Ísafold - 14.05.1890, Blaðsíða 4
156
Aðalfundur í hinu sunnlenzka
síldarveiða-íjelagi verður haldinn
föstud. 4 júlí þ. á. kl. 11 f- m. —
Fundarstaður, með væntanlegu leyfl
hlutaðeigenda, leikfimishúss barna-
skólans í Reykjavík.
Reykjavík 13. maí 1890.
L. E. Sveinbjörnsson,
form. í stjórn fjelagsins.
TAPAZT hefir i gær á götum bæjarins spansk-
reyr-stokkur, nýsilfurbúinn, með brodai, merkt-
St. |>. s. Skila má til JóhannB Runólfssonar í
Arabæ, gegn góðum tundarlaunum.
* Sýslumaðurinn í Rargárvallasýslu hefir
á vorfundi sínum í apríl 1890 ákveðið
til reynslu markaði á sauðfje á fylgjandi
stöðum og dÖgum árið 1890.
í Álmannagjá í þingvallasveit 2. okt.
— Klausturhóla-rjett í Grímsnesi 3. —
— Holtakots-rjett í Biskupstungum 4. —
— Reykja-rjett á Skeiðum 6. —
— Sandvíkur-rjett fyrir neðan Selfoss
7. okt.
— Hveragerðis-rjett í Ölvesi 8. okt.
Skrifstofu Árnessýslu 6. mat 1890.
St. Bjarnarson.
ISfýprentað:
„Helgi hinn magri“
dramatiskar sýningar eða söguleikur í
fjórum þáttum
eptir
síra Matthías Jochumsson
á stærð 8 arkir í litlu 8 blaða broti,
kostar 1 kr. í kápu, fæst til kaups hjá
bóksölum hjer, og verður sendur með
næstu strandferðum til bóksala út um
land.
Einn merkur maður hefir, eptir að
hafa lesið söguleik þenna, sent mjer ept-
irfylgjandi álit sitt á honum :
„Vjer kunnum síra Matthíasi Jochumssyni sjerstakar
þakkir fyrir haus nýja leikrit: Helga hinn magra. fmr
hefir honum tekizt framúrskarandi vel sem drama-
isku skáldi; orðfærið er ágætt, og aliur þráðurinn í
leiknum einkar-fastur. — J>ví er n iður, að sb'kt
leikrit getur ekki náð rjetti s'num hjer hjá oss, þa'
allt hið sceniska vantar. Á hinum stóiu leikhúsum
i öðrum löndum væru scenurnar í þessum leik afbragð
eins og líka þetta sögulega drama myndi fá það hrós,
sem það á sannarlega skilið.“
Aðalumboðssala er hjá:
Sigfúsi Eymundssyni.
Sundkennslu
verður reynt halda uppi í J.augunum hjer
í vor 4—5 vikna tíma, ef eigi færri en
10 lærisveinar gefa sig fram fyrir 18. þ.
m. og greiða kennslukaupið, 4 kr. á mann.
Menn snúi sjer til ritstjóra ísafoldar.
í miðjum bænum er ibúð til leigu frá 1. júlí næst-
kom. Ritstjórí vísar á.
TRJESMIÐS-VINNUSTOFA Björns þórðar-
sonar er i Vallarstræti nr. 4. Allt fljótt og vel
af hendi levst, og svo ódýrt sem unnt er.
YPIKPEAKKI lítið brúkaður fæst til kaups
fyrir hálfvirði. Ritsjóri vísar á.
EP HROSS, kýr eða kindur eru látnar ganga
í engjum eða túni Bráðræðis, mun jeg taka það
a8t og meðhöndla sem lög frekast leyfa.
Bráðræði 14. maí 1890.
J. Magnússon.
Alls konar kóloníalvörur, rúg, rúg-
mjöl, hveitimjöl, bankabygg, brenni-
vín, romm, vín, munntóbak, rjól,
vindla O. s. frv. hef jeg til sölu fyrir bezta
verð, sem fáanlegt er.
