Ísafold


Ísafold - 17.02.1897, Qupperneq 2

Ísafold - 17.02.1897, Qupperneq 2
Höf. tekur það fram í niðurlagi greinar sinnar, að varlega sje bregðandi snögglega út af þeirri hvbjlagerð, er orðið hefir lenzka hjer á landi sakir efniviðarleysis og eldiviðar. — Við þessar rækilegu og í margan máta nyt- samlegu beDilingar hins mikilsvirta höf. skulu gerðar lítils háttar athugasemdir síðar. IV. Eptir Philip Srnidth húsgerðarfræðing. Ágrip. Þ.að er, svo sem fyrr er getið, fyrir góð- gjarnlega inilligöngu dr. Edv. Ehlers í Khöfn, hins þjóðkunna holdveikislæknis og oss mjög velviljaða — þrátt fyrir allt —, er sá mað- ur leggur til þessa rnáls nokkrar bendingar almenns efnis, sem hjer skulu tínd úr helztu at- riðin, er hjer viröast geta að liði orðið. Vegna gersamlegs ókunnugleika hjer treystir hann sjer, sem vonlegt er, ekki til að fara neitt ytarlega út í efnið. Það er, eins og hefir ver- ið margtekið fram áður, óhugsandi, að slíkir menn geti orðið oss að hálfu liði meo öðru móti en að þeir komi hingað sjálfir og kynni sjer það sem þeir þurfa til þess að geta leyst úr því, sem undir þá þarf að bera, en til þess eru þeir að öðru leyti raanna langfærastir. Það er með öðrum orðum frámunaleg bernska eða skynsemis-meinloka, að vilja hafna slíkri liðveizlu, —liðveizlu þeirramanna, er hana geta bezta í tje látið. Höf. þessi minnist fyrst á hússtæðið, hve á ríðandi sje að velja það vel: þar sem vatni hall- ar frá, en ekki að; þar sem ekki er áveðra, og ekki undan sól; ekki mjög nærri hárri brekku eða holti eða annari mishæð, þótt skjól sje gott, vegna þess að þar sje rakasamara en á bersvæði; ekki mjög nærri mýri eða öðru votlendi, þótt þurrt sje vel þar, sem húsið á að standa. Bezt að jarðvegur undir húsum sje sendinn eða malarkenndur, af því að þar sígur bezt frá; slíkur jarðvegur er eigi að síður traustur vel, sígur ekki saman. En megi til að byggja þar sem leir er undir, verði að varast að það sje í halla, vegna þess, að leirinn geti runnið sundur í mikilli vætu og húsið skrikað. Sje byggt neðarlega í halla, þar sem klöpp er undir, sje hætt við upp- göngu eða miklum raka upp úr jörðinni, með því að rigningarvatn sígi gegnum moldina ofar niður á klöppina og renni eptir henni. Mold undir húsi skuli jafnan grafa burtu; hún sje ekki annað en rotnaðar gróðrarleifar, og haldi rotnunin áfram undir húsinu, geti það bæði orðið þeim til heilsuspillis, sem í húsinu eru, og sveppur lagzt á viðinn. Skólpi og öðrum óhreinindum bezt að veita þannig burtu, að rennslið fari út í á eða læk, en var- ast að láta það geta síast saman við neyzlu- vatn. Skólprennur frá húsum eigi að hafa svo djúpt í jörðu, að frost nái ekki til þeirra, og láta þær hafa mikinn halla (1 : 50). Þá minnist höf. á grunna undir hús, lopt- smugur o. fl., og er það líkt og hjá F. A. Bald. Hlyastir timburveggir segir hann sjeu úr plægðum bjálkum lárjettum, og þiljur á inn- au. Ohollt sje að byggja úr mjög hörðu eða þjettu grjóti; bezt að það sje nokkuð gljúpt, en þó svo, að það sjúgi ekki í sig raka um of eða frostjetist. Sje haft járn utan á hús- um, til að verja raka eða leka, megi ekki leggja það alveg á súðina, — þá feyi það frá sjer vegna slagnings, — heldur hafa iista á milli. Asfaltpappi segir hann sje