Ísafold - 13.09.1893, Blaðsíða 1

Ísafold - 13.09.1893, Blaðsíða 1
Kemur út ýmist emu sinni eða tvisvar i viku. Verð árg (75—80 arka) 4 kr., erlendis 5 kr. eða 1*/* doll.; borgist fyrir miðjan júlimán. (erlend- is fyrir íram). ÍSAFOLD. Uppsögn(skrifleg) bundin vid áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir 1. októ- berm. Afgroiðslustofa blaðs- ins er i Austuratrœti 8, íteykjavík, miðvikudaginn 13. sept. 1893. XX. árg. Hjeraða-vegabætur. Það er rænulaus maður eða harla til- finningarsljór um hagi landsins, er eigi gleðsc yíir þeirri miklu breytingu, þeim snöggu umskiptum til batnaðar, sem orðið hafa á iands-vegagerð hjer á landi á hin- um síðasta áratug. Það er eigi svo að skilja, að miklu sje af lokið af því stór- kostlega verkefni, að leggja góða vegi eða siðaðri þjóð samboðna um land allt. Sliks er engin von á jafnskömmum tíma og lið' inn er síðan er farið var að gera hjer vegi af viti og kunnóttu. Framförin er í því fólgin, að nú er lið í því, sem gert er. Það er ekki ón.ýtt kák, eins'og áður, marg- ■opt innan skamms verra en það sem ept- ir hestafæturna lá, meðan þeir einir feng- ust við að leggja vegi um landið. Þeir bera í stuttu máli eins og gull af eyri, þessir vegakaflar, er gerðir liafa verið á landssjóðs kostnað síðan landsstjórnin vitk- uðist ioks svo, að hún fór að fá útlenda vegfræðinga og vegavinnumenn til þess að gera hjer vegi og kenna innlendum mönn- um vegagerðarlist. Vitanlega eru vegir þessir samt sem áð- ur engan veginn svo fullkomnir, sem verða má eða gott þykir í öðrum löndum, þar uem mikið er með vegi að gera. Vegna fátæktai* vorrar og þess annars, að umferð ■er hjer víðast fremur lítil, þá er höfð hjer hin kostnaðar- eða íburðarminnsta vegagerö, er við þykir mega hlíta meþal menntaþjóðanna, og því eigi nærri því svo ramgjör og endingargóð sem ákjósanleg- ■ast væri, þó að harla ólíku sje saman að jafna því sem áður gerðist hjer. Viðhald á henni verður því kostnaðarsamara en ella mundi. En livað sem því líður, þá er um- bótin í þessu efni stórmikiJ, einhver hinn Alitlegasti framfaravottur, er vjer höfum af að segja. Þetta. sjá nú og skilja flestir þeir, er ein- hver kynni hafa af hinni nýju vegagerð. Það var öðruvísi fyrst þegar hún hófst. Það voru eigi einungis ófróðir almúga- menn, sem hristu höfuðið yfir annari eins vitleysu og að vera að hauga upp mold- arbing og kalla það veg, heldur mátti heyra hámenntað þingmannsefni fárast út af því á þingmálafundi um þær mundir, að vera að panta vegagerðarmenn frá út- löndum, í stað þess að láta landsmenn njóta þeirrar vinnu. Jafnvel fyrir honum ■og hans nótum vakti þá enn sú hugsun, að vegavinna væri svona lijer um bil nið- ursetuvinna. En víða um land hafa menn enn lítil sem engin kynni af hinni nýju vegagerð, þó að sýnisliorn sje raunar komið af henni í alla landsfjórðunga. Því bar það til nú ■á þessu sumri, að maður tók til að beita liinni nýju kunnáttu eða nýju aðferð í af- skekktu hjeraði, en fekk óðara það vott- orð almenningsálitsins þar, að liann hefði »auðsjáanlega« ekkert vit á, hvei’nig vegi ætti að leggja : þeir sáu hann sem sje með- al annars sveigja veginn fyrir litla brekku, í stað þess að halda þverbeint upp hana. svo sem áður þótti sjálfsagt. En þó að menn sjái annars almenntyfir- burði hinnar nýju vegagerðar og viður- Jtenni þá í orði, þá eru þeir samt engan veg- inn svo rótfastir orðnir í meðvitund manna sem skyldi. Þegar til framkvæmdanna Iremur er ýmist sem þeim þyki þó ekki neitt leggjandi í sölurnar fyrir þessa yfir- burði, eða þá að þeir hugsa að eigi þuríi nema að hafa sjeð almennilega gerðan veg til þess að’ geta gert slíkan sjálfur. Þetta sjest greinilega á hjeraða-vegunum, en svo eru hjer nefndir einu nafni fyrir stuttleika sakir sýsluvegir og hreppavegir. Það er hraparlegt að sjá þar enn dafna víðast sama vankunnáttu-kákið og áður var algengt um alla vegagerð lijer á landi. Þarf eigi að lýsa, hvernig það er lagað. Einkennið er það, að áður langt um líður Jtjósa menn og skepnur