Ísafold - 31.08.1889, Qupperneq 1
iCemur út á miðvikudögum og
laugardögum. Verð árgangsins
(104 arka) 4 kr.; erlendis 5 kr.
Borgist fyrir miðjan júlímánuð.
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bundin við
áramót, ógild nema komin sje
til útgefanda fyrir i.okt. Af-
greiðslust. í Austurstrœti 8.
XVI 70. jj Reykjavík. laugardaginn 31. ágúst. 1889
Dómkirkjuprests-málið.
Sumir eru farnir að spá því, að eitthvað
verði sögulegt áður lýkur um skipun eptir-
manns eptir biskupinn í Reykjavíkurbrauðið,
veglegasta og vandamesta prestsembættið á
landinu. jþað rnótar nú þegar greinilega fyrir
því, er sigurvegararnir á hinum mikla kjör-
fundi í Reykjavíkursöfnuði 19. þ. m. eru
naumast búnir að kasta mæðinni epfcir bar-
dagann, þegar yfir þá dynur eins og skrugga
úr heiðríkju sá ófagnaðarboðskapur, að hið
útvalda goð hafi tekið sinnaskipti og gerzt
sínum tilvonandi elskulegu sóknarbörnum allt
í einu afhuga og fráhverfur, þótt þau stæðu
með útbreiddan faðminn í móti bonum, og
segðu því uær í einu hljóði : »Hann viljum
vjer hafa, hann og engan annan». Hefði mátt
syngja um Reykjavík : »Stássmey sat í sorg-
um----------hrygg í hugarins borgum», þegar
hinn nýkjörni sálnahirðir hennar ljet frá landi
og henni var sýndur uppsagnarpistillinn.er hann
hafði skilið eptir. Bngin stássrney hefir orð-
ið sárara og sviplegar snortin áf tryggðarofi
unnusta síns en Reykjavík varð við þau tíð-
indi. Hún tekur ekki á heilli sjer síðan — —
fyr en hún veit, hvað henni hýðst í staðinn,—
alveg eins og stássmeyjarnar, er lík forlög
hreppa.
|>að er þessi spurning : hvað býðst í stað-
inn, sem er nú hið mesta áhugamál fyrir
Reykjavík. Bn spurningin mun raunar vera
of snemma upp borin, meðan ekki er löglega
sagt sundur með söfnuðinuin og hinum ný-
kjörna presti hans. Skilnaðurinn er ekki lög-
legur fyr en hið rjetta yfirvald leyfir hann,
en það er stjórnin í Kaupmannahöfn. Knda
hefir líka presturinn farið að eins bónarveg
í því efni —• beiðzt þess, að kosningin verði
metin sem ógjörð og hann verði ekki tekinn
til greina við veitinguna.
|>að eru nú, sern betur fer, mjög litlar lík-
ur til, að þessi bæn hans verði veitt. jpað
er aðgætandi, að nafi lögleg prestskosning
frarn farið í einhverju brauði, samkvæmt lög-
unum frá fS. jarr. 1886, þá er það ruál í raun
og veru þar með útkljáð og brauðið í raun-
inni veitt þeim, sem kosninguna hefir lrlotið.
|>á »verður hoiium gefið veitingarbrjef af hlut-
aðeigandi stjórnarvaldi» stendur í lögunum.
Hlutaðeigandi stjórnarvald hefir ekki annað
að gjöra ón að eins að staðfesta veitinguna
brjeflega, þegar það er búið að ganga úr skugga
um, að kosningin hafi farið löglega fram. |>að
er skylda þess að gjöra það ; þar er ekkert
undanfæri, úr því svo langt er komið. |>ó að
•áminnzt lög hljóði að eins »um hluttöku safn-
aða í veitiugu brauða», þá veita söfnuðirnir
nú að rjettu lagi brauð hjer á landi, á end-
anum, ef þeir vilja, og ef undirbúningurinn er
allur löglegur. Orðið »hluttaka» helgast ekki
af því, að nokkurt annað vald eigi f raun
i'jöttri þátt í sjálfri veitingunni, þegar svo
langt er komið, öðruvísi en rjett að eins í
orði, með því að »gefa veitngarbrjef», heldur
helgast það af því, að söfnuðurinn ræðurekki,
hverjir í kjöri eru hafðir af umsækjendum
um brauðið, heldur landshöfðingi með ráði
biskups. það er að því leyti til, sem afskipti
safnaðanna af skipun manna í prestsembætti
er rjettnefnd »hluttaka» í veitingu þeirra, og
ekki annað.
