Ísafold - 03.10.1894, Síða 2
262
eptir nokkur ár; en að svo stöddu mun
því fjarri fara.
Það þarf ekki sjerlega mikinn stærðar-
auka til þess, að útgerðarkostnaðurinn
aukist t. d. um þriðjung, bæði sakir
hærra kaupverðs og ábyrgðargjalds, og
miklu meiri kolaeyðslu m. m. En að
notkun bátsins mundi vaxa að því skapi,
til þess eru engar líkur. Því að þótt
Elín sje ekki stærri en þetta, hefir henni
aldrei boðizt svo mikill flutningur dauðra
muna, að þurft hafi að neita að taka hann;
og þó að stöku sinnum hafi fleira, jafnvel
helmingi fleira fólk þurft að fá far með
henni en hún hefir tekið, þá hefir hún
komið öllu af, með selflutningi, án þess að
töfin fyrir farþega hafi verið tilfinnanleg
eða numið miklu á borð við það, er tíð-
ast gerist þegar sæta þarf veðri á opnum
bátum. Það eru með öðrum orðum ekki
miklar líkur til, að »EIín« hefði fengið
fleira fólk til flutnings hjer um flóann þessi
sumur, þótt stærri hefðiverið. Endamundi
á stærri bát með talsverðu káetuplássi al-
menningur nota þilfarsvistina, eins og nú,
sakir verðmunarins, en ferðalög heldri
manna, sem ekki horfðu í hið dýrara far-
gjald, eigi svo mikil, að sá tekjuauki risi
undir miklum kostnaði.
Það er í stuttu máli, að meðan þetta
fyrirtæki er ekki ábatasamara orðið, hljót-
um vjer að gera oss að góðu ekki stærri
bát en nú höfum vjer, og megum þakka
fyrir, að hann haldi áfram ferðum næsta
árin eða þá annar ekki lakari, með sama eða
heldur minni styrk en þessi tvö liðnu sum-
ur. Að öllu verulegu hafa þær ferðir geng-
ið ágætlega. Þær hafa verið helmingi fleiri
en um var samið eða fyrir fram áskilið,
verið farnar með þeim hraða, svo reglu-
lega og svo tafalítið, sem ætlazt verður til
með nokkurri sanngirni, með því hafnieysi
og illum lendingum, er hjer gerast. Aldrei
orðið nokkur hin minnsta töf vegna bilun-
ar á bátnum eða áhöldum hans, með því
að það var frá upphafí haft allt traust og
vandað og ekkert til sparað; það hefðu
ekki allir útgerðarmenn gert, og virðist
engin óhæfa að nefna það, þó að kaup-
maður eigi í hlut og efnamaður. Bátur-
inn búinn þessi tvö sumur að flytja um
6000 manns, án þess að nokkurt hið minnsta
slys hafi orðið. Að vitni góðra sjómanna
er báturinn bezta sjóskip, eptir stærð; hvað
hinir, sem ekkert vit hafa á, kunna um
það að segja, þýðir hvorki af nje á.
Hvað skýlið snertir, þá halda sumir því
fram, að hafa megi þennan eða því líkan
bát yfirbygðan. En helzt munu til þess
verða þeir, er minnst hafa vit á — þeir
eru vanir að vera frakkastir í máli. Aðr-
ir vita það, að háski getur verið að hafa
yfirbyggingu á bátum, sem þurfa að vera
jafngrunnskreiðir og hjer er nauðsyniegt,
»g ekki betra en er í sjó hjer um flóann
opt og tíðum, 'og eins hitt, að það þarf
miklu öflugri gangvjel og miklu meiri kol
til að hafa yfirbyggða báta áfram mót
vindi en hins vegar.
Þægindi og hagsmunir af gufubátsferð-
um hjer um flóánn, einkum milli Borgar-
ness (með Akranesi) og Reykjavíkur, koma
eigi einungis niður á innanhjeraðsmönnum,
sjer í lagi Mýramönnum og Borgfirðingum, '
heldur einnig á langferðamönnum, t. d.
norðan úr landi og vestan, sem ekki þurfa
að fara landveg áleiðis til Reykjavíkur
lengra en í Borgarfjörð. Vel mundi og
Húnvetningum og mörgum Strandamönn-
um koma það í ísárum, að eiga jafnhægt
að ná til Reykjavíkur eins og gufubáts-
ferðir þaðan til Borgarness gera þeim.
