Ísafold - 02.06.1894, Page 2

Ísafold - 02.06.1894, Page 2
126 skammti, að eigi skuii verja til roálsins nema rjettarhöldum og að dóm skuli upp kveða þegar í stað eða innan hálfs mánað- ar í siðasta lagi. Loks er hin skýlausa heimild í síðustu greininni fyrir nokkrum fógetagjörðum hreppstjóra í smáskuldamál- um til bóta. Frá máli þessu eða málum ætti nú geta orðið svo gengið í sumar, að nýtileg rjettar- bót hefðist upp úr því. Eldeyjarförin. Auk bjargmannanna 3 úr Yestmanna- eyjum og hr. Sigfúsar Eymundssonar vorú í för þessari með Elínu nokkrir heldri menn og konur rir Eeykjavik og Hafnar- firði, þar á meðal skólastj. Jón Þórarins- son, landritari Hannes Hafstein o. fl. Þeir lögðu af stað hjeðan af höfn snemma morguns hinn 30. f. m., komu við í Höfn- um og fengu með sjer þaðan 6-æring með 4 mönnum til þess að lenda í við eyna. Þeir komu að eynni kl. e. h. Útnyrð ingsgola var, snörp nokkuð^ en þó fremur gott í sjóinn og brimlítið. Bjargmennirnir, Hafnamenn og nokkrir fleiri hjeldu þegar til eyjarinnar, hittu þar allgóða lendingu við fiá, breiða nokkuð, austan á landnorð- urjaðri eyjarinnar; er hún sæbrött í sjó ofan annarsstaðar víðast. í viki einu dálitlu eða kór vestanvert við flána, er þeir lentu við, lá mikill hóp- ur sela uppi á kiöpp, mest kópar, nokkrir vetrungar. Vestmannaeyingarnir rotuðu nokkra hina stærri með stýrissveif, en kóp- ana með hnefunum; drápu þar 11 seli alls. Að því búnu rjeðu þeir til uppgöngu á eyna, Vestmannaeyingarnir 3: Hjalti Jóns- son, sá hinn sami er veg iagði upp á Háa- drang fram undan Dyrhólaey í fyrra vor, (sjá ísafold 1893, bis. 215), Agúst og Stefán Gíslasynir, kaupmanns Stefánssonar, ung- lingar um tvítugt, en Hjalti bálfþrítugur. Þeir lásu sig upp bergið með líkum hætti og Hjalti haft til þess að komast upp á Háadrang: ráku inn járngadda með hæfi- legu millibili og notuðu í stað stigahapta, en planka með þrepum á yfir skúta og gjótur í berginu, 6 álna langan. Móberg er í hömrunum umhverfis eyna og þvi auðunnið á þvi með járni. Laust var það nokkuð í sjer og vildi molna og hrynja, ef á var reynt. Hæðin, þar sem þeir fje- lagar klifu upp, gizkuðu þeir á að vera mundi um 170 fet, sumstaðar þverhnýpt, en sumstaðar smástallar. Mesta torfæru hittu þeir fyrir, er skammt var upp á brún, lausan klett stóran á stalii, er þeir urðu að komast upp á og hafa sig þaðan upp á klettinn. Þeir komust klakklaust upp á brúnina, en gátu eigi fengið neitt hald þar fyrir stigann — plankann með þrepunum—, með því að kletturinn var örmjór ofan eins og egg og ekki jafnvel meira en svo hægt að komast þar fyrir öðruvísi en að ríða klofvega á egginni, en hengiflug á tvær hendur. En eigi gáfust þeir upp við glæfraför þessa að heldur, og tóku það ráð til þess að komast yfir sundið upp fyrir sig af klettinum og kaflann sem ept- ir var upp á brúnina, að þeir ráku fleyg- inn svo hátt sem þeir náðu til, og studdi Ágúst sig við hann með tilstyrk Stefáns, en Hjaiti klifraði upp eptir baki hans, þar til er hann stóð á