Ísafold - 19.12.1896, Síða 3
851
Seyðisfirði 22. nóv.: »Mjög umhleypingasamt
hjer í haust: 12.—15. okt. þíður, og tók nokkuð
upp snjó, er kominn var mjög mikill undir. Þá
voru rosar 15.—19. með mikilli snjókomu. Enn
22.—28. hriðir og stórviðri. Þá logn og stillur
og stundum þiðviðri. Hinn 5. nóv. dimmdi aptur
að með nokkra hrið, og hjelzt optast slæmt til
þess 12. Síðan hefir verið mjög stillt og blítt,
en þó er all-mikill snjór eptir enn.
Fiskiafli hefir verið hjer, þegar gefið hefir.
Bátar eru hjer mjög litlir, en langt hefir orðið
að róa.
Síldarafli enginn, og hefir ekki verið nú þó
nokkuð lengi, og sama er að frjetta af snður-
fjörðunum, eru flestir síldarútgerðarmenn hættir
við að stunda hana í þetta sinn.
HJer var talsverðu búið að slátra af fjenaði,
þegar pöntunarfjelagsskipið kom; en þegar búið
var að fylla það, voru 900 fjár eptir, sem það
gat ekki tekið; var þvi slátrað bjer, og fengu
menn gott verð á því hjer.
Hjer eru nú orðnar 2 prentsmiðjur, enda 2
blöð (»Austri« og s>Bjarki«), og þó 3, ef »Bram-
sókn» er talin með. Bjarka-prentsmiðja er nú
nefnd Fjelagsprentsmiðja. Það er »Skuldar«-
prentsmiðjan gamla frá Eskifirði, og er nú mjög
úr sjer gengin. Hina á Þorsteinn Skaptason
(ritstjóra), hefir keypt hana í haust að föður sin-
um, og auk þess fengið sjer góða hraðpressu,
allstóra og mikilvirka, hina fyrstu, er komið liefir
í þenna landsfjórðung; og þykir það góð fram-
för. Ætti eigi að verða skotaskuld úr því hjeðan
af að leysa af hendi það, sem Austfirðingar þurfa
að láta frá sjer á prent út ganga, og meira til«.
Vestur-ísafjarðarsýslu (Arnarfirði) 10.
desbr.: »Erjettalitið má heita hjeðan. Sumarið
hjer mjög vætusamt fram undir höfuðdag; þá
brá til góðra þurka, svo að menn heyjuðu allt
að því i meðallagi, þótt grasspretta væri ekki
góð; var og heyskap haldið áfram í sumar í
lengsta lagi, allt fram undir rjettir, en venjan er
að hætta heyskap í lok ágústmán.
Fiskiafli var hjer með lang-rýrasta móti i
haust; vilja menn kenna því um, að um allan
sláttinn gengu mörg skip til fiskjar hjer í firði,
en það hefir varla tíðkazt áður, nema fáeinir
hátar hafa róið hjer 2 næst-undanfarin sumur.
Það eru Sunnlendingar, sem hafa tekið upp á
þessu. Það þykir heldur ekki bæta um, að nú
er farið að tíðkast, að þilskip liggja seinni hluta
sumars og fram á vetur hjer á firðinum (á Hlaðs-
bót) með báta og fiska með lóðum; þykja þeir
elrki góðir gestir, þar sem þeir róa út í fjarðar-
mynni á móti fiskinum, þegar hann er í göngu,
og slægja ofan i fjörðinn. Talað hefir verið um
að reyna að koma á samþykkt gegn þessum ó-
fögnuði, lóðafiskiveiðum um sláttinn og slægingu
ofan i fjörðinn, en tvísýni þykir sumum á, að
hún komist í gegn.
Bráðapest hefir gjört mikið vart við sig á
sumum hæjum 1 Arnarfirði, en sumstaðar hefir
hennar ekki orðið vart«.
Suðurrtiúlasýslu 9. nóv.: »Stirð hefir tiðin
verið hjer í haust, varla komið þurkadagur allt
haustið frá 15. ágást. Þá dyngdi niður áköfum
snjó með októberhyrjun, svo að fje fennti stór-
kostlega, einkum i Hjeraði i Skriðdal. I Hjerað-
inu, sem er lítil sveit, fenntu 1200 , fjár, sem
eigi var fundið, er siðast frjettist. A einum bæ
fórust 200 fjár, helmingur alls fjárins. En i
Fjörðunum, þar sem menn voru að þurka fisk
sinn, eiginlega næstum allan sumarfisk sinn, því
að framan af sumrinu fiskaðist mjög lítið, fennti
alla fiskistakka i kaf, og hafa menn verið að
grafa þá úr fönn og bera inn hálf-blauta og
meira og minna skemmda, svo að lítið er um
innleggið, og skuldir víð kaupmenn því meiri«.
