Ísafold - 06.03.1897, Page 3

Ísafold - 06.03.1897, Page 3
55 »Jeg veit satt að segja ekki, það liefir ein- hvern veginn orðið í útideyfum«. »Hvað segið þjer um sjósókn á opnum hát- um? Ætlizt þjer til að hætt sje við þá og eingdngu stundaðar þilskipaveiðar?« »Fjarri fer því. Jeg tel mestu fjarstæðu að hugsa sjer það eða halda því fram. Opn- ii' bátar eru alveg ómissandi fyrir því, hversu setn þilskipaútvegurinn eykst. Þeir eru kostn- aðar- og fyrirhafnarminnsta áhaldið til afla- bragða, þegar fiskur gengur grunnt, og geta veitt gamalmennum og unglingum ágæta at- vinnu«. Ums.jón og fjárliald dómUirkjunn- Hr. Nefnd sii, er kosin var á síðasta al- mennum safnaðarfundi hjer í bænum, 31. maí f. á., en það voru, auk dómkirkj uprests og sóknarnefndar (Ingj. Sigurðss., Arni Gíslas., Helgi Helgason kaupm., Guðm. Einarsson í Nesi og Jónas Jónsson tómthúsm.), þeir lektor Þórh. Bjarnarson (safn.-fulltrúi), bankastjóri Tr. Gunnarsson og yfirdómari Jón Jensson, til að íhuga og láta uppi álit sitt um, hverju svara skyldi nyrri nválaleitan frá landstjórn- arinnar hálfu um, að söfnuðurinn tæki að sjer umsjón og fjárhald Reykjavíkurdómkirkju, hefir á fundi 2. þ. m. komið sjer saman um, að leggja það til sem aðal-uppástungu, að Reykjavíkursókn taki að sjer umsjón og fjár- hald kirkjunnar með þeim skilmálum, að landssjóður greiði í safnaðarins hondur 40,000 kr. til að byggja nyja kirkju, og að auk 300 kr. árlegt tillag, en hafi til afnota og um- ráða hið gamla kirkjuhús, en ornamenta og instrumenta kirkjunnar verði safnaðarins eign, svo og líkhvvsið, og skuld kirkjunnar falli nið- ur; en sem vara-uppástungu, að söfnuður- inn taki við umsjón og fjárhaldi kirkjunhar með 25,000 króna ofanálagi frá eiganda kirkj- unnar, landssjóði, er auk þess greiði til kirkj- unnar 300 kr. árlegt tillag, og falli niður skuld kirkjunnar. Um þetta mál á nú að ræða og álykta á almennum safnaðarfundi 8. þ. mán. Um Skeiðarárhlaupið er ísafold skrifað úr Öræfum 18. f. m. »Skeiðará byrjaöi að hlaupa hinn 13. jan. síðastl. Fór fremur hægt að fyrst, en var að vaxa í 6 daga. Yar þá að sjá yfir sandinn og austur með öllum löndum fram af Öræfum eins og einn fjörður, sá hvergi á dökkan díl. Akaflega mikla jökulhrönn setti áin fram, frá jökli og út í sjó, svo hvergi er skarð í, nema ofurlítið upp við jökul, sem vatnsaflið hefir hrundið frá. Sumir jakarnir eru hjer um bil 30 ál. háir, og eptir því ummáls. Um það bil sem áin var fullvaxiu sprengdi hún fjarskastórt skarð framan af jöklinum; voru þá ákaflega miklir dynkir, líkt og skrugg- nr, en mjög þjettir, og var það mikilfengleg- hr aðgangur, þegar vatnið var að hrinda frá sjer þessum stóru jökum. Vegna hlaupsins tepptist pósturinn, sem átti að fai'a frá Kirkjubæjarkl. og a.ustur, í 8 daga. Hann verður að fara yfir jökulhrönnina fast U1>P við jökul, þar sem skarðið er í hana, því ovinnandi verk er að gjöra veg yfir hrönnina. Hún er eins og hafís. Skaptafellsbændur áttu talsvert af rekavið a fjörum sínum, sem allur gjörsópaðist í burtu«. Fjársala frá Noregi Einhvern tíma var þess getið hjor í blaðinu í vetur lauslega, að Norðmönnum hefði ekki lánazt vel tilraun, sem þeir gerðu í haust, að útvega sjer nyan markað fyrir útflutningsfje í Belgíu, til upp- bótar fyrir enska markaðinn, sem