Ísafold - 01.12.1894, Blaðsíða 3
307
betra móti, og hjálpar til þess, ab yel flskabist
síbustu vetrarvertíð.
Verzlun var hjer meb fjörugasta nióti í sum-
ar. Hafa komið hingab 13 skipsfarmar með
samtals um 1300 smál. Verzlun við pöntun-
artjel. á Stokkseyri var einnig með mesta móti
í sumar. Kornvara öll var í lágu verði og
sömul. sykur. Þar á móti var kaffl i báu
verði, eins og að undanförnu. Út á saltfisk nr.
1 var svarað á kauptíðinni 42 krónum fyrir
skpd., en saltýsu 28 kr. og 70 a. fyrir hvíta
ull. Kaupstaðarskuldir hafa hjá allmörgum
minnkað dálítið þetta ár. Vöruskipin urðu
síðla tilbáin til burtferðar í haust, ekki tyr
en í miðjum októbermán.; þá fór einnig gufu-
báturinn «Oddur» til Khafnar; hann á að vera
þar í vetur og koma svo hingað aptur snemma
að vori.
Aiveg hefur verið hjer atlalaust af sjó um
langan tíma, að heita má síðan um lok vetr-
arvertíðar. Beyndar fiskaðist svolítið i vor,
en það var mestmegnis ofursmá ýsa.
Kartöflur voru dável sprottnar hjer í ár.
Kófur mikið lakar.
Barnaskólarnir hjer i hreppi voru settir 1.
okt. Eru nú í þeim nál. 50 börn. Kennarar
hinir sömu og í fyrra: Guðm. Sæmundsson
realstud., Jón Pálsson organisti og Pjetur
Guðmundsson realstud.
Efnið í brúna á Þjórsá kom í haust með
einu af skipum Lefoliis frá Englandi. Rúm
100 þús. pund af brúarefninu er ekki klyftækt.
Á að draga það á sleðum upp að brúarstæð-
inu í vetur. Hafa þeir tekið að sjer flutning-
inn, Ólafur söðlari Ólafsson á Eyrarbakka,
miðleiðis upp eptir, að Önundarholti, og Svein-
björn búfræðingur Ólafsson í Hjálmholti efri
hluta vegarins. Báðir fyrir umsamið gjald
undir hver þúsund pund.
Engir hafa nafnkenndir dáið nýlega, og
heilsufar fólks er dágott víðast hjer í kring.
Samt heflr taugaveiki verið á stöku heimilum
hjer í þorpinu.
■Vestmannaeyjum 16. nóvbr.i Haustveðr-
átta heflr hingað til yfir höfuð verið mjög
hlý og góðviðrasöm. Pyrstu 10 daga október-
mánaðar var fremur stormasamt og úrkoma
mikil, en úr því var mánuðurinn þurrviðra
samur og vindhægur; mestur var hiti þann 2.
12.4°, minnstur aðfaranótt þessr 25.-J-40, úr-
koman 136 millimetrar. Það sem af er þess-
um mánuði hefir verið býsna úrkomusamt og
stormasamt með köfium; mest var úrfellið
þann 4.; rigndi á þeim sólarhring 40 millim.
Messur hiti var sama dag 9,2°, minnstur að-
fsranótt þess 13. -r-6.60; 6 daga hefir verið
austanrok í þ. mán.
Að mestu hefir verið aflalaust af sjó í allt
haust, og hefir þó eigi vantað, að nóg æti
hafi verið í sjónum hjer umhverfis í þ. mán.,
þar sem sjór hefir mátt heita fullur af síldar-
torfum (kópsíld?); þar með hefir fylgt mesta
ógrynni af hvölum,svo á stundum liefir varla
verið á sjó farandi fyrir þeirri mergð, sem af
þeim hefir verið á öllum fiskimiðum, og þykj-
ast menn eigi muna slíkt um þennan tíma
árs.
Við komu póstskipsins síðast gerðist sú ný-
lunda hjer við verzlunina, að ýmsar vöruteg-
undir voru færðar niður gegn peningaborg-
un, sem áður hefir eigi viðgengizt hjer. Á
eptirtöldum vörutegundum er verðið þannig
gegn peningum og vörum: rúgur tunnan
12,50—14,00; bankabygg tunnan 32,00—25,00;
rúgmjöl og overheadmjöl 100 pd. 7,00—8,00:
kaffi pundið 0.95—1,10; steinsykur og hvíta-
sykur 0,30—0,34; exportkaí'fi 0,40—0,45 og
0,45—0,50; 10°/o kaupbætir á færum og skæða-
skinni; ofnkol skpd. 4,00—6,00; steinolíufatið
26,00—34,00; þar á móti enginn kaupbætir á
salti, sem kostar 4,75 tunna; þykir þessi breyt-
ing horfa til batnaðar, þótt fáir hafi mikla
peninga fyrir að gefa.
