Ísafold - 01.05.1897, Blaðsíða 1
Kemur út ýmist eiuu sinnieða
tvisv.í viku. Verð árg.(90arka
minnst) 4kr.,erlendis 5 kr.eða
lVadolí.; borgistfyrir miðjan
júlí (erlendis f'yrir fram).
ÍSAFOLD
Uppsögn (skvideg) bundm við
áramót, ógild nema komin sje
til útgef'anda fyrir 1. október.
Af'greiðslustota blaðsins er í
Auvturstrœti 8.
XXIV árg.
Reykjavik, laugardaginn 1. maí 1897.
28. blað.
kemur nú ísafold út sumarlangt í
minnsta lagi, miðvikudaga og laugar-
daga.
Af ófriðinum.
Til laugardagskvelds að var, 24. f. mán.,
vita menn nú hjer hvað gerzt hafði með þeim
Tyrkjum og Grikkjum.
Fyrsta orustan hófst laugardagsmorguninn
fyrir páska, í Mílúnaskarði, skammt vestur af
Ólympos-fjalli og suður, og stóð í 3 daga
samfleytt hjer um bil, laugardaginn og páska-
dagana báða. Veitti ymsum betur, en Griklsj-
um miður að lokum. Óglöggar eru sögur
um það, hve liðmargir þeir hafi verið í or-
ustu þessari hvorir um sig, en talið víst, að
þar hafi barizt framt að 100,000 manna sam-
tals. Mannfall hafði orðið allmikið í skarð-
inu af hvorumtveggju; barizt af mikilli heipt.
— Þeir þræta um það, Grikkir og Tyrkir,
hvorir upptökin höfðu; bera hvorirtveggju af
sjer. Og aldrei sögðu þeir sundur friði með
sjer, Tyrkjasoldán og Grikkjakonungur, svo
sem siður er til ella, nema hvað soldán varð
fyrri til að kveðja heim sendiherra sinn í
Aþenuborg, á laugardagskveldið, heldur en
hinn sinn í Miklagarði, — á páskadagsmorgun.
Þriðjudaginn, 3. í páskum, runnu Tyrkir
niður á jafnsljettu fyrir sunnan fjöllin, í Þessa-
líu, og unnu þar um miðjan dag borgina
Tyrnavo (eða Turnavos), að þeir segja, á
norðurbakka árinnar Zeragi, er rennur norð-
an í Salambríu (Peneios). Þóttust þeir þá
eiga greiða för suður til Larissu, er liggur
eigi meira en 2 mílum dönskum sunnar en
Tyrnavo, að suðurbakka Salambríu; en svo
leið vikan öll, að ekki voru þeir þangað komnir
og ekkert orðið frekara ágengt að heyra er
en þetta á þriðjudaginn. Grikkir höfðu bar-
izt við þá á tveim stöðum öðrum norður í
fjöllunum, og haft þar betur, og sömuleiðis
staðið í þeim allvel nærri Tyrnavo, bæði fyr-
ir norðan bæinn og vestan, þótt sjálf kæmist
borgin á vald Tyrkja. Eru sumir frjettarit-
arar enskra blaða þar á vjettvangi fulltrúa
um, áð Grikkjum muni sigurs auðið að lokum.
Það gerðist á föstudaginn (23.), að soldán
tók herstjórnarvöld af Edhem jarli og setti í
hans stað yfir herinn í Þessalíu Osman hers-
höfðingja, kappann, sem varðist í Plevna 1877
af hinni mestu hreysti, en síðan lengst af
verið hallarvörður soldáns og engin hervöld
haft, og gerist nú gamlaður nokkuð, hátt á
sjötugs aldri. Er svo sagt, að soldáni hafi
gengið afbrýði til og tortryggni, sem títt er
um lítilmenni við dugandi menn, enda hafi
hann af sömu ástæðu skipað nýtustu hers-
höfðingjum sínum sem firrst sjer og svo að
sem minnst beri á þeim.
