Ísafold - 06.02.1892, Page 4
44
jþað sem eptir var mánaðarins, og töluverð-
ur snjór var kominn um árBlokin. Veður
voru stundum mikil í þessum mánuði. Með-
alhiti mánaðarins var -r- 5,04 C. Fyrstu
viku þessa árs hafa verið 3 hríðardagar, svo
naumlega hefir verið fœrt út úr húsum ao
annast pening. |>essu hefir og fylgt norðan
hvassviðri og snjókoma mikil.
I sumar urðu heyföng manna með bezta
inóti, og hafa allflestir fjölgað skepnum að
mun; mun ekki hjer í sýslu hafa verið jafn-
margt fje og nú er síðan 1880. Skepnu-
höld hafa verið góð hingað til. Bráðapest
hefir stungið sjer niður hjer og hvar, en
engin sjerleg brögð hafa þó orðið að henni.
Fiskiafli var fremur lítill og reitingssamur
1 haust, og nokkuð aflaðist og af síld.
A stjórnarmál minnist enginn maður, en þó
er líkara, að áhuginn á þeim sje ekki dauð-
heldur sofi. Menn eru og, sem von er,
•óánægðir með útsendingu Alþingistíðindanna,
því að af þeim tíðindum, sem útbýtt er
meðal hreppanna, eru engin komin síðan í
haust, svo menn eru harla ókunnugir því,
sem gjörðist á þingi í sumar.
A kostnað bókaverzlunar Gyldendals
er útkomin :
Sýnisbók islenzkra bókmennía á 19. öld.
Út gefið hefir Bogi Th. Melsteð. Kmhöfn
1891. XX + 348 bls. 8. Kostar í snotru
og góðu bandi 4 kr. 75 a., en í fegursta
skrautbandi 6 kr. Fæst hjá bóksala Sigfúsi
Eymundarsyni og öllum hinum helztu bók-
•sölum landsins.
Bók þessi hefir fengið beztu viðtökur bæði
utanlands og innau. Hjer skulu tilfærð
nokkur orð úr dómum um hana, sem kom-
ið hafa út á íslandi:
»Mjer var þessi bók harla kærkomin. þeg-
ar hún barst mjer fyrst í hendur og jeg
hafði lesið formálann, þá gat mjer ekki
dulizt það, að þessi bók sje runnin af þeirri
þjóðræknislegu ósk, að íslenzkar bókmennt-
ir mættu skipa veglegra rúm í skólum vor-
um, en hingað til hefir raun á orðið. Bókin
býður af sjer hinn bezta þokka og á þvf
skilið að henni sje sýnd íslenzk gestrisni...
jbessi bók getur orðið, ef vel er á haldið,
til að koma á nýrri og þjóðrœkilegri stefnu í
skólamenntun vorri, og allir þeir, sem það
er áhugamál, ættu að taka þessari þók feg-
ins hendi og kunna höfundinum þakkir fyr-
ir. Bókin er sjerlega vel vönduó að öllum
ágangi. _
(Isafold, Bjarni J onsson)
J>essi bók er nýnæmileg að því leyti, að
éður hefir engin þess kyns bók komið út á ís-
lenzku. Bók þessi vekur eflaust eptirtekt
annara þjóða á hinum nýju ísl. bókmenntum.
(íjkonan).
þessi bók inniheldur sýnishoru af skáld-
skap og ritsmíðum allra hinna helztu ís-
lenzku höfunda þessarar aldar. Ctgefand-
anum hefir tekizt mjög vel að velja eptir
hina ýmsu höfunda. Vjer finnum þar margt
hinna fyrstu kvæða, er til eru á vorri tungu,
og ritgjörðir og ritgjörðakafla eptir hina þjóð-
nýtustu menn vora . . . Hún er gersemaskrín,
cr sjerhvert ungmenni Jslands þyrfti að eiga
og lesa, og er sjálfkjörin bók við íslenzku-
kennsluna í öllum skólum vorum.
(pjóöólfur, Ó. S.)
