Ísafold - 28.07.1897, Síða 4
212
það, að hann hafði nauðgað móður hans og
og kúgað föður hans til að skrifa undir þegn-
hollustubænarskrána. Tyrkir húðstryktu hann
nær til bana, ijetu hann liggja næringariaus-
an í fjötrum og í saurnum úr sjálfum sjer í
tvo sólarhringa, reyttu síðan af honum skegg-
ið, bundu á honum handleggivia og hengdu
haun upp á fótunum, og klipu hann síðan
með glóandi töngum unz hann gaf upp önd-
ina. Við prest einn höfðu þeir það lag, að
þeir lögðu kolaglæður á kvið hans beran,
hjeldu biflunni fyrir andlit honum og skipuðu
honum að flytja ræðu fyrir sjer út af henni.
Landið, Þessal/a, hálfeytt síðan í vor, fyrir
aðfarir Tyrkja, en hallæri fyrir dyrum þeirra,
er eptir hjara.
Um járnbrautarslysið í Danmörku ekkert
verulegt frekara að herma, en áður er komið.
Menn voru enn að deyja af sárum, er síðast
spurðist, 18. þ. mán. — Meðal dáinna af slys-
inu er að eins nefndur 1 Islendingur, konan
Sólborg Smith, mágkona Smiths sál. konsúls
hjer í Rvík.
Landsgu fuskipið Vesta kom í nótt frá
Leith, með 2 farþega og litinn flutning, og svo
sem ekkert, af lirjefum eða póstsendingum.
Gufuskipið Jyden fór í nótt til Khafnar
aptur með fáeina vesturfara og um 200 hesta (frá
B. Kristjánss.).
Gufuskipið Nordkap kom hingað í fyrri
nótt með steinolíu og kol frá þeim Zöllner og
Yídalin í 'Newcastle, og fer brátt aptur með
hrossafarm.
Póstmeistaraembættið veitt af konungi
7. þ. mán. cand. polit. Sigurði Briem.
Heiðurssamsæti hjeldu 50—60 Reykvik-
ingar, karlar og konur, í fyrra kveld þeim dr.
Krabbe, frú hans og 2 sonum hjer stöddum. —
Biskup mælti fyrir minni Jieirra. Samsætið fór
prýðilega fram, i hinu nýja Iðnaðarmannahúsi,
og þökkuðu þau hjón hæði fögrum orðum fyrir
sæmd þá og ástúðlegar viðtökur hjer.
W Fischers verzlanir í Reykjavík
og Keflavík-
Þessar verzlanir liafa nú ákveðið verð á inn-
lendum vörum í ár þannig: fyrir 1 skpd. af þorski
nr. 1. horga þær 48 kr.; smáfisk og þorsk nr. 2
40 kr., ýsu skpd. 80 kr.; 1 pd. af hvitri ull 60
anra.
Aðrar verzlanir hjer við Faxaflóa er sagt að
hafi verið að bindast föstum samtökum með að
láta vöruverðið vera þetta: þorsk nr. 1. skpd. 40
kr., smáfisk og þorsk nr. 2. 30—32 kr., ýsu skpd.
S4 kr., hvíta ull 55 aura pundið.
Það er ekki í fyrsta skipti í ár, að vjer Grull-
bringusýslubúar eigum það stofnanda og eiganda
Fisohers verzlunar að þakka, að vjer fáum viðun-
aniegt verð fyrir vora innlendu vöru, en, þó und-
arlegt megi virðast, hefir þess þó sjaldan verið ]
minnzt í blöðum vorum. Það er óhætt að full- |
yrða, að siðan verzlun þessi var stofnuð, fyrir
hjer um bil 38 árum, hefir hún á þennan hátt, — |
með þvi að bæta vöruverðið, — geíið suðurlandi |
óbeinlinis fleiri hundruð þúsundir króna. Og þeg-
ur þess er gætt, að verzlanir þessar hafa, í sum-
ar, selt útlendar vörur, sjerstaklega nauðsynja-
vörurnar, með lægra verði en aðrar verzlanir
hjer sunnanlands, bæði á móti vörum og pening"
um, — þá eru það ekki fáar krónur, sem suður-
land græðir á viðskiptum við þessa verzlun að
eins þetta ár, enda þó aðrar verzlanir hafi ekki,
— eptir því sem sagt er, — fylgt því verði á
útlendu vörunum, sem verzlanir Fischers hafa lát-
ið þær fyrir, heldur selt þær með hærra verði.
