Ísafold - 13.09.1893, Page 1
Kemur út ýmist emu sinni
eða tvisvar i viku. Verð árg
(75—80 arka) 4 kr., erlendis
5 kr. eða 1*/* doll.; borgist
fyrir miðjan júlimán. (erlend-
is fyrir íram).
ÍSAFOLD.
Uppsögn(skrifleg) bundin vid
áramót, ógild nema komin
sje til útgefanda fyrir 1. októ-
berm. Afgroiðslustofa blaðs-
ins er i Austuratrœti 8,
íteykjavík, miðvikudaginn 13. sept. 1893.
XX. árg.
Hjeraða-vegabætur.
Það er rænulaus maður eða harla til-
finningarsljór um hagi landsins, er eigi
gleðsc yíir þeirri miklu breytingu, þeim
snöggu umskiptum til batnaðar, sem orðið
hafa á iands-vegagerð hjer á landi á hin-
um síðasta áratug. Það er eigi svo að
skilja, að miklu sje af lokið af því stór-
kostlega verkefni, að leggja góða vegi eða
siðaðri þjóð samboðna um land allt. Sliks
er engin von á jafnskömmum tíma og lið'
inn er síðan er farið var að gera hjer vegi
af viti og kunnóttu. Framförin er í því
fólgin, að nú er lið í því, sem gert er.
Það er ekki ón.ýtt kák, eins'og áður, marg-
■opt innan skamms verra en það sem ept-
ir hestafæturna lá, meðan þeir einir feng-
ust við að leggja vegi um landið. Þeir
bera í stuttu máli eins og gull af eyri,
þessir vegakaflar, er gerðir liafa verið á
landssjóðs kostnað síðan landsstjórnin vitk-
uðist ioks svo, að hún fór að fá útlenda
vegfræðinga og vegavinnumenn til þess að
gera hjer vegi og kenna innlendum mönn-
um vegagerðarlist.
Vitanlega eru vegir þessir samt sem áð-
ur engan veginn svo fullkomnir, sem verða
má eða gott þykir í öðrum löndum, þar
uem mikið er með vegi að gera. Vegna
fátæktai* vorrar og þess annars, að umferð
■er hjer víðast fremur lítil, þá er höfð
hjer hin kostnaðar- eða íburðarminnsta
vegagerö, er við þykir mega hlíta meþal
menntaþjóðanna, og því eigi nærri því svo
ramgjör og endingargóð sem ákjósanleg-
■ast væri, þó að harla ólíku sje saman að jafna
því sem áður gerðist hjer. Viðhald á
henni verður því kostnaðarsamara en ella
mundi. En livað sem því líður, þá er um-
bótin í þessu efni stórmikiJ, einhver hinn
Alitlegasti framfaravottur, er vjer höfum
af að segja.
Þetta. sjá nú og skilja flestir þeir, er ein-
hver kynni hafa af hinni nýju vegagerð.
Það var öðruvísi fyrst þegar hún hófst.
Það voru eigi einungis ófróðir almúga-
menn, sem hristu höfuðið yfir annari eins
vitleysu og að vera að hauga upp mold-
arbing og kalla það veg, heldur mátti
heyra hámenntað þingmannsefni fárast út
af því á þingmálafundi um þær mundir,
að vera að panta vegagerðarmenn frá út-
löndum, í stað þess að láta landsmenn
njóta þeirrar vinnu. Jafnvel fyrir honum
■og hans nótum vakti þá enn sú hugsun,
að vegavinna væri svona lijer um bil nið-
ursetuvinna.
En víða um land hafa menn enn lítil
sem engin kynni af hinni nýju vegagerð,
þó að sýnisliorn sje raunar komið af henni
í alla landsfjórðunga. Því bar það til nú
■á þessu sumri, að maður tók til að beita
liinni nýju kunnáttu eða nýju aðferð í af-
skekktu hjeraði, en fekk óðara það vott-
orð almenningsálitsins þar, að liann hefði
»auðsjáanlega« ekkert vit á, hvei’nig vegi
ætti að leggja : þeir sáu hann sem sje með-
al annars sveigja veginn fyrir litla brekku,
í stað þess að halda þverbeint upp hana.
svo sem áður þótti sjálfsagt.
En þó að menn sjái annars almenntyfir-
burði hinnar nýju vegagerðar og viður-
Jtenni þá í orði, þá eru þeir samt engan veg-
inn svo rótfastir orðnir í meðvitund manna
sem skyldi. Þegar til framkvæmdanna
Iremur er ýmist sem þeim þyki þó ekki
neitt leggjandi í sölurnar fyrir þessa yfir-
burði, eða þá að þeir hugsa að eigi þuríi
nema að hafa sjeð almennilega gerðan veg
til þess að’ geta gert slíkan sjálfur.
Þetta sjest greinilega á hjeraða-vegunum,
en svo eru hjer nefndir einu nafni fyrir
stuttleika sakir sýsluvegir og hreppavegir.
Það er hraparlegt að sjá þar enn dafna
víðast sama vankunnáttu-kákið og áður
var algengt um alla vegagerð lijer á landi.
Þarf eigi að lýsa, hvernig það er lagað.
