Ísafold - 15.08.1891, Síða 4
260
svifferjurn á Hjeraðsvatnaósaaa í Skagafirði,
gegn því að sýslufjelagið leggi fram það sem
til vantar. Ekki þykir henni eigandi undir
að binda allan strandferðastyrkinn því skil-
yrði, að strandferðunum sje hagað sam-
kvæmt þingsályktun alþingis, heldur vill hún
veita 18,000 kr. skilmálalaust, en bæta að
eins við 3000 kr. með tjeðu skilyrði. Gufu-
bátsstyrk á Breiðafirði álítur nefndin til-
gangslaust að veita, og vill færa styrkinn
hatida hinum gufubátunum (4) niður í 2400
kr., gegn því að sýslu- og bæjarfjelög veiti
800 kr. til hvers þeirra. Til útbreiðslu bind-
indis og bindindisrita vill nefndin veita stór-
stúkunni 200 kr. hvort árið. Asgeiri Blön-
dal vill hún ekki veita nema 1200 kr. (í
stað 1500), og Boga Th. Melsteð ekki nema
600 kr. hvort árið til »að safna til sögu Is-
land8«.
Nefndinni hafa borizt bænarskrár frá
skáldunum Steingr. Thorst. og Ben. Grön-
dal. urn jafnmikil skáldlaun sem síra M.
Jochums8yni eru ánöfnuð af neðri deild,
1000 kr. hvort árið. Af þeim og öðrum j
fleiri ástæðum álítur nefndin rjettast að láta
skáldlaunin niður falla, en bæta í þess stað
upp Akureyrarbrauðið til bráðabirgða með
600 kr. á ári, gegn því að ábúðin á Hrafna-
gili gangi til Grundarprests. f>á vil nefnd-
in og hætta við skáldlaunin eða styrkinu til j
frú Thorfh. Holm. Nickolin tannlækni vill j
hún veita 500 kr. ársstyrk, og Birni Ólafs-
syni lækni á Skipaskaga sama styrk til að
halda hjer áfram augnalækningum.
Landsbankinn. Efri d. hefir nú samþ. |
við 3. umr. 5000 kr. laun handa fram-
kvæmdarstjóra, og 2400 kr. handa bókara
og fjehirði. Vegna þeirra breytinga gengur
málið aptur til neðri deildar.
í>ingfararkaup. Nefnd í neðri d. (Jón
fpórarinsson, Árni Jónsson, f>orl. Guðmundss.)
er meðmælt fastákveðnu þingfararkaupi, en
vill hafa það hærra nokkuð en í frv. efri
deildar (600 kr. fyrir Múlasýslur o. s. frv.).
Fallin frumvörp frá því síðast:
21. Um stofnun læknishjeraðs í Dalasýlu
og Bæjarhrepp í Strandasýslu, með 1500
kr. laurium, fellt þegar i neðri d. með 18 :
2 atkv.
22. Um kosningar til alþingis (frv. J. A. ,
Hj.), fellt í neðri d. við framh. 1. umr.
með 11 : 10 atkv.
23. Um skyldu embættismanna til að
safna sjer ellistyrk eða útvega sjer geymdan
lífeyri; fellt við 3. umr. í efri d.
24. Um búsetu fastakaupmanna á ís-
landi, fellt við 1. umr. í efri d.
25. Umafnám árgjalds af StaðáReykjanesi.
26. Um afnám danskra messna í Reykja-
vík, tekið aptur.
27. Stjórnarskráin,tellA í efri d. með 7 : 4
atkv.
28. Um lögaldur, fellt í dag í efri deild
með 5 : 5 atkv.
29. Um stofnun ullarverksmiðju, fellt í
efri d. í dag með 6 : 4 atkv.
30. Um breyting á kosningarlögum til al-
þingis: að þingmenn sjeu allir þjóð-
kjörnir, og sitji 8 í efri, en 28 í neðri
d., fellt i dag í efri d. með 6 : 4 atkv.
31. Um breyt. á amtaskiptingunni (austur-
amtið sje Austur-Skaptaf., Múlasýslur
og N.-þingeyjar), fellt í efri d. með 6
: 4 atkv.
Uppboðsauglýsing,
Eptir kröfu brunamálastjóra O. Finsens
og að undangengnu lögtaki 30. f. m.
verSur húseign Sturlu 'jónssonar, nr. 14.
