Ísafold - 03.08.1889, Síða 2
246
armýrar prestaköllum, eða þegar prest-
arnir í þessum prestaköllum samþykkja
breytinguna, án nokkurs tilkalls til upp-
bótar úr landssjóði.
XII. Viðaukalög við lög nr. 5, 27. febr.
1880, um stjórn safnaðarmála og skipun sókn-
arnefncla og hjeraðsnefnda.
1. gr. Ef meiri hluti þeirra sóknarmanna,
er safnaðarfund sækja og atkvæðisrjett
hafa á safnaðarfundi, samþykkir að taka
upp og hafa hljóðfæri við tíðagjörð í kirkju
sinni, þá ber eiganda eða umráðamanni
kirkjunnar að annast um, að hljóðfæri sje
keypt fyrir kirkjunnar fje, svo framarlega
sem fje er íyrir hendi, sem kirkjan getur
án verið, og hjeraðsfundur samþykkir.
Hljóðfærið telst síðan með áhöldum kirkj-
unnar. En hvort sem hljóðfæri er keypt
fyrir fje kirkju eða eigi, skal söfnuðurinn
kosta hljóðfærasláttinn og haldasöng uppi
á sinn kostnað, nema eigandi eða forráða-
maður kirkju gefi samþykki sitt til, að
greiða megi kostnaðinn að nokkru eða öllu
af kirkjunnar fje, og hjeraðsfundur síðan
samþykki, að svo skuli vera.
2. gr. Ef söfnuðurinn kostar kirkju-
sönginn að nokkru eða öllu, þá skal sókn-
arnefndin, með umráði prestsins, jafna nið-
ur á sóknarmenn alla, þá er eigi eru
skylduómagar eða sveitarómagar, kostn-
aðinurn af söngkennslunni og hljóðfæra-
slættinum, eður og söngnum, ef hljóðfæri
er eigi haft, og skal það vera aðalreglan,
að helmingur kostnaðarins komi jafnt á
hvern tilskyldan mann, en annar helm-
ingurinn fari eptir efnum manna og á-
stæðum.
3. gr. Sóknarnefndir innheimta gjaldið,
og skal hver húsráðandi inna það af hendi
fyrir sig og skyldulið sitt. Gjalddagi er
31. des. Taka má gjald þetta lögtaki
samkv. lögum 16. des. 1885.
XIII. Löq um viðauka við löq um veqi 10.
nóv. 1887.
Amtsráð geta eptir tillögum sýslunefnda
veitt undanþágu frá ákvæðum laga 10.
nóv. 1887 um breidd sýsluvega, og sýslu-
nefndir eptir tillögum hreppsnefnda um
breidd hreppavega, þegar landslagi er svo
háttað á einhverjum stað, að sjerstakar
ástæður mæli með því.
Fjárlaganefndarálitið. í tekjubáiknum
stingur nefndin ekki upp á öðrum verulegum
breytingum við stjórnarfrumvarpið en að
áætla ábúðar- og lausafjárskattinn 2000 kr.
hærri á ári (40,000, í stað 38,000) og að veita
Húnavatnssýslu frest á afborgun af hallæris-
láni árið 1890.
I gjaldabálkinum stingur nefndin upp á
ýmsum breytingum, en fáum verulegum.
Hún vill veita 500 kr. síðara ár fjárhagstíma-
bilsins (1891) til aðstoðarmanns við hina
umboðslegu endurskoðun, vegna aukins starfa
sakir hinna nýju tolla.
Búnaðarskólastyrknum, 10,000 kr. á ári,
vill hún skipta þannig : Ólafsdalsskóli 2500,
Hóla 3500, Eiða 2000, Hvanneyrar 2000.
Meðal búnaðarstyrks vill nefndin veita
Edilon Grímssyni 300 kr. til að útvega sjer
verkfæri til þilskipasmíða árið 1890, og síra
Oddi V. Gíslasyni 500 kr. til að ferðast um
og leiðbeina mönnum í ýmsu, er lýtur að
sjósóknum og fiskiveiðum.
Af vegabótafje vill nefndin veita Erlendi
Zakaríassyni 400 kr. á ári í 2 ár til að læra
vegagjörð í Norvegi.