Einkennið er það, að áður langt um líður
Jtjósa menn og skepnur af illu til heldur
að fara, utan hjá veginum en eptir honum,
sje þess nokkur lcostur. Það er sjálísagt,
að frá þessu eru nokkrar undantekningar;
en það er þá opt likara tilviljun en
kunnáttu og fyrirhyggju.
Ráðið til að koma þessu af er það, að
liafa við hverja vegagerð að minnsta kosti
verkstjóra, sem kann hina nýju aðferð,
hefir numið hana verklega. Hefði verið
ráð í tíma tekið og sendir einn eða tveir
menn úr hverri sýslu í vinnu við lands-
sjóðs’vegagerð þegar er lag komst á hana,
þá væri nú ekki svo mikill hörgull á slík-
um verkstjórum. En þó að það hafi verið
vanrækt, þá eru samt nú orðið til svo
margir, sem vinnu þessa lcunna, að vel
mætti fá slíka menn í öll iijeruð landsins,
ef það væri fast sótt. Hjer nærlendis við
Reykjavílc að minnsta kosti ætti ekki að
þurfa að leggja svo nokkurn vegarspotta
jatnvel eklíi á hreppavegum, að fyrir vinn-
unni stæði ekld maður, sem lcann hina
rjettu aðferð að því. Það er að segja
sjálfa vegavinnuna. Hitt, að afmarka veg-
arstefnu og mæla út vegarstæði svo vel
sje hvað lialla snertir og annað, það er
auðvitað ekld nema á fárra manna færi
hjer að svo stöddu; en með því að það
má gera löngu fyrir fram, á ýmsum tím-
um, mætti einnig fá sæmilega aðstóð til
þess víða.
Hvað hreppavega snertir er þetta sleif-
aralag mikið því að Itenna, að lög gera
ráð fyrir að hreppsmenn vinni að
þeim sjálfir i dagsverkum. En ókleyft
ætti ekki að vera fyrir það, að ráða utan-
62. blað.
heppsmann fyrir verkstjóra, ef kunnáttu
vantar innan hrepps. Einhver ráð
mundi mega finna til þess. Hjer er meira
um að tefla en margur hyggur. Það er
eytt á að gizka um ?0,000 kr. i hreppa-
vegavinnu á ári hverju, og þó að ekki
væri nema helming af því sama sem fleygt
í sjóinn sakir kunnáttuleysis, þá er það
ærinn skattur á fátæka þjóð; hann er óþol-
andi og óhafandi.
Til sýsluvegavinnu eru lagðir eintómir
peningar; eða að minnsta kosti á sýslu-
vegagjaldið að greiðast í peningum. Þar
er því eigi dagsverkavinnan til neinnar
fyrirstöðu því, að ráða til verksins þá sem
kunna eða til verkstjórnar að minnsta
Itosti, En það mun tíðkast enn í flestum
sýslunefndum, að sýslunefndarmanni hvers
hrepps sje falið á hendur að sjá um sýslu-
vegavinnuna í sínum hreppi og að sá hinn
sami láti annaöhvort orðalaust vinna hana
»upp á gamla móðinn«, eða þá, ætli hann
að fara að stæla nýja lagið, að það fari
í lrandaskolum sakir þeirrar einfaldlegu
ímyndunar hans, að úr því hann hafi sjeð
vegi með hinu nýja lagi, þá kunni hann
einnig að gera slílta.
Þetta er raunar hin mesta ósvinna, hrap-
arieg vanbrúkun á fje, sem lagt er til al-
menningsþarfa, um 20,000 kr. ári, eins og
til hreppaveganna. Það ætti engin sýslu-
nefnd nú orðið að bera við annað en að láta
vinna alla sína vegavinnu undir verkstjórn
manns, sem kann verkið, — nema rjett ein-
falda vegaruðning, þar sem hún er látin
duga. Hitt er að ausa í botnlausa hít.
Með því lagi verða sýslurnar jafnilla stadd-
ar með vegi eptir 20, 30 eða 50 ár eins og
nú; þar vinnst ekkert áfram; allt verður
ónýtt jafnóðum.
Svo er annað. Það mun nú siður i
mörgum ef eigi flestum sýslunefndum, að
smábita niður sýsluvegafjeð í alla hrepp-
ana á hverju ári, sitt lítið í hvern. Hver
nefndarmaður skarar eld að sinni köku
Það lætur og vel í eyrum og sanngjarn-
lega, að hver hreppur fái að njóta síns
sýsluvegagjalds. En slík stefna er mesta
skaðræði. Fyrir það verður hálfu minna
úr framkvæmdum en ella mundi; takmark-
iðnæsthálfu seinna: það, að fá góða vegi
um sýsluna. Hitt er rjett, að hafa ekki
undir nema einn veg i einu, þar fyrst, sem
mest er þörfin og mest umferðin, og ljúka
við hann áður en tekið er til annarsstað-
ar, nema hvað hyggilegt getur verið að
verja einhverju lítilræði til ruðninga, þar
sem þess er mest þörf, eða til þess að gera
fært yfir lítils háttar torfærur, auk viðhalds
á fullgerðum vegarköflum, er sízt má van-
rækja.
Þó að hjer sje talað um sama frágang
á hjeraðavegum og landsvegum, þá er það