Það er einnig altalað, —- þó ótrúlegt sje, —að
kaupménn hjer við Faxaflóa ætli almennt. ekki
að fylgja þvi verði, sem verzlun Fischers borgar
yrir innlendu vörurnar, þrátt fyrir það, þó þeir
altaf hafi fylgt þvi verði undanfarin ár. Svo
mikið er vist, að með Ijúfu geði gjöra þeir það
ekki, en »mai'gur dansar nauðugur*.
Stofnandi þessarar verzlunar var hinn þjóð-
kunni ágætismaður, Waldemar Fischer, aldanskur
í báðar ættir.
Fyrir utan }iað, hve opt bann bætti hjer vöru
verð, meðan hann lifði, bæði á útlendum og inn
lendum vörum, megum vjer og minnast hinna
stórhöfðinglegu gjafa, sem hann svo tíðum Ijet af
hendi, bæði til einstakra stofnana og heilla hjeraða,
ekki hvað sizt hinnar síðustu, — 20 þúsund krón-
ur til ekkna og barna drnkknaðra hjer i sýslu, —
sem mun halda minningu hans á lopti svo lengi
sem suðurland byggist af sjómönnum. Og i þessu
hvorutveggja, bæði í því að bæta vöruverðið og
gefa höfðinglegar gjafir til fátækra hjeraða og
stofnana, hafa þau bæði trúlega fetað í fótspor
Fischers sál., — ekkja hans og sonur.
Það er því ekki ofsagt, sem jeg að framan
minntist á, að frá þvi þessi verzlun var stofnuð,
á suðurland henni að þakka fleiri hundruð þús-
undir króna, bæði beinlínis og óbeinlínis. Minna
verður ekki ætlazt til af oss, en að vjer játum
það i orði.
Oskandi væri, að vjer, þegar stundir liða, gæt-
um minnzt fleiri verzlana á líkan hátt, en, því
miður, er það ekki hægt sem stendur, enda þó
sumar þeirra sjeu orðuar talsvert eldri en Fischers
verzlun.
1 júlímánuði 1897. G. G.
Takið eptir.
Hjermeð auglýsist, að við undirskrifaðir höf-
um myndað fjelagsskap okkar á milli upp frá
þessum degi og tökum að okkur að inna af
hendi alla þá málara vinnu, sem að húsum,
húsgögnum, skildum og skrúði lýtur.
Li. Jörgensen og J. Lang’e
málarar
Hrossauppboð- Óskilahross þau, er
auglýst voru í Isafold 17. þ. m. af undir-
skrifuðum, verða seld við opinbert uppboð á
Hólmi hjer í hreppi þriðjud. 3. næsta mán. kl. 2
ef þau verða þá eigi gengin út, ■—- útlausn-
arfresturinn er hjer með lengdur til þess tíma.
Seltjarnarneshreppi 27. júlí 1897.
Ingjaldur Sigurðsson.
Fyrir nokkrum dögum hvarf grár, vakur
hestur úr pössun hjer við Fúlutjörn, mark:
blaðstýft fr. hægra. Eru menn, er kynnu að
verða varir við hann, beðnir um að hirða
hann og koma honum til eigandans Dr. J.
Jónássen. Hesturinn var í fyrra keyptur á
Brúsastöðum í Þingvallasveit var í vetur á
Gullberastöðum í Lutidarreykjadal.
Taða úr Viðey, fæst keypt, sernja má við
Ktlfn Sigurðsson.
