Ísafold - 02.11.1895, Blaðsíða 1

Ísafold - 02.11.1895, Blaðsíða 1
K«mur tit ýmiaíeinu sinnl eða tvisv.i viiu. Verö árg.(80arka minnst)4kr.,erleiidis6kr. eða il/s doll.; borgist fyrix rniðjan júlí (erlendis fyrir fram). ÍSAFOLD. Qppsögn(skrifleg) bundin við áramót, ógild nema komin sje til vitgefanda fyrir l.oktober. Afgreiðslustofa blaðsins er í Austurstrœti 8. XXI!. árg„ Reykjavík, laagardagiEm 2. nóvember 1896. 86 blað. LaEknaskólinn og læknaskipanin. Útdrátt.ur sá af fyrirlestri Guðm. læknis Björnssonar, sem prentaður er i siðasta blaði ísafoldar, beflr eðlilega vakið mikla eptirtekt bjer i bænum, og gerir það frá- leitt siður. þegar bann berst út um iandið, þar sem ræða er um jafn-þýðingarmikið þjóðmál eins og menntun læknanna hjer á landi og önnur skilyrði fyrir því, að þeir geti komið þjóðinni að sem beztum not- um. Vjer göngum að því visu, að lesend- um blaðsins sje hugieikið, að það mál verði sem vandlegast rætt. í því skyni, að sem beztur grundvöllur fáist fyrir slík- ar umræður, höfum vjer haft tal af öllum hinum kennurum læknaskólans — Guðm. Björnsson er, svo sem kunnugt er, einn kennarinn — og prentum hjer á eptir út- drátt af /unmælum þeirra í tilefniaf fyrir- lestrinum. Guðm. Magnússon lækni, kennara lækna- skólans, fundum vjer fyrst að máli. Hann talaði af varfærni mikilli, sagði, að ef vissa væri fyrir þvi, að nógu margir lækn- ar fengjust frá Kaupmannahöfn, þá væri sjálfsagt með því fengin meiri trygging en nú fyrír góðum iæknum. En meðan sú vissa væri ófengin og nokkur læknis- þjeruð jafnvel stæðu óskipuð læknum, væri óráðlegt að leggja læknaskólann niður. Hann bjóst við, að læknahjeruðin hjer á iandi mundu verða að minnsta kosti 40, og til þess að fylla skörðin, sem kæmu smátt og smátt. mundi þurfa 2 kandi- data að meðaltali á ári. Eptir reynslunni, sem væri á að byggja, væri fremur ólíklegt, að svo margir lækn- ar fengjust frá Kaupmannahöfn, enda þótt kjör þeirra væru bætt. Það hefði alls ekki verið óaðgengilegt fyrir íslenzka stú- denta að nema læknisfræði í Höfn, styrk- urinn meiri en til nokkurs annars náms, og að loknu piófl stæðu íslendingar jafnt að vígi i Danmörk eins og danskir lækn- ar; samt hefðu tiltöluiega mjög fáir íslend- ingar gengið þann veg. Læknarnir væru ekki einu sinni enn nógu margir, þrátt fyrir læknaskólann. Tvö ár, 1891 og 92, hefðu engir stúdentar bætzt við á hann. Síðan hefði landið fengið 7 nyja lækna, þar af 4 frá háskólanum, sem væri óvenju- lega inikið; samt væru 5 læknisumdæmi óskipuð, og þótt aliir háskólakandídatarnir frá þessu tímabili hefðu komið hingað heim, þ4 nægði það ekki til að skipa öll umdæmin. Að því er þekkingu kandídata frá lækna- skólanum snerti, kvað hann ekki sjálfsagt að miða við Hafnar-kandidata. í sumum öðr- Um lönduru væri iæknanámið miklu minna^ og gerðu menn sjer það að góða. í flest- um verulegum læknisfræðigreinum væri lesið eins mikið við iæknaskólann eins og við háskólann. Svo mætti og gera of mikið úr hinu verklega námi við háskólann; til- högunin þar gæti verið haganlegri. Lækna- efni færu að ganga á spítala áður en þau hefðu fengið nokkra læknisfræðilega þekk- ingu, og þess %7egna hefðu þau ekki fullt gagn af þvi, sem þau sæju. Og ábyrgðar- ieysi þeirra á gjörðum sínum á spitölum og klínikum stæði þeim fyrir þroska, enda fengju þeir litið þar að gera sjálfir. Spít- alavöntunin hjer væri auðvitað tllfinnan- legust. En hann kvaðst ekki hafa fengið svo mikla reynslu við skólann hjer, að hann vissi, að hve miklu ieyti þetta spít- alaiausa bóknám kæmi læknaefnunnm að notum. Ef iandsspítali kæmist upp, þar sem sjúkiingar gætu fengið að liggja ó- keypis, og ef samgöngurnar bötnuðu svo, að fólk utan af iandinu gæti komizt á þann spitala, þá væri áreiðanlega stórt stig stigið í áttina til þess að bæta lækna- skólann, enda sje það verulegt hneyksli, að landið skuli ekki eiga spítala, og að ekkert ókeypis sjúkrarúm skuli vera til á öllu