Strandasýslu sunnanv. 8. desbr.: »Nú er
fyrir hálfum mánuði skipt um til hærilegrar veð-
ráttu, eptir eitthvertj versta og rosasamasta haust,
sem lengi hefir komið. Mikill snjór var kominn
°g mjög hagskarpt orðið, alstuðar farið að gefa
fje, og að þvi komið, að öll hross þyrfti að taka
inn. En nú um 2 síðastliðnar vikur hefir verið
hagstæð tíð og þíða optast, svo að góður hagi
er kominn. Almennur kvíði var í mönnum fyrir
hörðum vetri, því þrátt fyrir mikla skepnufækkun
i haust er ásetning vist með lakasta móti, eink-
um vegna illa verkaðra og skemmdra heyja.
Fjárbaðanir hafa almennt farið fram hjer í
Hrútafirði. Þó hafa stöku menn austan Hrúta-
fjarðarár neitað að baða, sumir allt, og aðrir
nokkuð' af fje sinu. Sagt er og að all-margir
norðar i Húnavatnssýslu neiti með öliu að baða,
og mun því lítil vou um, að kláðanum verði
útrýmt í þetta sinn, en fáir munu þó iðrast eptir
að hafa baðað, ef kláðalitið verður hjá þeim
vetrarlangt«.
Nýr íslands-appdráttur. Hann er
einstaklega snotur, hinn nýi landsuppdráttur,
er skólastjóri Morten Hansen hefir prenta
látiS í sumar í Kaupmannahöfn. Hann mun
vera viðlíka stór og íslands-pppdráttur sá, er
ÞjóðvinafjelagiS gaf út hjerna um árið, eða, ef
til vill, nokkuð stærri, en svo langt um fallegri
og greinilegri, með skýrum ogfögrum sýslulitum,
og auk þess með ýmsum umbótum samkvæmt
rannsóknum frá síðari árum, einkum dr. Þor-
valds Thoroddsens. Ætti nokkurt rit að vera
til á hverju heimili á landinu, þá er það
annar eins landsuppdráttur og þetta. Verðið
er svo lágt, að hverju mannsbarni er hægðar-
leikur að eignast hann þess vegna, en stór-
mikil nytsemi í honum, auk prýðinnar.
Prestskosning. Herra cand. theol. Geir
Sæmundsson var ltosinn prestur í Hjaltastaða-
og Eiðaþingum 19. f. m. með 26 atkv. af 49,
en síra Einar Pálsson á Hálsi fjekk hiu 23.
Heima sátu að eins 11 lsjósendur.
Druknun. Skrifað úr Skagafirði 18. f.
mán.: »Þrír menn drukknuðu 7. þ. mán. í
lendingu í brimi á Skaganum, í Hvammssókn,
en hinum 4., sem lcomst á kjöl, varð bjargað.
Þeir, sem drukknuðu, voru ungir, röskir menn:
Gunnar, mikill efnispiltur, Ágúst og Björn.
Veður óstillt mjög, opt rigningarhryðjur«.
Jólabazar
í eiisku verzluniimi
16 Austurstræti 16
Jólagjaíii*. Leikföng.
Ep!i — Apelsínur
Möndlur — Confect Eusínur — Valhuetur
Brjóstsykur og Confect.
Nýr ódfengur drykkur Champagne Cider,
bragðgott eins og kampavin en alveg ódfengt.
Lemonade — Kola — Gingerale
Hið fræga Ben vorlt ch Whisky
Fint hvnitimjöl — Gerpulver
CAronolía — Rúsínur — Kúrenuur
og allt sem menn þurfa til Jólanna.
W. G. Spence Paterson.
Baðmeðulmmm
Naftalínbað Glycerinbað
frá S. Barnekow í Malmö er aptur von á hing-
að með »Laura« næst í janúarmánuði.
Vilji menn til tryggingar panta meðulin
fyrir fram þá geri þeir mjer aðvart í tíma.
Th Thorsteinsson
(Liverpool).
Á Selsholti er til sölu fyrir afarlágt verð
járnklætt timburhús lítið með lóð. Semja
má við undirskrifaðan fyrir marzmánaðarlok
1897. Reykjavík 17/la ’96.
Ingimuudur Þórðarson.
kjöt fæst þessa daga til jól-
... anna í
smJor verz|un jóns þórðarsonar.