góður ut- au á hús, en vel plægt þurfi að vera þar undir, til þess að vindur komist ekki undir pappann og losi um hann. Sje pappi hafður á þau, segir hann að það megi ekki hallazt meira en 25° (þ. e. rúml. 1 /4 af rjettu horni). Þök sje bezt að standi nokkuð langt út af veggjunum. Ibúðarher- bergi ríði á að viti mót sólu, sjeu björt vel og megi opna þar glugga; geymsluklefar og þess- háttar undan sólu. Odýrara og betra að hafa hýbýlin undir einu þaki en að skipta þeim í mörg hús og smá. »Ölmususóttin íslenzka*. IJtafgrein- um þeim í Isafold í haust hofir mikið mesk- ur landi einn í Khöfn skrifað ritstjóra Isa- foldar: »Jeg er yður mjög þakklátur fyrir að þjer hafið fundið að sníkjunum í Danmörku og annarstaðar erlendis, sem er þjóðinni til minnk- unar. Með sníkjum öflum vjer oss aldrei virðingar góðra manna og komust ekkert á- fram á rjettri leið. Það er óliæfa að gera út menn til annara landa í þeim erindum, eða jafnvel að vjer sjálfir leitum erlendis samskota og gjafa til þess, sem vjer eigum að gera sjálfir. Það er slæmt þegar þetta er gert fyr- ir smáfyrirtæki, sem mönnum eru eigi ofvaxin og þeir eiga að gera sjálfir, t. d. smá sjúkrahús smákirkjur, en það er eigi betra, er menn snapa út um víða Evrópu til stórfyrirtækja, er forgöngumennirnir trúa eigi á og enginn núlifandi maður mun sjá á stofn sett. Ernst lyfsali hefði að líkindum eigi lagt í leiðang- ur sinn, ef hann hefði eigi haft skoðun all- margra þar eystra að bakhjarli. Hjer mælist illa fyrir för hans; Dönum þykir, eins og von er, nokkuð margt í einu að gefa til á Islandi; má heyra þess getið við ýms tækifæri, og það má nærri geta, hvort eigi er stundum gert )>grín« að því. Slíkir sendimenn, sem verða svona Islandi til háðungar, særa alla góða íslendinga hjer. Það eru hjer nokkrir landar, sem reyna að nota hvert tækifæri til þess að efla heiður Is- lands, og sýna það, að manndáð sje í Islend- ingum, en að þeir sjeu eigi svo framlcvæmd- arlausar rolur, eins og þeir eru sagðir. Þess- ir menn hafa íhugað það, hvort eigi væri rjett að láta grein ísafoldar um ferð hr. Ernsts koma út í dönskum blöðum, en þeir hafa eigi gert það í þetta sinn. [Því ekki? Er ekki nóg komið af ósómanum?]. En komi slíkir sendi- menn optar heiman frá íslandi aptur, þá mega þeir búast við slíkri viðtöku. Menn vilja eigi þola það, að Islandi sje gerð slík háðung, og það mun þá verða sýnt, að þar búa líka menn, er hugsa um sóma landsins og virð- ingu. Menn mega ekki rugla saman slíkri fjár- beiðslu við það, að útlendingar sjálfkrafa veita oss hjálp, er stórtjón af náttúrunnar völdum ber að höndum — slíkt er gert meðal mennt- aðra þjóða, — heldur eigi við það, er útlend- ingar taka upp hjá sjálfum sjer að safna til íslenzkra stofnana og endurbóta; þó væri okk- ur miklu sæmra að gera slíkt sjálfir, svo sem með holdsveikina. Það er óheppilegt, er út- lendingar á íslandi, svo sem sr. Frederiksen, safna gjöfum erlendis handa stofnun sinni. Útlendingar blanda því saman við ísland og íbúa þess; svo gerði »Politiken«, er sagði að Fr. safnaði handa íslendingum. Kitstjórnin var látin leiðrjetta það. Af Ernst lyfsala er margt að segja; hann er áfjáður; hefir heimsótt auðmenn, er eigi hafa viljað sinna honum; 2. gjafalisti frá hon- um í Berlingi 21. desbr.; þar taldar 768 kr.