Osman var ekki kominn suður til hersins á
laugardaginn.
Ein frjettin segir, að nokkrar sveitir í liði
Tyrkja í Þessalíu hafi gert samblástur í móti
yfirhershöfðingjanum, og tekið til rána og
gripdeilda, en borið fyrir sig matvælaskort
og að þeir væru sviknir um mála.
Vestur í Epírus var enn framar sókn en
vörn af Grikkja hendi. Þar höfðu Tyrkir
tekið upp það niðingsbragð einu sinni, að þeir
drógu að sjer fjölda kristinna kvenna, er þeir
fengu hönd á fest, og ráku fyrir sjer sem bú-
fje í móti Grikkjum og skutu á þá að baki
konunum sem í skjaldborg væri, í því trausti
að Grikkir mundu vilja þyrma þeim, sem og
raun varð á.
Grikkir höfðu haldið 2 bryndrekum inn í
Salonikí-flóa og skutu þar á virki Tyrkja.
Spá flestir því, að þeim muni betur veita á
sjó.
Grunur Ijek á því, að Búlgarar mundvi
hefjast handa gegn Tyrkjum og jafnvel Serb-
ar og Svartfellingar. Var það almannarómur,
að tækist Grikkjum að halda í við Tyrki nokkr-
ar vikur, mundu bæði nýnefnd lýðskylduríki
og ýms fylki í ríki soldáns rísa upp í móti
honum, svo að honum riði að fullu, nema
stórveldin skerist þá í leikinn.
Það er haft fyrir satt, að fjöldi þýzkra fyr-
irliða hafi barizt með Tyrkjum í Mílúna-
skarði og stýrt þeim bardaga fyrir þá að
miklu leyti.
Banatilræði var Umberto Ítalíukonungi
veitt sumardaginn fyrsta, 22. f. mán.; rjeðst
maður að honum, þar sem hann ók i vagni
eptir stræti einu í Róm og ætlaði að leggja
hann með rýting, en konungur stökk upp úr
sæti sínu í vagninum með svo snöggu við-
bragði, að morðinginn missti hans.
Póstskipið Lanra (Christiansen) kom liing-
að i fyrrakveld frá Khöfn, Skotlandi og Færeyj-
um (Þórshöfn) með fullfermi af vörum og allmarga
farþega, frá Ameriku fyrv. ritstj. Jón Olafsson
(ekki alkominn), frá Skotlandi kaupm. Björn Kristj-
ánsson, frá Khöfn hingað timhurmeistara F. A.
Bald ásamt syni hans og 1 verkamanni dönskum,
Sigurð Sigurðsson járnsm., fröken Sigr. Þ. john-
sen og frk. I. Frederiksen, en til Vestfjarða kaup-
mennina Sig. E. Sæmundsen, Arna Riis, Markús
Snæbjörnsson, N. Chr. Gram konsúl og Lárus A.
Snorrason.
Vestmannaeyjum 24. april. í janúar var
mestur hiti þann 14. 8°, minnstur aðfaranótt þess
25. -r- 14,6°. í febrúar var mestur hiti þann 15.
9°, minnstur aðfaranótt þess 21. ■— 10°. I marz
var mestur hiti þann 24. 8°, minnstur aðfaranótt
þess 30. -f- 5.8°. í janúar var vvrkoman 120 millí-
metrar, í fehrúar 148, í marz 75. Yfir höfuð hef-
ir veturinn verið mildur með tiðum sunnanáttum
og rigningum, en mjög lítilli snjókomu; storma-
samt í meira lagi og nokkuð hrakviðrasamt.
