Ísafold - 20.05.1893, Blaðsíða 3

Ísafold - 20.05.1893, Blaðsíða 3
119 y>Það er etctci títið mein. þegar alme'tin- ingur fæst etctci til að sinna þarfiegustu og heillavœntegustu ráðleggmgum, heldur sefur í hinni gamalislenzku hugsun: að láta reka á reiðanum(Isaf. XX, bls. 110). Nú er hjer allgóður fiskiafli bæði djúpt og grunnt, en bagalegt er að saltlaust er orðið hjá kaupmönnura hjer, og menn selja nú blautan þorsk fyrir 3 aura pund- ið, þó ekki sje borgað meö peningum eða nauðsynjavöru, og mun það ekki reynast affarasæl verzlun. Heilsufar heflr verið hjer mikið gott alla vertíðina, þangað til rjett fyrir lokin, að brennivin fluttist til Thomsensverzlun- ar; þú fór að verða krankfelt, svo að sumir urðu forfallaðir og nokkrum varð minna úr afla sínum en vera mátti. En þetta mun nú vera landfarsótt, som viðar geng- ur um lokin, þótt 1 jót sje og leið, en skán- ar heldur eptir þau«. Svar til “Þjóðólfsí, á smna tungumáliog harin talar sjálfur síðastfí sinu efnismikla. snjalla og kjarnorða svari til ísafoldnr): (!) (!!) (!!!) (!!!!) (!!!!!) (j!!!!!!) (!!!!!!!) (!!!!!!!!) (!!!!!!!!!) (!!!!!!!!!!) (!!!!!!!!!!!). Hitt og þetta. Selveiðin i Behrings-sundi. TTm hana eru Bandaríkin og England í þrætumáli og heíir það verið lagt í gerð. Seymur flotafor- ingi ritarþannig um viðhald selsius, sem hon- um þykir miklu skipta: »Til að tryggja fram- haldandi tímgun þessarar arðsömu skepnu virðist langhentast að binda veiðina föstum reglum, svo ekki sje leyf't að drepa nokkurn sel nema karlkyns ungseli (bachelors), er halda hóp saman þangað til þeir eru sex ára gamlir og geta sig ekki að æxlun allan þann tíma. — Arið 1873 var metið, að selir í Behrings sundi mundu samtals um 5 miljónir. Af þeim fjölda er upp frá þriðjungi til helminga ungselui' sá, er fyr var getið. Af honum er að eins leyfi- legt að drepa 100,000 á ári. — Árið 1887 voru í óbeimild drepnir 30,000 selir aukreitis, og þar af hlauzt, að verðið á hverju selskinni fjell ár 7‘/2 dollar niður í 5 doll. Það er með öðrum orðum: 130,000 selskinn árið 1887 gjörðu í peningum 130,000 pd. sterl., þar sem 100,000 skinn árið fyrir gjörðu 150,000 pd. steri., sama sem 2 milj. og 700 þús. kr.; hinn aukni fjöldi skinnanna olli jafnharðan verðlækkun þeirra • á markaðinum. (Review of Reviews) Hamingjusfjarna. í ávarpi sínu til þegna sinna, Serba, um daginn, skýrskotar hinn ungi koungur þeirra Alexander til «hamingjustjörnu» ættar sinnar. Ættfaðir hans var rekinn frá ríki, afi hans myrtur og faðir hans Milan kon- ungur, rekinn úr landi og gjörður útlægur, eins og kunnugt er. Iiöng ræða. Á þinginu í British Colum- bía hjelt einn af þingmönnum ræðu í 26stund- ir samfleytt. Þaö var ógurlegt að sjá, hvern- ig maðurinn leit út í enda ræðunnar; hann gat varla staðið, varirnar voru kolsvartar, augun bólgin og blóðhlaupin og nærri því apturlukt, og málrómurinn orðinn hvísl eitt. Tilheyrendurnir voru orönir hamslausir. en ræðumaður skeytti engri truflun, og hjelt á- fram hvað sem hver sagði. Þökk sje ham- ingjunni, að slíkir ræðumenn eru ekki á hverju strái. Leiöarvísir ísafoldar. 1229. Er það rjett af kirkjuhaldara, að taka ljóstoll af þeim kvennmönnum, sem ekkert eiga til tíuudar? Sv.: Nei. 1230. Hvort ber formanni, sem verkar fisk- inn, aö öðru leyti verðlaun fyrir vandaða fisk- verkun eða útgeröarmanni ? Sv.: Það virðist liggja í hlutarins eðli, að sá njóti verðlaunanna, sem til þeirra hefir unnið. 1231. Segist nokkuð á þvi. að reikningar frá kaupmönnum, sem dagsettir eru í desem- ber árið áður, koma ekki á næstu bæi við verzlunina, fyrri en að sumrinu, og hver á að bæta skaða sem af því getur hlotist ? Sv.: Ekki varðar það við lög, þó að brjef eöa reikningar, sem ekki er sent með póstum komist eigi til skila í tæka tíð, nema því aö eins að sannað verði, að það sje gjört af á- settu ráði, og er þá auðvitaö sá, er gjörzt hefir sekúr í þvi, skyldur að bæta það tjón, er hann þannig hefir valdiö. 