Ísafold - 30.04.1890, Page 4
r
140
hvað 30 fiskimenn, er ætla til ísafjarðar
að stunda þar fiskiveiðar á opnum bát-
um í sumar.
Clausens-verzlanir á vesturlandi eru
nú allar seldar eða komnar i ýmsra
manna eign. Sigurður E. Sæmundsen
hefir eignazt verzlunina í Olafsvík, llol-
ger Clausen Stykkishólmsverzlun, Zöllner,
tengdasonur H. A. Clausens, etazráðs,
ísafjarðar-verzlun, og Richard Riis Borð-
eyrarverzlun, eins og áður er getið.
3Ieð 60 í'erðamenn enska kvað vera
von á kaupmanni G. Thordahl á lysti-
skipi hingað í júnímánuði snemma, —eða
hann kemur ef til vill á undan hingað
til að undirbúa ferð þeirra til fingvaila
og Geysis m. m.
Rannsóltnarferðir forv. Thoroddsen.
Dickson, auðmaðurinn frægi í Gautaborg,
er lagt hefir stórfje til norðurferða Norden-
skiölds o. fl., hefir boðizt til að kosta rann-
sóknarferð f»orv. Thoroddsen í sumar
hjer á landi, er þingið neitaði um í fyrra,
ef hann rannsakar Snæfellsnessfjallgarð-
inn, á sama hátt og hann hefir rannsak-
að flesta hluta landsins áður.
Yerzlunarfrjettir frá Iíhöfn, 18. april:
Afli við Lófót (í Noregi) ákaflega mikill;
12. þ. m. komnar þar á land 48 miljónir
af þorski, og með því að fiskurinn er
bæði stór og feitur í ár, er arðurinn nú
orðinn hálfu meiri en í fyrra. Með því
að fiskiveiðar við Lófót halda áfram til
loka þessa mánaðar, og þá byrjar vertíð
í Finnmörk, er útlit fyrir mjög mikinn
útflutning af fiski frá Norvegi þetta ár,
og er hætt við, að af því spretti lágt
verð á saltfiski yfir höfuð.
Lítils háttar af saltfiski stórum, er kom
með Lauru og yfir Norveg, hefir selzt á
45—50 kr. skpd. f*að sem eptir var af
smáfiski hjer frá f. á. hefir selzt á 38—
32 kr., og ýsa á 25—27 kr.; óselt af
henni nokkuð enn.
Ull í lágu verði, 15—20% lægra en í
haust. Lýsi að lækka, vegna aflans í
Norvegi. íslenzkt hákarlslýsi tært gufu
brætt selt á 33 kr., pottbrætt 32 kr.
Sundmagar síðast seldir á 25—35 a.;
15000 pd. óseld frá f. á. Æðardtonn ;
óselt enn frá f. á. um 1600 pd. Bezti
dúnn síðast seldur á 10—io'/.2 kr.; lakari
óseljandi.
Rúgur 5V2 kr. 100 pd., rúgmjöl 6 kr.
Bankabygg 83/4—Q'/r kr. Kaffi 73—74
a„ betra 78-—80. Kandís ig a. Hvíta-
sykur 17 a. Púðursykur 13—14 a. Hris-
grjón, meðal, 8 kr , stór 9—ql/2 kr.
Útlendar frjettir eru engar með þessari
ferð sjerstaklega sögulegar. Ágrip kem-
ur í næsta blaði.
LIÐRJETTING. í síðasta blaði 1. dálki á
síðustu bls. 25. 1. a. o. stendur 1000 kr. íyrir 100 kr.
AUGLÝSINGAR
í samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.)
hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða setning
1 kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg. út í hönd.
Hinn 6. norræni kennarafundur.
Hið sameinaða gufuskipafjelag hefur
veitt 10—12 íslenskum kennurum, sem
ætla að vera við hinn 6. norræna kenn-
arafund, sem haldinn verður í Kaup-
mannahö'n dagana 5.-8. ágúst næstkom-
andi, þá ívilnun í fargjaldi með skipum
fjelagsins, að
farseðill á 1. plássi kostar kr. 90.00
---- 2. — — — 72.00
firir ferðina fram og aftur. Fæði verða
menn að borga að auki með vanalegu
verði.
f>eir kennarar, sem vilja sæta þessum
kjörum, eru beðnir að snúa sjer til und-
irskrifaðs sem allra first.
Reikjavík 30. apríl 1890.
Björn M. Ólsen,
p. t. forseti kennarafjelagsins.
Uppboðsauglýsing.
Laugardaginn hinn 10. n. m. verða við
opinbert uppboð, sem byrjar lcl. 10 f. hád.,
seldir lausi fjármunir tilheyrandi fjelagsbúi
Eyólfs Bjarnasonar hjer í Hafnarfirði og lát-
innar konu hans Ingveldar Gísladóttur.
Uppboðið fer fram hj& húseign búsins, sem
einnig þá verður seld, og verða söluskilmálar
birtir á uppboðsstaðnum.
Skrifstofu Kjósar- og Gullbringusýslu,
Ilafnarfirði hinn 26. apríl 1890,
Franz Siemsen.
Hínn 12. þ. m. tóku tilsjónarmenn i Kefia-
vík upp og fluttu í land netatrossu, sem var
fyrir utan hina lögskipuðu netalagnalínu,
dufialaus. 1 trossunni voru 9 net, og í þeim
170 fiskar. Eigandi netanna getur vitjað
peirra lijá mjerinnan útgöngu þessa mánaðar.