Á vertíðinni hafa gæftir verið mjög stopular
sakir stormanna, stundum varla á sjó komið í hálf-
an mánuð samfleytt. Enginn fiskur að ráði gekk
hjer í djúpið fyrri hluta vertiðar, en eptir 20.
marz gekk mikill fiskur undir Sand, en þangað
gaf að eins i 5 daga. Um byrjun aprílmánaðar
kom mikill fiskur í Fjallasjóinn, og var þá mok-
fiski bjá Frökkum, einn t. d., sem jeg hafði tal
af, fjekk 17,000 á rúmum 3 vikum, en hjer gaf
aldrei frá 4.—16. april, að báðum þeim dögum
meðtöldum. Siðan hafa vei'tíðarskip haft lóðir,
og hefir allvel aflazt á þær hjá flestum. Hæstur
hlutur er hjer nú 390 af þorski ug löngu, auk ýsu
skötu o. fl., meðalhlutur um 220.
Kaupskip kom hingað 20. marz með alls kon-
ar vörur, liggur síðan aðgerðalaust.
Heilbrigðisástand gott; kíghóstinn á förum, hef-
ir orðið einu barni að bana.
Dæmt meiðyrðamál- Síðara meið-
yrðamálið og skaðabóta — tveim málumsteypt
saman •— Þorvaldar lögregluþjóns Björnsson-
ar móti ábyrgðarmauni »Fj.-konunnar« var
dæmt fyrir bæjarþingsrjetti í fyrra dag, af
landritara Jóni Magnússyni sem settum dóm-
ara í því, með þeim úrslitum, að ábyrgðar-
maðurinn var dœmdur í 40 kr. sefeí(til vara 15
daga einfalt fangelsi) og til 30 kr. málskostnað-
arútláta, en átalin ummæli dæmd dauð og 6-
me.rk. Skaðabótakrafa cigi tií greina tekin,
með því að enginn skaði væri saunaður.
Meiri þilskipakaup- Enn hafa veriS
keypt 2 þilskip í Hull liingaS til fiskiveiSa
og eru væntanleg þá og þegar, annaS af Birni
kaupmanni Kristjánssyni handa Filippusi bónda
á Gufunesi og nokkrum útvegsbændum hjer í
bænum, »City of Manchester«, 79 smál., bezta
skip aS sögn, en hitt hefir kaupm. Th. Thor-
steinsson eignazt, »Shakespeare«, 85 smál.,
Ijómandi fallegt skip og vandað. ÞaS er 2.
skipið, sem hann eignast þetta ár.
Aflabrögð- Þessa viku, frá því þriðju-
dag — miðvikudag, hefir verið töluverður afli
hjer á inn-nesjum, af vestangöngu, vænum
þorski og stútung, en fariS þó mikið að draga
úr því aptur; mjög dauft hjer í gær. Svo
var mikill aflahugur í Akurnesingum, þegar
Vesta kom þar, á miðvikudagskveldið, aS þar
fekkst ekkert fólk til uppskipunar, og varð
að senda eptir verkaliði hingað í því skyni.
Þilskipa-afli góSur enn, það menn til vita,
og hjer kominn mikill fiskur á land úr þeim
frá því þau fóru fyrst út, og hann mikiS
vænn yfirleitt. T. d. voru 2 skip Th. Thor-
steinssons búin aS fá á páskum samtals 24,000
(7—8 skpd. úr hverjum 1000 fiskum, —væn-
leikinn það), og hákarlaskip hans, »Matthild-
ur«, fengið, ér hún kom síðast, samtals 176
tunnur.
Drukknun Bátur fórst í fiskiróðri af
Akranesi miðvikudaginn 28. f. m., með 3 mönn-
um, er drukknuðu allir: formaðurinn, Guð-
mundur bóndi Guðmundsson í Lambhúsum á
Skipaskaga, atorkumaöur mikill og nefndar-
maður, allvel efnaður, 54 ára að aldri; Olafur
Pálsson, húsmaður á Skaganum, dó frá konu
og 2 börnum ungum; og Teitur Björnsson,
bóndi í Leirárgörðum, ungur maðnv og efni-
legur búhöldur. Veður var hvasst, en djarft
hlaSið, ef til vill, því afli var mikill á Skag-
anum þann dag, nýbyrjaður.
Tvisvar í viku