LESIÐ ! Á góðum stað í bænum fæst til
leigu frá 14. maí skemmtileg og góð stofa
fyrir 1—2 einhleypa menn.
VeízLhúsiB P. 1 Rumohr,
Behnstrasse nr. 16, ALTONA,
býður alls konar vörur í STÓRKAUPUM,
svo sem kornvörur, krydtlvörur,
vefnaðarvörur, þýzkar og enskar,
járnvörur, þýzkar og enskar, g-ler-
vörur, steinoliu, salt, enskt og
þýzkt, trjávið,kol, steinolíuvjelar,
gut'uvjelar og fleira. Svo selur þetta
verzlunarhús allar íslenzkar vörur, þar
á meðal hesta.
Allar pantanir sendast undirskrifuð-
um, sem hefir aðalumboð á íslandi fyr-
ir þetta verzlunarhús.
Þýzkar þungavörur koma hiugað beint
frá Hamborg.
Reykjavík, 10. des. 1896.
Björn Kristjánsson.
Landskjálftasamskot 1896, meðtekin
af undirskrifuðum:
Dr. Valtýr Guðmundsson 30 kr. Frú Emma
Fredericia í Khöfn 10 kr. Síra Ólafur Helgason:
samskot úr Stokkseyrarbreppi 320 kr. (þar af P.
Nielsen faktor á Eyrarhakka ÍOO kr,, Guðm.
Guðmundsson bóksali 50 kr., Ólafur Árnason
kanpm. á Stokkseyri 50 kr., síra Ólafur Helgason
30 kr., J. Hansen faktor á Eyrarbakka 20 kr.).
Yfirlæknir Griinfeld í Kböfn 10 kr. Olgeir Frið-
geirsson á Fáskrúðsfirði 25 kr. Otto M. Hansen,
prestur í Veradal í Þrándheimi, 130 kr. (offrað i
kirkjum bans: í Stiklastaðakirkju kr. 46.62, og í
annexíukirkjum þaðan tveimur, m. m., kr. 83.38).
Oddgeir kaupm. Ottesen á Ytra-Hólmi 10 kr.
Ekkjufrú Chr. Duus í Khöfn 100 kr. Landsh.-
frú Elinborg Tborberg 20 kr. Gnttormnr prestur
Yigfússon: samskot úr Stöðvarfirði 72 kr. 91 e.
Kapt. L. Berg, r. dbr., hvalveiðamaður, p. t.
Kristiania (pr. Sig. M.) 500 kr. (áður 309 kr.).
Sýslumaður H. Hafstein: úr Suður-eyrarhr. (kr.
61,15) og Auðkúluhr. (69,55) 130 kr. 70 a. Ól.
Rósenkranz: tekjur af fyrirlestrartilraun Wilh. H.
Paulson’s 30 kr. G. Guðmundsson, hreppstj. á
Svinanesi: samskot úr Múlahreppi 25 kr. Hallgr.
Jónsson hreppstj. á Staðarfelli: samskot úr Fells-
strandarhreppi 156 kr. (sjálfur 20 kr.). Olafur
Eggertsson hreppstj. á Yalshamri: samskot úr
Geiradalskreppi 36 kr. Páll Einarsson sýslum.:
kr. 113,31 úr Barðastr.-hreppi, safnað af Guðm.
hreppstj. Jónssyni í Haga, og 40 kr. úr Suður-
fjarðabr., safnað af Guðm. breppstj. Einarssyni
á Fossi. Björn sýslum. Bjarnarson: samskot úr
Miðdalabr. 100 kr. Amtm. Páll Briem: samskot
úr Eyjafjarðarsýslu, Þingeyjarsýslu og Skaga-
fjarðarsýslu 340 kr. Próf. Zopb. Halldórsson:
samskot úr Yiðvikurprestakalli kr. 245,35. Jób.
sýslum. Ólafsson: gjafir af Sauðárkrók kr. 120.
Otto Tulinius, kaupmaður á Papósi: samskot úr
Lóni (enn fremur) 72,50. Sira Sveinn Guðmunds-
son á Rip: samskot úr bans sókn 43 kr. (þar af
Olafur dbrm. i Ási 20 kr.). Síra Lárus Halldórs-
son: samskot úr hans sveit 100 kr. Gísli Jónsson
bóksali í Hjarðarholti: samskot úr Laxárdalshreppi
200 kr. Samtals.................kr. 2,979.77
Aður meðtekið og auglýst ... — 11,101.97
Alls kr. 14,081.74
Reykjavík 18. desbr. 1896.
Björn Jónsson.