Lögreglustjórinn í Iijósar- og Uullbringusýslu
Hafnarfirði hinn 25. apríl 1890.
Franz Siemsen.
TAÐA er til sölu hjá Gunnari Hafliðasyni í
Mýjabæ.
Stórt uppboð
verður haldið á Hliði á Álptanesi mánu-
dagmn 12. maí og byrjar kl. 9 f. m
Meðal annars verður par selt: ýmisleg
búsgögn, svo sem annboð, reipi, reiðingar,
reiðtygi, kistur, skatthol, tunnur o. fl.;
rúmfatnaður, stólar m. m.; enn fremur
ýmislegt, er að sjávarútvcg lýtur, t. d.
porskanet færi, d.ufi o. fl. Langur gjald-
frestur. Helming andvirðis má greiða með
innskriptum í Reykjavík.
Hliði 30. apríl 1890.
Halldór Þórðarson.
T i m b u r.
Alls konar borð, hefluð og óhefluð, plank-
ar og júffertur, góð og falleg vara, frá Man-
dal, pr. galeas »Johanne«, kapt. D. Törresen,
er til sölu eptir vísbendingu undirskrifaðs.
Verð lágt.
M. Johannessen.
ISs’ Timbrið er hjá bryggju J. O. V.
Jónssonar verzunar.
QOTT KÚAHEY er til »ölu. Ritstj. vísar á
seljanda.
Hið íslenzka náttúrufræðisfjelag-
Samkvæmt lögum fjelagsins, 7. gr., verð-
ur aðalfundur fjelagins haldinn hinn 1. júli,
kl. 4, i leikfimishúsi barnaskólans. 7. gr.
laganna hljóðar þannig.
,,Á aðalfundi fjelagsins, sem haldinn er
i byrjun júiimánaðar ár hvert, skuiu
fram fara stjórnarkosningar. þar skulu
og kosnir 2 menn til að endurskoða reikn-
inga fjelagsins. Hín frá-farandi stjórn
skýrir þá frá ástandi og framkvæmdum
fjelagsins, og leggur fram reikninga þess
endurskoðaða. þar skulu enn fremur
rædd þau málefni, er fjelagið varða.“
Svo er til ætlazt, að á fundinum verði
lögð fram prentuð skýrsla um athafnir
stjórnarinnar næstliðið fjelags-ár, ásamt
meðlimataii og ritgjörð um eðli þorskfirska.
Stjórn hins íslenzka náttúrufræðisfjelags.
Beykjavík, 30. apríl 1890.
Ben. Brömlal. J. Jónassen.
Björn Jensson. forv. Tlioroddsen.
Stcfán Stefánsson.
Kartöflur
komu nú með Lauru til verzlunar J. P. T.
Brydes.
9 kr. tunnan.
LAURA komí dag!
Með henni stórt úrval af
fallegum, smekklegum og bil-
legum VEFNAÐ AR V ÖRUM,
beintfrá hinum brezka heims-
markaði, sem alit verður ná-
kvæmar lýst hið bráðasta.
Beykjavík 30. apríl 1890.
|>orl. O. Johnson.
ÓSKILAFJE selt í Seltjarnarneshreppi háust-
ið 1889.
1. Gráhosótt gimbrarlarab; mark: sýlt gagnfjaðrad
h., gagnbitað v.
2. Hvítt gimbrarlamb; mark: biti fr. hangandi-
fjöður aptan h. sýlt v.
3. Hvítt geldingslamb, mark: heilrifað biti fr. h.
fjöður Ir. v.
4. Hvítur lambhrútur; mark: tvistýft aptan h.
boðbilt aptan v.
Andvirðis ofan-nefnds f.jár geta rjettir eigendur
vitjað til undirskrifaðs, að frádregnum kostnaði,
ef þeir gefa sig fram fyrir næstkomandi fardaga.
Lambastöðura 10. apríl 1890.
Ingjaldur Sigurðsson.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl, 1—2
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. IJ —2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2
útlán md„ mvd. og ld. kl, 2—3
Söfnunarsjóðurinn opinn I. mánud. í
hverjum mánuði kl. 5 — 6
Veðurathuganir i Reykjavik, eptir Dr. J, Jónassen.
1 Hiti (á Celsius) ' Loptþyngdar- mælir(millimet.) Veðurátt.
Apiíl | ánóttu| um hád.| fm. | em. fm. | em.
Ld. 26. Sd. 27, Md. 28. pd. 29. Mvd.30. 0 + 5 + 7 + 6 + 4 + 7 +i° +12 +11 7b2-S 7SÖ.9 751-8 I 751.5 754.4 | 759.5 762.0 762.0 756.9 1 Sa h d |Sa h d Sa hv d iSa h d Sa hv d ISa h d Sa hv b A h b Ahd |
Hinn 26. var hjer haegur Jandsynningur með regn-
skúrum; daginn eptir hvass á sömu átt með skúrum
og h. 28. var hjer rokhvass austan-landsynningur að
morgni en vægði siðari part dags; hefur siðan verið
hæg austanátt og optast bjart veður, í dag 30. aust-
ankaldi og bjart veður tíl kl. 10 f. m.
RiUtjóri Björn Jónsaon, cand. phil.
Prentsmiðja lsafoldar.