Ísafold - 21.04.1897, Blaðsíða 4
100
víkunum; þaö er svo sem næg ástæða til þess
að Heimdallur fari ekki að rekast í að rann-
saka slíkar fleytur.
Hvar, hvenær og hvernig endar þetta botn-
verpingaböl okkar Faxaflóabúanna? Utlitið er
allt af að verða svartara og svartara; nú hafa
menn ofan á allt annað misst þá einu von, er
þeir lifðu við í vetur, sem sje: að »Heimdall-
ur« mundi eitthvað rjetta hlut þeirra. Botn-
verpingar voru búnir að fiska í landhelgi tæp-
an mánuð áður en varðengillinn!! kom; þeir
fiskuðu þar daginn sem hann kom, alveg óá-
reittir, og þeir fiskuðu þar dagana sem hann
lá í Reykjavík og spilaði »fyrir fólkið«. Af öllu
þessu að ráða sýndist ekki ástæðulaust, enda
mál til komið, að hann gerði ofboð-litla til-
raun í þá áttina að lægja ofsa yfirgangsmann-
anna; en fyrst nú varðskipið ekki fann ástæðu
til þess, heldur -skauzt burtu, synist mjög efa-
samt, að það nokkurn tíma þykist hafa ástæðu
til að hreyfa við nokkrum botnverping.
Dásamleg er hin danska vernd!
Keflavík 14. apríl 1897.
Jón Gunnarsson.
Frá útlöndum.
Ensk blöð, að eins vikugömul, frá 12. og
13. þ. m., hingað komin með botnverping,
herma frá innrás grískra »upphlaupsmanna«
úr Þessalíu inn yfir landamæri Tyrkja núna
um pálmahelgina og nokkrum smábardögum
þar við lið Tyrkjasoldáns, en hann haft á orði
að segja Grikkjastjórn stríð á hendur fyrir
það, þó að. herlið hennar hefði engan þátt átt
í þessu tiltæki, heldur haldi kyrru fyrir við
landamærin, undir forustu Kontantíns kon-
ungssonar. En Grikkjastjórn grunuð um, að
innrásin hafi gerð verið með hennar vitund, í
því skini að vekja uppreisn í Makedóníu gegn
soldáni og fá þar með sprett á kýlinu, sem
stórveldunum stendur svo mikill geigur af að
við sje snert. Segir »Times« nú hjer um bil
þrotna alla von um að ófriði verði afstýrt.
Að öðru leyti bera blöð þessi með sjer, að
hafnartcppa af stóiveldanna hálfu við Krít er
haldið áfram, en lið Grikkja enn kyrt á
eynni. William Harcourt, oddviti frelsissinna
í þingi Breta, valdi þessa daga (fyrir pásk-
ana) stjórninni mörg bituryrði fyrir afskipti
hennar af máli Krítarmanna; kvað hana styðja
þar rangan málstað og höggva þar er hlífa
skyldi.
Frá 14. maí er eitt herbergi til leigu í miðjum
bænum fyrir einbleypan mann. Ritstj. visar á.
Andrew Johnson, Knudtzon & Co.,
Hull (England),
Telegramadresse: )>Andrew,
Import, Export <(: Commissionsforretning,
anbefaler sig til Forhandling af Klipfisk og
alle andre islandske Produkter.
Prompte og reel Betjening, Afregning & Re-
misse strax efter Salget.
Grundet paa gode Forbindelser blandt de
störste spanske Klipfiskkjöbere, ser vi os al-
tid istand til at placere hele Lasten til for-
delagtige Priser.
Garanterer en vis Minimumspris.
Nærmere Oplysninger ved Henvendelse til
Firmaet.
Prima Referencer.
Týnt. Sá, sem fundið hefur silfurdósir,
merktar Þ. Þ., skili þeim í afgreiðslustofu þessa
blaðs gegn fundarlaunum.
Mosfellsbringur Í Mosfellssveit eru
lausar til ábúðar í næstu fardögum. Semja
má við undirritaða*.
Lágafelli 13. apríl 1897.
Olafur Stephensen.
Brandassurance Compagni
for Bygninger, Varer, Effeeter, Creaturer og
Höe &c., stiftet 1798 i Kjöbenhavn, modtag-
er Anmeldelser om Brandforsikring for Sysler-
ne Isafjord, Bardastrand, Dala, Snæfellsnes og
Hnappadal, samt meddeler Oplysninger om
Præmier &c. Islandske Huse (bæir) optages
ogsaa i Assurance.
N. Chr. Gram.
Samúel Olafsson,
Vesturgötu 55 Reykjavík
pantar nafnstimpla,
af hvaða gjörð sem beðið er um
Skriflð mjer og látið
1 krónu
fylgja hverri stimpilpöntun.
Nafnstimplar eru nettustu
Jólagjaflr og sumargjafir.
»SameiningÍn«, mánaðarrit til stuðnings
kirkju og kristindómi Islendinga, gefið út af
hinu ev.lút.krkjufjelagi í Vesturheimi og prent-
að í Winnipeg. Ritstjóri Jón Bjarnason. Verð
í Vesturheimi 1 doll. árg., á Islandi nærri
því helmingi lægra: 2 kr. Mjög vandað að
prentun og útgerð allri. Ellefti árg. byrjaði
í marz 1896. Fæst í bókaverzl. Sigurðar
Kristjánssonar í Reykjavík og hjá ýmsum bók-
sölum víðsvegar um land allt.