Skagafirði 25. okt. Veðráttan á sumrinp,
sem nú er að enda, hefir verið ágæt. Hey-
skapur er því mjög góður, og nýting hin
bezta. Afli var ágætur í sumar, og í haust
er og dágóður afli. — Síðan »inflúenzunni«
ijetti af, ásamt afleiðingum hennar, er voru
illar og langar á mörgum, hefir heilbrigði
almennt verið mjög góð. Fólki líður þvi al-
mennt vel.
Samt sem áður eru verzlunarskuldir með
mesta móti á Sauðárkrók, og er það ískyggi-
legt. Það er stakt hugsunarleysi, að láta
ýmsa eyðslu vaxa ár f'rá ári, án þess að af-
urðir búanna vaxi i móti.
Þó er óhætt að fullyrða, að bændur spara
sjer mikla peninga með því að panta vörur í
pöntunarfjelagi Skagfirðinga. I ár mun pönt-
un vera með mesta móti, og mun jeg geta
skýrt betur frá því siðar. Sem borgun fyrir
hinar pöntuðu vörur sendi fjelagið nokkuð af
ull, lítið eitt af æðardún, nokkuð af hrossum,
og með hinu stóra gufuskipi »Rodera«, 1691
tons, 7777 sauði; var þeim skipað fram á
Sauðárkrók 23.—25. f. m.
í haust hefir verið unnið töluvert að jarða-
bótum, einkum þúfnasljettun, hjer í sýslunni
á ýmsum stöðum; virðist oss, að áhuginn á
því fari vaxandi. Enda hefir hin góða haust-
veðrátta hvatt menn til slíks. Að öðru leyti
eru litlar framfarirnar hjer i sýslunni, með
því að lítið verður úr því, þótt einhverjir ein-
stakir menn vilji koma nytsömum fyrirtækj-
um fram. Þannig heyrum vjer, að ekkert
verði úr því, að tóvinnuvjelarnar komist á
fót, eius og ráðgjört var á síðasta sýslufundi.
Strandar það, að sögn, á því, að Sigurður
bóndi Ólafsson á Hellulandi vildi, þegar á átti
að herða, fá meira en 500 kr. úr sýslusjóðnum
i styrk handa sjálfum sjer til sigliugar, til
að kynnast vinnuyjelunum.
Mjög margir hlakka til þess, að hin fyrir-
hugaða brú komist á eystri Hjeraðsvötnin, og
bíða þess með eptirvæntingu. Umferðin er
mjög mikil hjer ytra nær sjónum, síðan Sauð-
árkrókur stækkaði og verzlun óx. Dragferj-
urnar eru að visu mikil framför, en sá mikli
annmarki er á þeim, að þær verða ekki not-
aðar seint á haustin og snemma á vorin, og
þá liggur mönnum mest á öruggri hjálp yfir
vötnin. Það er búið að taka upp töluvert
grjót skammt frá hinu fyrirhugaða brúarstæði,
og að koma töluverðu af trjávið áleiðis nær
staðnum. Vjer vonum að næsta sumar verði
mikið unnið að brúnni, sem er hið mesta nyt-
semdarverk, hvað sem sumir öfundsjúkir og
sjergóðir menn kunna að segja. til að spilla
fyrir henni.
Söniu sýslu 12. nóv.: Tíðin stöðugt ágæt.
Jörð rauð. Afli ágætur. Fjárpestin gerir víða
allmikið tjón.
Stýrimannaskólinn. Þar eru nú í vetur
24 nemendur alls; af fyrra árs nemendum
þessir:
1. Oddgeir Magnússon, 2. Otto Nóvember
Þorláksson, 3. Geir Sigurðsson, 4. Halldór Þor-
steinsson, 5. Þorvaldur Eyjólísson, 6. Magnús
Pjetursson, 7. Þórarinn Guðmundsson, 8. Ja-
fet Egill Ólafsson, 9. Frímann Finnsson, 10,
Haraldur Samúel Halldór Jónsson, 11. Magnús
Brynjólísson og 12. Arni Jónsson.
En þessir eru nýsveinar:
1. Einar Magnússon (Rvík), 2. Guðmundur
Kristinsson (Seli), 3. Guðjón Knútsson (Rvík)-
4. Ólafur Helgi Þorfinnsson (Rvík), 5. Tómas
Jónsson (Rvík), 6. Magnús Þorfinnsson (Rvík),
7. Erlendur Hjartarson (Seltjarnarnesi), 8. Guð-
mundur Bergsson (Flatey), 9. Kristján Pjetur
Snæbjarnarson (Flatey), 10. Jón Þorsteinsson
(Flatey), 11. Sölvi Víglundarson (Bíldudal),
og 12. Olgeir Gunnar Ásgeirsson (Skjaldfönn).
