Ísafold - 15.08.1891, Side 3
259
mjer nú í haust eldavjel, sem nægi heimili
með 10—15 manns »góða með 2 eldholum,
vatnskatli og bakarofni» fyrir ekki 20, held-
ur 24 kr.; jeg og margir fleiri munu vilja
gefa 4 kr. fyrir þær útvegur; peninga skal
jeg leggja til fyrir fram. Ymsir hafa beðið
mig að láta sig vita, hvernig þú verðir við
þessari áskorun minni; það skal jeg líka gera;
þeir ætla að »panta« hjá þjer fleiri, reynist
þessi vel; það gefur þjer atvinnu ; leysir þú
þetta vel af hendi, mun jeg innan skamms
veita þjer atvinnu við að tíetta nokkrum
tigum tylfta af borðum, fyrir 2 kr. tylftina.
Neðra-Hálsi í júlímán. 1891.
þórður GuðmuncLsson.
Póstskipið Laura (Christiansen) kom
hingað í gærkveldi frá Khöfn. Meðal far-
þega var hinn setti sýslum. Eyfirðinga, cand.
juris Klemens Jónsson.
Strandferðaskipið Thyra kom í
nótt norðan um land og vestan, og með
henni allmargir farþegar.
Frá Islendingum, í Ameríku. Fyr-
verandi ritstjóri Jón Olafsson í Winnipeg
er orðinn kennimaður í söfnuði Unitara þar,
varaformaður safnaðarfjelagsins, en formað-
ur og höfuðkennimaður er fyrv. alþingismaður
Björn Pjetursson.
'Ut af skólaiðnaðarmálinu flytur
»|>jóð.« i gær mjög ómaklega og síður en
eigi drengilega árás á alþingism., skólastjóra
Jón |>órarinsson. Greinin á að vera til að
spilla fyrir framgangi málsins nú á þingi,
en verður því sjálfsagt fremur til liðs, ef
nokkuð er, vegna hinnar lúalegu aðferðar,
sem til þess er höfð. Eins og lög gjöra ráð
fyrir, þarf faðir hans, forseti neðri deildar,
einnig að kenna á reiði þeirra þrímenning-
anna, er út gengu við atkvæðagreiðsluna
um málið þar um daginn ; en þeirra rangi
málstaður, hvað snertir skilning á þingsköp-
unum, liggur hverjum manni öðrum í aug-
um uppi, utan þings og innan, og verður
því naumast sigursæll.
Alþingi.
XIX.
málavextir mæla með því, útkljá þannig, að
foreldrar eða þeir, er ganga barninu í for-
eldra stað, lýsi því yfir og sje það ritað f
rjettarbókina, að þau skuli láta barnið sæta
líkamlegri refsing í heimahúsum.
2. gr. þá er dómur í almennu lögreglu-
máli, sem dómariun hefir höfðað af sjálfs-
dáðum, án þess að amtmaður, hlutaðeigandi
sveitar- eða bæjarstjórn eða einstakir menn
hafi krafizt þess, fer fram á refsingu, sem
eigi er meiri en 40 kr. sekt, eða vandar-
högg eða einfalt fangelsi í 8 daga fyrir
böiu yngri en 15 ára, má þegar fullnægja
dóminum eptir ráðstöfun dómarans, ef hinn
ákærði (eða ef málið er gegn barni, þá um-
ráðamaður hans) kveðst ánægður meðhann,
en þá skal dómarinn þegar á eptir senda
amtuianni skýrslu um það, sem fram hefir
farið í málinu. Ef meiri refsing aptur á
móti er ákveðin með dómi, svo og ávallt, þá
er mál eigi er höfðað af dómaranum af
sjálfsdáðum, skal, einnig þá er hinn ákærði
kveðst ánægður með dóminn, leggja málið
fyrir amtmann samkvæmt gildandi reglum,
til þess að hann geti kveðið á, hvort dóm-
inum beri að fullnægja, eða honum skuli
skotið til landsyfirdóms.
XVII. Lög um lœkkun á fjárreiðslum þeim
er kvíla á Höskuldsstaðaprestakalli í Húna-
vatnsprófastsdœmi. (Argjaldið, 200 kr., lát-
ið niður falla, og eptirlaunin frá brauðiuu
lögð á landssjóð frá fardögum 1891).