«. Uni íslenzka fóðurjurtafræði eptir Stefán Stefánsson. I. Alitr Fp.jlhergs d búnaðarfrœðslu vorri. /slenzk búfrœði ekki til. Föðurjurtafrœðin höfuðt/rein islenr.hra búvisinda. Isafold á mikið þakklæti skilið fyrir að hafa flutt lesendum sínum álit afbragðsmanns- ins P. Feilbergs á framfara-viðleitni vorri- Það má óhætt fullyrða, að ekki hafi aðrir heim- sótt oss, er betra skyn beri á landbúnað og allt sem að honum lýtur en Feilberg, því hann er maður vel lærður í búnaðarvísindum og framúrskarandi glöggsær og eptirtektasam- ur um allt, smátt og stórt, sem að einhverju leyti snertir landbúnað. Þegar hjer við bæt- ist, að hann hefir um mörg ár hat't mikinn á- huga á íslenzkum búnaðarframförum og hefir leitazt við eptir föngum að kjmna sjer hjer allar ástæður, þá hlýtur hann að skilja betur en nokkur annar útlendingur, hverjum skil- yrðum ísl. landbúnaður er háður, og skoðuir hans á búnaðarmálum vorum að hafa enn meira gildi. Það eru aðallega tvær mikilsverðar bending- ar, sem Feilberg gefur oss í búnaðarlegu til- liti. Hin fyrri er sú, að búnaðarskólar þeir, sem vjer höfum, eigi einkum að leggja á- herzlu á verklega menntun og kunnáttu. —- »Þeir eiga um fram allt«, sagði hann við mig, »að vera vinnuskólar,þar sem menn gætu lært nýjar og betri aðferðir við hin ýmsu búnað- arstörf, lærðu að nota hentugri verkfæri og hagnýta sem bezt afurðir búsins o. s. frv. Yfir höfuð ættu skólarnir að leitast við að gera menn að praktiskum bændum, óbreytt- um liðsmönnum í búnaði«. Samfara þessai'i verklegu kennslu ætlast hann auðvitað til að nemendur fái tilsögu í helztu undirstöðuatrið- um búvísindanna, sem mesta praktiska þýð- ingu hafa, en um vísindalega kennslu geti ekki verið að ræða á þessum smáskólum. Þessu líkt hefir Torfi í Olafsdals og ýmsii' hinir vitrari og praktiskari menn vor á með- al hugsað sjer að búnaðarskólarnir ættu að vera. En þeir hafa ekki komizt upp með það, því meiri hluti manna hefir álitið sjálf- sagt að búnaðarskólarnir væru um leið al- mennir menntaskólar, er veittu nemendum sínum fræðslu í landafræði, sögu, dönsku 0. s. frv. En þetta er, eins og hver maður sjer, allsendis óviðkomandi hinu eiginlega búfræðis- námi og því mjög óheppilegt að eyða til þess miklum hluta af hinum stutta námstíma, er eingöngu ætti að verja til búfræðslu. En hvernig er nú þeirri búfræðslu varið, sem búnaðaiskólar vorir geta veitt? Hún er og blýtur að vera útlend að mestu leyti. Islenzk búfræbi er enn ekki til. Allt sem kennt er hlýtur mestmegnis að vera byggt á útlendum rannsóknum og útlendri reynslu; því íslenzk búnaðarreynsla er cnn öll á reyki og í molum og meira og' minna ófullkomin; menn hafa ekki kunnað eða ekki haft tæki á að gjöra tilraunir, sem veittu áreiðanleg svöi' og óyggjandi sannanir. Auðvitað er sumt af því, sem kennt er, svo almennt og algilt, að það á alstaðar við, eins hjer eins og í öðr- um löndum; en þegar kemur til hins sjer- staka, til hins íslenzka, sem mest ríður á, þá verður það mestallt í lausu lopti, tómar lik- indagetgátur, sem nálgast stundum hið rjetta, en auðvitað eins opt og optar fara fjarri ölÞ um sanni, því hjer vantar alla undirstöðu,

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.