Hr. cand. mag. Bogi Th. Melsteð á mikl-
ar þakkir skilið fyrir sýnisbók þessa, sem er
einkar-vel fallin til þess, að gefa vorum upp-
vaxandi œskulýð stutt og glöggt yfirlit eða
sýnishorn af bókmenntum íslendinga á 19. öld,
sem hverjum Islendingi œtti að vera Ijúft og
hughaldið að þekkja . . . það er óskandi, að
bók þessi mæti svo góðum viðtökum af lands-
manna hálfu, að bráðlega komi út önnur
útgáfa, og þarf þá eigi að efa, að hr. Bogi
Th. Melsteð muni gjöra hana enn fyllri og
fullkomnari, en þessa fyrstu útgáfu.
(pjóöviljinn ungi).
Annað augnamið ntgefandans er það, að bók-
in yrði notuð sem lestrarbók í skólunum. Til
þess er bókin mjög hentug. það hefir hingað
til verið siður í skólum vorum, . . . að lesa
að eins fornrit vor og byrja þegar á lestri
þeirra í hinum neðstu bekkjum. En þetta
er alveg öfug kennsluaðferð og gagnstæð því,
sem tíðkast hjá öllum öðrum menntuðum
þjóðum. pað á að byrja á því að lesa úrvalda
kafla úr nútíðarritum, sem geti verið læri-
sveinunum fyrirmynd í stýlum þeirra, bæði
að því er snertir mál og rjettritun. |>að ætti
einnig að láta þá læra noVkur af vorum
beztu kvæðum utanbókar, cjhs og títt er í
skólum erlendis ... Jeg býst við að menn
hafi fundið til þessa fyrir löngu og íslenzku-
kennararnir kann ske ekki hvað sízt sjálf-
ir; en hingað til hefir vantað viðunandi lestr-
arbók % nýja málinu. En nú er bókin fengin,
og vil jeg óska þess og vona, að hún verði not-
uð í skólanum, því hún hefir marga þá kosti
til að bera, sem gera hana einkar-hœfa til
þess.
(Tímarit Bókmenntafj.. Dr. Valtýr Ouömundss.).
í ölverzluninni „Tuborg“
í Aðalstrceti nr. 7 hef jeg undirskrifaður byrj-
að verzlun raeð ýrais konar varning og vona,
að almenningur sýni mjer þá velvild, að reyna
vörur mínar; jeg mun kappkosta að hafa
vandaðar vörur og selja þær með sem vcegustu
verði.
J>essar vörur komu nú með »Laura«:
bankabygg, klofnar ertur, hrísgrjón, hrísmjöl,
kartöflumjöl, skozk hafragrjón, boghvede-
grjón, hveiti, sagogrjón, gott brennivín, kaffi,
kandis, hvítasykur, púðursykur, brjóstsykur
margs konar, konfect, fíkjur, rúsínur, kanel,
sennep, citrónolía, epli, laukur, selleríer, pip-
arrót, margar sortir chocolade og kaffibrauð,
allavega analinlitir, blek, glycerin, skósverta,
ofnsverta, stígvjelaáburður, geitarskinns-
sverta, grænsápa, margskonar handsápa, Eau
de Cologne, svampar, eldspítur, húfur, hattar,
og ýmislegur glysvarniugur.
Nýar byrgðir koma með hverri póstskips-
ferð.
Virðingarfyllst
G- Sch. Thorsteinsson.
Nýa sálmabókin hefur fundizt á göt-
um bæjarins. Vitja má til Eiríks Magnús-
sonar á Efstabæ í þingholtum.
fúngvallafundur.
Samkvæmt áskorun í 1. tölubl. »Fj.konunn-
ar« 5. f. m. lýsum við undirskrifaðir forsetar
8Íðasta alþingis því yfir, að við erum fúsir til
að boða til almenns þingvallafundar á kom-
anda sumri, til að ræða um ýms mikilsvarð-
andi landsmál, svo framarlega sem áskoranir
um það verða sendar okkur úr meiri hluta
kjördæmanna á landinu.
Við álítum, að slíkir málfundir sjeu æski-
legir og geti haft góðan árangur, meðal ann-
ars í þá átt, að samkomulag geti unnizt um
það, hver af málum þeim, sem landinu geta
orðið til framfara, eigi að metast mest og sitja
í fyrirrúmi. Álit um það, hvenær fundinn
skuli halda, óskum við og að fá.
