Ísafold - 18.08.1897, Blaðsíða 4

Ísafold - 18.08.1897, Blaðsíða 4
236 Fyrir þessa vasklegu og ötulu i'ramgiingu lir. Þ. J. Thoroddsens á Suðurland og að líkindum mörg fleiri hjeruð landsins honum mikið að þakka þvi þó veikin sje máske ekki lífshættnleg, þá er enginn efi á þvi, að ef hún hefði náð að útbreið- ast um þann tíma ársins, sem sjómenn voru að flytja sig úr verinu, sumir til sveita, sumir á þil- skip og nokkrir tíl Austfjarða, þá hefði hún valdið stórkostlegu atvinnutjóni, svo stórkostlegu, að það hefði numið þúsundum, jafnvel tugum þúsunda króna. »Sá veldur miklu, sem upphafinu veldur«, segir máltækið, Brandur lausamaður hefði án efa valdið land- inu miklu tjóni, ef herra Þ. J. Thoroddsen hefði ekki með snarræði sinu og dugnaði tekizt að af- stýra því, og finnst mjer það ekki mega minna vera en að þess sje getið i blöðum vorum, hon- um til maklegs heiðurs. Oskandi væri, að landið ætti marga jafn-skyldu- rækna, dygga og dugandi embættismenn. titrandai ini/ur. Ranghermi. Dr. Yaltýr Guðmundsson óskar þess getið, að það sje ranghermt í Dagskrá II, 35, að hann hafi sagt, að embættismenn íslenzku stjórnardeildarinnar upp að ráðgjafanum sjáifum sjeu með leysing sjermálanna frá ríkisráðinu. Vitaskipið, C. F. Grove, er farið aptur til Khafnar fyrir nokkrum dögum, en vitamennirnir nokkrir eptir enn. Vitarnir hjer um hil komnir upp. Slys varð sama daginn og »Grove« fór: maður af skipinu, sem var að hjálpa til að koma upp ljóskeri í Skagatáarvitann, varð undir reisipalls- hjálka þar og tvibrotnaði á honum vinstri fótur- inn, bæði lærleggurinn og fótleggurinn rjett fyrir ofan öklann. Sneri skipið við með liann hingað inn aptur á spitalann. Gufuskipið Norcikap, þeirra Zöllners og Vidalíns, kom aðra ferð hingað fyrir helgina með kolafarm og er á förum aptur með hrossafarm. Veðrabrigði. Nú er kominn bezti þurrkur, frá því á helgi. Kemur í góðar þarfir. Töður óvíða komnar i garð áður, hvuð þá meira, og það mjög illa verkað, það sem hirt var. En gras sprottið vel í óþurrkunum, á valllendi; mýrar lakari. Myndasýniug Mr. Howelis Öræfajökulsfara á laugardagskveldið var þótti allgóð, af fossum og jöklum m. fl. Hann fór með Botnia nóttina eptir og þeir fjelagar. Botnverpingar orðnir nærgöngulir af nýju. Halda sig upp við land i Garðsjó um þessar mundir nótt eptir nótt, og breiða yfir auðkennis- stafina, þegar birtir. Hafa og lengi haldið sig all-grunnt á Akurnesingamiðum. Kommaiulör Garde, formaður í stjórn »hins sameinaða gufuskipafjelags« í Khöfn, kom hingað seint í f. mán. með Vestu og fór aptur með Botníu 14. þ. m. Hann átti marga fundi við samgöngumálanefnd neðri deildar og fjárlaganefnd- irnar, og varð það að samningum þeirra í milli, er segir í fjárlagafrumvarpinu frá neðri deild. Með Botníu sigldu, auk allmargra enskra ferðamanna og nokkurra þýzkra, þessir þ. á. stú" dentar til háskólans: Arni Pálsson, Asgeir Torfa_ son, Eggert Claessen, Eirikur Kjerulf, Gísli Skúla son, Jóbannes Jóhannesson og Jón Proppé. Enn- fremur stud. jur. Sigurður Eggerz, og stud. art. Eggert Eíríksson Briem á landhúnaðarskólann. Eimskipaútgerð hinnar íslenfkn landsijórnar. ^Hjer ineð auslýsist, að- eptirfarandi ráðstafanir liafa verið";gjörðar‘ nié5 til- liti til haustferða fyrir eiiuskipaútfíerð- ina. Samkvæmt 1. g;r. eimskipslagranna verður tekið á leisu aukaskip frá miðj- um septemberm. til loka nóvembermán. þ. á. Samkvæmt atlis. 2. á ferðaáætluninni verður breytt um skip þaimitr, að auka- skipið verður látið fara ferðir »Vestu« samkvæmt ferðaáætluninni frá þ. 20. septbr.. en »Vest.a« er látin fara tvær oukaferðir með fje til Frakklands. Framkvæmd á þessum ráðstöfunum verðnr þá þannig;. að vörur þær, sem sendar eru með »Vestu« til útianda i lok á:i ú'tináiiaðar og september, verða umfermdar í aukaskipið á JReykjavík- iirliöfn um þ. 20. september áu kosnað- ar fyrir vörueigendurna, og sendar með aukaskipinu til útlanda. Ennfremur er anka-kipið látið fara áttundu ferð- ina s.omkvæmt ferðaáætluninni í stað » Vest.u«. D. Thomsen, farstjóri. Grár hestur, dekkri á fax og tagl, með mark: biti apt. v., lítið eitt nuddaður aptan til á bakinu, hefir tapast hjer af mýrunum aðfaranótt mánu- dagsins. Skila til Matth. Matthiassonar i Holti við Rvík eða að Móeiðarhvoli. Staddur i Rvík., 18. ágúst 1897. f>orst- Thorarensen. Jörð til sölu. Kunnugt gjörist, aS jörðin Hokinsdalur í Auðkúluhreppi í ísafjarðarsyslu, sem er 24 hundruð að fornu mati, með 4 kúgildum, fæst keypt. 