Ísafold - 03.06.1891, Page 2

Ísafold - 03.06.1891, Page 2
174 Blaðið prentar síðan þetta »instrúks«, og þarf varla að efa, að það hefir fengið það frá eiganda Eyrarbakkaverzlunar, en honum aptur verið tilkynnt það frá íslenzku stjórn- ardeildinni, »til hugsvölunar og harmaljettisa. Á síðustu Stjórnartíðindum má nú sjá það, sem vita mátti fyrirfram, að blaðið fer með bull, þar sem það lætur dómsmálaráðherr- ann rita lögreglustjórunum hjer á landi svo lagað erindisbrjef, sem blaðið hermir. Eót- urinn fyrir því er sá, eins og sjá má á Stjórn- artíð., að ráðgjafinn fyrir íslánd hefir skrif- að landshöfðingja, og lagt fyrir hann að setja ákveðnar reglur um framkvæmd laganna. Eeglur þessar eru þar prentaðar, eins lag- aðar og ráðgjafinn hefir mælt fyrir, og mega þær raunar heita kdtlegur dilkur við þessi lög, en hætt við, að hann reynist nokkuð magrari en fjandmenn laganna ímynda sjer eða hafa gert sjer vonir um. |>að er sem sje sá hængur á, að það er ekki ráðgjafinn eða landshöfðinginn, er hafa síðasta úrskurðarvald um það, hvernig lög- unum skuli beitt, þessum sem öðrum, heldur dómstólaruir. Lögreglustjórarnir hafa fullt vald til að beita lögunum eins og þeir hyggja rjett vera, með ábyrgð fyrir dómstólunum, hvað sem líður öllum »erindisbrjefum», og það er meira að segja skylda þeirra. Ef því svo skyldi ólíklegt að höndum bera, að eitthvert boðorð »erindisbrjefsins» kæmi í bága við lögin, þá er það boðorð þýðingar- laust. Mætti í því efni benda á niðurlag reglnanna, að »til þess að ályktun eða úr- skurður [um útmæling o. s. frv.] sje gildur, útheimtist vitanlega, að lögreglustjóri og menn þeir, er hann hefir með sjer kvatt, sjeu á eitt sáttir«. Að lögin heimili þá reglu, er tæplega »vitanlegt», þ. e. sjálfsagt, allra- sízt ef þetta á einnig að gilda um bygging- arnefndir í kaupstöðum (nema Eeykjavík), þar sem meiri hluti nefndarinnar ræður annars. Annars stefna reglurnar að því, að farið sje sem allra-vægilegast í sakirnar gagnvart annara rjettindum og hagsmunum, er beita þarf lögunum til að útvega mönnum nauð- synlegt svæði til verzlunar, hafnarafnot o. fl. Enginn á heimting á lóð nema búizt sje þegar til að byggja á henni hús til verzlunar. Eignarnámi má ekki beita nema því að eins að nægileg lóð fáist ómögulega með sam- komulagi. Af tvennu til skal heldur taka lóð, sem er opinber eign eða eign sveitar- fjelags, heldur en einstakra manna, og þá þá lóð, sem eiganda er minnstur bagi að missa, sje hún notandi. Hvað við skuli miða, er metið er endurgjald fyrir lóðir til verzlunar. Ný skipsfestisáhöld má ekki leggja þannig, að komi í bága við notkun eldri fastra skipsfestis-áhalda o. s. frv. Rjettur hluti landssjóðs. Með brjefi 16. apríl þ. á., prentuðu í síðustu Stjórnar- tíð., skýrir ráðgjafinn landshöfðingja frá, að jarðabókarsjóði hafi verið endurgoldnar úr ríkis8jóði þær 1368 kr. (og nokkrir aurar), ér kostað hafði verið til heimflutnings skip- verja af gufuskipinu »Miaca« 1888. Utlát þessi úr landssjóði þóttu þegar við- sjárverð og jafnvel ólögleg, er almenningi varð kunnugt um þau, sbr. grein í ísafold 7. marz 1889: »Skákað af landssjóði«, og á þingi sumarið eptir skoraði neðri deild á stjórnina, að sjá svo um, að fjeð yrði end- urgoldið jarðabókarsjóði. Kveðst ráðgjafinn hafa samkvæmt þessari áskorun og með röksemdum þeim, er landshöfðingi hafi ritað með henni, ritað utanríkisráðherranum um málið og farið bess á leit, að fjeð yrði end- urgoldið úr ríkissjóði, en hann skaut mál- inu undir úrskurð fjármálaráðherrans. Fjár- málaráðherrann úrskurðaði, að ríkissjóði bæri að endurgjalda landssjóði áminnzta upphæð, með því að kostnaðurinn stafi af einu af allsherjarmálum ríkisins, en til al- mennra þarfa þess á landssjóður ekkert að leggja samkv. 