landinu. Svo fundum vjer dr. J. Jónassen, hinn setta landlækni og forstöðumann lækna- skólans. Hann minntist fyrst á læknasetrin og sjúklingaskyiin, sem fyrir Guðm. lækni Björnssyni vakir að reist verði, og taldi óhugsandi, að slíku fengist nokkurn tíma. framgengt hjer á landi. Læknasetrin mundu verða 30 að tölu, og hvert þeirra kosta um 5000 krónur; sjúkraskýlin jafn- mörg, að likindum 3000 kr. hvert. Yið- hald á öllum þessum húsum mundi mega búast við að næmi 15—20,000 kr. á ári. Engin von væri þess, að slík framlög af opinberu fje fengjust nokkurn tíma. — Það mundi og sannast, að landið launaði aldrei svo vel læknum, að fullnægt yrði lækna- þörflnni frá Kaupmannahöfn eingöngu. Að þvi er læknaskólann snerti, gat dr. Jónassen þess, að honum væri stöðugt að fara fram. Hann hefði aldrei haft betri kennslukrapta en nú, og aldrei eins góðar kennslubækur. Ef læknaefnin notuðu vel tíma sinn hjer og svo í Höfn eptir á, kvaðst hann sannfærður um, að þau gætu gert eins gott gagn og hverjir aðrir, enda taldi hann reynsluna hafa sýnt það, að margir góðir læknar hefðu frá læknaskól- anum komið. Vitaskuld geri þeir ekki hina stærsta skurði (oporationer), sem lækn- ar geti hvergi gert einir. En svo sje og þess að gæta, að hjer komi miklu minna fyrir af meiðslum og öðru því er sáralæknar þurfi við að fást. Hentugt taldi hann, að læknaskólakandídötum væri gjört að skyldu að ganga að minnsta kosti 1 til iy2 ár á spítalana í Kaupmannahöfn. Þegar menn hafi fengið hinn bóklega undir- búning, sem læknaskólinn hjer veiti. hafi menn margfalt meira gagn af því verk- lega, er menn sjái, heidur en ef menn sjái það óundirbúnir og þekkingarlausir, eins og tíðkist fyrstu árin, er menn lesa læknis- fræði í Kaupmannahöfn. Og afdráttarlaust kvað doktorinn það sína reynslu, að iækna- efnum hefði tekizt að komast í skilning um það, er þeir ættu að nema, þótt ekki ættu þeir kost á að sjá meira verklegt en hjer er kostur á. En það væri ekki heldur svo sjerlega lítið, bæði á spítalanum og úti um bæinn. Enga þörf taldi hann á því fyrir lækna- efni, að nema allt það er í Kaupmanna- höfn sje kennt, enda sjeu sumir ágætir læknar þar komnir á þá skoðun. Kvaðst meðal annars hafa átt tal við hinn fræga augnalækni Dr. Hansen-Gruth, sem hefði lokið lofsorði á læknaskólann hjer einmitt fyrir það, að hann sleppti þeim greinum, sem ekkert hjálpuðu mönnum til að verða góðir læknar, enda gleymdust mjög bráð- lega. Og sá læknir hafði látið uppi það álit sitt, að ekkert væri þvi til fyrirstöðu, að læknaskólakandídatar gætu orðið nýtir læknar, svo framarlega sem þeir gengju á spítala að loknu prófi. Dr. Stad- feldt hafði og borið læknaskólakandídötum þann vitnisburð, að í yfirsetukvennafræði væru þeir eins vel að sjer eins og háskóla- kandidatar. Ósanngjarnt mjög taldi doktorinn það, að kenna læknaskólanum og læknum frá honum um það. að tæringin hafi náð út- breiðslu hjer á landi, því að á einskis manns valdi sje að varna sliku til fulls. Bakterían geti jafnvel borikt í fatnaði og bókum frá öðrum löndum. Af holdsveik- inni sje það að segja, að hún hafi áreiðan- lega rjenað að miklum mun á hinum sið- ari árum, jafnframt því sem þrifnaðinum hafi farið fram. Sóttnæmi þeirrar veiki sje enn ósönnuð, í því efni standi hver vísindamaðurinn öðrum andspænis, og því verði ekkert fullyrt um það, hvort það hafi verið á valdi lækna hjer að gera öllu meira til að útrýma henni en gert hafi verið. Björn Ólafsson augnlækni töluðum vjer næst við. Hann taldi læknaefni eiga kost á að fá á læknaskólanum góða bóklega menntun, sem komið gæti að fullum not- um, þegar menn færu að sjá hið verklega á spítölum ytra. Meiri bóklega menntun en hjer væri kostur á að fá mundu menn ekki þurfa til þess að verða nýtir læknar. Aðalatriðið væri þetta, að kandídatar hjeð- an sæktu rækilega spítala ytra; af þvj hefðu öll læknaefni mest gagn, sem þau

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.