Ísafold - 21.08.1897, Síða 3
239
að það ætti liezt við, að ekki væri fyrst um sinn
útvegað hljóðfæri í neina kirkju hjer á landi,
nema hann væri hafður i ráðum með. En til
þess, að herra Jónas Helgason geti leyst útvegun
hljóðfæranna viðunanlega af hendi, þá þarf hann
að fá frá hlutaðeigandi sóknarpresti nokkurn veg-
inn nákvæmt mál af kirkju þeirri innan veggja,
sem hljóðfærið á að notast í, ennfremur fólkstölu
í söfnnðinum, og svo að lokum auðvitað nægilegt
fje til þess að geta keypt hæfilegt hljóðfæri.
Það er mín skoðun, að þegar um útvegun
kirkju-harmonia er að ræða, þá verði hysgilegra
að fara að minum ráðum en að eiga nokkuð við
þessa »harmoníum-agenta«, sem nú úir og grú-
ir af um allt land, og auðvitað hugsa mest um
sinn hag.
Sandfelli í Öræfum í júlím. 1897.
Olafur Magnússon.
Lanclsspítaiiim.
Oli'ðlega í meira lagi tók neðri deild í málið
um landsspítalann nú í vikunni. Það var
farið fram á það eitt, að þingið skoraði á
stjórnina að láta gera áætlun um kostnað og
uppdrátt af spítala handa 45 sjviklingum. I
því liggur í raun og veru það eitt, að þingið
gefur í skyn, að einhvern tíma ætli það að
stuðla að því, að slíkur spítali verði reistur —
þegar það sjer sjer fært.
Og þetta — ekki stórvægilegra en það er
nje kostnaðarsamara — fellir deildin. Að eins
8 atkvæði með þingsályktuninni.
Það er lítill vafi á því, að hreppapólitíkin
hefir þar ráðið nokkru um. Það eru til þing-
menn, sem sjá ofsjónum yfir öllum framförum,
sem þeir halda að verði að einhverju leyti
sjerstaklega hlunnindi fyrir einhvern annan
landshluta en þeirra eigin sveit.
En undarleg hreppapólitík er annað eins og
þetta.
Fæstum blandast víst hugur um aðsóknina,
er verða mundi að slíkum spítala sem þeim,
er hjer hefir verið fyrirhugaður, frá öllu land-
inu eða flestum pörtum þess, og haginn, sem
landið því mundi hafa af spítalanum frá þeirri
hlið. En sleppum því, og segjum, þeir hafi
rjett að mæla, sem þykjast gera sjer í hug-
arlund, að aðsóknin verði aðallega frá lteykja-
vík og suðurlandssveitunum.
Ekki á þó Keykjavík nje suðurland lœkna-
skólann. Og eins og sýnt hefir verið fram á
af þeim mönnum, sem þar eru kunnugastir,
er það spítalaleysið, sem framar öðru stendur
læknaskólanum fyrir þrifum — girðir fyrir
það, að Islendingar geti eignazt jafn-góða og
fullkomna lækna og aðrar þjóðir.
Erá sjónarmiði þeirra manna, sem vinna að
því, að læknaskólinn verði lagður niður, er
nokkurt vitíþví, að synjahonum um spítala.
En það munu fæstir mega heyrt nefnt af
þeim þingmönnum, sem tóku höndum sarnan
um að fella þingsályktunina. Enda verður
því naumast neitað — það gengur í öfuga átt
við aðrar framfara- og sjálfstæði-tilraunir
þjóðar vorrar.
En miklu myndarlegra væri það, að stytta
eymdarstundir skólans eitt skipti fyrir öll en
&ð svelta hann á þann hátt, sem gert er. —
Það verður ekki varið og þætti vafalaust
hneyksli, hvar sem væri í heiminum, að taka
á móti 14 læknaefnum til kennslu, eins og
nú eru á læknaskólanum, og gera þeim kost
á að sjá 11 spítalasjúklinga. Fleiri komast
nú ekki fyrir í spítalanum hjer í höfuðstaðn
um!