í Aðalstræti í Reykjavík, samkvæmt lögum
16. desbr. 1885 með hliðsjón af opnubr.
22. apríl 1817, selt hœstbjóðanda við 3.
opinber uppboð, sem haldin verða mánu-
daðana 24. p. m. og 7. og 21. nœstkom-
andi septembermán., hina fyrstnefndu 2
daga á skrifstofu bœjarfógeta og síðasta
daginn í liúsinu sjálfu, til lúkningar ó-
greiddu brunabótagjaldi til dönsku kaup-
staðanna.
Uppboðin byrja kl. 12 á hádegi og
söluskitmálar verða til sýnis á skrijstofu
bæjarfógeta degi hiff fyrsta uppboð.
Bæjarf'ógetinn í Reykjavík 6. ágúst 1891.
Halldór Daníelsson-
^ Whisky hp,
Verzlun Eyþórs Felixsonar fp.
s e 1 u r :
TheEclinburgold.ord.Whisky.fr. 1,25^. ^
Old. Scotch Whisky Genuine - 1,00 - ^
^ Tvær aðrar dýrari tegundir af *3r'
w Whisky Kr. 1,60—1,80 fl.
■r" Án flösku 12 aur- minna hver w
flaska, einnig talsverður a f - ^
^ sláttur sje mikið keypt í einu. *<s
Whisky-tegundir þessar
eru mikið góðar.
^ W h i s k y
’ í GDodtemplarhúsiuu
sunnudagskveldið 16. jþ. m. kl. 8i
e. hád.
j heldur herra Bjarni Jónsson frá Möðru-
vallaskóla
Fyrirlestur
um
Verzlun á íslandi
í fornöld
Bílæti fást í búð undirskrifaðs og við inn-
ganginn kl. 8 á sunnudagskveldið og kosta
sjerstök sæti (stólar) 0.75
almenn — 0.50
Rvík lr>. ágúst 1891.
f>orl. O. Johnson.
Nýtt blað kom nú meða Laura að nafni
Sunnanfari
nr. 1. og 2. með myndum (í nr. 1. biskup
P. Pjetursson, í nr. 2- Prófessor Willard
Piske), útgefendur: Fjelag eitt í Kaupmanna-
höfn
Verð 2,50 fæst hjá herra Sigfúsi Eymunds-
syni í Rvik.
SMJOR kaupir og selur fyrir peninga út
í hönd. Jón þórðarson
Tjarnargötu 4.
Fjárkaup.
Eins og að undanförnu kaupi jeg í haust
hjer á staðnum fje til slátrunar og útsöla
hjer. Borgun út í hönd í peningum og ef
vill í útlendum vörum undir búðarverði.
Geysi í Reykjavik 14. ágúst 1891.
Finnur Finsson.
FUNDIZT hefur í Eyvindarstaðamýri
í Bessastaðahreppi dautt mertryppi vetur-
gamalt, rautt á lit með marki: standfjöður
fr. hægra. Rjettur eigandi snúi sjer til
Jóns Tómássonar á Eyvindarstöðum.
Exportkaffið Hekla er nú álitið bezt.
Exportkaffið Hekla er hreint og ósvikið.
Exportkaffið Hekla er hið ódýrasta export-
kaffi.
Exportkaffið Hekla er nú nálega selt í öll-
um stærri sölubúðum á íslandi.
D. E. G. Brasch, Hamburg
Skrifstofa fyrir almenning
10 Kirkjustræti 10
opin hvern rúmhelgan dag kl. 4—5 e. h.
ÍA6A8AFH
HANDA ALþÝÐU,
útgefendur Magmís Stephensen landshöfðingi
og Jón Jensson yfirdómari,
I. b in di ,
árin 1672—1840,
fæst hjá öllum bóksölum landsins.
Kostar innb. 3 kr.
(í viðh.-bandi 3 kr. 25 a.).
Síðari bindin, II.—III., hafa útsölumenn
Bóksalafjelagsins og meðlimir þess einnig til
sölu handa nýjum kaupendum fyrir sama
verð.
Aðalútsala i Isafoldar-prentsmiðju.
