Ísafold - 28.09.1892, Qupperneq 1
Kemur út á miðvikudögum
og laugardögum. Yerö árg.
(um 100 arka) 4 kr., erlendis
5 kr.; borgist fyrir mibjan
júlímánuT).
ÍSAFOLD.
Uppsögn (skriíleg) bundin viT>
áramót, ógild nema komin
sje til útgefanda fyrir 1. októ-
bermán. Afgreibslustofa i
Austurstrœti 8.
XIX. árg
Reykjavík, miðvikudaginn 28. sept. 1892.
77. blað.
Útlendar frjettir.
Kaupmannaliöfn 5. sept. 1892.
Veðrátta. Svo miklir hitar vora seinna
hlut umliðins mánaðar í flestum löndum
álfu vorrar, að lífshætta gerðist í sumutn
borganna. Sumstaðar meir en 30 mæli-
stig. Nú er alstaðar svalara veður.
Kólera. Hitarnir munu hafa flýtt nokk-
uð fyrir fl.utningi pestarinnar vestur eptir
frá Rússlandi, og Vesturheimsferlar komu
með liana frá Rússlandi til Hamborg-
ar. Þann 1 <i. f. mán. bryddi þar á
henni á hafnarsvæði borgarinnar, þar sem
þetta fólk beið burtsiglingar í ljelegum bú-
stöðum. Innan fárra daga tók hún að
geisa og færði hundrað til heljar á hverj-
um degi. í gær höfðu alls sýkzt af henni
þar 5623, en dáið 2519. Minna er um
pestina í Altóna og iítið eitt í öðrum ná-
lægum bæjum á Iloltsetalandi eða fyrir
sunnan. Vart heflr og orðið við hana í
Berlín, og þangað flutt af ferðamönnum
frá Hamborg. En í Berlín er svo vel ýflr
öllu vakað, að hún nær þar vart staðfestu.
Sama um París að segja, en drjúgur mann-
dauði orðinn í hafnaborgunum Rouen,
Havre og Antwerpen.
Við tíðindin frá Hamborg var í öllum
iöndum og borgum í norður- og vestur- |
hluta Evrópu tekið til að ráðstafa pestar-
vörnum, forboði margra varningsflutn-
inga, rannsóknum farma og ferðafólks við
landamæri eða fyrir utan hafnir, o. s. frv.
'Svíar og Norðmenn tóku hjer svo djúpt í
árinni, að þeir á þessa vísu siagbrönduðu
gagnvart Danmörk undir eins og kóleru-
sjúkur maður kom heim til Áróss frá Ham- J
borg og andaðist þar degi síðar. — En j
rjett í þessu berst, að slakað sje til um
flutninga og ferðir yflr Eyrarsund. — Þeir
kvaðu líka England og írland í tölu pest-
numinna landa, er tveir eða þrír aðkomn-
ir rnenn voru sagðir þar látnir af pestinni.
— Á Rússlandi er kólera nú í rjenun í
flestum borgum.
Frá 3STorðurlöndum. Þaðan ekkert
nýnæmislegt að segja. Konungur vor er
heim kominn og hefir iegið í sóttvarnar-
haldi hjer úti fyrir höfninni í 2 sólar-
hringa, með því að nýtt lagaboð (bráða-
birgða) mælir svo fyrir um öll skip, er
koma frá Þýzkalandi eða öðrum pestar-
ströndum.
England. Af ráðanautum Gladstones
hafa þeir Rosebery lávarðurog herrajohn
Morley tekið við mestum vanda, þ. e.:
utanríkisnuilum og írlandsmálum. Menn
ætla, að Rosebery þræði í öllum höfuðat-
riðum varúðarferil Salisbury lávarðar, t.
d. gagnvart Rússum í Asíu, en nú heflr
með þeim og Afghönum til misklíða eða
jafvel vopnaviðskipta dregið á hálendinu,
sem Pamir kallast, þar sem Rússar sækja
til fastra stöðva. Abdurrhaman Afghana-
jarl á nú í atförum móti Hazarabúum, en
um þær ýmist borið, og grunað, að þeir
njóti fulltingis af Rússa hálfu. Englend-
ingar bíða enn eptir, að fundum beri
saman með sendinefnd sinni og jarlinum,
og því hafa þeir skotið herdeild fram á
vörð norður við landamærin.
Blaðið Dayly Cronicle segist hafa njósn-
að um 6 höfuðatriði í fyrirhuguðum rjett-
arbótum Gladstones á írlandi. Þau eru
svo látandi- l, landsleigulög Irlands standa
óbreytt enn í 5 ár; 2, lögreglumál og
dómaskipun ber undir þing íra í Dýflinni;
3, það ræður afgangi af kirknafje; 4, það
ræður ekki álögum toila, heldur koma þau
mál undir stjórnardeild í Lundúnum; 5,
drottniúg (konungur) Englands heflr synj-
unarrjett gagnvart nýmælum írska þings-
ins eptir ráðum ráðherra sinna; 6, í full-
trúadeildinni í Lundúnum sitja 30 þing-
menn frá írlandi.