Gufuskipsferðastyrkinn vill nefndin hækka
upp í 21,000 kr. á ári (úr 9,000), og skipta
því fje þannig: «til gufuskipsferða slíkra sem
nú eru 9000 kr., til aukinna strandferða
9000 kr., styrkur til ísfirðinga til að halda
uppi gufubátsferðum á Vestfjörðum 3000 kr.».
Aukalækni ejnum vill nefndin bæta við, í
þingeyjarsýslu fyrir austan Jökulsá, með
1000 kr. launum.
Til póstflutninga vill nefndin veita 1000 kr.
meira en stjómin stingur upp á, eða 22,000
kr. á ári alls, til þess að fjölga aukapóst-
ferðum : Keflavíkurpóstur haldi áfram um
Hafnir til Grindavíkur, aukapóstur gangi frá
Saurbæ út á Akranesskaga, og auknar póst-
göngur í Norður-Mulasýslu.
Bráðabirgðauppbót til Gufudals færð upp í
300 kr. «til húsabyggingar á staðnum».
Styrk til kvennaskóla vill nefndin hækka
um 300 kr. handa hverjum þeirra, veita
Evíkurkv.skóla 1800 kr. alls, Ytri-Eyjar
1000 kr., Laugalands 1000 kr.
Til þjóðvinafjelagsins stingur nefndin upp
á tvennum 400 kr., til hins ísl. náttúrufræð-
isfjelags sömul. tvennum 400 kr. «til að koma
á fót náttúrugripasafni handa almenningi»,
og til Sigf. Eymundssonar til að halda áfram
útgáfu ritsafnsins «Sjálfsfræðari» tvennum
600 kr.
Eptirlaunafjárveitingin hækkuð upp í 90,000
kr. fyrir fjárhagstímabilið.
Tekjuhalli í lok fjárhagstímabilsins ráð-
gerður 146,000 kr. það eiga hinir nýju tollar
að bæta upp.
„Gjöf Jóns Sigurðssonar“. Eptir
reikningsskýrslu landshöfðingja til alþingis
27. f. m. nemur sá sjóður nú kr. 9760,69.
Verðlaun hafa verið goldin úr honum í fyrsta
skipti þetta ár, 400 kr., til adjunkts þorv.
Thoroddsen, fyrir ritgjörð hans um »þekking
manna og hugmynd um Island frá elztu tím-
um fram að siðabót.«
Fensmarksmálið. Fjárlaganefndin legg-
ur til, að veíttar sjeu í fjáraukalögum (1888
og 1889) 1000 kr. til hæstarjettarmálaflutn-
ingsmanns Octavíusar Hansens fyrir aðstoð í
Fensmarksmálinu í þarfir þingsins.«
Möðruvallaskólinn. Frumvarpið um
hann. frá P. Briem, ætlast til, að hann
sje lagfður niður, skólahúsið á Möðruvöll-
um afhent til afnota fyrir kvennaskóla á
Norðurlandi, en gagnfræðakennsla, hin
sama og á Möðruvöllum. sett á stofn í
lærða skólanum í Reykjavík, með Möðru-
vallakennurunum, með sömu launum og
nú, og heimavist lærisveina í lærða skóí-
anum afnumin.
Laxafriðun. Lagafrv., frá Árna Jóns-
syni, er hið sama og hann bar upp á
þingi 1887, en varð eigi útrætt þá.
Fjárbænarollan, sem fjárlaganefndin
hefir hatt úr að moða að þessu sinni, hefir
inni að halda 58 bænir alls. þ>ar afhefir
nefndin tekið 32 að einhverju leyti til
greina, en þessar 26 hefir hún eigi sjeð
sjer fært að taka til greina:
33. Frá prestinum í Holtsprestakalli um
uppgjöf á 2000 kr. láni úr landssjóði
til prestakallsins.
34- — sýslunefnd Húnavatnssýslu um upp-
gjöf á 2250 kr. eptirstöðvum af 4000
kr. láni úr landssjóði, ervarið hefir
verið til sýsluvega á aðalpóstleið.
35. — landlækni Schierbeck um 400 kr.
styrk á ári handa aðstoðarmanni
við garðyrkju.