Mundi öllum þessum þýkja æðimikil eptir-
sjá í þeim ferðum, ef þær legðust niður
aptur.
Það er síður en svo, að neinn sje hjer
lattur þess, að þiggja stærri og fullkomn-
ari bát til ferða þessara með sömu kjörum,
ef slikt byðist í alvöru og úr áreiðanlegum
stað. »Frá almennu sjónarmiði« er það
svo sem sjálfsagt. Það stoðar ekki að
horfa í það, þó að kalla mæt.ti það i hina
röndina hálf-lúalega meðferð á eiganda
»Elínar«, að hafa fengið hann til að kaupa
jafndýrt skip til almenningsafnota, og hafna
því síðan jafnskjótt sem færi gefst, en láta
hann sitja uppi með skaðann; — lítil von
um að hann gæti selt þegar aptur skað-
laust. Fjárhagslegt viðskiptalíf hefir allt
aðra tízku en mikla vægð eða linkind í
slíkum tilfellum; enda á hjer hlut að máli
maður, er engrar vægðar mundi beiðast.
En — úr því að ekkert slíkt tilboð hefir
enn birzt, eptir jafnlangan umhugsunar-
tíma, og ekki meiri líkur en eru til að
slíks sje von í tæka tíð hjeðan af, eptir
þá fjárhagslega reynslu, er ferðirnar hafa
gefið það sem af er, þá virðist lítil ráð-
dfeild í því, að kasta frá sjer ferðum »E1-
ínar« framvegis, með því að neita um
hæfilegan styrk til þeirra. Það mundi
likjast heldur mikið hátterni Ijettúðugra
barna, sem heimta ólm það og það gull
til að leika sjer að, en rjúka til og brjóta það
eða fleygja því út í buskann undir eins
og nýja brumið er af, eða þau hugsa sjer
annað glæsilegra, er þau girnast þá óðara,
hvort sem nokkur tök eru að ná í það
eða ekki.
Gjöf til vegagerðar. Herra Iíans
Ellefsen á Önundarfirði hefir gefið 167
kr. 85 a., sem er nokkuð af verði fyrir
skotmannshlut, er honum bar úr hval þeim,
er dauður fannst og róinn var upp í Skag-
ann í fyrra, til verulegrar vagnvegagjörðar
á Skaganum, með þeim skilyrðum, að
hreppsfjelagið legði til þeirrar vegagjörð-
ar 250 kr. og vegur þessi yrði forsvaran-
lega fullgjörður á næsta ári, og skyldi
hreppsnefndin í Ytri-Akraneshreppi hafa
alla framkvæmd á starfa þessum.
Jeg, sem hefi fært hreppsnefndinni gjafa-
brjefið og á sínum tíma á að afhenda gjöf-
ina, hefi þá ánægju, að mega færa hinum
velgynda gefanda innilegt þakklæti hrepps-
nefndarinnar fyrir þessa höfðinglegu gjöf,
og jafnframt vil jeg skýra frá, hvernig
hreppsnefndin hefir nú þegar uppfyllt hin
tilteknu skilyrði.
Ngr upphleyptur vegur, 120 faðmar á
lengd, 6 álnir á breidd að ofan, þráðbeinn
og næstum lárjettur, er lagður og fullgerð-
ur á hentugum stað þvert yfir Skagann ;
æfður vegaverkstjóri (Sigurgeir Gíslason)
hefir ráðið fyrir vinnunni og er frágangur
allur á veginum traustur og laglegur,
plássprýði og fyrirmynd, enda hefir veg-
urinn kostað allt að þúsund krónum, að
meðreiknuðu landi þvf, er undir hannjvarð
að kaupa. Sjest á því, að hreppsnefndin
hefir fyllilega og fúslega uppfyllt hin áð-
urnefndu skilyrði.
30. sept. 1894.
Hállgr. Jónsson.
