Ísafold - 05.10.1889, Síða 4
320
(Stjórnartíðindi 1882 B, 88. bls.) og erindis-
brjefi samþykktu á alþingi 1885 (Stjórnar-
tíðindi 1885 B, 144. bls.), skal hjer með
skorað á alla þá, er vilja vinna verðlaun af
tjeðum sjóði fyrir vel samin vísindaleg rit
viðvíkjandi sögu landsins eða bókmenutum,
lögum þess, stjórn eða framförum, að senda
slík rit fyrir lok febrúarmánaðar 1891 til
undirskrifaðrar nefndar, sem kosin var á síð-
asta alþiugi til að gjöraað álitum, hvort höf-
undar ritanna sjeu verðlauna verðir fyrir þau
eptir tilgaDgi gjafarinnar.
Bitgjörðir þær, sem sendar verða í því
skyni, að vinna verðlaun, eiga að vera nafn-
lausar, en auðkenndar með einhverri
einkunn. Nafn höfundarins á að fylgja
í lokuðu brjefi með sömu einkunn sem
ritgjörðin hefir.
Keykjavík 27. sept. 1889.
Eiríkur Briem- Stgr. Thorsteinsson.
Kristján Jónsson.
og í fyrra d hverjum þriðjudegi og föstudegi
kl. 11 f. h.
Reykjavík 4. október 1889.
Schierbeck.
Hin einasta öltegund
í sem gengur næst Gl. Carlsberg að smekk,
lit, styrkleika og gæðum og sem heldur sjer
eins vel.
Uppboðsauglýsing.
Fjekk medalíu
K.höfn 1888, er
í B A H B E K S
á sýningunni í
frá bruggeriinu
A L L É .
Einasti útsölumaður þessa öls hjer á landi,
og sem hefir lært að aftappa öl og selur það
nú hjer til Reykjavíkurbúa, 10 hálffl. 1.25—
takið eptir! 10 hálffl. 1.2'5—er
W. O. Breiðfjörð, Reykjavík.
Undirskrifaður kaupir fje eptir niður-
lagi fyrir peninga og matvöru.
w. O. Breiðfjörð, Beykjavík.
Miðvikudaginn hinn 9. n. m. kl. 10 f. hád.
verður opinbert uppboð haldið að Höskiddar-
koti í Ytri-Njarðvík og þar selt hæstbjóðendum
eptirlátið lausafje þeirra dáinna hjóna Jóns
Pjeturssonar og Olafar Erlendsdóttur, þar á
meðal skip og bátar með tilheyrandi, og annar
sjávarútvegur, 3 timburhiís, rúmfatnaður, 2
kýr, 6 cer, 4 lömb og annað fleira.
Söluskilmálar verða birtir á uppboðsstaðnum.
Skrifst. Kjósar- og Gullbriirgusýslu 28. sept. 1889.
Franz Siemsen.
Jarðarför kaupm. J. O. V. Jónssonar fer
fer fram miðvikudag 9. þ. m. kl. 11£.
Havkallekutter »Oddeyri«, bygget 1884,
29'rcfh register tons, i udmærket Stand, er
til salgs.
E. Berentsen
Stavanger.
Á SKRXPSTOFtl AXjMEIÍlSriWGS eru fjórar
góðar jarðir til sölu með góðum kjötum.
Rvík 3. okt. 1880. Iír. Ó. porgrímsson.
Skósmíðaverkstæði
°g
leðurverzlun
|J^“Björns Kristján.ssonar'^d
er í VESTUltUÖTU nr. 4.
THORVARDSON & JENSEN.
BÓKBATÍDS-VERKSTOPA.
Bankastræti 12 (liús Jóns Ólafssonar alþm.).
Bókbandsverkstofa
ísafoldarprentsmiðju (Austurstræti 8)
— bókbindari pór. B. porláksson —
tekur bækur til bands og heptingar.
Vandað band og með mjög vœgu verði.
~N~ý bók.
Hvernig er oss stjórnað?
eða
stutt yfirlit yfir iöggjöf og landsstjórn ís-
lands, eins og hún er nú,
eptir
Jón A. Hjaltalín.
IV+92 bls. Innihald: staðaíslands; löggjafarvald-
ð (lögreglumálefni, kirkjumálefni, kennslumálefni,
heilbrigðismálefni, vegir og póstgöngur, skattamál
þjóðeignir og opinberir sjóðir, sveitastjórn); dóms-
valdið.
Fæst í bókverzlun ísafoldarprentsmiðju
(Austurstræti 8) og hjá útsölumönnum
Bóksalafjelagsins.
Kostar innb. 60 a.
D||lra ffj (kaffiblendingur), sem má brúka
*" ’*"* ** * * * eingöngu í staðinn fyrir kaffi-
baunir, fæst eins og vant er við verzlun H. Th. A.
Thomsens 1 Rcykjavík, á 5 Ó aura pundið.
Enskunáipsbók Geirs Zcega er nú tíl
sölu hjá höfundinum og bóksölumönnum víðs-
vegar um land. Verð : 2 kr.
I verzlurjinni í Aðalstræti nr. 9 fást ýmsar
ágætar öltegundir, svo sem Export-öl,
Mítncheneröl, Ní'trnbergeröl, Pilsneröl, Vieneröl,
Lageröl, með mjög góðu verði ; einnig fjölda-
margar tegundir af vindlum, reyktóbaki og
cigarettum, mjög ódýrar, og sem fyrst um sinn
eigi stíga neitt í verði þrátt fyrir tollhækk-
unina.
