Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Ísafold - 24.06.1891, Side 2

Ísafold - 24.06.1891, Side 2
19» Gránufjelagið. af löggjafanum, að mæla svo fyrir, að þá skuli grafa utaugarðs?! En hvað kemur það kirkjunni við, hvort sá látni hefir goldið til sveitar? Ekki að tala um heilabrotin, sem umboðsvaldið verður að hafa, að skýra þessi úreltu lög, sem engin heil hugsun hefir nokkurn tíma verið í. Jeg held að það sje torvelt að hugsa sjer stofn, sem minni ástæða er til að byggja á gjald til kirkju, en hundraðatal fasteigna. f>að á alls ekkert skylt við kirkjuna. það er engin sönnun fyrir gjaldþoli. J>að er þar á ofan almennt viðurkennt, að hundraða- talið sje mjög fjarri því að vera rjett, svo fjarri, að það er ekki hæfilegur gjaldstofn fyrir neitt gjald. Og ofan á þetta bætast undanþágurnar, sem gjöra það með öllu ó- hæfilegt. Lausafjártíundin gefur meiri hugmynd um gjaldþolið, þó sú hugmynd sje opt alls eigi rjett, því hjá sumum er hinn tíundaði fjenaður allur í skuld, en sumir eiga hann fullri eign. Og svo kemur hin misjafna tí- und. Eins og nú stendur, geldur sá minnst til guðsþakka, að tiltölu, sem segir ósann- ast og er mestur tíundarþjófur. Ekki sam- kvæmt hinni gömlu reglu, þegar syndir mátti afplána með gjaldi til kirkju! Er að öðru leyti nokkurt vit í því, að sá skuli greiða mest til kirkju, sem flest á gangandi fje, þó hann, ef til vill, noti kirkjuna miklu minna en aðrir, sem í rauninni eru miklu ríkari ? þá er Ijóstollurinn. Jöfnuðurinn á honum ersá, aðsá sem heldur eitt vinnuhjú, greiðir 4 pd. af tólg og líka sá, sem hefir 20 hjón og þó 40 væru. Gjald þetta er byggt á tölu heimilisfeðra, en svona sanngjarn- lega! Kirkjugjald af húsum er á lagt sökum einnar kirkju upphaflega, og er þó rjettsýnna en fasteignartíundin. En eigi er hægt að sjá vit í því, að gjald skuli greiða af verði hússins, eptir því, hvort það er úr steini eða trje, án nokkurs tillits til þess, hvort þeir eru margir eða fáir úr húsinu, sem nota hitt húsið, er þeir þeir gjalda til: kirkjuna. þ>ó að sætisfiskurinn sje ekki í mikl- mu metum, þá getur hann þó hrósað sjer af því, að hann sje skynsamlegastur af öllum kirkjugjöldum. |>að var fyrir þessar og fleiri sakir, sem jeg á þingi 1889 fór fram á, að hin ofan- greindu gjöld til kirkna væru af numin, og annað nýtt gjald sett í staðinn. En það fann ekki náð fyrir augum þingsins, neðri deildarinnar. Annað hvort hefi jeg ekki tekið eptir ástæðunum eða jeg hefi gleymt þeim, og get jeg því ekki farið neinum orðum um þær að þessu sinni. f>að er óskynsamlegt og rangt, að varpa nokkru fyrir borð eingöngu af því, að það er gamalt; en það er eigi síður óskynsam- legt og rangt, að halda nokkru af þeirri orsök, að það er gamalt og menn eru orðn- ir vanir því, ef það stenzt ekki rannsókn Bkynseminnar. Blindur vani er hið voða- legasta vald í lífinu; hann getur sætt menn við hið illa eigi síður en hið góða. Nýlega er útkomin skýrsla um ástand Gránufjelagsins við næstliðið nýár. Fjelagið hafði árið 1890 eins og undan- farin ár rekið fasta verzlun á 5 stöðum: Seyðisfirðí, Baufarhöfn, Oddeyri við Eyja- fjörð, Siglufirði og Sauðárkrók. Verzlunar- hús á þessum 5 stöðum á.samt verzlunar- áhöldum og bryggjum, 1 niðursuðuhúsi með áhöldum, 2 lýsisbræðsluhúsum, þar af ann- að með gufukatli og öðrum áhöldum til gufubræðslu, ásamt 6 fiskitökuhúsum og landeigninni Oddeyri og Vestdalseyri, er virt á .........................kr. 96,000 4 skip er fjelagið átti ... — 26,500 Verzlunarskuldir er fjelagið átti hjá viðskiptamönnum þess voru — 137,143 Vöruleifar útlendar .... — 161,995 Vörur innlendar, óseldar á Is- landi og í Kaupmh. ... — 67,333 Partur í 7 þilskipum, sem haldið er út frá Eyjaf. til hákarlav. — 12,000 Húseignir og jarðeignir, er fjel. varð að taka til skuldalúkn- ingar í harðærum, einkum frá Ameríkuförum...................— 20,000 kr. 534,971 Fje í vörzlum fjelagsins var þannig: Viðskiptamenn við nefnda 5 verzlunarstaði áttu innistand. kr. 25,429 Ymsir í sparisjóði...............— 14,000 Hlutamenn óborgaða vöxtu . — 4,140 Lánveitandifjelagsins íKaupmh., verzlunarstjórar og nokkrir aðrir á íslandi...............