011 hús, sem á jörðunni eru og sem einnig eru með í kaupinu, eru vel upp byggð. — Nyleg baðstofa; 1G álna löng, 5y2 ál. breið, búr og eldhús, fjós, 2 heyhlöður, 3 fjárhús; jörðunui fyigja miklar útslægjur, einnig nægi- leg mótaka. Kaupverðið er 2400 krónur. Lysthafendur snúi sjer til eiganda jarðar- innar, Þorleifs Jónssonar í Hokinsdal, eða hr. kaupmanns P. J. Thorsteinssons á- Bíldudal, sem hefir umboð til að selja jörðina. Margar krónur sparaðar! Undirskrifaður selur ódýrar en allir aðrir skósmiöir á Norðurlandi eptirfylgjandi skó- fatnað, ásarnt mörgu fleira: VatnsstíQvjel, bússur, margar tegundir af karlmannaskóm, margar tegundir af kvennskóm, mjög vel gerðum, barnaskó, morgunskó, iiókaskó, aðQjördir. Vandað efni og verk. Þetta er að eins til- raun í þá átt að bæta verð á ofanskrifuðu, og óska jeg þvx góðra og greiðra viðskipta við almenning, og efast jeg eigi um þau eptir þeirri umkvörtun, sem hjer hefir átt sjer stað um verð á skófatnaði. Með virðingu. Jóhann Jóhannesson, Sauðárkrók. íslenzk iimboðsyerzlun. . Undirskrifaður selur íslenzkar verzlunar- vörur á marköðum erlendis og kaupir alls konar útlendar vörur fyrir kaupmenn og sendir á þá staði, sem gufuskipin koma. Söluum- boð fyrir énsk, þ/zk, sæiisk og dönsk verzl- unarhús og verksmiðjur. Glöggir reikningar, lítil ómakslaun. Jakob Gunnlögsson, Cort Adelersgade 4, Kjöbenhavn K. Yerzlun W. Christensen’s á Eyrarbakka selur allskonar útlendar vörur m.jög- ódýrt móti borgun út í hönd, sökum þess, að verzlunin á að hætta næsta vor. Frá því í dag verður erigum manni lánað. t»eir sem skulda verzluninni eru beðnir að borga fyrir 30. sept. þ. á., annars mega þeir búast við lögsókn. Eyrarbakka 14. ágúst 1897. Jörgen Hansen. K JOT af vænum dilkum, veturgömlu fje og sauðum fæst alla vikuna í Kirkjustræti 10. K artö flur fást keyptar hjá J. Nordmann, Reykjavík. Snemmbær kýr er til sölu hjá J. Nordmann, Reykjavík. Kr Jóhannesson á Eyrarbakka kaupir íslenzk frímerki fyrir mjög hátt verð, 1 til 100 a. fyrir stykkið. Eptir miðjan júní næstliðinn tapaðist af Hólavelli í Gaulverjabæjarhreppi 3vetrafoii, ljós að lit, vanaður, með mark: 2 st.fjaðrir fr. h. og heiir. vinstra og biti apt. Ef einhver kynni að hafa þenna fola undir hendi eður vita eitthvað um hann, er sá góðfúsl. beðinn að gjöra mjer hið fyrsta aðvart um það. Árnagerði í Fljótshiíð 7. ág. 1897. Jón Guðmundstson. Hnakk og beizli hefir einhver skiliö eptir í ó- gáti hjer í sumar eða það orðið eptir af flutn- ingi með »Reykjavík«, sem jeghefi hirt og geymi, þar til rjettur eigandi lýsir þvi og getur svo leitt sig að því hjá mjer; — borga verður hann aug- lýsingarkostnað. 16. ág. ’97. Hallgr. Jónsson í Guðrúnarkoti. Jeg hjer undirritaður kaonast hjer með við að hafa i siðastliðnum júnímánuði — þá staddur við Ölvesárhrú — haft þau ummæli, er skilizt gátu svo, að jeg með þeim dróttaði að hr. Magnúsi Þórðarsyni á Vestustu-Sámsstöðum i Fljótshlið, að hann hefði undir höndum peninga, er hann ætti eigi. Þessi ummæli min apturkalla jeg hjer með, og er mjer það því ijúfara, sem það var aldrei til- gangur minn, að kasta skugga á mannorð hr. Magnúsar, sem jeg hefi eigi reynt að öðru en góðu. p. t. Sámsstöðum 7. ág. ’97. Siyurður Pdlsson frá Varmahlíð. Vitundarvottar: Oddur Oddsson. Andrjes Illugason. SKRIFB Æ K U R 3- (hepti) meðíslenzkumforskriptum Útgefendur: Jón Þórarinss. og Mort. Hansen. 1. og 2. heptið er þegar útkomið og 3. hept- ið væntanlegt í haust. Hvert hepti kostar 20 a. Fæst hjá bóksölum og hjá Morten Hansen. Útgef. og ábyrgðarm. Björn Jóiinnoii. Meðritstjóri Einar Hjörleifsson. Isafoldarprentsmiðja.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.