Eigi því að veita síra Sigurði Stefánssyni
þessa bæn hans, að verða laus við að taka
að sjer prestsþjónústu í dómkirkjusöfnuðinum,
sem kosið hefir hann nærfellt í einu hljóði,
eptir umsókn hans, þá væri það í raun rjettri
sama sem að apturkalla kosninguna, með því
að kosning er, þegar hún er lögleg, sama
sem veiting.
En geta þá yfirvöldin, sem ekki er ætlað
annað að gjöra í þessu máli en að «gefa
veitingarbrjef#, geta þau apturkallað kosning-
una? Getur nokkur annar gjört það en
kjósendurnir sjálfir'? Nei. Ekki er það
sýnilegt.
Eög þessi um veitingu brauða eru svo ung
enn, að ekki getur hafa skapazt föst lögvenja
fyrir því, hvernig þeim skuli beita, er þess
konar atriði koma fyrir, sem þau gjöra ekki
beinlínis ráð fyrir. En þetta er samt eigi
hið fyrsta dæmi þess, að prestur hafi sjeð
sig um höud eptir löglega kosningu og óskað
að sjer yrði ekki «gefið veitingarbrjef» fyrir
hinu nýja brauði. það bar til á þessu á ári
um prest einn á norðurlandi. Beiðni haus
mun jafnvel hafa fylgt bænaskrá frá hans fyrra
söfnuði um að hann mætti vera kyr. En
landshöfðingi úrskurðaði, að beiðnin yrði ekki
tekin til greina, og »gaf honum veitingarbrjef«
fyrir hinu nýja brauði, eins og lögin mæla
fyrir. Yirðist hann eptir því hafa litið svo
á, að hann ætti ekki með að apturkalla
kosninguna, — að hann hafi með öðrum orð-
um skoðað kosninguna svo sem þá eiginlegu
veitingu brauðsins.
jpetta var brauð, sem laudshöfðingi átti að
veita sjálfur, hefði lögleg kosning ekki á
komizt. Ætti hann nú líka að veita Reykja-
víkurbrauðið, væri allur vafi horfinn um úr-
slit málsins. Hið sama yfirvald úrskurðar
ekki samkynja mál sitt með hverju móti á
sama árinu. En nú er það ekki landshöfðingi,
heldur konungur, sem á að veita Reykjavík-
urbrauðið, og þess vegna er sízt fyrir að vita,
nema úrslitin kunni að verða allt önnur, —
að ráðgjafinn í Khöfn kuuni að líta allt öðru
vísi á málið heldur en landshöfðingi. |>ó
hefir Kaupmannahafnarstjórnin hin síðari
árin, eins og kunnugt er, talið sjer eða látið
telja sjer það mjög til gildis, að hún færi
jafnast eptir tillögum landshöfðingja, í alinn-
lendum málum að minnsta kosti, og ætti það
þá að verða ofan á, sem hjer er haldið fram,
með því að ganga má að því eins og sjálf-
sögðu, að tillögur landshöfðingja verði sam-
kvæmar tilvitnuðum úrskurði hans í vor í
samkynja máli.
