Ísafold - 25.11.1891, Síða 1

Ísafold - 25.11.1891, Síða 1
K.emut út á miðvikudögum og ’iaugardögum. Verð írg. («m ioo arka) 4 kr.; erlendiss k>. borgist fyrir miðjan júlímánuð ÍSAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bundin við áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir l.okt. Af- greiðslust. i Austumtrœti 8. XVIII. 94 Reykjavík, miðvikudaginn 25- nóv. 1891 Aðalbrú á Hvítá í B orgarfirði. Einstök fyrirmunun má það heita, aðenn skuli vanta aðalbrú, þjóðleiðarbrú, á Hvltá í Borgarfirði, ferjuvatu, sem þrír landsfjórð- ungar eiga leið yfir til höfuðstaðar lands- íds, eina ferjuvatnið í öllum Yestfirðinga- fjórðungi, og þó að eins á takmörkum hans. |>ar að auki klýfur á þessi að endilöngu eitt með fjölbyggðustu hjeruðum landsins, sem nú er eitt lögsagnarumdæmi. Ókunnugir hljóta að ímynda sjer, að mjög mikill vandi og lítt kleífur kostnaður muni vera að brúa þá á. |>eir hugsa sjálfsagt, að það muni kosta marga tugi þúsunda; annars mundu hjeraðsbúar sjálfir löngu búnir að leggja slíka brú. joeir væru og líklegast búnir að því nú,ef eigi væri vegalögin frá 1887, er vörpuðu öllum slíkum fyrirtækjum á landssjóð, með öðrum torfærum á aðalpóstleið; því aðalbrú á Hvítá verður að vera á póstleið og þjóðleið. |>eir hafa, eða rjettara sagt 2—-3 sveitir, brúað ána, eins og kunnugt er, í sumar, en langt úr þjóðleið, á Barnafossi, mest fyrir fjárrekstra, en þó svo vel, að fara má þá brú með klyfjaburð. Vandityi og kostnaðurinn að brúa Hvítá á fyrirhugaðri þjóðleið að henni og fráersem sje svo ótrúlega lítill, að jafnvel fátæk sýslu- fjelög hafa lagt á sinn kostnað hálfu dýrri brýr, já, margfalt dýrri. I sumar var lögð á landssjóðs kostnað brú á smásprænu eina skammt hjeðan, er fáir hafa heyrt nefnda utanhrepps; hún heitir Leirvogsá. |>að mun hafa kostað um 3þús. kr., brúin sjálf og steinstöplarnir undir brú- arsporðana beggja vegna. Og það er einstak- lega traust.og vel gerð brú. Hún er líka að eins 22 álnir á lengd. Hvað er það að miða við annað eins höf- uðvatnsfall og Hvítá í Borgarfirði! — munu menn segja. Jú, viti menn! Leirvogsárfarvegurinn er 22 álnir á breidd á brúarstæðinu. Hvítárfarvegurinn er á hinu fyrirhugaða aðalbúarstæði er,— hann er fjórðungi mjórri. Hann er ekki nema 17—18 álnir á breidd! Og þessi ósköp hafa menn látið sjer í aug- um vaxa allt til þessa dags, í mörg hundr- uð ár ! Auðvitað höfðu fornmenn brú á Hvítá á (þessum stað, sem lesa má í Sturlungu og víðar. En vitanlega hlaut hún að takast af undir eins og hún fúnaði, eptir íslenzkri manndáð á 14. og 15. öld. Að koma henni á aptur, — slíkt fyrirtæki hefir þjóðin sem sagt eigi hætt sjer rrt í þau 6—700 ár, sem síðan eru liðin. þetta ægilega stórvirki kostar líklega 3000 kr.! J>að ko3tar hálf, hálf eins árs eptir- laun eins embættismanns, eða lítið meira. xMiklar hetjur erum við, Hrólfur minn!« Miklir garpar erum vjer, íslendingar. Menn halda sjálfsagt, að þessi kostnaðar- áætlun nái engri átt. En því skyldi það vera ? Brúin á Barnafossi kostaði eigi 2000 kr., og er þó 4 álnum lengri en hin brúin þarf að vera, hjá Kláffossi. En af því það á að vera aðalbrú, er hæfilegt að ætlast til, að hún sje höfð þeim mun veigameiri, að trje- smíðið, brúin sjálf, verði samt eins dýrt,— pó að miklu skemmra sje að flytja efnið og pó að mikill viður og talsverður smíðakostn- aður hafi farið í kvíar úr frá báðum brúar- sporðumáBarnafossi, vegna gljúfrahættunnar þar. þá eru samt meira en 1000 kr. eptir, og þær eru ætlaðar í grjótvinnu undir brúar- sporðana, stöpul eða stöpla. Hún var eng- in við Barnafoss ; brúin liggur á gljúfur- börmunum ; gljúfrin eru nógu djúp til þess. það mun þurfa lítið sem ekkert að hlaða undir brúna á Kláffossi nema öðrum megin. Norðmenn hafa nú kennt íslenzkum vega- gjörðarmönnum að hlaða brúarstöpla án steinlíms, og það vel rammbyggilega, sem sjá má á Hólmsbrúnni og Leirvogsárbrúnni. Til þess þarf vitanlega hentugt grjót, það er: grjót, sem kljúfa má eða höggva. Bresti það á þeim stað eða þar nærri, mun verða að hafa steinlím, og eykur það kostnaðinn nokkuð, en eigi stórkostlega. Enda ætti ekki að líða yfir neinn, þótt