Ísafold - 25.08.1897, Blaðsíða 3
243
sannað væri að þetta væri samkv. vilja þjóð-
nrinnar; og að svar stjórnarinnar í vor og öll
aðferð hennar hefði espað sig. Yonar, að
stjórnin komi aldrei framar með annað eins
tilboð og nú, og heldur því jafnframt fram,
að frá henni hafi ekkert tilboð komið. Telur
landsh. sjálfsagðan til að verða ráðgjafa,
og skilur ekki, að hann geti gert meira gagn
sem ráðgjafi en sem landshöfðingi, enda hafi
framkoma hans framan af þinginu sýnt, að
hann teldi þessar breytingar engan hag fyrir
þjóðina. Annars var ræðau mest slettur og
glósur, sem vjer vitum ekki til, að nokkur
maður hafi skilið, um löggjöf handa eitium
manni,en ekki þjóðinni, og veðhlaupahest, sem
fylltur hafi verið á brennivíni!
Guðl. Guðmundsson kvað ræ'óu Tr. Gunn.
einu ræðuna, sem sýndi, að þingm. væri eltki
fullljós ábyrgðin, sem á þinginu hvíldi. Svar-
ar mótbárum Tr. G., hverri eptir aðra, og full-
yrðir, að ástæður hans hafi verið aðrar en
hanti hafi látið uppi. Framkoma hans áfyrri
þingum sýni, að honum sje allt annað en hug-
leikið að fá nokkrar stjórnarskrárhreytingar.
Þetta þing einkennilegt að því, að æstustu
frelsispostular hafi tekið höndum saman við
ramdönskustu apturhaldsmenn. Landsh. geti
gert meira gagn sem ráðgjafi en nú. Nú sje
hann hlaðinn skrifstofustörfum, en yrði hann
ráðgjafi, gæti hann gefið sig óskiptan við fram*
faramálum þjóðarinnar. Optar en einu sinni
muni hann hafa undirbúið mál, sem svo hafi
strandað hjá stjórninni í Danmörku. Yæri
hann orðinn ráðgjafi og mætti hjer á þingi,
mundi minna verða fimbulfambað og minna
af starfinu þj'ðingarlaust, og það alveg eins,
þó að hann legði sjermál vor fyrir ríkisráðið.
Yonar, að stjórnin komi með frumvarp að
sumri, ef hún geti ekki gengið að því sem
nví verði staðfest, og að hvín rjúfi þingið, enda
þótt frv. í heild sinni yrði fellt.
Einar Jónsson sýndi í allangri ræðu, að
breytingar frumvarpsins mundu verða til bóta,
og lauk máli sjmu með yfirlj'sing um, að
hann mundi samt greiða atkvæði móti því!
Guðjón Guðlaugsson hjelt langa ræðu, fram-
an af allsendis óskiljanlega, og Eiríkur Gí*la-
son stutta; báðir með ríkisráðsatkvæðinu.
Valt. Guðmundsson svaraði ýmsum mótbár-
um þeirra, er andstæðir voru frv. efri deildar.
Sj'ndi meðal annars fram á, hve hættulegt
væri, að taka málinu illa, því að þótt nú-
verandi stjórn væri áhugamál að komast að
samkomulagi við þingið, væri ekkert á það
að treysta, að hún sæti lengi við völdin, og
væru engir samningar komnir á, mundi ný
stjórn ekki telja sig bundna við tilboðin.
Sannaði með því að lesa upp kafla úr Alþt.
1885, að þá hefði Tr. Gunn. talið næga stjórn-
arbót að fá sjerstakan ráðgjafa., en ekki kært
sig um, að hann mætti á þingi, nje heldur,
að hann hefði öðruvísi ábyrgð en nú. Og
ekkert hefði hann þá á ríkisráðið minnzt.
Taldi annars, hvernig sem færi, stórmikið
unnið við það, að nvi væri stefnan breytt,
þingið horfið frá því, að heimta allt í eiuu,
og farið að snúa sjer að því að feta sig á-
fram smátt og smátt.
Eptir að framsögumennirnir höfðu enn sagt
nokkur orð, var gengið til atkvæða, og lauk
atkvæðagreiðslunni eins og áður er frá skj'rt.
Þingi stendur til að slitið verði a morgun.
Fjárlögin komast í sameinað þing. Skákin,
sem skera á af viðlagasjóði á næsta fjárhags-
tímabili, er nú komin upp í 260,000 krón.,
nveira en */4 hluti hans.
Meðal framgenginna mála á þinginu eru ný
kláðalög og ný botnvörpuveiðalög. Enn frem-
ur ný læknahjeraðaskipun (42), ný bólusetn-
ingarlög, lög um aðgreining holdsveikra manna
frá heilbrigðum, um árskostnað til holdsveikra-
spítala, um takmörkun á rjetti kaupmanna til
að verzla með áfengi, og um horfelli á skepn-
um, o. fl.
Yfirskoðvvnarmenn laudsreikninganna endur-
kosnir, þeir bræður Jón Jensson yfirdómari
og Sigurður próf. Jensson. — Gæzlustjóra við
landsbankann kaus efri deild Kristján Jóns-
son yfirdómara, í stað Benid. próf. Kristjáns-
sonar, sem svo á að setja á eptirlaun, jafnhá
og starfi hans fylgdu (500 kr.).
