Ísafold - 20.05.1893, Blaðsíða 1

Ísafold - 20.05.1893, Blaðsíða 1
Kemur út ýmist einu sinni eöa tvisvar í viku. Verð árg. (75—80 arka) 4 kr.. erlendis 5 kr. ec)a l1/* doll.; borgist fyrir mibjau júlímíin. (erlend- is fyrir íram). ÍSAFOLD. Uppsögn(skrifleg) bundin vit> áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir 1. októ- berm. Afgroibslustofa blabs- ins er í Austurstrœti 8. XX. árg. Reykjavík, laugardaginn 20. maí 1893. 30. blað. þurfi að fá svo mikla tilslökun í, að ráða Hjer moö g.jörist kunnugt, að Xiandsbankinn hefir falið hinum danska „Tjandmandsbank, Hy- pothek- og VexelbankK í Katip- mannahöfn einka-umboð sitt í Danmörkn og öðrum löndum; enn frenaur hefir hann samið við liann um fyrst mn sinn að kaupa og selja seðla þá, er landssjóðurinn hefir geliö tít; einnig gefur Xandsbankinn út ávísanir og „Akkreditiva" til Kaupmannahafuar og tekur að sjer fyrir milligöngu Land- mands - bankans öll venjuleg banka-viðskipti við önnur lönd. Landsbankinn, Reykjavík 19. maí 1893. Tryggyi Gunnarsson. Um afnám vistarskyldunnar, og um lausamenn. Eptir Pál Ólafsson (á Akri.) n. (SiÖari kafli). Fyrst vil jeg þá taka það fram, að með þjví að binda lausamennskuleyfið við 25 ■ára aldurinn, verður minni breyting gjör á ástandinu sem nú er, en með liinu, að binda það við 20 ára aldur. Þannig verð- ur þá pjeð fyrir því, að allt af verður nokk- ■uð af fólki mcðal bænda, sem með rjettu getur kallast og er fullgilt vinnufólk; en ■að slíkt sje nauðsynlegt, mun engum þeim 'koma til hugar að neita, sem gjörlaþekk- ir til búnaðarástandsins hjer á landi, og þá jafnframt vill athuga það, að búnað- nrinn í heild sinni á að bera meginhlutann af öllum útgjöldum landsins. A því ætla ,jeg að enginn vafi geti verið, að viðlaga- setning um afnám vistarskyldu og um lausamenn beri fyrst af öllu aðlítaáþað, hvort búnaði landsins í heild sinni verði -af slíkum lögum nokkur hætta búin; því -ef svo reyndist, væri um leið kippt fótum undan framförum og gjaldþoli þjóðarinn- ar, og þetta er jeg viss um, að allir, sem unna landi voru og bera umhyggju fyrir framtíð þess, vilja sem mest varast. Af þessari ástæðu vil jeg líka fara varlega í þessu máli; jeg vil láta reynsluna kenna ■>oss, hversu langt vjer megum fara, og ept- ir svo sem 8—10 ár verður hún búin að sýna oss, hvort aldurstakmarkið, 20 eða 25 ára, hagfeldara verður. Oski þjóðin þá •eptir breytingu, hvað aldurstakmarkið snertir, mun reynast viðfeldnara, að geta heldur fært það niður á við en þurfa að íæra það upp ávið. J[eð 25 ára aldurstakmarkinu yrði þá sama grundvelli haldið um aldursleyfið til lausamennsku, eins og í tilskipun 26. maí 1863, sem þá einnig fjelli saman við mynd- ugsaldurinn; en aðalbreytingin yrði fólgin í stórkostlegri niðurfærslu á gjaldinu fyrir lausamennskuleyflð, og slík niðurfærsla er að mínu áliti bæði nauðsynleg og sann- gjörn, og jafnvel sú eina nauðsynlega og sjálfsagða umbót, er gjöra þarf íþessuvist- arskyldu- og iausamennskumáli. Jeg hefi iengi fundið til þess, hve gjald- ið fyrir lausamennsku, eptir nýnefndri til- skipun, hefir verið ósanngjarnlega hátt, og fyrir það hefi bæði jeg, og margir aðrir fylgt linlegar framkvæmd laganna viðvíkj- andi lausamönnum en ella mundi hafa orðið, ef það hefði lægra verið. Ekki get jeg neitað því, að mjer falli betur frumvarp minnihluta nefndarinnar í efri deild (A. O.) en meiri hlutans hvað gjaldið snertir, bæði upphæðina og greiðslu þess. Gjaidhæðin virðist mjer hæfilega sett, eins og minnihlutinn gjörir, hjer um 7«— með þóknuninni til oddvita — við það sem verið heflr, og greiðslan kann jeg miklu betur við, að fram fari í einu lagi, þegar lausamennskuleyflð er fengið, eins og liann gerir ráð fyrir. Jeg skal játa, að tilgangur meiri hlutans er góður, hvað til- högun gjaldsins snertir, og getur, ef til vill, haft dálítil áhrif hjá einstökum mönn- nm, til að framhalda verustöðum sínum í sömu sveit; en jeg ætla þó, aðmeð slíku fyrirkomulagi — er jeg álít ófrjálslegra— muni