Ísafold - 26.05.1897, Síða 2

Ísafold - 26.05.1897, Síða 2
138 gmndvelli<K, eða jafnvel að eins í »líka stefnu eins og að undanförnu« (Isafjarðars.), Þetta sýnir, að hið eina, sem hægt er að fá út úr yfirl/singum kjósenda á þingmálafund- um víðs vegar um land, er sk/laus meirihluta- vilji fyrir því (13 kjördæmi gegn 8) að halda ekki fram endurskoðuninni óbreyttri frá síðustu þing- um. Það var þó vandaminnst að segja það, ef sá hefði verið vilji manna. En af því að svo var eigi, orðuðu þeir það (í 7 kjördæmum) hins vegar: »í sömu stefnuo, »á sama grund- velli«, »í líka stefnu«. En 6 kjördæmi voru jafnvel mótfallin hinni sömu eða líkri stefnu, hvað þá heldur hitt. Af þessu sjest, hver fjarstæða það er, að tillögumenn hafi á þingi í fyrra greitt atkv. þvert ofan í yfirl/stan, almennan þjóðarvilja. Enn fjær rjettu verður það þó, er þess er gætt, að kjósendur höfðu aldrei átt kost á að lysa yfir skoðun sinni á þessari aðferð, sem tillögumenn komu fram með á þinginu. Hefði svo verið, er eigi einungis mjög líklegt, að fyr- nefnd kjördæmi, sem ekki vildu láta halda endurskoðuninni fram óbreyttri, hefði aðhyllzt hana, heldur getur vel verið, að sum hinna kjördæmanna (8) hefðu gert það líka; það er ekkert hægt um það að segja með vissu af eða á, vegna þess, að málið lá eigi fyrir í því formi. Með tillögunni, eins og hún var sam- þykkt af þinginu, var málinu einmitt haldið fram á sama grundvelli og áður, haldið fast við undirstöðuatriðin í sjálfstjórnarkröfunum frá undanförnum þingum; að eins valin n/ að- ferö til að reyna að fá þeim framgengt, vegna þess, að hin aðferðin var ekki einungis s/nilega árangurslaus, heldur heinlínis óframkvæman- leg í það sinn, — frumvarpið átti víst að falla í efri deild. VI. Kátleg í meira lagi er firra höfundarins um lögleysuþingsályktunarinnar(tillögunnar) vegna þess, að þar er skorað á stjórnina að gera það og það, í stað þess að snúa sjer til konungs. Eins og að hver meðalgreindur og læs kjósandi, hvað þá heldur þingmenn, viti eigi það, að orðið »stjórn« þ/ðir sama sem »konungur og ráðaneyti hans«, af þeirri einföldu ástæðu, að löglegar ályktanir og athafnir viðvíkjandi stjórn landsins geta alls eigi til orðið öðru vísi en að þeir tveir liðir vinni saman eða sjeu sammála, uema svo sje, að ráðaneytinu (ráðgjafanum) eða öðrum valdsmönnum hafi á löglegan hátt ver- ið sjerstaklega á hendur falin forstaða einhverra (minni háttar) landsstjórnarmála. Konungur getur einn út af fyrir sig ekkert landstjórnar- handarvik gert, svo að gilt sje og löglegt. Hann gat það, meðan hann var einvaldur, en úr því ekki. Þar sem stjórnarskráin (o. fl. lög) talar um víða, að hann geri það og það, hafi vald til að gera það og það, þá er, eins og allir vita, átt við, að hann og löglegt ráðaneyti hans, hvort heldur er einn maður eða fleiri, geri það; annars er það alveg ógilt. Því er það, að hvort heldur sagt er »konungur« eða »stjórn«, þegar svo á stendur, þá kemur það í sama stað niður; orðavalinu er hagað eptir því, hvort betur þykir við eiga í því og því sambandi. Raus höf. um, að tillögumenn og þingið að þeirra hvötum hafi látið sjer verða á mikil ó- hæfa með því að beina máli sínu til »stjórnar- innar«, en ganga fram hjá »konunginum«, er því eintómur hjegómi og reykur. Það ætti því að eins við, að kouungur hjeldi enn einveldi því, er hann afsalaði sjer fyrir nær ’/2 öld. Það mun þó ekki vera