öxlunum, en náði þó eigi til fyr en hann steig upp á höfuð Agúst; þá gat hann seilzt svo langt, að hönd festi á brúninnþog vegið sig upp. Tvær klukkustundir voru þeir að kom- ast alla leið upp. ' Þegar upp kom, gaf þeim fjelögum á að líta. Þar var hreiður við hreiður, svo að varla varð þverfótað á milli. Er það nær eintóm súla, er verpur þar uppi, en dálítið af svartfugli í bergskorum og gluf- um, svo mikil mergð, að þeir gizkuðu á að nær mundi 20 en 10 þúsundum, ef tal- ið væri þar uppi á eynni, en mikill fjöldi þar á ofan í berginu umhverfls hana alla, og mirma þar einnig um svartfugi. Þeir stikuðu eyna í snatri og taldist þeim hún vera um 90 faöma á lengd, frá útnorðri til iandsuðurs, en 50 á breidd. Gróður- iaus er hún með öllu, ekki stingandi strá, heldur ber móbergsklöppin undir; gróður- vísir brennur allur undan fugladrítnum; súluhreiðrin eru af þangi ger og ýmsu rusli. Aðrir fuglar sáust þar eigi en súla og svartfugl. Svartfuglinn er mjög spak- ur og drápu þeir töluvert af honum, komu með um 180, en súlu enga; hún ærsiast og ásækir manninn, ernærri kemurhreiðri hennar, en svartfuglinn situr kyrr. Þeir hröðuðu sjer sem mest þeir máttu, með því að tíminn var naumt markaður; sigu aptur ofan í bjargfesti, til flýtis, með því seinlegra miklu er að fara »veg« þann, er þeir höfðu iagt um bergið og þeir kalla því nafni, eptir járngöddunum, sem engum er fært nema þaulvönum bjarg- mönnum; ætla þeir sjer að nota veg þann eptirleiðis, er þeir taka til að nytja hólm- ann til fuglveiða o. fl. Þeir höfðu meö sjer veiði sína og hröðuðu sjer áleiðis. Var viðstaðan gufubátsins við eyna ekki nema 4 kl. stundir alls. Síðan var haldið beint til Eeykjavíkur, nema sexæringnum skiiað apturí Höfnum ásamt mönnunum. Kom Elín til Eeykjavikur eptir miðja nótt, um kl. 3. Þeir fjelagar 3 hugsa til að fara aðra ferð til eyjarinnar síðar í sumar, i önd- verðum ágústmánuði, og leigja til þess Elínu aptur. Þá eru súlnaungarnir fullvaxnir orðnir, en ófleygir, og má þá afla þar ógrynnis af þeim. Verðlagá þeim í Vestmannaeyjum er 40—50 aurar. Er því meira en lítil arðsvon af hagnýting hólma þessa, ef veiðin nemur syo mörgum þúsundum skiptir. Eru 5 menn alls I fje lagi um kostnað og ábata af landnámi þessu, með 6 hlutum þó, — Gisli kaup- maður Stefánsson 2 hluti, fyrir sonu sina báða. Einn er sýslumaður Vestmannaey- inga, Jón Magnússon, annar Sigfús Ey- mundsson, í Evík, þá Friðrik Gíslason myndasmiður. Hólminn, Eldey, er Danir kaiia »Mel- sækken«, er um 3 mílur undan Eeykja- nesi. Lent hafa Hafnamenn þar optaðsögn, jafnvel árlega, en enginn maður upp komizt á eyna fyrr en þetta, og má því ferð þessi heita allmikil frægðarför. Námsvistarrof. Landsyíirrjetturdæmdi 21. þ. m. í máii milli iðnaðarmeistara (H. Andersen skraddara) og námssveins (Guð- bjartar Þórðarsonar) í Eeykjavík út af námsvistarrofi og þar af leiðandi skaða- bótakröfu. Eptir samning þeirra á milli 12. ágúst 1890 átti námsvistin að standa í 6 ár, en 1000 kr. skaðabætur lagðar við brotthlaupi