Ísafold - 06.02.1892, Page 1

Ísafold - 06.02.1892, Page 1
’Kemur út á miðvikudögum Mjg laugardögum. Verð árg. (um 100 arka) 4 kr., erlend- is 5 kr.; borgist fyrir miðjan júlímánuð. r Uppsögn (skrifleg) bundim við áramót, ógild nema kom- in sje til útgefanda fyrir 1. októbermán. Afgreiðslustofa í Austurstræti 8. XIX. árg. i Reykjavík, laugardaginn 6. febrúar 1892- || 11. blað. Utlendar frjettir. Kaupmannahöfn, lö. jsn. 1891. Veðrátta- A norðurlöndum lítið vetr- •arkennt til þessa, en meir í ýmsum hinna auðlægu landa. Af stormviðrum hafa mörg ■og mikil tjón hlotizt og skipskaðar einkum með fram ströndum Englands og fieiri landa við Atlanzhaf. Inflúenza. þessi vágestur hefir í nokkra mánuði vitjað allra heimsálfna, og nú með mun voðalegra móti en fyr, og svo eru hversdaglega sögur af bornar, sem læknar ■eigi hjer nýjum óvætti að gegna, að minnsta kosti að sumu leyti. Mannskaði þessarar 8Óttar hefir reynzt helmingi meiri en sein- ast á flestum stöðum. Um Dýjársleytið sýktust hjer í Höfn á viku hátt á þriðja þúsund, og af þeim dóu 110. Harðari var sóttin þó aðgöngu um sama leyti í Stokk- hólmi, er talan náði 4000 með líkum mann- ■dauða. Ófögnuðurinn þó mun meiri í flest- um stórborgum álfu vorrar, t. d. í Berlín, París og Lundúnum, og seinustu frjettirnar frá Ameríku báru, að fimmtándi hver mað- ur lægi veikur í Boston, og að í Chicago hefðu 10,000 sýkzt á einum degi. Eregn- irnar líkar frá Kína og fleirum Asíulöndum. Nýiega sagt frá Berlín, að tveir læknar hefðu fundið frjóanga þessarar sóttar, annar í hráka hinna sjúku, en hinn í blóðvökva 'dauðra manna. Priðarhorf- »Ekki eitt ský á lopti«! sagði Salisbury lávarður í nóvember, í Gilda- höllinni í Lundúnum, og lík ummæli hafa síðan verið höfð eptir höfðiugjum stórveld- anna við þingsetningar og önnur tækifæri. J>ess má hjer við geta, að Carnot bað á nýjársdag sendiboða ríkjanna að bera frið- atkveðjur höföingjum þeirra og segja þeim aú Prakkland sneri nit áhuga sínum nær því allaendis að gagnsmálum sínum innan- rí 'is. Allt Um þetta bólar sífellt á tor- tryggmnni, 0g ijvað lítið sem undir ber sjá greinirnar trá, Frakklandi og Tyrkja- ^ * ’ °” enn 6r spurt, sem fyr, hvenær herbúnaðinum ógurlega muni ljúka> og við hverjum þrifnaði þjóðirnar geti búizt meðan framlogurnar til landvarna og vígbúnaðar aukast ár af ári. Til hugfr<W tala blöðin að visu svo, að fnðunnn sje f betri 8tell. mgai kommn en fyr, þar sem það jafnvægi 3torveldanna sje á komið, sem við þyrfti Á annari skálinni þríveldasambandið, á hinni samband eða fylgissammæli Prakka og Rússa, en áður væru tögl og hagldir Evrópu í höndum þjóðverja. Svo má á líta; en þá, er eptir að vita, hve lengi þjóðverjum, eða hvorum um sig, þríveldunum og hinum, eirir hið nýja jafnvægi. Danmörk. Frá tengdasyni sínum, Russakeisara, komu þau konungur vor og drottning heim aptur 1. desember, og á heimleiðinni komu þau við í Berlín og höfðu þar alúðarviðtökur hjá Vilhjálmi keisara. Tvídeild vinstrimanna er nú engum leng- ur dulin, en hinir einbeittu kalla hinn flokkinn »sambræðinga (Sammensmœllere)«, sem nú renna hýrum augum til stjórnarliða, þó gætilega sje að öllu farið og lítið beri á samfellingunni. Allt um það þykir þó líkast, að Estrúp gangi enn fjárheimildar- laus af þingi. En svo koma kosningarnar í sumar, og eru þá góðar líkur til, að betur verði til »bræðingar« búið, en auðvitað, að eptir samsteypuna koinast margir að þeirri hitu, embættum og virðingum, sem þeir hafa lengi eptir beðið, en viuir stjórnarinnar hafa verið einir um. Hins vegar mætti svo að orði kveða, að þófið sje fullreynt, og fyrir því hrökkvi Estrúp og hans nótar aldrei af stóli, en annað úrræði miður hent hjerlendum frelsismönnum. Nú hefir líka þess manns misst við í liði vinstri manna, sem mest atgerfi og kosti hafði til forustu, er C. Berg varð bráðkvaddur 28. nóvember, en hafði keunt lasleika nokkru fyr og leitað bóta við erlendis. Lesendum þessa blaðs mun flestum kunnugt um frammistöðu þessa manns á þingum Dana, en þingferil