skoðun höf., að svo sje? Að Danakonungur sje enn einvaldshöfðingi yfir Is- landi, þótt ekki hafi hann verið það í Dan- mörku í 49 ár undanfarin? Að alþingi hafi að eins ráðgjafaratkvæði, eins og fyrrum, o. s. frv.? pá ættu orð hans og ummæli auðvitað vel við. En mundi hann ekki kalla það »afsal og upp- gjöf á lögleiddum sjálfstjórnarrjettindum Is- lands« hjá öðruml Landskjálftamálið. Þeir komu að austan aptur núna á sunnu- daginn, skoðunarmenn landskjálftasamskota- nefndarinnar, þeir Þórður amtsráðsmaður Guð- mundsson á HálsiogJón Sveinsson trjesmiður. Þeir fóru um alla hreppa Rangárvallasyslu og flestalla í hinni s/slunni (Árness.). Ymsa galla fundu þeir á undangengnu skaðamati sumstaðar eða komtxst að ólíkri niðixrstöðu; en sumstaðar óaðfinnanlegt. Mun ferð þeirra að öll- xxm líkindum bera mikilsverðan árangur, bæði hvað skiptin snertir —• sem fram eiga nú að fara í næstu viku — og eins vegna örvandi áhrifa til góðra og verulegra húsabóta. Leizt mönnxxm mjög vel á timburhúsa-uppdrætti þá, er Jón Sveinsson hafði meðferðis, eptir sjálfan sig, og áður hefir getið verið hjer í blaðinu; og er nú áformað að láta birta þá á prenti, ásamt tilheyrandi áætlunum og leiðbeiningum, samkvæmt áskorun manna á landskjálftasvæð- inu, enda getur naumast hjá því farið, að þeir komi fleirum að góðu haldi. í yfirlitssk/rslu sinni um ferðitta segja skoðunarmennirnir svo meðal annars: »Fyrst er að taka það fram, að stai'f okkar var að /msu leyti mjög erfitt, þar sem tím- inn var naumur til að fara um svo stórt svæði; gátum við því ekki komið nema á nokkra bæi í hverjum hreppi; af því leiddi það, að ástæð- ur þeirra, sem fyrir tjóninu urðu, gátum við að litlu kynnt okkur, en eptir því sem okkur kom það fyrir sjónir, ætlum við yfirleitt vel- megun góða í flestum hreppum s/slna þessara, þótt rnismunandi sje í ymsum hreppum. — Höfum við við flesta hreppa tekið sjerstaklega fram álit okkar þessu viðvíkjandi, en okkur þykir hjer við eiga að taka það fram, að nokkrir helztxx monn báru sig mjög vel yfir skaðanum, og ymsir tóku það fram — eink- um í Rangárvallas/slu —, að álit þeirra væri, að þótt engar bætur hefðu komið, mundi allt hafa bjargazt, en auðvitað með miklum erfið- leikum, og væru jafnt fyrir þetta þakklátir öllum hinxxm veglyndu gefendum, ásamt hinni heiðruðu samskotanefnd — gefendunum fyrir bróðurlega hluttekningu, og nefndinni fyrir áhugamikinn, en vandasaman og erfiðan starfa —, og töldu það siðferðislega skyldu þiggjend- anna ekki að eins að vera þakklátir í orði, heldur einnig í verki á þann hátt, að láta gjafírnar verða að sem varanlegustu gagni, t. d. með verulegum húsabótum eptir því, sem hver gæti framast. Um tjónið í heild sinni er það að segja, eptir því sem það kom okk- xxr fyrir sjónir, að það hefir að vísu verið stórkostlegt; er þó auðvitað mál, að allt ann- að er að sjá það nú, eptir að svo langur tími er frá liðinn, heldur en fyrst eptir hrunið, og sízt mun ofsögum sagt af því, hvíllkar hörm- ungar fólk á aðal-svæði landskjálftanna hefir liðið, meðan á því stóð og fyrst á eptir; en það dylst ekki, að slæmt byggingarlag hefir að nokkru leyti átt þátt í hruninu, t. d. eru flest fjenaðarhús byggð með sperrum, settum á veggina, og xitan á þeim all-optast þung hella; bæjarhús, svo sem eldhús, búr, bæjar- dyr og skemmur eru optast grindalaus — engir stafir —. Baðstofurnar erxx byggðar optast með grind, það