Eptir að jesr betur athugaði grein mina er jeg
ritaði í ísafold 48. tölubl. |>. á. um næturróðra, o<r
veiðarfæraspjóll, skal jeg iúslega játa, að af þvi
jeg ritaði greinina i gremju, og reiði, sem orsak-
aðist af röngum (regnum, er mjer voru bornar,
og þar af leiðandi skökkura getgátum sjálfs mín
um saklausa menn, þá finn jeg mig ótilkvaddan
til, með linum þessum, að apturkalla sem dauð
j og marklaus öll þau vansæmdar orð, sem í áð-
urnefndri greiu minni kann að finnast. Jegskal
| geta þess að net mín ekki fun lust nokkra daga
á sínum rjettu miðum, og var mjer af öðrum
gefið í skin, að þau mundi hafa veríð tekinn,
þetta reyndizt satt að nokkuð af netum mínum
höfðu verið flækt saman við annars manns net.
En á meðan sá maður var að losa þau frá sni-
um netum, bar hann langt frá þeim miðum sem
mín net áttu að vera á, og greiddi þau svo, og
slepti þeira á öðrum miðum. En eptir nokkra
daga vísaði mjer til þeirra, og reyndizt það satt,
að það sem mig vantaði, af netum þá, var þar
sem hann vísaði á. Sem betur fer eru allflestir
þeirra manna sem fiskiveiðar stunda ráðvandir
og virðingarverðir menn, að því leyti sem þekki
til. En þó að veiðarfæraspjöil, optar en skyldi,
hafi átt sjer stað nú á seinni árum, þá er ekki
ætið hægt að dæma um það hvort það er af
skeytingarleysi fiskimanna eða af völdum náttúr-
unnar. það jeg til veit hafa 5} eða 3 menn hjer
í hreppi mist nokknú at netu.ni sínum á vorver-
tíðinni, en orsakirnar til þess vita þeir
ekki beinlínis. Veiðarfæraspjöll hafa talsverð
orðið samt, eins og ávallt vill verða þegar fiskur
aflast á litlum bletti, en bvergi verður vart ann-
arstaðar, og þó að einstöku menn hafi fengið orð
fyrir að meðhöndla ógætilega annara veiðarfæri,
sem saraan við þá flækjast, þá munu þeir þó fáir
vera í samanburði við hina, enda ekki hægt að
segja, að þeir sjeu valdir að því sem þelm er
borið á br^n í þeim efnum, meðan engin veru-
leg rök er við að styðjast, þvi mönnum hættir
opt við að kenna það öðrum, sem óforsjálni
sjálfra þeirra er um að kenna, oins og þegar
menn af ásettu ráði leggja net sin ofan i net
annara, og verði þcss vegna fyrir veiðarfæraspjöll-
um ef þeir verða seintii til að draga sín net of-
an af þeim sem undir liggja. Af íramangreind-
um ástæðum skal jeg biðja almenning að taka
ekki mark á aðalinnihaldi gieinar mi.inar sem
áður er nefnd heldnr virða grein mína i
heild sinni eins og hver önnur gáleysis, gremju,
bráðræðis, og fljótræðis verk.
Sjónarhól 25. júní 1891.
L. Pálsson.
Nærsveitamenn erubeðnir að vitja
„ísafoldar“ á afgreiðslustofu hennar (i
Austurstræti 8).
Forngripasafnið opið hvern mvd. op ld. k> 1 P
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. 10 12
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12 2
útlán md„ mvd. og ld. kl. 2 3
Málþráðarstöðvar opnar f Rvík og Hafnarf. hvern
rúmhelgan dag kl. 8—9, 10—1 Og 3—5.
Söfnunarsjóðurinn opinn I. mánud. i
hverjum mánuðf kl. 5—6
Veðurathuganir í R.vík, eptir Dr. J. Jónassen
ágúst Hiti (á Oelsius) Loptþ.mæl. (millimet.) Veðurátt.
á nótt. um hd. frn. em. fm. em.
Mvd. 12. + 8 + 14 7.56.9 759.5 0 b 0 b
Fd. 13. + 6 + 14 762.0 762.0 A h b Ah b
Fsd. 14. + ð + 14 762 0 762.0 N h b N h b
Ld. 15. + 3 762.0 N h b
Siðustu daga hæg norðanátt, bjart og fagurt
sólskin.
Ritstjóri Björn Jónsson cand. phil.
Prentsmiðja ísafoldar.