hans er að rekja til 1865. Af öðrum merkum mönnum, sem dánir eru, má nefna; C. L. A. Benzon, kamm- erherra, sem dó rjett fyrir nýjár, en hafði fengið lausn af borgarstjóraembættinum í byrjun mánaðarins. — Nýjársdag látinn Edvard Erslev, prófessor, 67 ára að aldri, margfróður maður og höfundur margra landfræðarita. Dáinn er fyrir skömmu Kauffmann liershöfðingi, sem um tíma stýrði hermálum Dana. Noregur- Kosningarnar veittu vinétri- mönnum fulla yfirburði á þingi, er 63 skipa flokk þeirra. Hægri menn 37 að tölu, en í miðflokki 14, sem í flestum málum munu fylla flokk vinstrimanna. — Norðmönnum dylst nú ekki, að þeim er hörð streita ráðin, er þeir ætla að berjast til fulls jafnstæðis við Svía og fá utanríkismálum sínum norska forstöðu. Hvað hjer tekst verður reyndin að sýna, en flestir á voru landi munu óska frændum vorum sanngjörnustu úrslita. Af öðrum hlutverkum þingsins nýja má nefna ný skattalög og útfærslu kosningar- rjettar. Um Oftedal prest er nú fullsannað, að hann hefir í mörg ár staðið í hneyxlismök- um við stúlkur, sem komnar voru til líf- ernisbetrunar í einni stiptaninni, sem hann 3tóð fyrir. Skáldið Alexander Kielland er nú orðinn borgarstjóri í Stafangri sóknarbæ Oftedals, en í mörgum skáldsögum sínum hefir hann haldið skriðljósi uppi yfir leyndarstigum klerka og hræsnara í þeim bæ og fleirum í Noregi. England. Vegna tíðindanna síðustu frá Egiptalandi, er Tewfik jarl er dáinn, halda Englendingar sjer þar vel vakandi á verði, og vilja gæta til, að ekkert dragist sjer úr greipum, hvort sem Tyrkir eða Frakkar vekja til á ný um burtkvaðning enska liðsins, en um það gaf Salisbury í haust fullt afsvar. Blöðin spá ýmsu um misklíðir, en hjer verð- ur bezt að sjá hverju fram vindur. í nýju blaði lýsa Parnellingar kröfum sín- um fyrir hönd írlands, og er þar allt það saman tekið, sem þeim þykir nauðsynlegt til fulls sjálfsforræðis, írskt þing, innlend landsstjórn í öllum greinum og með fram- kvæmdarvaldi o. s. frv., en nýmæli þingsins skulu bíða samþykktar »krúnunnar« eða henn- ar umboðsmanns. Nýlega sigruðust Parnell- ingar á hinum við kosningu í Waterford. Albert Victor, hertoginn af Clarence og Avondale, elzti son prinzins af Wales, dó í gær úr inflúenza.— Brúðkaup hans og Maríu prinzessu af Teck átti að standa í næsta mánuði. Mörg önnur mannalát að segja meðal stór- mennis Englendinga. Hinn 24. nóv. dó Lytt- on lávarður (Edward Róbert Bulwer) sendi- herra Englands í París; haun var varakon- ungur á Indlandi, er höfðingjar þess gáfu Viktoríu drotDÍngu keisaratignina. Hann var son skáldsins fræga, og er sjálfur höf- undur ýmsra skáldskaparrita; varð sextugur að aldri. Nú tekur Dufferin lávarður við erindarekstri í París. Hinn 21. des. dáinn hertoginn af Devonshire, nýtasti skörungur, faðir Hartingtons lávarður, er nú sezt í hans sæti í lávarðadeildinni. — Hinn 28. des. dó (67 ára að aldri) William White, sendiboði Englendinga í Miklagarði, talinn mesti skör- ungur í því liði, en ráðdeild og kjark þurfa þeir að hafa, sem erindum þar gegna. In- flúenzan varð honum að bana, en hann var í heimsókn hjá dóttur sinni í Berlín. í>ýzkaland. þau tíðindi eru þaðan mark- verðust að segja, að nýr verzlunarsamning- ur er gjörður til 12 ára við bandaríki þýzka- lands, Austurríki og Italíu, og á 6 ára band eru Sviss og Belgía dregin. Svo hefir tekizt fyrir atorkuráð Caprivis, kansellerans nýja, sem fjekk alríkisþingið til að fallast á nióur- færslu tolla á ýmsum varningi. Bismarck var öllu tollfrelsi mótfallinn, og því lasta fylgis- blöð hans þessar nýjungar og kalla þýzka- landi, einkum jarðeigendum þess og öllum landbúnaði, af þeim sýna hættu búna. Keis- aranum þykir hjer nýtasta afrek unnið, er þessi lönd eru svo fastara dregin að f>ýzka- landi, en slfkt hljóti að verða bandalaginu við Austurríki og Ítalíu að eins til trausts og styrktar. Hefir keisari nú sæmt Caprivi greifanafni fyrir frammistöðuna. Bæði Caprivi og blaðaritendur játa, að víg-

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.