Ísafold - 30.09.1891, Side 4
312
„Nordstjernen“
Nordens störste illustrerede Ugeblad.
1 Kr. 25 0re Kvartalet. 10 0re om Ugen.
Nordstjernen begynder til lste October sin nye Aargang og tilbyder i Aar sine
Abonnenter:
Gratis Undervisning i Kemi.
Interessante og spændende Komaner, Smaafortællinger, Humoristiske Fortællinger,
Historiske Romaner, Portrætter, Nutidsbilleder, Dansk og fremmed kunst, Oplysende Illu-
etrationer, Humor i Billeder o. s. v.
Endvidere vil vore Abonnenter erholde det paa Boghandler H. Hagerups Forlag
udkomne
Hús til sölu
Hótel »Reykjavík« fæst til kaups með
góðum kjörum og borgunarskilmálum. Hús-
ið er í miðjum Reykjavíkurbæ; því fylgir
3tór, umgirt lóð, heyhús, hesthús, fjós og
geymsluhýsi.
I húsinu eru 18 herbergi auk eldhúss,
þar á meðal 2 stórir salir, sem snúa að Að-
alstræti, flest með góðum ofnum; 2 kjallar-
ar eru í húsinu. Húsið er einkar-hentugt
sem verzlunarhús og veitingahús. Til bruna-
bóta er húseigin virt á 12,252 kr., og hefur
nýlega fengið höfuð-aðgjörð.
Reykjavík 3. september lböl.
Björn Kris tjánsson.
•Ulustreret Konversationslexikon*
•der udarbejdes af Chr. Bredstorff, Skolebestyrer i Kjöbeuhavn, og Hall, fhv. Stiftsprovst,
Hofpreædikant i Kristiania, samt J. F. Eng, Guide i Generalstabeu
Tyve Procent under Bogladeprisen,
I det Nordstjernens Abonnenter kan erholde hvert Hefte for 40 Öre, medens Boglade-
prisen ellers er 50 Ore.
Intet Blad i Norden byder sine Abonnenter saa store Fordele som »Nordstjernen«.
Abonneinent tegnes i alle Boglader!
r
Nýir kaupendur Isafoldar næsta ár
(1892)
fá ókeypis
2 árganga af Sögusafni ísafoldar,
annaðhvort 1889 og 1891, eða 1890 og 1892,
í 2 bindum, milli 30—40 sögur, einkar-skemmtilegar,
um 7—800 bís. alls
og 15 siðustu númer þessa árgangs (1892) af blaðinu i til-
bót, ef þeir gefa sig fram i tima.
Exportkaffið Hekla er nú álitið bezt.
Ijlxportkaffið Hekla er hreint og ósvikið.
Exportkaffið Hekla er hið ódýrasta export-
kaffi.
Exportkaffið Hekla er nú nálega selt í öll-
um stærri sölubúðum á Islandi.
D. E. G. Brasch, Hamburg
Forngripasafnið opið hvern mvd, op ld. kl 1—2
Landsbankmn opinn hvern virkan dag kl. 12 2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12— 2
útlán md„ mvd, og ld. kl. 2 —3
Málþráðarstöðvar opnar í Rvík og Hafnarf. hvern
rúmhelgan dag kl. 8—q, 10—2 Og 3—5.
Söfnunarsjóðurinn opinn I. mánud. i
hveriurr mánuði kl. 5—6
/eðuratliuganir í R.vík, eptir Dr. J. Jónassen
sept. Hiti (á Oelsius) Loptþ.mæl. (millimet.) Veðurátt.
á nótt. umhd. fm. em. fm. | em.
Ld. 26. ;+ 4 + » 731.Ö 741.7 N h b N h b
Sd 27. + 2 + 7 746.8 739.1 N h b A h d
Md. 28. +■4 + 7 729.0 726.4 A hv d A h d
þd. 29. Mvd. 31. + 3 + 1 + 4 731 5 741.7 736.6 N hv b N hv d Nhvb
IJndanfarna daga hefur verið norðarok,
hvass til djúpa 26. og 27.; hinn 28. rokhvass
á austau moð regni, lygndi síðar um kveldið
og gekk svo aptur til norðurs og hefur síðan
verið hvass en bjartur. I morgun (30.) hvss
en á norðan.