Reykjavík og Uörðum, 2. febr. 1892.
B. Kristjánsson. þórarinn Böðvarsson.
Jörðin Búðir á Snæfellsnesi fæst til
kaups og ábúðar á næstkomandi vori, Tjyst-
hafendur snúi sjer til
Eyjólfs þorkelssonar,
úrmsiðs, í Reykjavík.
BÓk í láni! Ef nokkur hefir í höndum
að láni frá bókasafni hinna kaþólsku presta
í Landakoti
27. bindi af Encyclopedie du 19. siécle,
París 1859,
er hann beðinn aðr skila því hið bráðasta
til verzlunarstjóra ólafs Ámundasonar í Rvík.
Proclama.
Eptir lögum 12. apríl 1878 sbr. o. br. 4.
jan. 1861 er hjermeð skorað á alla þá, sem
til skulda telja í fjelagsbúi Eyjólfs Jónsson-
ar á Katrínarstöðum í Garðahverfi og dáinn-
ar konu hans Ingibjargar pórarinsdóttur, að
lýsa lcröfum sínum og sanna þœr fyrir skipta-
ráðanda hjer í sýslu innan 6 mánaða frá síð-
ustu birtingu auglýsingar þessarar.
Skrifstofu Kjósar- og Gullbr.sýslu 26. jan. 1892.
Franz Siemsen.
Wýprentað: f
U T SÝN.
pýðingar á bundnu og óbundnu máli.
Útgefendur :
Einar Benidiktsson. porleifur Bjarnason.
Khöfn. A kostnað bókaverzlunar Gylden-
dals.
Fyrsta hepti (Bandaríkin) kostar 50 a.
Ritið á að koma út í 6 heptum á ári á 50 a.,
eða 3 kr. árganguriun. Fyrsta hepti fæst
hjá öllum bóksölunum í Reykjavík og
verður sent með fyrstu strandferð í vor
til annara bóksala á landinu.
Aðalsölu-umboð hefir Bókaverzlun Sigf.
Eymundssonar t Reykjavík.
Ný-komió með Laura.
Hanzkar, margar tegundir, svo sem
kvenn-vetrarhanzkar með loðskinnsfit; alls
konar gljá-hanzkar, alla vega litir; silki-,
ullar- og baðmullar-hanzkar; karlmanna-
vetrarhanzkar; hjartarskinns- og þvotta-
skinns-hanzkar, svartir og alla vega litir,
og barnahanzkar.
Margs konar humbug og kragatau.
Extra-fínt kamgarn; dyffel; alfatnaðar-
efni; buxnaefni; húur; hattar o. fl.
Allt ódýrt eptir gœðum.
H- Andersen
16. Aðalstræti. 16.
Verzlunarmannafj elag Reykj avíkur-
Unglingur sem reiknar vel og að öðru
leyci er vel að sjer getur fengið stöðu við
stóra verzlun á Vesturlandi.
Menn snúi sjer til ofanskrifaðs fjelags.
Nýkomið með »Laura«-
Agætt the og kaffi.
Stórt úrval •af lierðasjölum
Barnakjólum
Tvisttauum
Flonel
Handklæðum
Ljereptum.
Enn fremur Stormhúfur
Sjómannahúfur
o. fl. húutegundir.
Enn fremur ýmislegt fleira svo sem mjög
mikið af fínum handsápum o. fl. o. fl.
G Zöega & Co-
Góð epli og apeUínur hjá
M. Johannessen.
Iðnaðarmannafjelagsfundur
sunnudag 7. febrúar, kl. 4.
Nú í haust var mjer dregin gráhniflótt lamb-
bimbur, sem jeg ekki á, en er þó með minu
marki: tvístýft aptan hægra og blaðstýft aptan
vinstra. Rjettur eigandi vitji lambs þessa til
min gegn borgun fyrir þessa auglýsingu og áfall-
inn fóðurkostnað.
þorbjarnarstöðum í Hraunum 2. jan. 1892.
Bjarni Ivarsson.
LEIÐARVÍSIR TIL LÍFSÁBYRGÐAR
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr.
med. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim,
sem vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar
upplýsingar.
Ritstjóri Björn Jónsson cand. phil.
Prentsmiðja ísafoldar.