— 325,802 Mismunur — 165,500 kr. 534,971 Um skýrslu þessa fer kaupstjóri fjelagsins, hr. Tr. Gunnarsson, meðal annars svofeld- um orðum: »Gránufjelagið var stofnað árið 1869, en var ekki annað en skipseigandi þar til árið 1871; þá byrjaði það fyrst verzlan sína: innkaup seint í maí og sölu á varningi sín- um á Eyjafirði seint í júnímánuði. jpannig hefur Gránufjelagið í sumar stað- ið í 20 ár sem verzlunarfjelag og er því hið eina íslenzka verzlunarfjelag, sem náð hefir svo háum aldri. I útlöndum telja verzlunareigendur sjer það til gildis, þegar verzlan þeirra hefir staðið í mörg ár; á Is- landi er víða álitið gagnstætt þessu; meðan nýjabrumið og byltingarandinn er svo mik- ill, þykir allt nýtt bezt, einkum í verzlun- arefnum. Eigi að síður hefi jeg vissu fyrir því, að margir af hinum eldri og skynsamari mönn- um virða mikils það .gagn, sem fjelagið hefir gjört þessi liðnu 20 ár, og þá lífseigju, er það hefir sýnt, með því að standa ennþá, eftir allar þær árá8ir, sem það hefir fengið þessi 20 ár, af náttúrunnar og manna völd- um. Næstliðið ár græddi fjelagið því nær 27,000 kr. og minnkaði skuld sína mikið. Hagur fjelagsins hefir ekki í mörg undanfarin ár staðið jafn vel og nú. í næsta árs skýrslu mun þess getið, sem nú er ráðgjört að framkvæma þetta ár, til minníngar 20 ára aldurs fjelagsins. Eins og í skýrslunum fyrir 1888 er ekki dregin hjer frá ákveðin upphæð fyrir van- höldum á skuldum og útlendum vörum; hver getur gjört það sem honum sýnist. J>ó dregið sje frá fimmti partur af skuld- um og útlendum vörum fyrir vanhöldum eða 65,500 kr., þá er samt eptir 100,000 kr.,. sem er hið upprunalega verð hlutabrjefanna. Islenzkt blað [»f>jóðv.«?] hefir nýlegafluttill- girnislega grein, sem rituð er til þess að telja mönnum trú um, að hlutabrjefaeigendur getí tapað meiru en eign þeirra er í fjelaginu,. ef það yrði gjaldþrota. þetta er auðsjáanlega skrifað til þess að rýra álit fjelagsins og vjela menn til að selja hlutabrjef sín með> litlu verði. En menn skulu eigi láta slíkt glepja sig. f>eir lagamenn, sem jeg hef átt tal við erlendis um þetta mál, segja, að> það geti ekki komið til mála að fjelagsmenn missi einn eyri fram yfir þá upphæð, sem þeir eiga í fjelaginu, og til enn frekari full- vissu fyrir fjelagsmenn hef jeg fengið skrif- legt vottorð frá hr. F. Holme, sem á mest hjá fjelaginu, að honum hafi aldrei komið til hugar og geti aldrei komið til hugar að ganga eptir öðru en fjelagseignum, til skulda- lúkningar, hversu illa sem síðar kunni að' fara fyrir fjelaginu; enda er þetta álit sam- kvæmt venju erlendis, samkvæmt samningi hans við fjelagið, ög samkvæmt lögum þess, Ovinir og undanvillingar fjelagsins verða, því að finna nýtt efni til að rýra álit fje- lagsins; þetta meðal verkar ekki lengur eptir tilganginum. Arið 1889 greiddi fjelagið 3 kr. í vöxtu af hverju hlutabrjefi, en síðasti aðalfundur- ákvað, í minningu 20 ára aldurs fjelagsins,. að enga vexti skyldi heimta eða greiða fyr- ir árið 1890«. í fyrra, 1890, flutti Gránufjelagið til ís- lands 17 skipsfarma af vörum. Yerzlun þess er meðal hinna stærstu hjer á landi. í ár kvað það vera búið að senda 10> farma til landsins og á eptir að senda marga enn í sumar. f>ingmálafuDdir. pingmálafu n d ur Húnv etninga. Hann var haldinn 13. júní, að Steinnesi, samkvæmt fundarboði frá þingmönnum sýsl- unnar, þeim síra Eiríki Briem prestaskóla- kennara og þorleifi Jónssyni ritstjóra, er báðir sóttu fundinn. Eptir ósk þingmann- anna stýrði sýslumaður Lárus Blöndal fund- inum, en síra Jón St. þorláksson á Tjörn var fundarskrifari. Fundurinn var allvel sóttur, á 2. hundr. manns, þar af um 80> ko3ningarbærir. 1. Stjórnarskrármálið. Eptir nokkrar um- ræður var borin upp til atkvæða og í einu hljóði samþykkt svolátandi fundarályktun: Fundurinn aðhyllist stefnu nefndarinnar í neðri deild ,1889 í stjórnarskrármálinu yfir höfuð, en leggur sjerstaklega áherzlu. á, að fyrir »getur látið« í 6. gr. efri deild- ar frumvarpsins komi »lætur«; í 7. gr._ komi »löggjöf og stjórn« fyrir »stjórn«; og að efri deildar mahn verði kosnir af sýslu- nefndum að eins til 12 ára. 2. Afnám vistarskyldunnar. Eptir allfjör-- ugar umræður var borið upp |til atkvæða,, hvort leysa skyldi vistarbandið, og var það fellt með 40 atkv. gegn 28, en samþykkt með litlum atkvæðamun, að lækka lausa- mennskugjald það, sem nú er lögákveðið,. allt að helmingi. 3. Fjármurk. Tillaga um að alþingi hlut- aðist til um að koma á sjerstökum sýslu-og. hreppamörkum var felld með meiri hluta atkvæði. 4. Tíundarlöggjöf. Samþykkt með öllum þorra atkvæða eptir nokkrar umræður til- laga um að fá tíundarlögunum breytt þann- ig, að allar þær ær vanmetalausar, er væru- bornar í fardögum, teldust leigufærar, og

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.