Hið bezta Chocolade er frá sjoko-
ladefabrikkunni »Sirius« í Khöfn. Það er hið
drýgsta og næringarmesta og inniheldur mest
Cacao af öllum sjokoladetegundum, sem hægt
er að fá.
Brúkuð frímerki
keypt háu verði, þannig:
3 a. gul kr. 2,75 16 a. rauð... kr. 15,00
5 - blá — 100,00 20 - lifrauð — 40,00
5 - græn — 3,00 20 -blá .... — 8,00
5 - kaffibrún— 4,50 20 - græn.. — 14,00
6 - grá — 5,00 40 .. — 80,00
10 - rauð -— 2,50 40 - lifrauð — 12,00
10- blá — 8,00 50- — 40,00
16 - kaffibrún— 14,00 100- — 75,00
Allt fyrir hundraðið af óskemmdum, þokka-
legum og stimpluðum frímerkjum. Ef þess
verður óskað, fást 2/3 hlutar borgunarinnar
með eptir-tilkalli. Annars verður borgun send
með næstu póstferð.
Olaf Grilstad,
Trondhjem, Norge.
Fineste Skandinavisk Export KaffeSurrogat
er hinn ágætasti og ódýrasti kaffibætir, sem
nú er í verzlaninni. Fæst hjá kaupmönnum á
Islandi. F. Hjorth & Co, Khöfn.
Kúlubyssur og haglabyssur
af nýjustu gerð útvega jeg, og hef nú, sem ætíð,
eitthvað af þeim fyrirliggjandi.
Sprengi-efni (púður) alls konar, i smærri
og stærri byssur, nýjustu uppfinningar, reyklaus
o. s. frv., útvega jeg einnig.
Kaupmönnum og þeim, er kaupa til muna,
get jeg útvegað alls konar púður, högl, vopn etc.,
með mjög góðu verði.
Kikira af öllum stærðum, frá 7 kr., útvega
jeg einnig. Slíkt áhald getur, auk þess sem það
er til skemmtunar, sparað mönnum margt ómaks-
sporið, einkanlega á sveitalieimilum.
SIGIVI. GUÐMUNDSSON.
Heimsins vönduðustu og ódýrustu
orgel og fortepíanó
fást með verksmiðjuverði beina leið frá Carnish
& Co., Washington, New Jersey, U. S. A.
Orgel úr lmottrje með 5 oktövum, tvöföldu
hljóði (122) fjöðrum, 10 hljóðbreytingum (re-
gistrum), oetavkúplum í dískant og bass, 2
hnjespöðum, með vönduðum orgelstíl og skóla
kostar í umbúðum c. 133 krónur. Orgel úr
hnottrje með 5 octövum, ferföldu (33/5) hljóði
(221 fjöður), 18 hljóðbreytingum osfrv. á c. 230
krónur. Orgel úr hnottrje með 6 ootövum,
ferföldu (3'/2) hljóði (257 fjöðrum) á c. 305
krónur. Oll fullkomnari orgel og fortepíanó
tiltölulega jafn-ódýr og öll með 25 ára ábyrgð.
Flutningskostnaður á orgelum frá Ameríku
til Kaupmannahafnar c. 30 krónur. Allir
kaupendur eiga að snúa sjer til mín, og hjá
mjer geta þeir fengið verðlista með myndum
og allar nauðsynlegar upplýsingar.
Einkafulltrúi fjelagsins hjer á landi
I»orsteinn Arnljótsson,
Sauðanesi.
Agætt gulrófufræ er til sölu á Skólavörðu-
stíg 8. Sigríður Asmundsdóttir.
»LEIÐARVÍSIR TIL LÍFSÁBYRGÐAR fæst
ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr. med. J. Jónas-
sen, sem einnig gefur þeim, sem vilja tryggja
líf sitt, allar nauðsynlegar upplýsingar.
íslenzk umboðsverzlun.
Undirskrifaður selur íslenzkar verzlunar
vörur á marköðum erlendis og kaupir alls
konar útlendar vörur fyrir kaupmenn og sendir
á þá staði, sem gufuskipin koma. Söluum-
boð fyrir ensk, þýzk, sænsk og dönsk verzl-
unarhús og verksmiðjur. Glöggir reikningar,
lítil ómakslaun.
Jakob Giinnlögsson,
Cort Adelersgade 4,
Kjöbenhavn K.
The Etlinbnrg-h Roperie &
Sailcloth Company
Limited, stofnað 1750.
Verksmiðjur í Leith og Glasgotv. Búa til
færi, strengi, kaðla og segldúka. Vör ur verk
smiðjanna fást hjá kanpmönnnm um land allt. —
Umboðsmenn fyrir Island og Færeyjar:
F. H.jorth & Co., Kaupm.höfn K.
Meyer & Schou
hafa hinar mestu og ódýrustu birgðir af
alls konar
bókbandsverkefni,
öll áhöld til bókbands, nýjustu vjelar, og stýl
af öllum tegundum.
Viingaardstræde 15. Kjöbenhavn K.
Útgef. og ábyrgðarm.: K.jörn Jónsson.
ísafoldarprentsmiðja.