Þýzkaland. Keisarinn heflr nýlega
fullyrt, að um friðinn þyrfti enginn að
ugga í langan tíma. •— Hann heflr nú
sleppt áformi sínu um elgveiðaferðina til
Gautaborgar, líklega vegna pestarinnar á
Þýzkalandi. Nú á hann aðra ferð fyrir
höndum, til Metz, en þar j nánd skulu
herleikar haldnir 11, þ. m., en síðan af-
hjúpaður minnisvarði Yilhjálms keisara I.
Nýlega var kaþólskur ársfundur hald-
inn í Mainz, þar sem þingskörungar og
biskupar mæltu sem djarflegast fyrir kröf-
um kaþólskrar kirkju. Meðal þeirra var
enn sú, að páflnn nái aptur veraldarvaldi
og öllum hinum fyrri rjettindum páfastóls-
ins í Rómaborg.
Frakkland. Flest blöð þar láta vel
yflr stjórnarbreytingunni á Englandi, og
ætla, að Gladstone verði mun auðveldari
við að eiga en Salisbury var, þar sem
Frakkar og Englendingar þurfa að koma
sjer saman.
Tíðindin í Dahome hafa ekki enn til úr-
slita dregið, en Frakkar hafa nú eflt her
sinn og hyggja til harðari sóknar og at-
göngu að liöfuðborg konungs.
Bolgaraland. Óhætt mun að segja, að
erindislok Stambuloffs í Miklagarði urðu
mun betri en blöð Frakka og Rússa bera,
og það þrátt fyrir, að sendiboðar þeirra
töldu utn fyrir soldáni, að synja honum
viðtals. En vera má, að það sje nokkrum
ýkjum blandið, sem kemur frá Sofíu, höf-
uðborg Bolgara. Það mun láta nærri, er
þaðan er sagt, að soldán hafl geflð góðan
gauni að orðum Stambuloffs og þakkað
honum góða dugnaðarframmistöðu á Bolg-
aralandi. Hitt verður að bíða frekari full-
vissu, hvort soldán hafi lofað að viður-
kenna innan skamms tíma fursta- eða
jarls-virðing Ferdinands prinz. Sannfrjett
er, að prinzinn hjelt Stambuloff dýrðlega
hirðveizlu við heimkomuna og innti hon-
um beztu þakkir fyrir erindislokin.
Nýlega hefir utanríkisstjórn Rússa lýst
það allt lygagraut einn, sem birt heflr
verið í blaðinu Svoboda um vjelaráð þeirra
þar syðra, en Stambuloff stendur fastara á
því en fótum, að hjer sje einber sannleik-
ur hermdur, og segir von á fleiru af sama
tagi.
Frá Norður-Ameríku. Óeirðir verk-
manna við járnbrautarstöðina í Buffalo eru
nú niðurbældar, og við námurnar í Tenn-
essee, þar sem lenti í vígum og drápum.
Þar var sú orsökin, að námueigendur liöfðu
til kaupsparnaðar tekið menn til vinnu úr
betrunarhúsum. Þess má geta, að verka-
menn skipast nú í skotmannafjelög þar
vestra og' temja sjer vopnaburð, en hafa
orð um að þeir muni ekki spara að beita
tundurvjelum, þegar svo ber undir.
Frá Kongo. Nú er kallað ofsögum
sagt af árásum Araba austur frá, og stjórn-
inni þykir nú engin hætta búin af fram-
sókn þeirra vestur á leiðir.
Spánartollur. Með »Thyra« barst sú
lausafregn, að samizt hefði með Spánar-
stjórn og Dana, að íslenzkur fiskur skuli
hafa fyrst um sinn sömu tollkjör og norsk-
ur, en það er um 27^/a kr. tollur á skpd,
í stað 42V« kr. Er það sama sem 14 kr.
verðliækkun d Spánarfiski úr því sem nú
er. Þetta »fyrst um sinn« mun þýða sama
sem: þangað til löggja.farvaldið í báðum
ríkjunum, Danmörku og Spáni, getur ráðið
málinu til fullnaðarlykta, einhvern tíma í
vetur.
Engin vitneskja hefir f'engizt um þetta
hingað stjórnarvaldaveginn, og mun það
því að kenna, að það hefir eigi fuligerzt
fyr en samdægurs sem skipið lagði af stað
frá Khöfn. En vonandi er, að jafn-gleði-
legur boðskapur reynist ekkert tál; og
treysta munu kaupmenn fregn þessari sem
áreiðanlegri.
Alþingiskosningar.
Árnesingar kusu 24. þ. mán. að Hraun-
gerði sinn gamla þingmann Þorlák Guð-
mundsson frá Hvammkoti með 163 atkv.
af 168 alls á kjörfundi, og eand. mag.
Boga Th. J. Melsteð með 121 atkv.
Hinn þriðji, sem í kjöri var, Tryggvi Gunn-
arsson kaupstjóri, hlaut að eins 52 atkv.
Strandasýslumenn hafa kosið búfræðing
Guðjón GuðlögssonáLjúfustöðumíKolla-
flrði. Með vissu héfir eigi frjetzt, að auk
hans hafi verið aðrir í kjöri en síra Arnór
í Felli Árnason. Guðjón fekk 36 atkv.,
en hinn 16.