Ísafold - 03.07.1897, Side 1
Kemurút ýmisteinu sinnieða
tyisv.i viku. Verð árg.(90arka
minnst) 4kr., erlendis 6 kr.eða
14/sdoll.; borgist fyrir mið.jan
júlí (erlendis tyrir fram).
ISAFOLD
o
Uppsögn (skritieg)bundin við
áramót, ógild nema komin sje
til útgefanda fyrir 1. október.
Afgreiðslustota biaðsins er í
Auxturstrœti 8.
XXIV árg.
Reykjavík, laugardaginn 3- júlí 1897
46. blað.
BT Tvisvar í viku kemur ísafoid
út, miðvikudaga og laugardaga.
Stjórnarskrármálið
í höndum stjórnarinnar.
Saga stjórnarskrármálsins liggur nú fyrir í
Stjórnartíðindunum, opin og öndverð síðan í
hitt ið fyrra, að þingið afgreiddi það mál,
og skal hjer getið aðalatriðanna. Fyrst er þá
að skýra frá
tillögum landshöfðingja.
I brjefi sínu til stjórnarinnar minnist lands-
höfðingi á það, er áður hefir gerzt í málinu,
stjórnarskrárfrumvörpin, sem þirtgið hefir haft
til meðferðar síðan 1881 og afsvör stjórnar-
innar, og gerir því næst þessa grein fyrir því,
að hætt var við frumvarpsleiðina og tillögu-
úrræðið tekið á siðasta þingi:
»Með því að það berlega er gert íslending-
um kunnugt í allrahæstum auglysingum til
þeirra frá 2. nóvbr. 1885 og 15. desbr. 1893,
að slík skipun á æðstu stjórn landsins (sem
fram á er farið í frumvörpum þingsins) sje
ósamræmileg stjórnarskipun ríkisins, og að
eigi geti orðið vænzt allrahæstrar staðfesting-
ar á lagafrumvarpi, sem hefir í för með sjer
slíka breyting á stjórnarskipun ríkisins, þá
hefir meiri hluti alþingismanna komizt að
þeirri niðurstöðu, að það sje árangurslaust að
fara J)ví fram, að ræða á hverju reglulegu al-
þingi stjórnarskrárfrumvarp, sem engin von er
til að verði staðfest, og gera það að verkum
með þvi að samþykkja slíkt frumvarp, að
leysa verði upp alþingi og halda aukaþing, er
að engum notum kemur. Auk þess telja
margir hinna hyggnustu alþingismanna allt of
flókna og dýra, og í mörgum atriðum óhent-
uga skipun þá á hinni æðstu stjórn landsins,
er stjórnarskipunarlagafrumvörpin hingað til
hafa haft inni að halda. Um leið og alþingi
þó heldur fast við hinar gömlu kröfur sínar
um breyting á stjórnarskipuninni, einkum að
því er snertir skipun á hinni æðstu stjórn
landsins, þá hefir það í þetta skipti valið
aðra aðferð, er það telur líklegri til eflingar
málinu, nefnil. að snúa sjer til stjórnarinnar
og fara þess á leit við hana, að hún hefj-
ist handa til þess að koma fram endurskoðun
á stjórnarskránni, er gangi í þá átt, er hin
stjórnarskipunarlaga frumvörpin hafa til bent,
og hefir alþingi sjerstaklega tekið fram þau
atriði, er því þykir mest um vert, og eru
Jiau þessi:
1. að eigi verði borin upp í ríkisráðinu eða
lögð undir atkvæði Jæss lög eða stjórnarat-
hafnir, er snerta hin sjerstöku málefni Islands.
2. að innlendur maður, er búsettur sje á ís-
landi og mæti á alþingi, beri eigi einungis
ábyrgð gagnvart alþiugi á því að stjórnarskrá-
in sje haldin, heldur og á sjerhverri þeirri
stjórnarathöfn, er snertir hin sjerstöku mál-
efni landsins; og
3. að hjer á landi verði skipaður dómur
innlendra manna (landsdómur), til þess að
dæma mál þau, er konungur eða neðri deild
alþingis lcann að höfða gegn þeim manni, er
hefði á hendi hina æðstu stjórn innlendra
mála, út af embættisfærslu hans«.
Fyrsta liðnum hefir landshöfðingi gefið af-
dráttarlaust meðmæli sín, kveðst enn verða að
halda fast við þá skoðun, sem hann hafi fram
haldið í brjefi til stjórnarinnar 28. jan. 1892,
að eigi einungis það ákvæði 1. gr. stjórnar-
skárinnar, að ísland skuli hafa löggjöf og
landsstjórn út af fyrir sig í öllum þeim tnál-
efnum, sem eru sjerstakleg fyrir ísland,
»heldur og ákvæði 2. gr. sömu laga um að
konungur láti ráðgjafann fyrir Island fram-
kvæma vald sitt í öllum sjerstaklegum mál-
efnum Islands, og enn ákvæði 3. gr. um að
ráðgjafinn (fyrir ísland) beri ábyrgð á því að
stjórnarskránni sje fylgt, virðist helzt gera
ráð fyrir J)ví að konungur skeri úr öllum sjer-
staklegum löggjafarmálefnum íslands og stjórn-
armálefnum með aðstoð ráðgjafans fyrir Is-
land, þess er hann hefir kosið, án þess hinir
aðrir ráðgjafar konungs geti haft nokkur á-
hrif á ráðstafanir þær, er í þessu efni eru
gerðar, en það getur eigi hjá því farið að slík
áhrif eigi sjer stað, að minnsta kosti að form-
inu til, meðan þessi málefni eru lögð undir
atkvæði ríkisráðsins«.