XVIII. Fjáraukalögin fyrir árin 1890 og
1891. Veitt alls um 12,600 kr. þar af til
vegarins frá Ingólfsfjalli niður að Ölfusár-
brúnni (sem nú er verið að leggja) 5000 kr.;
til fjallvega (vegagjörðar á Mosfellsheiði
1891) 2,590 kr.; styrkur til gufubátsferða á
Faxaflóa sumarið 1891 3000 kr.; til bráða-
byrgðaruppbótar fátækum brauðum 1891
(Sauðlauksdal) 250 kr.; til tímakennslu í
lærða skólanum (í sjúkdómsforföllum ad-
junkts B. Jenssonar) 768 kr.; til aðgjörðar
á skólahúsinu á Möðruvöllum 500 kr.; styrk-
ur handa einum manni (stúdent Karl Niku-
lássyni) til að búa sig undir að verða dýra-
læknir hjer á landi 300 kr.
Afgreiddar þingsályktanir. Báðar
deildir alþingis hafa samþykkt svolátandi
þingsályktun:
V. Alþingi ályktar að skora á ráðgjafa
íslands, að hann sjái svo um, að íslands-
ráðgjafi sitji eigi í ríkisráði Dana, að þvf
leyti er snertir hin sjerstaklegu málefni
landsins.
mundi að hlaða tiltekna veggjastærð; þá í
svipinn var jeg ekki við því búin að svara
þvi með neinni vissu, en þú sagðir að það
gerði ekki svo mikið til, að það væri ná-
kvæmt, bara gera torfbygginguna nógu dýra;
jeg varð við tilmælum þínurn, en mín áætl-
un var fullkomlega hálfu lægri en þín áætl-
un, sem í lsafold kom; þú hefir því annað-
Kvort ekki tekið rjett eptir því sem jeg
sagði, eða fengið þinn vísdóm annarstaðar
frá.
Annars vil jeg sem minnstan orðastað eiga
við þig, fyrst þú ert orðinn sá maður, að
kalla það brigzl, þótt jeg leyfði mjer að gera
ofurlitlar athugasemdir við þína ímynduðu
þekkingu, og vænir mig ósannindum um
það, sem jeg hefi skýrt frá eptir reynslu :
»hefði hann þurft að skýra ekki einungis
áreiðanlega rjett frá», og »getur ekki verið
rjett«. Aður þekkti jeg þig sem dreng; hjer
eptir þekki jeg þig sem fullorðin mann. þó
mun jeg máske leggja trúnað á orð þín um
kostnað við byggingar, þegar þú ferð að tala
um þær af reynslu ; en meðan þú ert ekki
farinn til þess, get jeg ekki tekið hattinn of-
an fyrir þekkingu þinni í þessu efni. Eða
því hefir þú ekki tekizt á hendur að gera
fyrir eigin reikning hús á þinni áætluðu
stærð fyrir þá upphæð, sem þú segir að það
kosti ? hefir þess þó ekki verið óskað af
þjer ?
það sýnir mikla löngun til þess að ræða
um landsins gagn og nauðsynjar, að skrifa
langa ritgjörð og byggja hana að miklu leyti
á öðru eins og þvl, sem þú kallar »skýrslu«
frá mjer ; verði maður frægur fyrir það, þarf
ekki mikið til.
Jeg skal alveg sleppa að þrátta meira um
það við þig, hvað timburhús kosti; margir
hafa reynslu fyrir sjer í þessu efni; þó væri
vel gert af þjer að iitvega nokkrar skýrslur
hjá þeim, sem þir hefir byggt hjá, hvað
þeirra hús hafi kostað, t. d. hjá þeim, sem
þú ert að byggja hjá í sumar o. fl. þú
segir að ekki sje að marka, hvað mitt
hús hafi kostað, bæði sje það ekki rjett sem
jeg segi, og svo hafi engin hagsýni verði
brúkuð; því svara jeg ekki öðru en því, að
það getur vel verið, að þar hafi jeg reitt mig
allt of mikið á smiðinn ; hann átti að taka
út viðinn, hafði að velja úr heilum farmi
af 40—50 lesta skipi,— um borð, og hjer á
staðnum var liggjandi meir en tvöfalt meiri
viður en í húsið fór, sem úr var að velja;
hafi honum nú mjög mikið misheppnazt í
vali sínu, t. d. látið forblauta »battings»-
planka í gluggakistur o.s.frv., þá væri mjer
mikil forvitni á að vita, hvort þetta hefði
orðið viljandi eða óviljandi ; það gætir þú
gert svo vel og gefið mjer upplýsingar um.
— þörf var engin á því—.