'Vestmannaeyjum 14. ágúst. Veður-
átta í umliðnum júlímánuði var mjög votviðra-
söm, og þokur í tíðasta lagi; úrkoman 121 milli-
meter; mestur hiti þann 20.: 18°, minnstur aðfara-
nótt 6. og 31.: 6°. 10.—12. þ mán. komu loks 3
þurrir dagar, og náðist þá nokknð inn af töðum,
meiri hlutinn óhrakinn, því menn drógu að byrja
á slætti að nokkrum mun fyrri en um 15 vikur
af sumri. Hey í úteyjum hefur skemmzt mjög,
sumt orðið ónýtt.
Tvö norsk hvalveiðaskip frá Stixrud á Tálkna-
firði, >Egil« og »Leif«, komu hingað 23. f. mán.
til hvalveiða, og hafa síðan skotið hjer 32 hvali,
sem þeir hafa náð, og 4 að auk, sem þeir hafa
misst, hefur það þó tafið mjög fyrir þeim, að þeir
hafa orðið að flytja alla hvalina vestur, nær 50
mílur vegar, sýnir þetta, hve mikil gengd af hvöl-
um hjer er, og hversu ábatavænlegt mundi vera
að hafa hjer hvalveiðastöð.
Verð á fiski er hjer við Brydes verzlun: harð-
fiskur nr. 1 80 kr., nr. 2, 50 kr., saltfiskur nr. 1
og langa 40 kr., smáfisknr 32 kr., ýsa 25 kr.
Grisli kaupmaður Stefánsson hefir gefið sama verð
sem Fischer í Reykjavík: fyrir saltfisk nr. 1 og
löngu 48 kr., smáfisk 40 kr., ýsu 30 kr. Fyrir
hrogn söltuð er verðið 75 aurar 16 pd., fyrir sund-
maga nr. 1 35, nr. 2 25, livíta ull 55, lambskinn
30. Á útlendum aðalvörum mun verðið sama sem
almennt er í reikning í Keykjavík; kaffi er í reikn-
ing 75 aurar.
Mannslát. Hinn 24. júní siðastl. andaðist á
heimili einkasonar sins síra Brynjólfs á Stað í
G-rindavík sæmdarkonan Haldóra Brynjólfsdótt-
ir, f. 19. júni 1812, ekkja Gnnnars hreppstjóra
Halldórssonar i Kirkjuvogi, en systir síra Sigurð-
ar B. Sivertsen ridd. á Utskálum; fyrirtakskona
að menntun og mannkostum.
J. P.
Frá alþingi.
Lög frá alþingi.
9.
Um viðauka við l g nr. 3 2. febrúar 1894
um breyting á tils kipun um lausamenn og
húsmenn á lslandi 26. maí 1863.
1. gr. Þeir karlar eða konur, sem stunda nám
í föstum skólum að minnsta kosti 6 mánuði af
árinu, skulu undanþegnir vistarskyldunni það ár.
2. gr. Skyldur skal bver lausamaður, þegar
þess er krafizt, að hafa til sýnis auk leyfisbrjefs-
ins skírteini það, sem ræðir um í 3. gr. laga nr.
3 2. febr. 1894, staðfest af hlutaðeigandi hrepp-
stjóra eða bæjarfógeta, i hvaða hjeraði sem hann
er staddur; einnig skal hver húshóndi skyldur, að
láta hjú sitt, er hann lætur stunda atvinnu í ann-
ari sveit, hafa samskonar staðfest skírteini um
stöðu þess og heimili.
Brot móti þessari grein varðar sektum, 5—20
kr., sem renni i fátækrasjóð þess hrepps, sem brot-
ið verður uppvíst i. Húsbóndi endurborgi hjúi
sekt og málskostnað, er það verður fyrir sökum
vanrækslu hans.
3. gr. Engum lausamanni skal heimilt að taka
nokkurn mann sem hjú.
Brot gegn þessari grein varða 10—100 kr. sekt,
er renni i fátækrasjóð þess hrepps, sem brotið
verður uppvíst í.
10.
Um breyting á lögum um styrktarsjóði
'handa alfýðufólki.