36. — sjera þorkeli Bjarnasyni á Reyni-
völlum um 100 kr. styrk á ári tilað
halda áfram laxaklaki.
37. — Alberti Jónssyni um 5 til óookr.styrk
á ári, tii að koma á fót innlendri
skinnaverkun.
38. — Snæfellingum um aukalækni í Olafs-
vík.
39. — Mýramönnum um aukalækni í vest-
ustu hreppum Mýrasýslu og aust-
asta hreppi Hnappadalssýslu.
40. — Árnesingum um aukalækni á Eyr-
arbakka.
41. —tannlækni O. Nickolin um einhvem
lítinn styrk, til að geta haldið á-
fram tannlækningum.
42. —sóknarnefndinni í Helgastaðasókn
um uppbót úr landssjóði til Helga-
staðaprestakalls, þannig, að brauðið
fái allt að i20okr. tekjur á ári.
43. — sóknarmönnum iDýrafjarðarþingum
um 3000 kr. fjárveiting ti! brauðsins
til að kaupa jörðina Gerðhamra.
44. — safnaðarfundi í Stóruvallaprestakalli
um 300—400 kr. uppbót til presta-
kallsins.
45. — sjera Jóni Jónssyni um uppgjöf á
400 kr. árgjaldi frá Stað á Reykja-
nesi.
46. — sóknarnefndunum í Grundarþinga-
prestakalli í Eyjafirði um aðpresta-
kall þetta verði bætt upp.
47. — sóknarnefndinni í Hvammssókn {
Laxárdal í Skagafjarðarsýslu um
5—600 kr. styrk úr landssjóði til að
kaupa 5 kúgildi handa Hvamms-
prestakalli og hressa við staðarhúsin..
48. — forstöðukonu kvennaskólans í Rvík
um að hækka styrk til námsmeyja
úr 300 kr. upp í 500 kr.
4Q. — nokkrum mönnum á Akureyri um
styrk til barnaskólans þar.
50. — hinu íslenzka kennarafjelagi um
200 kr. styrk á ári.
51. —yfirkennara H. Kr. Friðrikssyni um
250 kr. styrk til nýrrar útgáfu hinn-
ar þýzku málmyndalýsingar hans.
52. — fangaverði S. Jónssyni um 300 kr.
fyrir olíumynd af SigurðiGuðmunds-
syni málara handa forngripasafninu.
53. —stud. mag. Boga Th. Melsteð um
1000 kr. styrk til að stunda íslands-
sögu.
54. —cand. phil. Gesti Pálssyni umóookr.
styrk á ári, tvö árin hin næstu, til
ritstarfa.
55. — dr. phil. Jóni þorkelssyni í Khöfn
um, að styrkveitingin til fornbrjefa-
safnsins yrði að eins bundin við, að
gefnar væru út árlega ió arkir í
staðinn fyrir 24.
56. — organleikara Magnúsi Einarssyni
5—600 kr. styrk til utanferðar, til
þess að fullkomnast i sönglist.
57. — Skúla Skúlasyni á Akureyri um
styrk til að nema málaralist.
58. — fyrver. umboðsmanni A. O. Thorla-
cius í Stykkishólmi, um 300 kr.
styrk í elli hans.
Tíðarfar er enn jafn fágætt að blíðu og
að undanförnu í sumar, víðast sem til spyrzt
hjer um land. Onnur eins árgæzka hefir
varla komið fram undir hálfa öld. Nýkom-
inn maður að norðan segir vera farið að slá
þar tún í annað sinn sumstaðar.
I Verzlun. Ákveðið verð á saltfiski hefir
líklega aldrei verið eins seint að fæðast hjer
um slóðir, eins og í sumar. Kaupmenn hafa
almennt með engu móti viljað gefa rneira en
42 kr., en bændur farið fram á 50. Líklega
verður það að samkomulagi á endanum, að
verðið verði 45 kr., enda munu nú sumir
kaupmenn farnir að gefa það ; einstöku raun-
ar 47 — 48 kr., en það er af sjerstökum á-
stæðum og verður ekki talið með almennu
vöruverði.
Fyrir ull var gefið í kauptíðinni almennt