Eptir tillögu forstöðumanns skólans sam-
þykktu stiptsyfirvöldin. að kennslunni skyldi
tvískipt i vetur þannig að stærðfræði værikennd
sjer (4 st. á dag) og stýrimannafræði sjer, en
forstöðumaður skólans hafði kennt hvorttveggja |
í einu áður. En sökum þess að skólahúsið er ekki I
nema einn hekkur og tæplega nóg rúm fyrir
svo marga pilta, en kennslan í báðum náms-
greinum varð að tara fram á sama tíma, þá
lánaði forstöðumaður skólans eina stofu í
íbúðarhúsi sinu, til viðbótar við það húsrúm,
sem hann hefir ljeð skólanum, og er .stærð-
fræðin kennd í þeirri stofu í vetur. Eru nú
í stærðfræðisflokknum 15 piitar, þ. e. allir ný-
sveinarnir og 3 eldri; verða þeir teknir inn í
stýrimannafræðisflokkinn jafnskjótt og þeir
ljúka við stærðfræðisnámiíý1 serm áskilið er til
undirbúnings.
Cand. mag. Bjarni Jónsson tók að sjer að
kenna stærðfræðina tyrir umsamið kaup á
mánuði, 55 kr.; meira leyfði e^ki íjárhagur
skólans að bjóða íyrir þá aukakennslu.
Aðrir kennarar við skólann aru hinir sömu
sem áður. 11
Dánir eru í haust í Ampríku þessir
landar nafnkenndir: kand. Sigurður Jón-
assen (Þórðarson háyflrdómara), andaðist
í Winnipeg 6. okt., nær fimmtugu, og H.
C. Robb, fyrrum kaupmaður í Reykjavík,
farinn vestur fyrir 16—17 árum, dó í Elisa-
bethport í New Jersey, rúmlcga sextugur.
Drepsótt kom upp í haust Nýja-íslandi,
kólerukynjuð, að mælt er/,dró menn til
dauða á fárra stunda fresti, ejn virtist vera
í rjenun aptur, er síðast fajra sögur af;
hafði orðið ekki allfáum íslendingum að
bana.
Ný lög. Alls ein lög hafa til þessa
hlotið konungsstaðfestingu (10. f. m.)afl8,
er þingið samþykkti í sumar:
1. Lög um bann gegn botnvörpuveiðum.
Bátstapi varð í Bolungarvik vestra
seint í f. mán.; drukknuðu 5 menn nærri
lendingu á heimleið úr flskiróðri.
„Fólska eða flónska“. Annað tveggja
það var framkoma ritstjóra »Þjóðólfs« í kosn-
ingarbaráttunni hjer í Reykjavík kölluð í sum-
ar í Isafold, sjerstaklega að því er snerti hinn
íyrverandi þingmann höfuðstaðarins, yfirkenn-
ara H. Kr. Fr. En dómarinn (hjeraðsdómari)
hefir ekki viljað halda það alveg lögmætt, að
komast svo að orði. Hann metur það 20 kr.
virði, og virðist það engan veginn dýrt — sið-
ur en svo — úr því það var látið nokkuð heita
(má vera, að yfirrjettur verði béðinn að íhuga
það atriði); enda er svo sem engan gorgeir að
heyra í ábyrgðarmanni »Þjóðólfs« út af þeirri
niðurstöðu. Það er lika sannast að segja, að
ætti að fara að tína til jafnsmátt, mætti sjálf-
sagt fá 10—20 dóma á ári yfir »Þjóðólfi*.
Þetta mál hans gegn ritstjóra lsaíoldar átti
svo sem að vera hefnd fyrir lögsóknina út af
illmælunum við forsetaskiptin í Bókmennta-
fjelaginu í sumar, og kemur nú dómur í því
máli innan skamms.
Eptirmæli. Hinn 2. ágúst siðastl. andaðist
að Utskálum Jón Mattiasson, fyrrum fremdar-
hóndi og hrepp-stjóri á Gröf i Mostellssveit; vel
gefinn maður og valinkunnur.
Hinn 7. ágúst síðastl. andaðist húsfreyjan
Steinunn Sigurðardóttir í Landakoti á Mið-
nesi; mikil sæmdarkona.
Laust prestakail. Miðgarðar á Grimsey
í Eyjafjarðarprófastsdæmi. Mat: 960 kr. 93 a.
Augíýst 14. nóvember. Veitist frá næstu far-
dögum.
Raflýsingarmálið. í síðasta bl. »ísaf«,
bls. 303, fyrsta dálk, 5.1., stendur 1000 pd. st.;
á að vera 1,100 pd. st.
Misprentazt heíir í síðasta bl. »Fjallk«, bls.
184, málsgrein (a), lið 3: leiðarstólpum f. leiða-
stólpum, og velstæðum f. vjelstöðvum. Enn-
fremur í sama dálk 4 1. stendur: vel stöðvuð-
um les vjelstöðvum, og í næsta dálki hver 50,
les hvern:, einnig 3 teningsfet les 2S6 teningsfet',
og breytaðar les breytarar.
Fr. B. Anderson.