2. gr. stöðulaganna. Meiri lán til prestakalla. Grenjað- arstaðar-prestur hefir fengið leyfi landshöfð- ingja til 3000 kr. lántöku upp á prestakall- ið gegn 20 ára afborgun í lengsta lagi »til þess að byggja á prestssetrinu væna og vandaða baðstofu, portbyggða, 14 álna á lengd og 6 álna á breidd, búr og stofu og 2 stórar portbyggðar skemmur«, skulu hús- in vátryggð gegn eldsvoða o. s. frv. Enn fremur hefir presturinn að Mosfelli í Gríms- nesifengið 750 krónalántökuleyfi upp ápresta- kallið, er afborgist á 15 árum, »sumpart til þess að leggja járnþak á baðstofu, sem hann hefir byggt á prestssetrinu fyrir fáum ár- um, sumpart til þess að kaupa handa presta- kallinu þann hluta baðstofunnar, er hann á sjálfur«. (Stj.t.). Tollur af skemdu sykri. Kaup- maður C. Knudsen hafði færzt undan að greiða toll 1000 pundum af hvítasykri, er fallið hafði í sjóinn við uppskipun á Sauðar- krók 6. apríl þ. á. og gjörskemdist við það. Landshöfðingi hefir úrskurðað 8. f. m., að tollinn beri að greiða eigi að síður, með því að tollurinn sje eptir löguin 9. ágúst 1889 fallinn í gjalddaga þegar meðan var- an er á skipi, en engin heimild til að toll- greiðsla falli burt sakir skemda á leiðinni, sízt eptir að varan er komin í vörzlur við- takanda eða annara manna, er annast upp- skipan vörunnar fyrir hans hönd. Kirkjuflutningur. Landshöfðingi hefir samþykkt 21. apríl þ. á., að kirkjan að Firði í Mjóafirði verði seld söfnuðinum í hendur og flutt á jörðina Brekku í Mjóa- firði. Farmannalögin. Amtmaðurinn fyrir norðan hafði verið þeirrar skoðunar, að far- mannalögin nýju frá 22. marz f. á. næði eigi til íslenzkra fiskiskipa, svo sem skrá- settra hákarlaskipa. Landshöfðingi svarar í brjefi 8. f. m., prentuðu í síðustu Stjórn- artíð., og leiðir rök að því, að engin íslenzk þilskip sjeu undanþegin fyrirmælum lag- anna (nema að eins 1. kaflanum þau skip, er eigi fara milli landa), og tekur það með- al annars fram, að ef lögskrá þarf menn á eða af skipi, þá sje skipstjórum samkvæmt 23. gr. laganna heimilt að sigla þangað, er næst er til skrásetningarstaðar, í þeim til- gangi, en eru alls eigi bundnir við skrásetn- ingarstjórann í því lögsagnarumdæmi, sem skipið á heima í. Brauð veitt. Hallormstaðar-og þing- múlaprestakall hefir landshöfðingi veitt í gær prestaskólakand., biskupsskrifara Mag- núsi Blöndal Jónssyni, samkvæmt yfirlýsingu frá söfnuðunum; kosning fór ekki fram, með því ekki var nema einn sækjandi í kjöri,— annar hafði tekið aptur umsókn sína. Hvalrekarnir í Þingeyjarsýslu. Ur brjefi þaðan frá f. mán.: »A mánudags- kvöldið í dymbilvikunni gérði hjer dimma hríð á útnorðan, er birti upp á föstudaginn Ianga; var þá hjer allt fullt af ís (þistilfj.). í þessum ís hefir rekið hjer 5 hvali. Einn þeirra rak á Gunnarsstöðum, eignarjörð Munkaþverárklausturs, ínnst í fústilfirði; sá hvalur var 28 álna langur. Annan hval rak í Eifi á