Ókeypis „klinik“
fyrir fátœklinga er byrjuð á sjúkrahúsinu
föstudaginn 4. október og heldur áfram ein-s
Hjer með lýsi jeg ytir því, að írá þessum degi er jeg
algjör bindindismaður og neyti Iramvegis alls engra
áfengra drykkja. — jþessa ylrrlýsingu er ritstjóri Isa-
foldar beðinn að taka í blað sitt.
Reykjavík, 4. október '889.
Bichard Torfason.
j' ■ > Lt Að jeg hefi fengið í hendur hr.
* lllðlliUi kaupmanni P. J. Thorsteinsson
á Bíldudal einkasölu á mínum góðkunnu vínum
og áfengum drykkjum á Bíldudal og nálæg-
um hjeruðum, gerist hjer með kunnugt heiðr-
uðum almenningi.
Peter Buch.
Halmtorv. 8. Kjöbenhavn.
Ölverzlun. Vindlaverzlun.
9. Aðalstræti 9.
Forngripasafniö opið hvern mvd. og Id. kl. I________2
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. I j—2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2
útlán md„ mvd, og Id. kl. 2 — 3
85fnunarsjóðurinn opinn I. tnánud. f
hverjum mánuði kl. 4—5
Veðuratlmganir 1 Reykjavik, eptir Dr, J. Jónassen.
okt. Hiti (á Celsius' Loptþyngdar- |mælir(millimet.) Veðurátt.
ánóttu|urn hád.| fm. em. fm era.
Mvd. 2 + 5 | + 8 I 750.9 756-9 O b O b
íd 3. + 1 + 5 1 762.0 761.0 O b' N h b
Fsd. 4. + 0 + 7 1 759-i 751.8 Sa h b Sa hv d
Ld. 5. -t 5 | 1 746.5 Sa hv d
Veðurhægð þessa dagana.
Ritstjori Björn Jónsson, cand,. pm,.
Brentsmíðja ísatoldar.
heyrt á tali þeirra, að þeim þótti lítið koma
til þeirra allra, sem ekki voru jafn fjáðir og
þeir. Hinn eldri hjet jjórir; hann stærði sig
af því, að hann hefði gert prestinn, sem ný-
lega var búinn að fá brauðið þar sem hann
var, hissa þegar hann hafði sýnt honum sílf-
urbúnað sinn, sem líka væri framúrskarandi,
•og Ijet á sjer heyra að húsbúnaður sinn hefði
tekið prestsins mikið fram, því að hann hefði
verið mjög viðhafnarlítill, og af þessu álykt-
aði hann, að lítið væri varið 1 slíkan prest
hjá því sem sjálfan hann. Aylákur sonur hans
var einlægt að stæra sig af afreksverkum
sínum og kvaðst hafa barið ýmsa til óbóta.
Að sönnu játaði hann því, sem María gat til,
að hann befði bakað sjer marga óvini með
því, en — mælti hann og glotti við — þeir
þora ekki að gera mjer neitt, af því að ætt-
menn mínir eru svo voldugir.
Allan daginn voru þeir þar með þetta raup
og svigurmæli, og hafði María mestu raun af
því, en faðir hennar skipaði henni að vera
alltaf við til að standa þeim fyrir beina. Um
uóttina voru þeir á Fossi, og riðu ekki burt
xyv en daginn eptir.
þegar komumenn voru á burt riðnir, kom
Alfur bóndi að máli við dóttur sína og sagði
henni, að Aslákur frændi hennar hefði beðið
hennar til handa sjer og kvaðst hanu þegar
hafa játað því fyrir hennar hönd; kvað hana
með þessum ráðahag mundi öðlast mikið álit
og auðæfi. Um haustið skyldi brúðkaupið
standa og sagði hann henni að búa sig undir
það; heimanmund kvað hann hún mundu fá
svo mikinn, að engin stúlka þar í dalnum
hefði fengið annan eins.
Álfur gamli var svo glaður og ánægður
yfir þessu, að hann tók eigi eptir því, að
dóttir hans fölnaði upp við ræðu þessa.
Maríu brá illa í brún við þessi tíðindi.
Nú átti að neyða hana til, að ganga að eiga
þann mann, er hún lítilsvirti svo mjög vegna
hroka hans og ókurteysi. Asýnd hins ljúfa
og kurteysa Eysteins stóð nú styrkari og
fagrari fyrir hugskotssjónum hennar, og henni
fannst sem hann væri sá eini, er nú gæti
ráðið sjer heilt og veitt sjer huggun.
Allan daginn áður hafði Eysteinn beðið
árangurslaust eptir Maríu þar sem þau voru
vön að hittast. Hann beið einnig lengi þenn-
an dag; loks kom hún, en mjög ólík því, sem
hún átti að sjer. Hún var eigi með glöðu
yfirbragði eins og hún var vöu; hún var ná-
föl, hljóð og grátin.
«Hvað gengur að þjer núna, góða María»?
mælti Eysteinn. það var eins og hann grun-
aði hvernig komið væri.
Hún sagði honum upp alla sögu.
«Er þjer það þvert um geð? Viltu með
engu móti eiga hann Aslák?.> mælti hann og
skalf í honum röddin.
«Engan», mælti hún, «engan á jarðríki nema
þig, Eysteinn». það var hugraunin og harm-
urinn, sem veitti henni þar til að tala svona
bert.
Hinir ungu unnendur fjellust í faðma og
gleymdu öllum ótta og harmi; þau gleymdu
himni og jörð, og fundu til einskis, nema hinna
yndislegu áhrifa ástarinnar. þegar þau vökn-
uðu við sjer aptur, fór óttinn og efasemin að
angra þau. þeim kom nú til hugar, hvað
Álfur bóndi væri dramblátur. þóttust þau
vita, að tvennt heldur en eitt mundi standa
fyrir að þau fengjn að ráða: dramb hans og
orðheldni. það var eigi við því að búast, að