er að segja með stöfum, en fótstykkjalaxisar, stafir settir á steina, og optast þessi þxxnga hella xxtan á öllum viðun- um. Er ekki að furða, þótt hús með þessu byggingarlagi ekki stæðist landskjálftana, svo stórkostlegir sem þeir hafa verið; því reynsla er fyrir, að þaxx endast nxjög illa, þótt ekkert óvanalegt komi fyrir. Svo sem að framan er sagt, gátum við ekki komið nema á einstöku bæi í hverjum lireppi; völdum við þá að nokkru leyt.i eptir því, senx leið okkar lá beinast, og að nokkrxx leyti eptir bendingum hreppstjóra eða annara matsmanna, en gjarnast vildum við velja einhverja þá bæi, sem hæst mat var á og lægst, og svo meðal- upphæðir, og optast gátum við komið þessu við. Á þeim bæjum, sem við skoðuðuxn, mát- um við svo nákvæmlega, sem við gáturn, spjöll á hverju einstöku húsi, görðum eða öðrum mannvirkjum, eptir þeim mælikvarða, sem við upphaflega sköpuðum okkur, en hann var sá, hvað kostaði í okkar byggðarlagi aö byggja slík hús, t. d. yfir hverja kind, kxi eða hest, og bæjarhús eptir stærð og byggitigarlagi; drógum síðan frá þeirri upphæð fyrir fyrn- ingar á húsum, eptir því sem við gátum næst komizt um ásigkomulag þeirra fyrir hrunið; en auðvitað urðum við þar stundum að fara eptir sögn húsbændanna eða annara, þá er búið var að breyta húsunum eða byggja þau xtpp að öllu leyti; en mjög mörg hús hanga uppi og það á aðal-landskjálftasvæðinu, —sem talið er, — og eru stórar sltemmdir á. Eptir þessari reglu mátum við skemmdir jafnt í öllum hreppum, án tillits til örðugleika við aðflutninga, sem kunnugt er að eru mjög mis- munandi í /msum hreppum á skaðasvæðinu. Þó við hefðum skaðamatssk/rslurnar með- ferðis, var regla okkar að taka þær ekki fram í hverjum einstökxxm hreppi fyr en við vær- um búnir að öllu leyti með okkar mat, til að varast, að mat matsmanna hefði áhrif á okkar mat.-------—. Hvernig sem þessi starfi okkar hefir tekizt og að hve miklu leyti sem hin heiðraða sam- skotanefnd álítur vert að taka þetta álit okk- ar og hin einstöku möt til greina, þá höfum við þá meðvitund, að hafa vandað verk okkar eptir því, sem okkur var unnt, og enga freist- ingu höfðu við til neinnar hlutdrægni, vorum öllum mönnum hjer áður jafnt ókunnugir, en rnættum nú jafnt alstaðar sömu velvild og rausnarlegum viðtökum eptir ástæðunx hvers eins«. — — Kláðalækningar i K,jósarlireppi. Vissulega hefir rnargau rekið í »rogastanz«, er hanu i Isafold sá, að kláði var á 12 bæjum í Kjósarhreppi nú í april, — þó naumast komið öll kurl til grafar — eptir allt, sem skrafað og skrif- að hefir verið hjeðan um kláðalækningar og bað- anir. Jeg vil nú skýra frá, hvernig kláðalækn- ingarnar hafa gengið, ef verða mætti, að það kynni einhverjum að verða til leiðbeiningar seinna meir við lækningar. Veturinn 1892—93 fóru hjer í hreppi fram, að tilhlutun yfirvaldanna, skoðanir eptir nýár á þeim hæjum, er kláði fannst á. Voru, auk hreppstjór- ans, skipaðir 5 baðstjórar. I apríl fannst þá kláði á stöku hæjum, en þó mun ekki hafa verið baðað á kláðabæjunum, sízt alstaðar, heldur horið í veiku kindurnar, og sumstaðar ekki sem tryggi- legast. Eins og gengur, fundu menn ýmislegt að þess- um kláðaráðstöfunum, t. d. að tveir baðstjórar voru látnir baða á sumum fólksfáum bæjum upp á borgun frá almenningi í hreppnum, og að bað- stjórarnir fengu fyrir skoðanir og baðanir meira

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.