af illu til heldur að fara, utan hjá veginum en eptir honum, sje þess nokkur lcostur. Það er sjálísagt, að frá þessu eru nokkrar undantekningar; en það er þá opt likara tilviljun en kunnáttu og fyrirhyggju. Ráðið til að koma þessu af er það, að liafa við hverja vegagerð að minnsta kosti verkstjóra, sem kann hina nýju aðferð, hefir numið hana verklega. Hefði verið ráð í tíma tekið og sendir einn eða tveir menn úr hverri sýslu í vinnu við lands- sjóðs’vegagerð þegar er lag komst á hana, þá væri nú ekki svo mikill hörgull á slík- um verkstjórum. En þó að það hafi verið vanrækt, þá eru samt nú orðið til svo margir, sem vinnu þessa lcunna, að vel mætti fá slíka menn í öll iijeruð landsins, ef það væri fast sótt. Hjer nærlendis við Reykjavílc að minnsta kosti ætti ekki að þurfa að leggja svo nokkurn vegarspotta jatnvel eklíi á hreppavegum, að fyrir vinn- unni stæði ekld maður, sem lcann hina rjettu aðferð að því. Það er að segja sjálfa vegavinnuna. Hitt, að afmarka veg- arstefnu og mæla út vegarstæði svo vel sje hvað lialla snertir og annað, það er auðvitað ekld nema á fárra manna færi hjer að svo stöddu; en með því að það má gera löngu fyrir fram, á ýmsum tím- um, mætti einnig fá sæmilega aðstóð til þess víða. Hvað hreppavega snertir er þetta sleif- aralag mikið því að Itenna, að lög gera ráð fyrir að hreppsmenn vinni að þeim sjálfir i dagsverkum. En ókleyft ætti ekki að vera fyrir það, að ráða utan- 62. blað. heppsmann fyrir verkstjóra, ef kunnáttu vantar innan hrepps. Einhver ráð mundi mega finna til þess. Hjer er meira um að tefla en margur hyggur. Það er eytt á að gizka um ?0,000 kr. i hreppa- vegavinnu á ári hverju, og þó að ekki væri nema helming af því sama sem fleygt í sjóinn sakir kunnáttuleysis, þá er það ærinn skattur á fátæka þjóð; hann er óþol- andi og óhafandi. Til sýsluvegavinnu eru lagðir eintómir peningar; eða að minnsta kosti á sýslu- vegagjaldið að greiðast í peningum. Þar er því eigi dagsverkavinnan til neinnar fyrirstöðu því, að ráða til verksins þá sem kunna eða til verkstjórnar að minnsta Itosti, En það mun tíðkast enn í flestum sýslunefndum, að sýslunefndarmanni hvers hrepps sje falið á hendur að sjá um sýslu- vegavinnuna í sínum hreppi og að sá hinn sami láti annaöhvort orðalaust vinna hana »upp á gamla móðinn«, eða þá, ætli hann að fara að stæla nýja lagið, að það fari í lrandaskolum sakir þeirrar einfaldlegu ímyndunar hans, að úr því hann hafi sjeð vegi með hinu nýja lagi, þá kunni hann einnig að gera slílta. Þetta er raunar hin mesta ósvinna, hrap- arieg vanbrúkun á fje, sem lagt er til al- menningsþarfa, um 20,000 kr. ári, eins og til hreppaveganna. Það ætti engin sýslu- nefnd nú orðið að bera við annað en að láta vinna alla sína vegavinnu undir verkstjórn manns, sem kann verkið, — nema rjett ein- falda vegaruðning, þar sem hún er látin duga. Hitt er að ausa í botnlausa hít. Með því lagi verða sýslurnar jafnilla stadd- ar með vegi eptir 20, 30 eða 50 ár eins og nú; þar vinnst ekkert áfram; allt verður ónýtt jafnóðum. Svo er annað. Það mun nú siður i mörgum ef eigi flestum sýslunefndum, að smábita niður sýsluvegafjeð í alla hrepp- ana á hverju ári, sitt lítið í hvern. Hver nefndarmaður skarar eld að sinni köku Það lætur og vel í eyrum og sanngjarn- lega, að hver hreppur fái að njóta síns sýsluvegagjalds. En slík stefna er mesta skaðræði. Fyrir það verður hálfu minna úr framkvæmdum en ella mundi; takmark- iðnæsthálfu seinna: það, að fá góða vegi um sýsluna. Hitt er rjett, að hafa ekki undir nema einn veg i einu, þar fyrst, sem mest er þörfin og mest umferðin, og ljúka við hann áður en tekið er til annarsstað- ar, nema hvað hyggilegt getur verið að verja einhverju lítilræði til ruðninga, þar sem þess er mest þörf, eða til þess að gera fært yfir lítils háttar torfærur, auk viðhalds á fullgerðum vegarköflum, er sízt má van- rækja. Þó að hjer sje talað um sama frágang á hjeraðavegum og landsvegum, þá er það

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.