Þilskipaútvegurinn. (Kafli úr brjefi
til ritstj. ísaf.). »Þilskipaútvegurinn er enn
í hreinasta barndómi, og ef hann á ekki
að líða undir lok, þá verður að taka i
taumana. Það er ósjaldan betra tækifæri
til þess en nú. En það er eins og útgerð-
armenn haltri til beggja hliða. Þeir vilja
af alhuga fá breytingu á hinum vitlausa
kaupgjaldsmáta, en þora hins vegar ekki
almennilega að kveða upp úr með það;
óttast að það fæli háseta frá sjer. En nú
er svo komið, að hjer þarf allrar alvöru
við. Mjer finnst, að útgerðarmenn ættu,
eptir fenginni reynslu, að skoða, hvað þeir
þola að bjóða, þannig, að skipin hafi sintt
nauðsynlegan hag, til viðhalds, vaxta-
greiðslu o. s. frv. Fái þeir ekki háseta
fyrir það verð, þá ber atvinnuvegurinn.
sig ekki, og þá er bezt að hætta honum.
Það eru þó nokkur hundruð manns, sem-
atvinnu hafa á þilskipunum, auk hinnar
miklu atvinnu, sem af þeim ílýtur fyrir
menn í landi, — karla og kerlingar og
unglinga, sem annars hefðu lítið eða ekk-
ert að gera. Væri líklegt, að hásetar hugs-
uðu sig um, áður en þeir ljetu þar að,
reka, að skipin hættu að ganga«.
Heiðursgjafir. Þessir hafa með úr-
skurði landshöfðingja 31. ágúst þ. á. feng-
ið heiðursgjafir úr styrktarsjóði Kristjána
konungs IX., 140 kr. hvor.
Halldór hreppstjóri Magnússon á Sand-
brekku í Norður-Múlasýslu, og
Olafur bóndi Þormóðsson á Hjálmholti
í Arnessýslu,
báðir fyrir framúrskarandi dugnað i
byg'gingum, jarðabótum og öðru, er að
búnaði lýtur.
Búnaðarstyrkur. Landshöfðingi hefir 4
haust úthýt.t landssjóðsbúnabarstyrk þessum
húnaðar- og jarðabótatjelögum :
A. í Suðuramtinu (29). sVndakils 144 kr.;
Austur-Landeyja 170.10; Dyrhólahrepps 106.15;
Fljótshlíðar 130.60; Grímsnesshrepps 372.30;
Gnúpverjahrepps 59.20; Hálsahrepps 65.30;
Holtahrepps 155.80; Hraungerðishrepps 93.90;
Hrunamannahrepps 163.90; Hvalfjarðarstrand-
ar 187.40; Hvammshr. 186.20; Hvolhrepps 120.60;
Innri-Akraneshrepps 144.60; Leirár- og Mela-
hrepps 63.30; Lundarreykjadais 84.00; Merkur-.
bæja 152.20; Mosfellinga og Kjalnesinga 143.40;
Reykdæla 167.50; Reykjavíkur447.90; Sandvíkur-
hrepps 117.20; Seltjarnarnesshrepps 134.90; Skil-
mannahrepps 61.50; Skorradals 87.40; Stokks-
eyrarhrepps 183.30; Út-Landeyingal92.70; Vest-
mannaeyinga 67.10; Villingaholtshrepps 146.40;
Ölfushrepps 330.10.
B. í VesturamtinuþAO). Alptaneshrepps 133.80;
Barðastrandarhrepps 93.30; Borgarhrepps 87.80;
Bæjarhrepps 62.90; Fellsstrandarhrepps 101.20-
Helgafeilssveitar 53.60; Hraunhrepps 142.00;
Hvammshrepps 108.30; Kirkjubólshrepps 69.00;
Kolbeinsstaðahrepps 73.70; Laxárdalshrepps
117.10; Miðdalahrepps 211.09; Mosvallahr. 61.40;
Mýrahrepps 80.20; Skógarstrandarhrepps 185.20;
Staðarsveitar 72.90; Stafholtstungna 158.10;
Súðavíkurhrepps 61.10; Þverárhllðar og Norð-
urárdalshrepps 70.30; Ögurhrepps 89.50.