Ísafold


Ísafold - 03.08.1889, Qupperneq 3

Ísafold - 03.08.1889, Qupperneq 3
247 kosti hefir mjer aldrei tekizt að finna það, þó jeg optar einu sinni hafi gjört tilraun til þess. Ásum 20. marz 1889. Daniel Sigurösson. Eiðaskólinn. Herra ritstjóri! í 15. tbl. Fj.konunnar, frá 28. [ maí þ. á., stendur grein nokkur um Eiðaskólann. Af því það lýsir sjer í þessari grein að hún sje sprottin af hinni vanalegu góðgjörnu hugulsemi, er greinirnar úr Múlasýslu í því blaði hafa að undan- förnu borið með sjer, þá get jeg ekki látið hjá líða að lýsa þvi yfir, að grein þessi er að miklu leyti illgirnisleg ósannindi, sjer i lagi viðvíkjandi reikningsfœrslu Eiðaskólans. Mjer er þetta per- sónulega kunnugt, þar sem jeg hef optast nær verið annar af endurskoðunarmönnum, og mun hið háttvirta amtsráð vort geta bezt borið um, hvenær vantað muni hafa „tveggja ára reikninga skólans11. „Að það sje haft að orðtæki eystra, þegar eitthvað týnist og finnst eigi, að það sje komið í skjóðuna til Eiðaskólareikninganna11, hef jeg ekki heyrt, og lýsi því þetta “orðtak,, hreina og beina lygi, á meðan orðtak þetta er ekki til nema sem háðsletta einstaks manns eða sárfárra. Jeg leyfi mjer jafnframt að benda ritstj. „Fj,- kon.“ á, að honum væri hyggilegra að vera hjer eptir vandari að fregnriturum hjeðan að austan en hann hefir verið nú um hríð, fyrst hann lætur sjer svo annt um það sem fer fram hjer i Múla- sýslum, eins og hann virðist hafa gert síðan i fyrra sumar, svo að fregnritararnir þurfi ekki að sæta sektum fyrir ósannindi sín, og ritstjórinn baki eigi blaði sinu þá hneysu, sem þvi getur riðið að fullxi. Jeg segi honum það i einlægni^ að margir hjer eystra eru mjög óánægðir með þenna rithátt blaðsins, fyrir utan hinar margítrek- uðu guðleysis-greinir, sem blaðið er að útbreiða — og að mjög marga kaupendur hlýtur blaðið hjer eptir að missa með slíku áframhaldi. Af því jeg hei eigi verið í neinum brjefaskript- um við ritstj. „Fj.kon.“ hingað til, og býst eigi við að gjöra það eptirleiðis, þá bið jeg hinn hátt- virta ritstj. „Isafoldar11 að taka þessa áminningu frá mjer — og mý-mörgum öðrum — í sitt heiðraða blað. J>ingmúla 29. júní 1889. Páll Pálsson. Proclama. Eptir lögum 12. april 1878 óg o. br. 4. jan.. 1861 er hjer með skorað á þá, sem til skulda telja i dánarbúi Sœmundar Einarssonar í Vatna• garði i Rosmhvala-neshreppi, er andaðist þar hinn 17. marzm. þ. á., að gefa sig fram við mig og sanna kröfur sinar innan 6 mánaða frá birtingu auglýsingar þessarar. Skrifstofu Kjösar- og Gullbringusýslu 3o júli 1899. Franz Siemsen. ProQlama. Eptir lögum lögum 12. apríl 1878 og 0. br. 4. jan. 1861 er hjer með skorað á þa, sem til skulda telja í dánarbúi Einars Jónssonar i Skemmunni í Grindavik, sem dó hinn 18. mai þ. á., að gefa s-ig fram við mig og svnna kröfur sinar innan 6 mánaða frá siðustu birtingu aug- lýsingar þessarar. Skrifstofu Kjósar- og Gullbringusýslu 30. júlí t889. Franz Siemsen- AU GLY SINQ AR í samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.) hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða setning I kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg. út í