á þeim tíma og að honum liðnum mætti nemandi eigi ganga f vinnu eða þjónustu hjá neinum öðrum skraddara hjer í bæ eða manni sem ræki hjer skraddaraiðn nje setjast hjer sjálfur að sem skraddari í sínu nafni eða annara, meðan H. Andersen ræki hjer skraddara- iðn, að viðlögðum 2000 kr. skaðabótumm. m. Að 3 árum liðnum stökk Guðbj. burtu úr námsvistinni og tók til sjálfur að reka skraddáraiðn skömmu síðar. Krafðist þá hinn skaðabótanna (2000 kr.) og auk þess bóta fyrir atvinnutjón af meiðandi um- mælum í blaðagrein. Landsyfirrjettur sýknaði nú Guðbjart, af þvi, að H. Andersen lögsótti hann fyrir ann- að en það sem hann hafði brotlegur í gerzt, nefnil. ekki til 1000 kr. útlátanna fyrir námsvistarrofið, — 2000 kr. skaðabæturn- ar virtust eptir orðanna hljóðan i samningnum bundnar því skilyrði, aðnáms- timinn hefði verið útendaður, 6 ár, og pilturinn orðinn fullnuma skraddári, en meistarinn ekki getað búizt við tjóni af samkeppni ekki hálfnuma unglings. Máls- kostnaður fyrir báöum dómum látinn nið- ur faila. ísfirzku málaferlin. Ólaf'ur nokkur Ólafsson, húsmaður á ísafirði, hafði dæmd- ur verið í vetur þar í 5 daga fangelsi við vatn og brauð fyrir rangan vitnisburð og meinsœri, en yfirrjettur ónýtti þann dóm 21. þ. m. og vísaði málinu heim aptur til nýrrar og löglegri meðferðar og dómsá- leggingar, «en dæmdi undirdómarann, L. K. Bjarnason, til að greiða allan á áfrýj- un málsins leiðandi kostnað,—vegna þess, að hann (undirdómarinn) hafði neitað að setja kærða þann talsmann er hann óskaði, nefnil. Skúla Thóroddsen, án gildra ástæðna að dómi yfirrjettarins, heldur sett annan miður hæfan en hann, og að hann hafði, er hann tók málið fyrir af nýju, að þar til gefnu tilefni, ekki veitt ákærða nema 2 stunda fyrirvara, og þar með eigi geflð honum löglegt færi á að gæta rjettar síns. 50,000 kr.! Eða fast embætti? Hr. ritstjóri! Jeg hefi iesið í Alþingis- tíðindunum stæluna um landsskjalasafns- bitlinginn fræga (1000 kr.) handa ritstjóra »Þjóðólfs«, og gazt eigi að. Jeg sannfærðist af umræðunum um það, að hafl nokkurn tíma nokkur bitlingur verið veittur ófyrirsynju og ráðlauslega, þá er það þessii bitlingur. Það er sjer í lagi ræða Boga Melsteðs, sem mig hefir sannfært og lang- bezt skýrt málið yfir höfuð. Hann sýnir þar fram á mjög greinilega, hve skrásetn- ingaraðferðin við safnið sje vitlaus, og a5 hún muni kosta með þvi lagi minnst 50,000■ kr.l Kynjar mig því eigi, þó að bitlings- beiðandi vildi gjarna fá gert úr starflþessu. fast embætti handa sjer; það er seint of margt af embættunum fyrir þenna launa- lýð, og nógu breitt bakið á alþýðu til að' bera! Nú veit jeg að' vísu, að bitlingurinn, 1000 krónurnar, var loks bundinn því skil- yrði, að verkinu væri þar með lokið, á 1 ári. En býst nokkur við, að því skilyrði muni verða fullnægt öðru vísi en rjett að nafninu til í hæsta lagi? Má þáekkiganga að því vísu og sjálfsögðu, að nýr bitling- ur í sama skyni verði upp vakinn ánæsta

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.