Tíminn - 06.12.1979, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 6. des. 1979
273. tölublaö—63. árg.
„Saga Hannesar frá Undirfelli
er heiðrík^usaga baráttu-
manns", segir Guðmundur frá
Bergsstöðum m.a. um nýút-
komna ævifrásögn Hannesar
wPálssonar. Sjá nánar á bls. 7.-
Slðumúla 15 ■ Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300,- Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Forsetinn fól Steingrimi Hermannssyni stjómarmyndun:
Steingrímur til Bessastaða
við Lúðvik og Benedikt á morgun
HEI — „Forseti íslands fól mér að gera tilraun til
myndunar meirihlutastjórnar. Ég mun hafa samband
við formenn Alþýðuflokksins og Alþýðubandalagsins
strax i fyrramálið til að óska viðræðna um myndun
vinstri stjórnar", sagði Steingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins að Bessastöðum í
gær, en þangað hafði forseti boðað hann kl. 16.30 til að
fela honum fyrstu tilraun til myndunar nýrrar
stjórnar.
„ÉE geri ráð fvrir að for-
mennirnir vilji fjalla um þetta
viö sina flokksmenn og viö
höfum boöað til þingflokks-
fundar á morgun. En ég vona aö
viöræður geti hafist ekki siðar
en á föstudag, þvi ég hef ekki
hugsaö mér að draga þessar
viöræöur á langinn.
Aftur á móti er þaö grund-
vallaratriöi eigi stjórnar-
myndun aö takast, aö ganga
veröur mjög vel frá f jölmörgum
málum. Þannig að þá má
heldur ekki rasa um ráö fram”.
Steingrimur var spuröur
hvort hann teldi stjórnar-
myndun torvelda og hver væri
þá þau mál sem helst strandaði
á.
„Fyrst auövitað aö vita hvort
flokkarnir tveir vilja yfirleitt
taka þátt i þessari tilraun, þótt
mér þætti að visu ákaflega
skritiö ef þeir hafna þvi. En á
það veröur reynt. Efnahags-
málin eru auövitaö forgangsmál
i minum huga og ég vil ekki trúa
þvi, að nein önnur mál veröi
látin standa i vegi. I efnahags-
málunum er auövitaö um fjöl-
marga þætti aö ræöa. Ég legg
áherslu á, aö samstaða náist viö
launþegasamtökin um þau mál,
enda eru slik samráö grund-
vallaratriöi i okkar stefnu. Ég
mun þess vegna sjálfur hafa
forgang um aö kanna hug
forystumanna launþegasam-
takanna mjög fljótlega”.
Hefur staöan i efnahagsmál-
unum ekki enn versnaö siöan
stjórnin fór frá, var Steingrimur
spuröur og jafnframt hvort og
hvaöa mál hreinlega yröi að
leysa á mjög fljótlega.
„Jú staðan hefur versnaö.
Efnahagsnefnd flokksins kom
saman til okkar til ráðuneytis
strax i dag. Spurningin er,
hvernig við fellum okkar efna-
hagsmála tillögur saman viö
þaö ástand sem skapast hefur
að undanförnu. Nú eru fram
komnar miklar launahækkanir
og búvöruverðshækkun, sem
ætti þegar aö vera komin, er á
næsta leiti og siöan er að kom a
að fiskveröshækkun, sem
vægast sagt er mjög vafasamt
að frystihúsin standi undir. Þaö
þýöir aö öllum likindum gengis-
Forseti tslands, Kristján Eldjárn og Steingrimur Hermannsson aö Bessastööum I gær. „Ég hef alltaf
haft þaö fyrir reglu, aö byrja hvert verk fuilur bjartsýni” svaraöi Steingrimur spurningu um hvort
hann byggist viö aö stjórnarmyndun nú, yröi erfiö. TimamyndG.E.
fellingu fljótlega, ef að likum
lætur.
Þessi skrúfa er sem sagt i
fullum gangi og spurningin er,
hvernig eigi aö hægja á henni.
Þar verður fyrsta skrefiö
erfiðast. Þaö er þvi lika spurn-
ing um það, hvort viö erum
kannski orönir of seinir til aö
komast niöur I þá niöurtalningu,
sem viö höfum stefnt aö meö
okkar tillögum”.
í gær
— hefur væntan
lega vinstri*
stjómar viðræður
Tillögur fiski-
fræðinga
væntanlegar
nú I desember
AM — „Bjarni Sæmundsson er
væntanlegur úr rannsókna-
leiöangri fyrir Noröaustur-
landi alveg á næstunni og ég á
von á aö viö leggjum okkar
fiskveiöatillögur fyrir ráö-
herra nú i desember”, sagöi
Jón Jónsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar I gær.