1. gr. Hreppsnefndir skulu fyrir lok janúar-
mánaðar ár hvert semja skýrslu um alla þá, sem
gjaldskyldir eru í hreppnum eptir lögum 11. júlí
1890 um styrktarsjóði handa alþýðufólki. I kaup-
stöðum semja 3 menn, er bæjarstjórnin kýs úr
sínum flokki, skýrslur þessar. Skulu skýrslur
þessar liggja almenningi til sýnis á hentugum
stað 1.—14. febr., og álíti einhver sig ranglega
talinn á gjaldskránni, er honum heimilt að kæra
það mál innan 21. s. m. fyrir hlutaðeigandi
hreppsnefud eða bæjarstjórn, er hefir fullnaðar-úr-
skurð í því. Síðan skulu skýrslurnar sendar hlut-
aðeigandi sýslumanni eða bæjarfógeta innan loka
febrúarmánaðar.
2. gr. I kaupstöðum skulu bæjarfógetar, en í
sveitum sýslumenn innheimta gjaldið á manntals-
þingunnm og koma því á vöxtu i aðaldeild
Söfnunarsjóðsins. Fyrir ómak sitt ber þeim 4°/o
af hinu innheimta gjaldi.
3. gr. I kaupstöðum skulu bæjarfógetar, en i
hreppum sýslumenn hafa á hendi reikningshald
sjóðanna og geyma eignarslcilriki þeirra. Reikn-
ingar sjóðanna fyrir hvert ár skulu fyrir lok jan-
úarmánaðar sendir hlutaðeigandi hæjarstjórn eða
sýslunefnd, og kýs bæjarstjórnin eða sýslunefndin
2 menn til að endurskoða þá, en hinir kosnu
meðlimir bæjarstjórnarinnar eða sýslunefndarinnar
fella úrskurð um reikningana. I kaupstöðum
sendir bæjarstjórnin amtmanni árlega skýrslu um
hag styrktarsjóðanna; samskonar skýrslu sendir
sýslunefndin formanni amtsráðsins.
4. gr. Amtmenn hafa i kaupstöðum og amts-
ráðin i hreppnnum eptirlit með, að ákvæðunum
um styrktarsjóði handa alþýðufólki sje hlýtt.
5. gr. Landshöfðingi skal eptir tillögum amts-
ráða semja reglur, sem skulu birtar í B-deild
stjórnartíðindanna, um úthlutun á helmingnum af
hinu árlega gjaldi og hálfum vöxtunum, sem út-
hluta her samkvæmt lögum 11. júli 1890 um
styrktarsjóði handa alþýðufólki.
6. gr. 4.—6. og 8.—9. gr. í lögum um styrkt-
arsjóði handa alþýðufólki 11. júlí 1890 eru úr
lögum numdar.
7. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1899.
I.r|- -||h | i „I iMi , iii, i l l lll IHP | u l | » l 111 n I .I i I ■1«——
Ölið
Ný Carlsberg
fæst hjer eptir keypt í verzlun
Eyþórs Feiixsonar.
HúsgögTL (meubler).
Stórt úrval af alls konar stoppuðum(polstrede)
húsgögnum. Húsgögn í sali, borðstofur og
svefnherbergi. Járnrúm með heydýnum og
fjaðramadressum, kommóður, servantar, sofar
og chaiselonguer. Nægar birgðir af alls kon-
ar húsgögnum, lágt verð. Allt er selt með
fullkominni ábyrgð.
H- G- Petersen, Nörregade 17,
Kjöbenhavn K.
Peter Olsens
hilligste Forretning i
Olietryk og Malerier
med og uden Rammer
samt billigste Lager af SPEJLE.
Frederiksborggade 42.
Kjöbenhavn.
Brandassurance Compagni
for Bygninger, Yarer, Effecter, Creaturer og
Höe &c., stiftet 1798 i Kjöbenhavn, modtag-
er Anmeldelser om Brandforsikring for Sysler-
ne Isafjord, Bardastrand, Dala, Snæfellsnes, og
Hnappadal, samt meddeler Oplysninger om
Præmier &c. Islanske Huse (bæir) optages
ogsaa i Assurance.
N- Chr- Gram-