hönd, Ölverzlun. Vindlaverzlun, 9. Aðalstræti 9. Proclama. Eptir lögum 12. apríl 1878 og 0. br. 4. jah. 1861 er hjer með skorað á þá, sem til skulda telja í dánarbúi Sveins Eeúkssonar á Brekku í Rosmhvalneshreppi, er drukknaði hinn 13. þ. m., að gefa sig fram við mig og sanna kröfur sínar innan 6 mánaða frá síðustu birtingu aug- lýsingar þessarar. Skrifstofu Kjósar- og Gullbringnsýslu 30. júli 1889. Franz Siemsen. Uppboðsauglýsing. Eptir kröfu yfirrjettarmálfœrslumanns Guðl. Guðmundssonar og að undangengnu fjárnámi 30. f. m. verður bœr Magnúsar Jónssonar í KaplaskjóLi samkvæmt lögum 16. des. 1886, með hliðsjón af opnu brjefi 22. apríl 1817 seldur, til lúkningar skuld eptir sœtt, að upp- hæð 508 kr. 48 aur. með kostnaði, við 3 op- inber uppboð, sem haldin verða 2 hin fyrstu á skrifstofu bœjarfógeta laugardagana 17. og 31. p. m., og hið siðasta í bcenu?n sjálfum laugardagimi 14. september þ. á. Uppboðin byrja kl. 12 ofa?mefnda daga, og söluskilmálar verða til sýnis hjer á skrifstof- unni degi fyrir hið 1. uppboð. Bæjarfógetinn i Reykjavfk, I. ágúst 1889. Halldór Daníelsson. 65 a., hjá einstaka kaupmanni 70 eða jafn- vel 75 a. (upp í skuldir). Af Borðeyri er þetta skrifað um vöruverð í kauptíðinni: »hvít vorull 65 a., svört 55, mislit 45, smjör 60 a., tólg 35 a.; rúgur 8 a. pundið, bankabygg llf, rúgmjöl 9, hveiti 10, rís 14, kaffi 1 kr., kandís 35 a., hvítasyk- ur 32, járn 20 a., brýni 20 a. hvert. Ljá- blöð fást nú alls eigi á Borðeyri (20. júlí). Er það meinlegt fyrir bændur, að kaupmenn skuli vanrækja að hafa þau til um þennan tíma.« Prestskostning. i Vestmannaeyjum hefir náð kostningu síra Oddgeir Guðmundsen í Kálfholti, með 40 atkv. Sira Ólafur Stephen- sen í Mýrdalsþingum hlaut 26 atkv. Messu í dómkirkjunni flytur á morg- un síra ísleifur Gíslason í Arnarbæli. Sveitarlimur safnar í sparisjóð! þess hefir opt verið getið, að sveitarstyrkur sje stundum veittur að nauðsyrljalausu, og hefir opt sjezt, að umkvörtun sú á við gild rök að styðjast, en þó sjaldan eins bersýnilega eins og átti sjer stað í Árnessýslu í vor; því þegar reikningar sparisjóðs- ins þar voru endurskoðaðir í siðastliðnum april- mánuði, komst það upp, að sveitarlimur einn hafði lagt 200 kró?iur í sparisjóðinn umliðinn vetur, en pegiö þö jafnframt sveitarstyrk i sínum eigin heimilis- og framfærsluhrepp ! Aðalpóstleið um Húnavatnssýslu. þar eð jeg undirritaður befi verið beðinn, að segja opin- berlega álit mitt um farartálma þá, sem hlytu að verða á aðalpóstleið, ef hún lægi fram Svína- vatnshrepp, þá álít jeg eptir eigin reynslu bæði sem norðanlandspóstur i tæp 4 ár, og af kunnug- leika fyrir þau 6 ár, sem jeg hefi síðan dvalið hjer á þessu svæði, aö á Blöndu sje bæði verri og ótryggari ferjustaður, vöð stórgrýttari og straum- meiri á þeirri leið, heldur en hjá Holtastöðum; og þó Svartá sje ekki kölluð stórá, þá hefir hún reynzt mjer haust, vetur og vor, að öllu saman- lögðu, verst af öilum vatnsföllum milli Akureyrar og Reykjavíkur; því á haustum leggur hana hvað seinast af þeim, en stendur full með krapa; á vetrum ryður hún sig tíðum i hörkufrosti og er þá opt ófær vegna skara og jaltaruðnings, og