En skyldi svo ólíklega fara, að hitt yrði
öfan á, og kosningin metin sem ógjörð af
Kaupmannahafnarstjórninni, þá er tvennt til,
eptir fljótlegu áliti almennings : aúnaðhvort
að efnt verði til nýrrar prestskósningar hjer
í söfnuðinum, eða þá að brauðið verði veitt
þegar í stað og án frekari umsvifa einhverj-
um hinna umsækjendanua, sem vilja þiggja
það, líklega þó helzt öðrum hvorum þeirra
tveggja, sem í kjöri voru ásamt síra Sigurði,
svo tramarlega sem þeir hafa þá ekki firrzt
svo við hryggbrotið, svo afdráttarlaust sem
það var, að þeir vilji nu ekki líta við söfu-
uðinum framar.
En þetta fljótlega álit er ekki rjett. Hjer
er ekki tvennu til að dreifa, heldur að eins
einu, því sem sje, að ný prestskosning fari
fra^n hjer í söfnuðinum. Hitt væri ekki hægt
að meta öðruvísi en sem reglulega lögleysu,
og lögleysu gjörir enginn ráð fyrir að raun-
arlausu að farið verði að beita við söfnuð-
inn. Verði síra Sigurði leyft að vera kyrr í
sínu fyrra brauði, ber að skoða Reykjavíkur-
brauð sem laust orðið aptur fyrir uppgjöf
hans, og þá getur ekki orðið löglega skipað-
ur prestur í það aptur að söfnuðinum forn-
spurðum. þá á hann heimtingu, á að fá að
neyta aptur kosningarrjettar síns, eins og
annars á sjer stað þegar brauð losnar. Hvort
ástæða væri til að auglýsa brauðið af nyju
og taka á móti nýjum umsækjendum, gæti
að vísu verið skoðunarmál, með því að brauð-
ið fyrir svo skömmu héfir staðið laust og
það með óvenjulöngum umsóknarfresti, svo
að allir, sem hugur gat á þvi leikið, áttu
kost á að gefa sig fram, og höfðu meira en
nógan umhugsunartíma til þess. En rjett-
ara væri samt í sjálfu sjer, að fylgja aðal-
reglunni og auglýsa brauðið aptur. Kring-
umstæðurnar geta vel hafa breytzt svo á
skömmum tíma, að þess væri full þörf.
Yrði brauðið veitt án nýrrar kosningar
öðrum hvorum þeirra, sem í kjöri voru með
síra Sigurði, þá fengi söfnuðurinn prest, sem
hatin hefir lýst yfir löglega með öllum þorra at-
kvæða, að hann óskaði ekki eptir. Yrði þaó
veitt einhverjum hinna umsækjendanna, þá
fengi söfnuðurinn prest, sem hann hefði alls
eigi átt kost á að segja sinn vilja um. Hvort
sem heldur gjört væri af þessu tveunu, þá
væri söfnuðurinn sviptur löglegu atkvæði um
málið. Hefði hann eigi hirt um að neyta
rjettar síns, annaðhvort með því að lýsa því
skýlaust yfir fyrir nmnn sóknarnefndarinnar,
eða með því að vanrækja að sækja kjörfund
svo rækilega, að hann yrði lögmætur, þá
væri allt öðru máli að gegna. þá hefði veit-
ingarvaldió frjálsar hendur. En hjer er ekki
því að skipta. Hjer hefir söfnuðurinn gjört
sína skyldu, gjört allt sem hann átti að gjöra
til þess, að ráða sálusorgara handa sjer, og
það er honum með öllu ósjálfrátt, ef hann
hlýtur eigi þann, sem hann kaus, alveg eins
og ef hann hefði dáið að kosningunni nýgeng-
inni um garð; þá mundi þó enginn maður
hafa efazt um, að ný kosning ætti fram að
fara; en frá safnaðarins hlið horfir þetta mál
alveg eins við.
Fráumsækjendannahálfu væriog miklu æski-
legra, að ný kosning færi fram, hvað sern
lagarjettinum liður. það er ekki árennilegt
að vera settur upp á jafn-mikils háttar söfnúð
og dómkirkjusöfnuðurinn er, annaðlivort að
honum fornspurðum eða þvert ofan í atkvæði
haDS. Hins vegar gæti vel farið svo, ef til
nýrra kosninga kæmi, að þá hlyti jafnvel annar-