Sljettu, eigi svo langt frá Eaufar- höfn; þriðja og fjórða á Sigurðarstöðum, sem er kirkjujörð frá Presthólum, og er sagt að annar hvalurinn hafi tekið niður á á skeri skammt undan landi. Eif er Munka- þverárklausturs eign. Hinn fimmta hvalinn rak í Axarfirði, á reka Víkingavatns. Eigi veit jeg um stærð á hvölum þessum, en heyrt hefi jeg, að Eifshvalurinn hafi verið fimmtugur. Dómkirkjan á Hólum, Möðru- vallaklaustur og Múlastaður hafa, eptir mál- dögunum, hlut í Gunnarsstaðahvalnum. þjer munuð frjetta um hinn mikla hnísnareka og hnísnaveiði að Kaldbaki hjá Húsavík, eignarjörð og að hálfu ábúðarjörð Sigurjóns á Laxamýri. Hnísur, eða rjettara mar- svín, hafa og veiðzt og rekið inn með öllum þistilfirði, um 200 á Alandi ytra, og annað eins, að sögn, í Sveinungsvík, svo og fáein- ar hnísur á fléstum bæjum, er þar liggja að sjó. Undir eins úr páskum batnaði veðrið, ísinn leysti þegar út og hvarf skjótt. Er þessi ísreki talinn sá bezti hjer, er menn muna, því hann gerði landsmönnum mikinn hag, en eigi tjón hið minnsta«. Skipalægi í |>jórsárós. Skrifað úr Eangárvallasýslu í lok f. m. : »þar er búið, eptir fyrirlagi sýslunefndarinnar í Eangár- vallasýslu, að skoða, hvort tiltækilegt sje, að hafa uppsigling eða verzlunarstað (höfn) í f>jórsárósi.—Aðalstefna f>jórsár er úr land- norðri. Framundir sjó verður hún allbreið, líkt og fjörður. Er hún á eptir 60—80 faðma í sjó, falla í hana Háfsósar eða öðru nafni f>ykkvabæjarvötn, úr austur-landsuðri, en sjálf beygist hún í landsuður, þannig, að að vestanverðu, milli árinnar og sjávar, gengur fram 350-—400 faðma langur en 40— 50 faðma breiður sandtangi, en að austan myndast tangi á móti, milli Hofsósa og ár- innar, og er sá tangi miklu hærri (10—12 álna hár) og breiðari. Og yfir vestri tang- ann gengur sjór þegar mikið brim er, en að líkindum aldrei svo, að skipum sje ekki ó- hætt fyrir innan. f>etta útfall f>jórsár, er maður getur sagt að sje allt að 400 faðma að lengd, og skip ættu að sigla upp, er frá 70—80 faðma á breidd. Úr því sjór er hálffallinn, er dýpið 11—13 fet og það á sjó út. þegar skoðið var, var brim lítið, enda var þá hverri smákænu óhætt að fara þar út og inn, því sjór var alveg sljettur fram undan sjálfu útfallinu. Úr því hálffallið var að og það til flóðs var straumur eigi meiri í ósnum en svo, að 1 maður gat róið þar inn. Brims eður öldugangs gætir sjaldnast nema í sjálfu mynninu. Hvergi þar nálægt finnst sker eður lausagrjót, allt er ægisand- ur, til beggja hliða og í botninn; eptir því sem nú er, var því álitin þar örugg höfn, nema ef vera skyldi að botninn væri laus fyrir akkeri, en þar sem skip ætti að liggja er nær því straumlaust og sjógangur enginn en útfallið breytir sjer iðulega«. Fjenaðarsýningar. úr brjefi af Eang- árvöllum 28. maí: »Hinn 1. júní eiga fjen- aðarsýningar hjer í sýslu að byrja og eiga fram að fara á 4 stöðum í sýslunni. Mis- jafnar skoðanir munu menn hafa á þeim, einkum þykir tími óhentugur, því um þetta leyti árs er varla hægt, nema frá næstu bæjum, að koma á sýningarstaðinn öðru en hrossum og geldfje; með mjólkurkýr og lambær er það ekki tiltök. Sumir segja, að hægt sje að ala fáar skepnur til að láta á sýninguna, þó allt annað sje vorlegt, og ekki trútt um, að slíkt hafi flogið fyrir,

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.