Viðskiptabók Nr. 2013 (H. 444) við spari-
sjóðsdeild landsbankans er sögð glötuð og er
því samkvæmt 10. gr. laga um stofnun lands-
banka 18. sept. 1885 hjer með skorað á hand-
hafa tjeðrar viðskiptabókar að segja til sín
innan 6 mánaða frá síðustu birtingu auglýs-
ingar þessarar.
Landsbankinn, Rvík 23. júlí 1897.
Tr. Gunnarsson.
Ishúsfjelagið.
í Reykjavík. Aukafundur sá í fjelaginu, er
auglýstur var 7. þ. m., verður haldinn ekki
31. þ. m., heldur föstudag 30. þ. m. kl. 9 e.
h. í Hotel ísland. Mikið nauðsynjamál á dag-
skrá. Allir fjelagsmenn beðnir að mæta.
Tr. Gunnarsson
p. t. form.
f»etta eru framfarir!
Nýjasta verzlunin
í bænum.
Það er komin á fót NÝ VERZLUN í
Hafnarstræti 8,
sem selur allskonar
VEFNADARV ÖRUR.
Hvít ljerept í nærfatnaði og fleira.
Ljómandi falleg sirs og tvisttau af nýrri gerð,
mjög hentug og falleg í svuntur, kjóla og
allskonar baruaföt.
Mjög fallegir Briisselar-gólfdúkar og
Brússelar-bórðdúkar.
Allavega litt flauel, hentugt í kjóla og
kjólaskraut.
Allavega litt flos (Plyds), mjög gott og hlýtt í
KVENNSLIPSI.
Silkitau í svuntur handa stúlkunum, músselín
(netludúkur) hæstmóðins í kjóla og svuntur,
allavega litt,
Atlask í svuntur og slipsi, mjög fallegt og ódýrt.
Slipsin adeins 95 aura.
Hvergi eins gott eptir verði.
Tilbúinnsilkihnýti (slips, humbuk) og»slaufur«,
handa karlmönnum, og kragar; flippar og
mansjettur.
Ljómandi fallegir silkiborðar (silki-moraine).
Þau fallegustu slipsi handa ungum og gömlum
konum og stúlkum, sem sjezt hafa.
• Agætt hálfklæði, dökkrautt, dökkgrænt, grátt,
»marín«-blátt og svart,
tvíbreitt á 78 a. alinin,
ágætt í telpu-vetrarkjóla, föt handa litlum
drengjum, millipils og fleira.
Mjög góðir hvítir hörvasaklútar.
Broder-garn í ýmsum litbreytingum á
5 aura dokkan.
Hvítt og créme-gult angola og Java canevas.
Hvítir og créme-gulir kommóðudúkar og á
smáborð til að sauma í.
Mjög fallegir ljósastjakar og blómsturvasar.
Sephýrgarn í ýmsum litbreytingum. Fiskegarn
til að hekla úr. Isaumsklæði af ýmsum litum.
Mjög laglegar drengja- og telpuhúfur.
Fallegar gráar karlmanna sumarhúfur
á 50 aura.
Crépe-tau allavega lit.
Rekkjuvoðir á 2,00.
Karlmanna sumarföt altilbúin.
Karlmanna sportskyrtur og flcira og fleira.
Allt mjög ódýrt eptir gæðum.
Þeir sem vilja kaupa góða handiðnavöru með
góðu verði ættu að líta inn til
HOLGER CLAUSEN & Co.
áður en þeir koma
í aðrar búðir.
Þessa og næstu
viku verður
Takið eptir!
ekki öðrum nautgripum slátrað við verzlun
Jóns Þórðarsonar cn ungum geldnautuni
og kvígum-
Handa 2 skólapiltum er óskað eptir her-
bergi frá 1. okt., sem næst skólanum. Menn
snúi sjer til amtmanns
J. Havsteen.
Útgef. og ábyrgðarm. Björn Jónsson.
Meðritstjóri Einar Hjörleifsson.
Ísafoldarprentsmiðja.