lokað er fyrir þeim, eius og oss. Nú er sagt nánara frá tilraun þessari í norskum blóðum, og það með, að engan veg- inn sje vonlaust um, að þctta geti blessazt eptirleiðis. Það var yfirkonsúll Norðmanua í Antwerpen, l’. Ottesen að nafni, er hafði eggjað þá á að reyna þetta. Hann hefir ritað sfðan stjórn- inni uorsku, að ekki hafi verið fullreynt, hvern- ig fjeð seldist, með því að koma varð því í hagagöngu af skipsfjöl, til að fita það, áður en takandi þótti í mál að bjóða það til slátr- unar. Auk þess hafi farmurinn, sem kom, verið ekki góður, fjeð mjög misjafnt, margt af því miklu rýrara heldur en hann hafði til- tekið og sagt að vera þyrfti, til þess fjeð væri útgengileg vara þar í landi. Það þyrfti að vera með 40—50 punda falli, en margt í þess- um farmi hcfði verið svo ryrt, að ekki mundi hafa lagt sig mcira en 24—28 pd. Segir kon- súlliun, að sauðir með 40—50 pd. falli, meðal- lagi feitir og þjettholda, mundu þar mikið útgengilegir, og seljast á 50—54 a. pundið (1.50—1.60 fr. kilogr.). Kosti sauður, sem leggur sig á 46 pd., 16 kr. í Noregi, muni fyrir hanu fást í hreinan ábata um 4'/2 fr. eða 3 kr. 20 a., að frádregnum öllum kostn- aði. Rýrt fje, magurt og smávaxið, seljist mjög illa, en kostnaður allur á því jafnmikill og vænu fje. Segir konsúllinn löndum sínum, Norðmönnum, ráð að taka sig í tíma og ala sauði sína hæfilega til útflutnings, hafa þá jafnvalda og með þeim holdum, að eklti þurfi að ala þá neitt, er þeir ltoma af skipsfjöl, heldur megi slátra þeim þá þegar. Er hann þeirrar skoðunar, að þá muni fjársala til Belgíu reynast Norðmönnum allvel ábatasöm. Sýning i Björgvin 1898. Það á að verða iðnaðar-, landyrkju- og listasýning fyrir Noreg, samfara almennum búnaðarfundi inn- lendum, hin 10. í röðinni, en auk þess al- heims-fiskisýning, og steudur allt sumarið, frá 16. maí til 30. septbr. Hvaöanæva Ráðvönd stjórn! Það er kunnugt, að yngsta stórveldinu, konungsríkinu Italíu, ligg- ur við gjaldþroti. En ekki er það allt með felldu. Ríkið hefir árum saman eða tugum ára haft þá stórþjófa við stjórnarvöld og em- bætti, að sumir segja að ríkið mundi skuld- lítið og álögur á þjóðinni ekki þyngri en hófi gegndi, ef þeir hefðu ekki verið. Ríkissjóður hefir verið látinn gjalda tvöfalt og þrefalt fyrir járnbrautarlagning, brúargerð og önnur meiri háttar alþjóðleg mannvirki heldur en þau hafa kostað, og mismunurinn runnið í vasa þeirra, er fyrir þeim hafa staðið. Algengt er að vísu, að kostnaður til þess konar fyrirtækja fer eitthvað fram vir áætlun og það til muna stundum; en á Ítalíu kvað mega kalla það fasta reglu, að þar skakki um helming eða meir, og höfðu menn lengi vitað vel, að það var eigi einleikið. Hið nýja ráðaneyti kon- ungs, þeir Rudini og hans fjelagar, hafa tek- ið sjer fyrir hendur, að ganga almennilega milli bols og höfuðs á þeim ósóma, og hefir margt ófagurt upp komizt, síðan þeir tóku við völdum. Járnbraut ein, milli Eboli og Potensa, sem átti að kosta 23 miljónir franka, hafði kostað 38 milj. Onnur braut, milli Parma og Spezia, átti að kosta 46 miljónir, en kostaði 119! Þá hafði verið áætlað og veitt til 12 járnbrautarstúfa með nýjustu gerð 255 milj., en látnar kosta 579 milj. Ráðgjafarnir og skrifstofulýður þeirra ljeku sjer að þvi að láta ríkissjóð borga fyrir sig lijer um bil hvað setn þá fýsti, jafnvel gimsteina þá, er þeir I gáfu fylgikonum sínum. Einu sinni fjekk einn ' ráðgjafinn sjer ávísaða 30,000 franka fyrir ný salerni; þau voru aldrei útveguð, heldur fór fjeð til hinna mörgu lagskvenna hans. Um kennslumálaráðherrann er sagt, að hann hafi varið fjárveitingu, sem ætluð var til ellistyrks fátækum kennaraekkjum, til leikhúss-dans- kvenna. Þá reiknaði verzlunarráðaneytið sjer 20,000 kr. á ári fyrir penna og 5000 fr. fyrir náíar! 