í vorflóðum álit jeg hana óíæra meö flutning og illriðandi allt hvað hún nær miðri síðu fyrir straumhörku. þrautavað veit jeg ekki annað á Svartá en Brúnarvað fram í Svartárdal; að minnsta Hnyvitsamleqt bjargráö. «Ertu orðinn þreyttur ? það lítur út fyrir, að þú sjert ekki eins fóthvatur núna og þú átt að þjer». «það er líka rjett til getið, Georg !» svaraði Tómas. "Sá, sem verið hefir með við þessa bygg- ingu, ætti þó að vera farinn að læra að klifra hjer, þótt hann hefði ekki verið æfður í því áður». «Satt er það að vísu, og jeg er ekki vanur að vera seinni en þú upp eptir þessum 24 stigum, en í dag fylgist jeg ekki almennilega með». «því ekki það, Tómas ; er nokkuð að þjer?» «Óveðrið í nótt hefur hleypt gigt í skrokk- inn á mjer». «Já, gáðu þá að þjer, það er ekki gaman að gigtinni. þú hefðir heldur átt að vera heima í dag, Tómas». «Nei, Georg, það hefði mjer aldrei getað komið til hugar; í dag sláum við smiðshöggið þarna uppi, og þá vil jeg ekki láta mig vanta; þú veizt vel hvers vegna». «Yitaskuld, hann Pennant, lætur sjálfsagt nokkrar kringlóttar velta í dag». »Já, og jeg vona líka, að hann haldi okkur dálítið samkvæmi; því satt er það, Georg, að þessir frægu verkfræðingar og bygginga- meistarar, sem stundum hafa verið uppi hjá okkur, hafa sagt, að enn hafi aldrei verið byggður slíkur reykháfur sem þessi. Blöðin munu einnig minnast á hann, og lúka lofs- orði á dugnað skozkra steinsmiða». «Og að ógleymdum trjesmiðunum, sem reist hafa þessa inikilfenglegu palla», segir Georg. «þeir eru snillingar lfka þessir trjesmiðir. En hvað var þetta? «Hvað þá, Tómas», spurði Georg. «Brakaði ekki í pöllunum»? «Jeg heyrði ekkert». Nú, mjer hefir ef til vill misheyrzt». Meðan á þessu samtali stóð, voru þeir fjelagar komnir upp 12. stigann og þar með hálfnaðir. f>ar hittu þeir trjesmið og 2 sveina hans, og voru þeir að negla föst nokkur borð, er auðsjáanlega áttu að vera í stað handriðs. þeir urpu kveðju hvorir á aðra og Tómas spurði, til hvers þetta væri gjört. Trjesmið- urinn brosti og mælti: «það er bara til þess að það skuli líta traustara út». «Er það þá ekki nógu traust áður?» «Ha, ha. Jú, eins og kletturinn». «því eruð þjer þá að búa til þetta óþarfa handrið, meistari ? «Til þess, að höfðingjarnir ef þeir annars komast svo langt, ekki láti hugfallast». «Jeg held naum- ast, að hr. Pennant hætti sjer alla leið upp>» sagði T., «slíkum mönnum er sundlhættara en okkur». «Já, en byggingarmeistararnir og verkfræðingarnir fara sjálfsagt langt upp». «Hvað margir korna, hafið þjer heyrt nokkuð um það ?» «Einir 7 til 8, þar á meðal frægir menn, eins og hr. Brunel, sem hefur gjört Thames-göngin, og er nú einmitt staddur í Glasgow». «Yitið þjer hvenær þeir koma höfðingjarnir ?» «Eitthvað kringum kl. 11 heyrði jeg, en fyrst taka þeir sje sjálfsagt góðan árbita hjá hr. Pennant». þeir fjelagar hjeldu nú lengra upp, unz þeir loks námu staðar efst uppi á reykháfn- um, þar sem áðurnefnd veggbrún eða kranz átti að vera, er þeir ætluðu að ljúka við í dag. Opið á reykháfnum var efst nálægt 2 fetum að þvermáli, og veggþykktin var þar

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.