Jón sagöi aö i leiöangri
Bjarna heföi einkum veriö um
aö ræöa athuganir á smá-
þorski og heföi skipiö veriö
væntanlegt til Reykjavfkur I
gær, en tafist vegna veöra.
Væri ekki hægt að segja i
hvaöa átt tillögur fiskifræð-
inganna mundu hniga, fyrr en
niöurstööur úr leiðangrinum
lægju fyrir. Leiöangursstjóri I
þessum leiöangri Bjarna
Sæmundssonar er Ölafur
Karvel Pálsson, fiskifræö-
ingur.
Þá sagöi Jón Jónsson aö nú
væri Arni Friöriksson viö at-
huganir á sildastofninum,
eftir haustvertið á reknetum
og hringnót, svo sem venja
hefur verið.
Mikiö álag hefur veriö á
skipum stofnunarinnar aö
undanförnu vegna hinna
miklu og ófyrirsjáanlegu tafa
viö r.s. Hafþór.
Sverrir Hermannsson:
Óska Framsókn góðs gengís
— á varla von á að geta rétt hjálparhönd í bili
HEI — „Framsóknarflokkurinn
vann ótrúlegan sigur og hefur þvf
afl til aö reyna stjórnarmyndun.
Hann þykir hafa sýnt ábyrgö I
hinum hroöalegu áflogum innan
fyrri stjórnar. Ég verö aö óska
honum góös gengis I þessu, þvi
varla á ég von á þvi, aö geta rétt
honum hjálparhönd ibiii. Ekki er
maöur þó bjartsýnn, hvorki fyrir
hans hönd né annarra. Þetta
veröur óskaplega erfitt”.
Þetta voru orö Sverris
Hermannssonar I gær, um úrslit
kosninganna og nýja stjórnar- .
myndun.
— Hefur ástandiö ekki versnaö
viö kosningabaráttu og ófyrirséö
hvaö langar stjórnar-
myndunarmyndunartilraunir?
„Jú sattbest aö segja. Enda var
okkar óskastund ekki runnin upp
meö kosningum núna. Hún haföi
veriö næsta vor. Viö urðum lika
jafn forviöa og aörir þegar
kratarnirhlupu úrstjórninni, þótt
sumir áliti aö viö höfum staöiö
þar aö baki. Siöan vorum viö of
svifaseinir. Ófarir 13 mánaöa
stjórnarinnar heföu átt aö gefa
okkurfeikna byr I seglin, en þaö
nægði okkur ekki neitt. Þetta end-
aöi allt i skötuliki hjá okkur.
Ég álit að stefnumótun okkar
hafi verið rétt I sjálfu sér, en að
ekki hafi verið nógu vel á henni
haldið. Ég heföi viljaö túlka hana,
ekki sem leifturárás, heldur
stórsókn eins og viö gerðum árið
1960, sem þá sýndi árangur strax
fyrstu 6 mánuðina. Þaö held ég
lika að sú stjórn sem nú tekur við
veröi að gera. Annars missir fólk
þolinmæöina. Og árangur næst
ekki nema aö þjóöin standi aö
baki þeirra aðgerða sem geröar
veröa, þaö skiptir þingmanna-
tala eIdci máli. En mln skoöun er
sú, aö þjóöin sé nú tilbúin aö axla
byröar i þessu sambandi.
Annars er ég nú heldur
bjartsýnismaður. Stjórnmála-
mönnum hættir um of til þess aö
mála stööugt fjandann á vegginn.
En við erum feiknarlega auöug
þjóö, svo ég ansa ekki þessu
helvítis volæöi. Aftur á móti er ég
hræddur um aö allt framtak og
kjarkur veröi dregiö úr þjóöinni,
með þessum hörmunaráróöri, aö
allt sé aö gara til andskotans.
Þessu bölmóöskjaftæöi þarf aö
snúa viö og hefja bjartsýnistal.”
— Hvernig skýrir þú tap
Alþýöubandalagsins, „einu
brjóstvörn launþegans” aö eigin
sögn?
,,Ég held að fólk sé búiö aö sjá,
að það veröi bara aö reyna á það,
hvort þingræöið lifir, eða hvort
nokkrir menn, eins og t.d.
Guðmundur J., geti eignaö sér
slikt vald að geta bara lyft simtóli
eöa rétt upp hendi til aö stööva
þjóðfélagsstarfsemina.
Nú, siðan var allt blúndulagt
hjá þeim. Efnahagslifið átti aö
komast i réttar skoröur án þess
aö neinn leggi neitt aö mörkum.
En okkar þjóð er of upplýst til aö
trúa þessu.”
— En aö lokum Sverrir, hvar
ætlar þú aö taka til hendinni, svo
vitnaö sé til oröa þinna i
Dagblaöinu I gær?
,,Ég ætla að fara aö auka fólki
bjartsýhi.”
Sverrir Hermannsson