Islenzkar vörur eru seldar svo vel sem
auðið er gegn 2°/° í ómakslaun.
Carl Andersen.
Börsgade 44
Kjóbenhavn.
Hjer með auglýsist öllum, að jeg upp frá
þessu læt taka fastan hvern þann grip, sem
leyfislaust gengur á Háeyrarlandi innan hinna
löglegu aettu landamerkja, og setja inn upp á
ábyrgð og kostnað eiganda og verða eigendur
að leysa gripina út, með því að greiða mjer
borgun fyrir áganginn og kostnaðinn við
hirðingu gripanna, þareð þeir að öðrum kosti
verða sendir sýslumanni, til þess að hann
selji þá samkvæmt lögum og landsrjetti.
Stóru-Háeyri á Eyrarbakka 25. apríl 1890.
Guðm. Isleifsson-
T i m b u r
Alls konar borð, hefluð og óhefluð, plank-
ar og júffertur, góð og falleg vara, frá Man-
dal, pr. galeas »Johanne«, kapt. D. Törresen,
er til sölu eptir vísbendingu undirskrifaðs.
Verð lágt.
M. Johannessen.
fSs3 Timbrið er hjá bryggju -T. 0. V.
Jónssonar verzunar.
Gjafir
til fiskimannasjóðs Kjalarnesþings 1889,
safnað af porkeli Jónssgni í Móakoti.
þorkell Jónsson Móakoti 12 fiska. Jóhannes
Jónsson s. st. 4 f. Bjargmundur Guðmundsson
Bakka 6 f. Ingimundur Ingimundsson Reykja-
völlum 2 f. Helgi Jónsson Bjargi 8 f, Helgi
Sigvaldason Litlabæ 6. f. Jón þörðarson Króka-
koti 1 f. Bjarni Jörundsson Ejósakoti 3 f. Gunn-
ar Stefánsson Hátúni 2 f. Guðmundur Jónsson
Starholti 2 f.
Hið nafnfræga myndasafn
hinna ameríkönsku bræðra:
Cooper Bro’s,
sem ferðazt hafa um alla Ameríku að
sýna sitt nafnfræga myndasafn, sýni jeg
nú í Good-Templara-húsinu hjer í bænum
á föstu- og laugardagskvöld 16. og 17.
p. m. Myndirnar eru af merkilegustu
stöðum víðsvegar um heiminn (mikið úr
Ameríku); eldfjallið mikla Vesúvíus, gjós-
andi.
Skemmtunin byrjar kl. 8 e. m. Inn-
gönguseðlar Verða seldir í húsi frú J.
Bjarnason (Aðalstr. nr. 7) á fimmtu- og
föstudag frá kl. 10 12 f. m. og 2—4 e.
m. Beztu sæti kosta 1 kr., lakari 75 a.
barna 40 a
9. maí 1890.
Th. Ingimundarson.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I______2
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl.' 12_______2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2
útlán md., mvd. og ld. kl. 2—3
Söfnunarsjóðurinn opinn I. mánud. í
hverjum mánuði kl. 5 — 6
Veðurathuganir i Reykjavlk, eptir Dr. J. Jónassen.
Hiti (á Celsius) Loptþyngdar- mælir(raillimet.) Veðurátt.
Maí ánóttu|um hád. fm. em. fm em.
Ld. IO. + í> 1 + 10 750.9 750.9 Sa h d Sa h d
Sd. 11. + ól + 10 751-8 746.8 Sa h d A.hv.d
Md. 12. + 8! + 12 744-2 744- i A. h. d. A. h.d
Þd. '3. Mvd.I^ ! + 4 +13 1 + 6 1 744-2 739-1 74 L7 A. hv.b A. hv.b .hv.b
Alla undanfarna daga hefir verið austanátt, fyrst
suð-austan opt hægur með regni síðan austan (austan-
landnorðan) livass.