Ritstjóri Björn Jónsson cand. phil.
Rrentsmiðja ísafoldar.
136
engu hefði hann verið sjer sjálfbjarga, og því síður mætti
hann öðrum að liði verða í þvílíkum nauðum. Gat hann
svo um talað fyrir Jóni, að hann festi heitið með honum.
Litlu síðar hvessti enn vestan. Rak þá enn um tvö
dægur austur um hafið. Segja menn þeir mundu þá komnir
nær^opnum Skagafirði, er þeir sáu skip á hvolfi. Vildi þá
svo til,J[að það bar að jaka þeim, er þeir voru á, svo náð
fengu þeir til þess, og sett á jakann upp, þó ærin væri
það þrekraun. En þó skip væri nú fengið og að öllu heilt,
því ságt er að það hafi hvolft við Hrísey á Eyjafirði og
menn druknað af því, en það rekið í haf út, þá skorti
nú árar. En það hafði orðið, að ásenda einn mjóan höfðu
þeir fundið í ísnum og höfðu hann með sjer. En nú
vantaði aðra árina, áður þeir gátu að líta spýtu fljóta.
Settu þeir þá ofan skipið og freistuðu að komast að henni
með þeim hætti, að Jón reri með ásendanum á annað
borð, en Hallvarður gutlaði með höndum sínum á hitt
þorðið, og kom svo, að þeir fengu náð spýtunni. Var það
girðisviður og lítið klofinn í enda, tók Hallvarður það ráð,
að þeir klyfi hana í milli sínn af handafli, og tókst það
um síðir, þótt aflraun væri mikil; og sagði Hallvarður svo,
að mjög fyndi hann þá, að sig skorti afl við Jón. Og
með þeim árum fengu þeir dregið sig eða spýtuklofningnum
inn á fjörðinn vestan Drangeyjar. Var þar íslaust áður
landsynningur þaut á, svo að við ekkert fengu þeir ráðið.
Voru og árar þeirra ail-óþjálar. Rak þá nú undir Tinda-
stól, þar áður var kallað Eilífsfjall, og braut þar skipið,
en fyrir því að lágsjóa var, fengu þeir kröklazt inn með
137
að Reykjam á Reykjaströnd, allþrekaðir; en góður beini var
þeim veittur. Koraust þeir þaðan til Spákonufells á Skaga-
strönd og þaðan með viðarflutningsmöunum vestur á Strandir.
Og er saga þessi höfð eptir Snorra presti Bjarnarsyni.
13. kap. Snorri prestur fœr Húsafell og flyzt af Ströndum.
Nú varð það þrem vetrum eptir Hrossafellisvetur hinn
mikla (1757), að Snorri prestur fekk Húsafell syðra og flutti
varnað sinn á Inn-Strandir bjóveg, þangað er hestum mátti
bezt við koma. Var þangað von Borgfirðinga að sækja hann,
eður íarangur hans og konu. En síðan fór prestur við annan
mann á skipi, er Hjalti er nefndur. Var logn veðurs um
morguninn og hældi Hjalti veðrinu, en prestur kvað allan
dag eigi úti; bað Hjalta lofa það hægt. En það er talið, að
þeir Jón blóti og |>orgils hygði nú að sjó ráð fyrir presti.
Bað prestur skjótt ferma; en er þeir voru komnir skammt
frá landi, brast á niðamyrkurs-þoka með sterkviðri. Prestur
sat og stýrði. Sá Hjalti það eitt til hans, að hann hafði
kver á bitahöfði, og leit á við og við undir stjórninni. En
er þeir komu fyrir annes eitt, rei§ boði, sem við ský næmi.
Hjalti mælti: »ískyggilegir eru slíkir, ef margir rísai. Prest-
ur mælti: »f>riggja er von og verstur mun sá síðastú.
Leið stund í milli hvers boðans. En það sagði Hjalti, að
hinn síðasti mundi yfir taka með öllu. Færðist Snorri
prestur þá í herðar og tautaði nokkuð við. Skreið þá og úr
boðanum, en sjór sauð allt í seglið, svo nálega fyllti. Bað
prestur þá taka til austurs; af mundi hið versta. Kemst