kostnaðurinn kæmist eitthvað frarn úr þessu, sem hjer er nefnt. Aðhann þurfi að fara fram úr 4000 kr., það er að minnsta kosti lítt hugsandi. Ymsir munu hafa heyrt getið um allt öðru- vísi lagaða áætlun um brúarkostnaðinn hjá Kláffossi. þeir munu hafa heyrt nefndar 10 þúsundir í stað 3 eða 4, og það eptir vitring í þeim efnum, hálærðum vegfræðing. Hjer skal og eigi dírfzt aðrengjaeinn staf í þeirri áætlun. Munurinn er sá, að hann (Siwerson) á við járnbrú, en hjer er gert ráð fyrir trje- brú. En að hafa járnbrú yfir Hvítá hjá Kláf- fossi er bersýnileg þarfleysa. Aðalreglan með járnbrýr og trjebrýr virðist annars vera sú,að hafa stórbrýr, brýr yfir langt haf, úr járni, en smábrýr úr trje. En mundi þessi Hvítárbrú hjá Kláffossi geta kallazt stórbrú á nokkru byggðu bóli ? Eða hví skyldi hún, 17 álna löng, eiga að nefnast stórbrú, og vera smíð- uð úr járni, en 20, 30 eða jafnvel 40 álna brýr á öðrum ám heita smábrýr og hafðar úr trje, eins og altíðkanlegt er, hvort sem þær eru í þjóðbraut (aðalpóstleið) eða eigi ? Er það af því, að Hvítá þessi er fræg, mikils háttar, göfug á, sem skilur landsfjórð- unga ? þessu mun svarað svo, að það sje betra sem betra ér, að hafa brýr úr járni en trje. Getur vel verið, — ef, ef efnin leyfa. En meðan landið á svo í vök að verjast með fjárhaginn sem það á, og getur ekki framkvæmt hundraðasta partinn af því, sem það bráðþarfnast fyrir, og fyrir þá sök læt- ur sjer duga smábrýr af trje, sem vel má fara — það gera jafnvel efnaðri þjóðir—, á meðan er hjegóma-tiktúra að láta sjer vand- ara um e.ina á annari fremur, eða eina smá- brú af mörgum. Vextir og vaxtavextir af kostnaðarmunin- um á járnbrú og trjebrú eru miklu, miklu meiri en viðhaldskostnaðaraukinn á trje- brúnni, að fyrningu meðtalinni eða end- ursmíðun trjebrúarinnar í hvert sinn sem þess þarf. Er því mun hyggilegra, að spara sjer þann kostnaðarauka, þegar það er hægt, þ. e. brúin eigi svo stór, að nauðsyn beri til fyrir styrkleika sakir, að hafa hanaúrjárni. Fyrir oss, jafnfjelausa og jafnskammt áleiðis komna að brúa ár og læki á landinu, er einsætt að hafa þá reglu, að brúa heldur 3 ár en 1 fyrir sama fje. Vjer þurfum eigi að brúa þessar 3 ár illa fyrir því. Munur- inn er sá, að viðhaldið er meira á trjebrún- um, er til lengdar lætur, en það á niðjum vorum eigi að vera nein ofætlun. það er hneyksli, að láta Hvítá þessa vera óbrúaða lengur. En það verður hún samt sjálfsagt mörg ár enn, ef ekki má gera það öðruvísi en með járnbrú, og ef endilega á að leggja dýran akveg að brúarstæðinu beggja vegna samsumars. þá verður sjálf- sagt að bíða eptir sjerstaklegri fjárveiting þingsins til þess; en þá verður farið að metast um,hver áin af mörgum skuliganga fyrir; aðrir landsfjórðungar eða þeirra þingmenn halda þá fram hver sinni á. Getur þá svo farið, að Hvítá verði að bíða von og úr viti með því móti. I stað þess að með hinu mótinu mætti brúa ána nú þegar á næsta sumri. Enginn færi að metast um það, þó að varið væri 3000 kr. af þess árs vegabótafje (30,000) til jafnáríðandi og merkilegrar samgöngu- bótar, úr því að enginn fekkst um aðra eins fjárbrúkun við Leirvogsána í sumar. Til vegabóta við brúna þarf naumast öðru til að kosta i bráðina, en að gera vel fært með hesta yfir mýrina vestan árinnar, og getur það eigi miklu numið. jpess má geta, ókunnugum til skýringar, að Kláffoss-brúarstæðið, sem er skammt fyrir neðan Síðumúla, má heita í beinni stefnu frá Varmalækjarmelum upp í Norðurárdal þar, sem vegir skiptast norður á land og vestur, og sjá allir, að sú vegarstefna lengir eigi, heldur styttir til muna þjóðveginn, lang- ferðamannaveginn, yfir Borgarfjörðinn. Hvað hjeraðsmenn sjálfa snertir, þá eru það að eins neðstu sveitirnar við ána, sem eigí hafa gagn af brúnni sín á milli, og svo Mýramenn og kann ske Snæfellingar eða þeir sem þangað eiga erindi sunnan yfir. En Mýramenn liggja við sjó og nota hann mest til ferða og flutninga. Og að fara að kosta upp á brú hinna vegna neðar á ánni, brú, sem hlyti að verða sjálfsagt meira en tífalt dýr- ari en á Kláffossi, það væri hin mesta fjar-

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.