Ritst)ón Björn Jonason, oand phn.
Rrsntsrniúip Ts»fnirla
að koma heim, eins og nú. Veslingsmaður-
inn ! Hann mátti til að sitja hreifingarlaus
í sporvagninum, og bjóst hálft um hálft við,
að húsið hans stæði í björtu báli með allri
sinni dýrð og viðhöfn, og að konan hans----
Já, konan hans lá ef til vill bundin og
barin einhversstaðar inni í eldinum. — Hann
greip báðum höndum fyrir andlit sjer af ótta
og örvílnun.
En nú flaug honum annað í hug, sem var
enn voðalegra en eldurinn : enn ef innbrots-
þjófurinn skyldi nú hafa hellt steinolíu yfir
alla silkisofana !
þessi óþolandi óvissa ljet hann aldrei í
friði. Aldrei lðið svo ein mínúta, að hann
ekki skipaði vagnmanninum að fara harðara.
En loksins — loksins komust þeir þó heim
að húsinu, sem leit út rjett eins og ekkert
hefði í skorizt. Væri eldur í því, þá var
auðsjeð að hann var ekki orðinn svo magu-
aður enn, að ekki mætti takast að slökkva
hann.
Hann skundaði sem mést hann mátti inn
í herbergi konu sinnar, og þar fann hann —
hana, sitjandi í legubekk og lesandi franska
skáldsögu; hún var komin aptur á 625. blað-
síðu. Hún leit upp rir bókinni og sá mann
sinn, og var auðsjeð á augnaráðinu, að henni
þótti miður, að hann skyldi koma og ónáða
sig.
Hann fleygði sjer í fangið á henni og
sagði, kjökrandi:
«Mikil ósköp held jeg að þu hafir tekið út
í dag, blessunin mín !»
«því þá það ?»
«Jeg segi, — mikil ósköp held jeg, að þú
hafir tekið út í dag, hjartað mitt !»
«Að jeg hafi tekið út ?»
«Já, elskan mín ! þú hlýtur að hafa tekið
mikið iit».
«Nú er svínafeitin búin að gera þig brjál-
aðan, góði minn !»
«Gera mig brjálaðan ? þú misskilur mig,
heillin mín! — Svínafeitin ! — Nú er ekki
tími til að hugsa um svínafeiti. — Segðu
mjer heldur eitthvað um þá herjans fantana
og þorpara. — Var þeim alvara að ætla að
kveykja í húsinu?»
«Vesalings karlinn minn !» mælti frú Wood
og stundi við, með þeim tignarsvip, sem
amerískum konum er laginn; «þú hlýtur að
hafa orðið fyrir fjarskalegu fjártjóni, eða þá
að útlitið er farið að verða mjög ískyggilegt#.
«Jeg fyrir fjártjóni? Og mjer stendur nú
ekki á miklu um þessa 5000 dollara. Jeg
vildi bara að jeg vissi, hver þessi bölvaður
þorpari er».
«Hvern áttu við?»
«Hvern jeg á við? Hvern ætli jeg eigi við
nema hann, — innbrotsþjófinn».
«Innbrotsþjóf, — hjerna?» spurði frú Wood
og fór að verða óþolinmóð.
«Já, innbrotsþjófinn, — fantinn, — þorpar-
ann, sem barði þig og batt!»
«Mig ? — Hvað ertu að segja, maður ?» spurði
frúin, og var ekki laust við að hún roðnaði.
«J>ú lætur eins og þú vitir ekki neitt! —
Nei, þetta ætlar að gera mig ærðan!—Segðu
mjer nú allt — allt, sem þjer hefir að hönd-
um borið, meðan jeg var að heiman ; gerðu
nú það !»
«Hjer hefir ekki nokkur skapaður hlutur
borið við, nema að hann Smidt . . . .»
«Já einmitt — já — einmitt; — segðu mjer
dálítið meira af honum!» greip Wood fram í.