1232. Hver er sekari, yfirvaldið eða sá sem sver rangan eið, af því hann er viti sínu fjær, eða neyddur til þess upp á einhvern hátt? Sv.: Ef sá, er eiðinn vinnur, kann eigi fulla grein á því, er hann gjörir eða hann er neydd- ur til þess að vinna eið, er hann sýkn saka, en yfirvaldiö, sem ljet hann vinna eiðinn. eða sá er neyddi hann til þess, eru hegningar- verðir. 1233. I sókn einni er svo um samið við org- anistann, að hann fái ákveðna borgun fyrir að leika á orgei í kirkjunni hvern messudag. Nú hafði sóknarnefndin ekki goldið hönum neitt í 2 ár og gleymt(!) að jafna gjaldinu niður. I vetur jafnar hún organistagjaldinu loks niður á alla þá, sem gialda til prests og kírkju í sókninni —og organistann líka—, að- eins eptir efnum og ástæðum. Þar eð gjald- inu er nú ekki jafnað niður fyr en eptir tvö ár, í einu lagi, og þá ekki heldur samkvæmt lögnm 22. maí 1890, verður það þá með rjettu tekið lögtaki, og var sanngjarnt eða eðlilegt, að jafna þvi niður á organistann, eins og aðra, þar eð ekki var svo um samið ? Sv.: Gjaldið verður ekki tekið lögtaki, nema því sje jafnað niður eptir fyrirmælum laganna 22. maí 1890, þ. e. hálft á hvern gjaldskyldan sóknarmann og hálft eptir efnum og ástæðum. Gjaldinu ber að jafna niður árlega (gjalddagi 31. des. ár hvert) og eptir lögunum er ekki óheimilt að leggja á organistann sjálfan, þótt það sje nokkuð kátleg aðferð. Lögtaksrjettur fyrnist, er lengra líður en ár frá gjalddaga. Tjón það, er organistinn kann að bíða fyrir umrædda vanrækslu, ólöglega niðurjöliiun og lögtaksfyrningu m. m., eiga þeir að bteta hon- um, er við hann hafa samið, en þeir eiga apt- ur aðgang að sóknarnefndinni. 1234. Má taka það fjárnámi, sem barni hefur verið gefið í tannije? Sv.: Já, nema það verði sannað, að gjöfin hafi í raun og veru átt sjer stað. 52 vera dável eptirtektasamur. Þó að jeg þekki þau ekki að neinum mun, þótti mjer gaman að því, að gefa þeim nákvæmar gætur hverju fyrir sig. Raunar er jeg vanur að gjöra slíkt í hvert sinn, er jeg hitti ókunnuga menn. Aður langt leið, hafði jeg orðið áskynja um þrennt. I fyrsta lagi það, að hinn gamli maður unni konu sinni hugástum, en veslings-dóttur sinni ekki, og gaf henni lít- inn gaum; í öðru lagi það, að hin blinda dóttir unni föð- ur sinum mjög, en virtist hafa ógeð á stjúpu sinni; og i þriðja lagi það, að hin unga kona blátt áfram hataði bæði mann sinn og stjúpdóttur. Aðrir sem i húsinu dvöldust höfðu engan grun um, hvernig þessu var varið, með því að fólki þessu virtist koma mjög vel saman. Hinn gamli maður var ætíð vanur að drekka kaffi snemma morguns, ásamt konu sinni og dóttur, í tjald- búð er lá við austurhlíð íveruhiíssins. Einhvern morgun vantaði hann. Kona hans sagði, að hann væri lasinn og gæti eigi farið á fætur. Þegar kom fram á daginn, var sent eptir lækni, og undir kvöld sagði húsráðandi mjer í trúnaði, að hinn gamli maðnr væri lagztur í taugaveiki, og að hann væri hættulega veikur. Húsráðandi var i mjög illu skapi, rjett eins og liinn gamli maður liefði lagzt í taugaveiki af tómri mannvonzku, eingöngu til þess að gera húsráðanda bölvun. r Osannanlegt. Kotelmann er dugandi maður. Ýkjulaust er óhætt að kalla hann mjög vel gáfaðan. En opt hafa mjer þótt kynlegar skoðanir hans á ýmsum hlutum. Hann er samt ágætur lagsmaður; jeg hefi verið marga stund og margt kvöld saman við hann, og það segi jeg satt, að mjer hefiraldrei leiðzt í návist hans. Fyrir skömmu var jeg á gangi með honum. Við vorum að skrafa um hitt og þetta; meðal annars barst í tal síðasta morðið, er framið hafði verið í Spandau. Talið færðist þá einnig að öðrum stórglæpum og morðum, þar á meðal hinum hryllilegu morðum, sem »Jakob kviðrist- ir« hafði drýgt í Lundúnum, og ekki hafði orðið hegnt fyrir fram á þann dag. Kotelmann kom með eitthvað af sínum geigvænlegu skoðunum um þessi ódáðaverk og hinar sennilegu hvatir morðingjans, og fór um leið fyrirlitlegum orðum um refsi- dóma, er ættu við líkur einar að styðjast.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.