1500 fr. fyrir gólfsól'la og 100,000 fr. einu siuni fyrir nýjar gólfábreiður í hýbýli sín og skrifstofur. Feitar nýar sauðarsiður eru til sölu í íshúsinu handa útgjörðarmönnum miklu ó- dýrara til skipanna en svínsflesk. Góö og- liæg jörð við Borgarfjörð er föl. Taða 200 hestar. Úthey 1—2 þús. hestar, allt nautgæft. Mótak dá- gott. Hestaganga á vetrum. Dálítil silungs- veiði. Laxveiðivon. Aðflutningar sjerlega hægir á sjó og landi. Semja má uni kaupin við Gísla Isleifsson, málfærslum. í lieykjavík. Samtíel Ólafsson, Vesturgötu 55 Reykjavík pantar nafnstimpla, af hvaða gjörð sem beðið er um. Skrifið mjer og látið 1 krónu fylgja hverri stimpilpöntun. Nafnstimplar eru nettustu Jólagjafir og sumargjafir. Til heimalitunar viljum vjer sjerstak- lega ráða mönnum til að nota vora pakkaliti, er hlotið hafa verðlaun, enda taka þeir öllum öðrum litum fram, bæði að gæðum og litar- fegurð. Sjerhver, sem notar vora liti, má ör- uggur treysta því, að vel muni gefast. — I stað hellulits viljum vjer ráða mönnum til að nota heldur vort svo nefnda »Castorsvart«, því þessi litnr er miklu fegurri og haldbetri en nokkur annar svartur litur. — Leiðarvísir á íslenzku fylgir hverjum pakka. — Litirnir fást hjá kaupmönnum alstaðar á Islandi. Buchs Forvefabrik, Studiestr. 32, Kbhavn Iv. Samkvæmt skiptalögum 12. apríl 1878 og opnu brjef; 4. janúar 1861. er hjer með skor- að á alla þá, sem telja til skuldar í dánarbúi Arna Eyþórssonar kaupmanns, sem andaðist hjer í bænum 2. þ. m., að lýsa kröfum sínum og sanna þær fyrir skiptaráðandanum í Reykja- vík áður 6 mánuðir eru liðnir frá síðustu birt- ingu þessarar innköllunar. Bæjarfógetinn í Reykjavík 25. febrúar 1897. Halldór Daníelsson. Með því að bú Finns kaupmanns Finnssonar hjer í bænum hefur í gær verið tekið til skipta- meðferðar sem þrotabú eptir kröfu skuld- heimtumanna hans, er hjer með samkvæmt skiptalögum 12. apríl 1878 og opnu brjefi 4. janúar 1861 skorað á alla þá, er telja til skuldar hjá nefndum kaupmanni, að lýsa krof- um sínum og sanna þær fyrir skiptaráðand- anum í Reykjavík áður en 6 mánuðir eru liðnir frá síðustu (3.) birtingu þessarar inn- köllunar. Bæjarfógetinn í Reykjavílc 19. febr. 1897. Halldór Daníelsson. Samkvæmt skiptalögum 12. apríl 1878 og opnu brjefi 4. janúar 1861 er hjer með skor- að á alla þá, er telja til skuldar í dánarbúi ekkjunnar Guðrúnar Gísladóttur (frá Elliða- vatni) sem andaðist hjer í bænum 31. f. m., aðlýsa kröfum sínum og sanna þær fyrir skipta- ráðandanum í Reykjavík áður en 6 mánuðir eru liðnir frá síðustu birtingu þessarar inn- köllunar. Með sama fyrirvara er skorað á erfingja hinnar látnu að gefa sig fram og sanna erfðarjett sinn. Bæjarfógetinn í Reykjavík 25. febrúar 1897. Halldór Daníelsson.

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.