Að því er 2. liðinn snertir telur landshöfð-
ingi það óhugsanlegt, að ráðgjafi verði búsett-
ur hjer á landi; hann þurfi að vera við lilið
konungs, búsettur í Höfn. Aptur á móti legg-
ur hann með því, »að skipaður væri fyrir Is-
land sjerstakur ráðgjafi, er gæti mætt á al-
þingi og bæri gagnvart því ábyrgð eigi ein-
ungis á því, að stjórnarskránni sje fylgt,
heldur og á öllum framkvæmdum stjórnarinn-
ar, að því er snertir hin sjerstöku málefni ís-
lands, því að vegna fjarlægðar og örðugra
samgangna milli samkomustaðar alþingis og að-
setu stjórnarinnar mundi það mjög æskilegt,
að ráðgjafinn gæti persónulega samið við al-
þingi, og má gera ráð fyrir því, að af því
leiddi meðal annars það gott, að alþingi hætti
þá að eyða tíma sínum í umræður um frutn-
vörp, sem engin von væri til að staðfest yrðu«.
Viðvíkjandi 3. liðnum, landsdómnum, eru
tillögur laudshöfðingja andvígar þinginu. Ur
því að hin æðsta stjórn landsins hljóti að vera
í Kaupmannahöfn, verði að sækja ráðgjafann
þar að lögum, og svo mundi meiri trygging
fyrir óhlutdrægni hæstarjettar en landsdóms-
ins, eptir skoðun landshöfðingja.
Að lyktum gerir landsh. eptirfarandi grein
fyrir því, hvernig málið horfi við á þingi:
»Eins og að framan er bent til, ber helzt
að skoða þingsályktun þessa sem árangur sam-
komulags, því að hún fullnægir að einu leyt-
inu eigi þeim, .sem lengst fara og halda fast
við stjórnarskipunarfrumvarpið frá 1893, svo
sem væri það hin eina stjórnarskipun, er full-
nægði kröfum íslands um sjálfstjórn, en á
hinn bóginn fer þingsályktun þessi miklu
lengra heldur en ná kröfur hinna gætnustu
þingmanna, og eru það einkum hinir konung-
kjörnu, þar sem hún fer fram á að hin æðsta
stjórn skuli hafa aðsetu í landinu. En allir
þingmenn, hvort er þeir eru framhaldsmenn
eða íhaldsmenn, jafnt þjóðkjörnir sem kon-
ungkjörnir, eru samhuga í því að óska Jiess,
og skoða það sem stórt stig til úrgreiðslu hins
umrædda máls,
að skipaður sje fyrir ísland sjerstakur ráð-
gjafi, er mæti á alþingi;
að eigi sje borin upp í ríkisráðinu og lögð
undir atkvæði þess lög þau og stjórnarathafn-
ir, er snerta sjerstök málefni Islands; og
að ráðgjafinn fyrir ísland beri ábyrgð gagn-
vart þinginu eigi einungis á því, að stjórnar-
skráin sje haldin, heldur einnig á embættis-
færslu sinni yfirleitt«.
Þessar óskir alþingis tclur landshöfðingi
»atgætilegar«, og fengist þeim framgengt,
»mætti gera ráð fyrir því, að sjeð yrði fyrir
endann á stjórnarbaráttu þeirri, er háð liefir
verið um mörg undanfarin ár, til mikillar
hindrunar heillavænlegri samvinnu stjórnarog
þings«.
Undirtektir stjórnarinnar.
Að því er enn hefir opinherlega fram kom-
ið, er þar um afdráttarlaust afsvar að ræða,
alveg eins og áður. Röksemdirnar fyrir því
afsvari eru birtar í Stjórnartíðindunum á þann
hátt, að prentaðar eru tillögur stjórnarinnar
við konung í tilefni af þingsályktunum deild-
anna.
Eptir að hafa gert nákvæma grein fyrir
þingsályktununum og eins tillögum landshöfð-
ingja, bendir stjórnin á það, að kröfurnar sjeu
óbreyttar frá því sem J)ær hafi komið fram í
stjórnarskrárfrumvörpum alþingis 1885, 86,
93 og 94. »Að kröfurnar sjeu hinar sömu,
er að vísu eigi tekið fram með berum orðum
í þingsályktun efri deildar, en það er skýrt
tekið fram í þingsályktun neðri deildar og
einkum í ávarpi henuar til yðar hátignar; og
þótt þetta hefði eigi verið tekið svo Ijóslega
fram í þingsályktunúnum, þá eru í raun
rjettri einmitt aðalatriðin í hinum gömlu kröf-
um fólgin í hinum þrem töluliðum þingsálykt-
ananna«.
Svo gerir stjórnin eptirfarandi greiu fyrir
því, að hún synjar þessum kröfum:
»Að því leyti sem því er haldið fram, að
I ráðgjafinn fyrir ísland eigi að rjettu lagi sam-
| kvæmt gildandi stjórnarskipunarlögum ekki
! að bera hiu sjerstaklegu málefni íslands upp
í ríkisráðinu, þá er [>ctta byggt á misskiln-
ingi bæði á sjálfum ákvæðum liiganna frá 2.
janúar 1871 og 5. janúar 1874, og sambandi
þessara laga við hinn sameiginlega grundvöll
sinn, grundvallarlög hius danska ríkis. Að
vísu er það eigi beint tekið fram í
lögunum frá 1871 og 1874, eins og í hin-
; um eldri frumvörpum til laga um stjórnar-
lega stöðu íslands, að ráðgjafinn fyrir ísland
| skuli eiga sæti í ríkisráðinu; en þótt þetta
I sje eigi beint tekið fram í umgetnum lögum,