Að þjer yrði matur til skemmtunar úr
smárit- eður prentvillum, sem orðið hafa í
grein minni »Timburhús og torfbæir», þyki
mjer von, eptir andanum á svari þínu ; að
hver góðfús lesari mun átta sig á t. d. en
það var 1 □ al. í járnplötu, sem jeg gerði
að kostnaði 1 kr., og þar sem stendur 3 ál.
sperrukjálki á að vera 5 ál. En á þessu
leiksviði hefir þú skeiðað rúmlega; þannig
gaztu látið vera að minnast á verðmun á
timbri nú og þegar jeg byggði það; það hef
jeg sjálfur gert. Að eldavjelin ætti að nægja
handa hvað mörgu heimilisfólki, sem væri, hefi
jeg aldrei sagt; jeg tiltók handa hvað mörgu
heimilisfólki hún þyrfti að vera.miðað viðstærð
hússins. Hvergi hefi jeg sagt að byggja mætti
það hús, sem jeg ræð til, sem hentugt íveru-
hús fyrir 300 kr.; get jeg trúað, að þú bæði
vildir og þyrftir að kunna það »töfrabragð».
þaðjgetur vel verið, að jeg með áminnztri
grein minni hafi að þínu áliti gert fremur
ógagn en gagn ; en þú munt þá næsta ó-
llkur greindum og gætnum mönnum, ef þú
álítur, að málefni sje gert ógagn, þótt skoð-
aðar sjeu ýmsar hliðar þess.
Að endingu verð jeg að þakka þjer fyrir
bendingu þína, hvar þessar ódýru eldavjelar
fást, og jafnframt minna þig á, að H.kaupm.
J. í Beykjavík selur heilan gang af hesta-
járnum á 10,a. En til þess að þú ekki
misvirðir þennan samanburð, og gefist kost-
ur á að sýna, að hann ekki sje rjettur, þá
leyfi jeg mjer að skora á þig, að útvega
Afgreidd lög frá alþingi frá því síðast:
XVII. Lög um ákvarðanir, er snerta
nokkur almenn lögreglumál.
1. gr. Ef dómaranum þykir full ástæða
vera til þess í almennum lögreglumálum,
þar sem um litla yfirsjón er að ræða, er
framin er í fyrsta skipti, að láta eigi verða
meira úr en aðvörun, hefir hann rjett til að
útkljá málið á þennan veg, þó skal gjörð
athugasemd um þetta í rjettarbókinni. þessi
málslok mega þó eigi eiga sjer stað, ef hinn
ákærði mótmælir því og krefst dóms í mál-
inu, og má sá dómur eigi fara fram á að-
vörun. Dómarinn hefir og rjett til að taka
boði hins ákærða um, að gjalda hæfilegar
sektir, til þess að sleppa hjá dómi, og mega
sektir þessar vera minni en lög kveða á; enn
fremur má hann láta málið falla niður, þeg-
ar honum þykir eigi næg ástæða til að halda
því lengra áfram. Ef mál er höfðað eptir
boði amtmanns eða kröfu bæjarstjórnar eða
sveitarstjórnar eða einstaks manns, má þó
eigi útkljá málið án reglulegs dóms, nema
sá samþykki, er krafizt hefir málsóknar.
Múl gegn börnum, sem er 10 til 15 ára að
aldri, má dómarinn, þegar honum þykja
VI. Um landsbankann. Báðar deildir
hafa samþ.: Alþingi ályktar að skora á
landshöfðingja, að fá því framgengt, að
landsbankinn veiti lán gegn veði í húseign-
um í kaupstöðum öðrum en Beykjavík, og
verzlunarstöðum landsins, þá er hús þessi
eru vátryggð, en það annast landsbankinn
fyrir hönd lántakanda, sem greiði vátrygg-
ingargjald það, er þarf, fyrirfram ásamt
kostnaði skaðlaust, allt á þann hátt, er á-
kveðið yrði ýtarlegar með reglugjörð, sam-
kvæmt lögum 18. sept. 1885.
Fjárlagamálið í efri deild. Nefndin.
þar, E. Th. Jónassen (form.), J. A. Hjalta-
lín (skrif.), Arnljótur Ólafsson (framsögum.),
Friðr. Stefánsson, Skúli þorvarðarson, vill
lækka aptur búnaðarstyrkinn niður í 12,000
kr., en áskilja, að búnaðarfjelag suðuramts-
ins verja af sínum 2000 kr. skerf 1000 kr.
að minnsta kosti til vatnsveitinga í Skapta-
fellssýslu; 1000 kr. veitinguna hvort árið til
fjenaðarsýninga vill hún fella burtu; þil-
skipaábyrgðarsyrkinn handa Vestfirðingum
vill hún færa niður í 3000 kr.; og ekki
kosta upp á verkfróðan mann nema síðara
árið (3000). Enn fremur vill hún veita
fyrra árið 2,400 kr. til að koma tveimur