveitabúskapinn. Sjerhver sá búandi, ríkur eða fátækur, sem nokkurn fjenað á, hann getur ekki með nokkru móti án þess verið, að hafa hund eða hunda. Margir búendur vildu mik- ið til gefa, að þurfa engan hund að hafa. En það dugar ekki. það er ekki hægt að verja tún, reka úr engjum, reka fje á afrjett eða af, smala hagana, án þess að hafa hund. það eru vissir erviðleikar við sveitabúskapinn, sem varla verður sigrazt á nema með hundi. Að eins vegna þessara erfiðleika verða hundarnir að vera. Að öðru leyti eru þeir arðlaus og vcrðlaus hlutur, en sem þó hefir nokkurn kostnað (fæði) í för með sjer. Aldrei að heita megi, nema þegar hundafár gengur, er hægt að fá svo mikið sem 1 krónu fyrir hund, og þegar hundi er styttur aldur, er hann dysjað- ur með húð og hári. Einhver kann að segja, að hestar sjeu líka hafðir vegna erfiðleika við búskapinn, og þó sje tíund goldin af þeim. Kn þar við er athugandi, að í hestinum er verð, og ekki er fyr goldin tíund af honum en hann er kominn á vissan aldur, og tíundin er sárlít- ill hluti af verði hans. En ef leggja ætti skatt á sjerhvern nauð- synlegan hund, þá er það með öðrum orðum að leggja skatt á verðlausan hlut, á einn af hinum mörgu annmörkum og erviðleikum og útgjöldum við búskapinn, hlut, sem engan annan arð gefur af sjer en þann, að hann gerir mönnum mögulegt að hafa einhvern hemil á þeim skepnum, sem tíund er goldin af og ýmisleg önnur gjöld. Er þetta sann- gjarnlegur gjaldstofn? Hjer við bætist, að skattur þessi kæmi ekki á menn í nein- umeðlilegum hlutföllum við efni þeirra. Anðugur bóndi á einni jörð þarf margopt færri hunda en fátæklingur á annari. Slíkt fer eptir erfiðleika jarðanna. því erfiðari sem smalamennska er á einni jörð, þess hcerri hundaskattur. það þarf ekki að taka fram, að skattur þessi myndi lenda mestmegnis á landbúnaðinum. Svona lagaður hundaskattur mundi verða afar-óvinsæll. Hann mundi bæta gráu ofan á svart um tlundarsvikin. Ef menn þykja telja illa fram til tíundar á surnum stöðum, þá mundu þeir telja hálfu ver fram til slíks hundaskatts. Og þyki sumir hreppstjórar ganga lítt eptir tíundarframtali, þá myndu þoir hálfu ver ganga eptir hundaframtali. I þeim tilgangi, að fá tekjúr, er því alrnenn- ur hundaskattur svo ranglátlegur og óheppi- legur, sem mest má verða . En þá til að útrýma sullaveikinni ? Vera má, að hundum fækkaði lítið eitt við almennan hundaskatt. Miklu gæti það þó ekki munað. þar sem 1 og 2 hundar eru nú á heimili, þar yrðu þeir að vera áfram, víðast. Ovíða munu vera fleiri en 3 eða 4 hundar á heimili. Nú kann það að geta gjört eitthvað til, að því er snertir hættu af hund- unum, hvort þeir eru á einu himili 3 eða 4. En setjum svo, að einhver við himdaskattinn lói 1 hundi af 4 og hafi eptir 3. Ef sá hús- bóndi fer hirðulauslega með sulli, ef hann læt- ur þessa 3 hunda sleikja ílát, lepja neyzlu- vatn úr ílátum, peðra út varpa og tún þar sem börn leika sjer o. sv. frv., þá mun hætt- an vera lík, þótt hundarnir sjeu ekki 4, heldur að eins 3. Og aptur, sje að öllu leyti farið svo varlega sem unnt er, þá mun minnst gera til um þenna 1 hund af 4. En jeg vil nú gera ráð fyrir, að það lögmál verði út gefið, að gefa skuli öllum hundum inn ormdrepandi meðal, og þá gerir almenn- ur hundaskattur stórmikið illt. Hann kemur því til leiðar, að menn fara að leyna því, hve marga hunda þeir eigi, alveg eins og svo margir nú leyna af öllum mætti, hve margar aðrar skepnur þeir eigi, og þá verða hund- ar út undan, sem ekki verða læknaðir. Ef oss er alvara að útrýma sullaveikinni með því að lækna bundana, þá má ekkert það gera, er getur á nokkurn hátt gefið eigingirni hvöt til að skjóta hundi undan. þess vegna má hvorki hafa almennan hunda- skatt, og ekki heldur láta hvern einstakan búanda kosta lækningu á sínum hundi bein- línis, þó það væri í sjálfu sjer rjett. þar á móti ættu þeir, sem falið væri á hendur að lækna hundana, að fá þóknun fyrir hvern hund, sem þeir lækna. það væri þeim hvöt til að lækna sem flesta, og láta engan hund eptir verða. Landlækninum yrði sjálfsagt falið á hend- ur að semja reglugjörð um lækningu á hund- unum. Væri þá óskandi og vonandi, að honum yrði ekki hið sama á, sem læknunum varð forðum, þegar þeir gáfu reglu um lækningu fjárkláðans: að fyrirskipa þau meðul, eða þá samsetuingu á meðulum, er ónýt reyndist til lækninga. Fyrir þá yfirsjón hugsuðu margir ranglega, að kláðinn væri ólæknandi. Reynsla raargra sýndi, að það var ekki. Einungis urðu bændur að taka leyfi hjá sjálfum sjer til að setja baðmeðulin saman helmingi sterk- ari en læknarnir höfðu fyrirskipað, og þá fyrst hrifu þau. það er vonandi, að landlæknirinn skipi svo fyrir um lækningu hundanna, eða útrýming bandormanna, að fyrirhöfn og og kostnaður, sem til þess verður varið, nái tilganginum. Jeg álít því því rnjög æskilegt, að núver- andi alþingi vildi taka mál þetta að sjer og gefa um það lög, sem jeg hefi hugsað mjer að gætu verið eitthvað í þá átt, er á eptir fer. FRUMVARl’ til laga um varnir gegn sullavciki. 1. gr. í hverjum hreppi og hverjum kaupstað skal árlega skrásetja tölu allra hunda á hverju heimili þar. Sjerhver húsráðandi telur fram til skrásetningar hvern hund á heimili sínu, hvort sem hann á hann sjálfur eða aðrir. í sveitum fer þetta fram á hreppskilaþingi á vorin, en í kaupstöðum i fardögum. Hreppstjórar skrásetja í sveitum, en lögreglustjórar í kaupstöðum. Skal til þess höfð bók, sem er löggilt af hlutaðeigandi amtmauni. 2. gr. Sjerhver hreppsnefud eða bæjarstjórn skal á hreppskilaþingi eða í fardögum ákveða með ráði hrepps- eða bæjarbúa, hve margir hundar hverju heimili þar eru nauðsynlegir, til þess að varið verði tún og engjar, búpeningur hirtur o. s. frv. Skal rita þetta í bók þá, sem getið er í 1. gr., og annast oddviti um það. þurfi síðar að breyta tölu hinna nauðsynlegu hunda á einu eða fleiri heimilum, skal jafnan gjöra pað á sama tíma árs og sje það einnig ritað í bókina.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.