fremur verða leitazt við, að fara í kringum lögin, og úr því kynni þá að verða talsverður rekstur og vafningur. Auk þessa gæti svo farið, að lausamennsku- gjaldið yrði að lokum allhátt hjá sumum, er dvalarstaði hefðu sitt árið í hverjum hreppi. Móti þessu mætti auðvitað segja það, að slíkt væri þá sjálfum lausamönnun- um að kenna og breytingagirni þeirra; en þetta þyrfti ails eigi að vera svo; menn gætu verið tilneyddlr að hafa opt hreppa- skipti, af þeirri einföldu ástæðu, að þeir gætu eigi útvegað sjer ársheimili, ár og ár, í þessum og þessum hreppi. Yrði frumvarp efri deiidar að lögum, með þeirri breytingu á aldurstakmarkinu, sem jeg hefi stungið upp á, mætti ef til vill orða fyrirsögnina á annan hátt; en úr því mun ekki vandræði verða, og skal jeg eigi fjölyrða um það. Að vistarskyldumálið þurfl mikillar íhug- unar við, og að skoðast á sem flesta vegu að auðið er, er sjálfsagt og eðlilegt, því vistarskyldan er orðin gömul hjá oss, og hefir reyndar sýnzt vel við eigandi hjer, eptir tíðarfari og landsháttum. En þrátt fyrir það stoðar ekki, að halda of fastvið fornar venjur, því tímarnir breytast, og hugsunarháttur manna breytist. Eins og nú er kornið þessu vistarskyldu- oglausa- mennskumáli, sýnist mjer, að verkafólkið sjálft atvinnu sinni, sem staðizt getur|með tilliti til þess eigin hagsmuna og búnað- arins yfir höfuð, og til þess,að þetta augna- mið náist, verða menn að fara gætilega að breytingunum, af því þær snerta beinlínis og óbeinlínis mestan hluta þjóðarinnar, og þar af ieiðandi er mikið í hættu, ef þær verða illa við eigandi. Það semjeg óttast helzt, ef iausamennsk- an verður aimenn meðal verkafólksins, er, að landbúuaðinum í sumum hjeruðum lands- ins kunni að verða nokkur hætta búin. Eðiilegast er, að hugsa sjer, að lausa- menn fari að loknum heyskap hópum sam- an til sjávarsveitanna og liafist það við ýfir veturinn. Af þessu kynni að ieiða, að bændur ættu, erfitt með, fyrstog fremst að fá fjármenn, og ekki sízt, að fá nægi- lega marga menn til vor- og haustverka. Þetta getur orðið afar-óþægilegt, og mik- ill hnekkir fyrir búnaðinn í þeim hjeruð- um, sem yrðu fyrir slíku óhappi. Af þvi mundi leiða, að sum heimilisverk yrðu annaðhvort eigi unnin, eða þá í ótíma, og jarðabætur alls engar. Svo bætist ogann- að við, þegar fram líða stundir: að af vax- andi erfiðleikum við mannhaldið ogáhætt- una við það, að vera stundum með öllu án verkafólks, færu bændur að hugsa um að minnku búskap sinn, og sumir hættu honum að mestu, t. d. ómagaiitlir menn, þó ungir væru og fulihraustir, eldri menn, sem búnir væru að koma nokkuð upp börnum sínum, og enda sumir embættis- menn, er hefðu við talsverð laun aðstyðj- ast. Við þetta gengi búskapurinn saman, jarðirnar yrðu hlutaðar í sundur, svo að á sömu jörðinni byggju kannske 3—4 menn, aiiir því nær fólkslausir, með sinn eigin vinnukrapt. Það liggur í augum uppi, að við slíkt ástand mundi stórum hnigna bæði húságjörð og jarðabótum, skepnum fækk- aði í landinu, og allur búskapur í þessum hjeruðum kæmist brátt á apturfararstig. Hjer er nú að vísu leidd í ljós einhver hin lakasta hlið, sem fram gæti komið á nokkrum stöðum við afnám vistarskyldu og víðtæka lausamennsku; en vel erhugs- anlegt, að slíkt geti komið fyrir, og skal jeg nokkuð hjer því til líkinda leiða. Eins og kunnugt er, er norður- og aust- urland opt og tíðurn umgirt hafísum síð ari hluta vetrar og langt fram á sumar. Mundi nú fólk úr þessum ísahjeruðum, sem um vetrartímann hefði dvalið suður við Faxaflóa, keppast eptir, að komast norð- ur eða austur að vorinu, þegar þaðan frjett- ast harðindin, dauðinn og atvinnuleysið ? Að líkindum mundi það eigi fara neitt, og þó það hefði áður ætlað sjer það; enda væri því það eigi auðvelt, því strandferða- skipin kæmust hvergi á norðurlandshafnir, og opt og tíðum ekki heldur að austur- landi. Fólk þetta mætti til að hafast við syðra að vorinu, við ijelega atvinnu, af

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.