Jpjóðvinafjelagið- Aðalfundur í gær,
meðal alþingismanna. Forseti endurkosinn
Tryggv Gunnarsson, varaforseti kosinn Þór-
hallur Bjarnarson (í stað Eir. Briem, er fekk
nokkur atkv.), meðstjórnendur 2 endurkosnir,
Jón Jensson og Jón Þórarinsson, en hinn 3.
kosinn Jens Pálsson (í stað ritstjóra »Þjóðólfs«
sem ekkert atkv. fekk).
Tíðarfar- Oþurkar aptur megnir. Mjög
bágar heyskaparhorfur.
Hvalabátur »Frithjof« kom vestau að
í gær, frá Ellefsen, með kaupafólk frá hval-
veiðaútvegnum.
Kinóakorn og Hinialayabygg.
Kinóakorn nefnist korntegund ein, sem vex
í Peru og Kilí á hásljettunum í Andesfjöllun-
um, 13,000 fet yfir sjávarflöt, þar sem engin
önnur korntegund getur þroskazt sökum kulda.
Sumar-meðalhiti þar er um 6° R., eins og á
Akureyri, en 3.6° R. minna en hjer í Reykja-
vík. Af þessu má nokkuð marka, að kornteg-
und þessi er fremur »harðfrjó«, og líkari til
þess að þroskast hjer fremvvr en nokkur önn-
ur korntegund. Að vísu er það ekki full sönn-
un fyrir því, að Kinóakornið vaxi vel hjer á
landi, þótt það þroskist í Peru og Kilí við
langt um minni sumar-meðalhita en hjer á
landi er víðast hvar; því reynslan hefur sýnt
það,aðjurtir, sem vaxa ágætlega vel t. a. m.í Nor-
egi við sama sumar-meðalhita og hjer á landi,
geta vaxið hjer illa, og kemur það að mestu
eða öllu leyti af því, að hitinn kemur mis-
jafnt niður á sömu árstíð á báðum stöðunum.
A Akureyri þróast reynirinn vel, við 6° R., en
afarilla í Rvík þar sem meðalhiti að sumr-
inu er þó 9.6° R. En þetta er ekki hið al-
genga. Optast má marka jnrtagróðurinn eptir
sumar-meðalhitanum, en alls ekki eptir árs-
meðalhitanum.
Þá er og önnur korntegund til, sem líklegt
er að hjer mundi geta dafnað. Það er Hima-
layabyggið. Það vex ágætlega í Himalaya-
fjöllunum, 14,000 fet yfir sjó, þar sem sum-
ar-meðalhitinn er miklu minni en hann er
nokkurs staðar á íslandi. Jurtagróðurinn er
ekki fjölskrúðugur í Himalayafjöllunum, svona
hátt yfir sjó, og virðist því byggtegund þessi
mjög harðfrjó, að hvvn skuli geta vaxið þar.
Enda er það auðsætt, að svo er, þar sem hvvn
þroskast vel bæði í Finnmörk og Lappmörk;
þangað hefir jurt þessi verið flutt fyrir nokkr-
um áratugum, síðan, ræktuð þar til mikilla
hagsmuna, og þykir þar árviss korntegund, og
er það þó miklu norðar en Latiganes á Islandi
er. Bygg þetta þykir gott til ntanneldis. Kin-
óakornið er það sömuleiðis, talið fullt eins
kraptgott og hafrar, en þeir eru sem kunn-
ugt er ein kraptbezta korntegund til fæðu.
Það er og aðalfæða þess þjóðflokks, sem
byggir hásljettur Andesfjallanna.
Þótt tilraunir með að rækta hinar almennu
korntegundir, —- rúg og bygg —, hafi ekki
lánazt hjer á landi og litla von gefið um að
kornyrkja hjá oss verði nokkurn tíma almenn
nje heldur svari kostnaði, þá er þó ekki víst,
nema þessar áminnztu korntegundir geti vaxið
hjer vel á mörgum stöðum, til mikils hagn-
aðar, þegar þær eru orðnar »landvanar«, sem
menn svo segja, eða öllu heldur sagt: þegar
þroskunareðli þessara jurta hefir lagað sig
eptir loptslagi og jarðvegi og fl. Væri því
æskilegt, að alþingi vort hlutaðist til um, að
ekki liðu mörg ár þar til tilraunir í þessa átt
yrðu gerðar einhversstaðar á landinu. Ekki
yrði það ærið kostnaðarsamt. Sömufeiðis væri
æskilegt, að tilraun væri gerð með að frjóvga
jarðvegin með »nitrogen«.
Ymsar bendingar, sem koma frá einstöku
mönmim um eitthvað nýtt, sem virðist geta
bætt á einhvern lvátt landbvinað vorn eður
aðra atvinnuvegi, ætti fjárveitingavald vort
eklci að láta sem vind um eyrun þjóta. Þær
eru ritaðar, bæði af mjer og öðrvvm, í góðum
tilgangi og fullri sannfæringu fyrir því, að þær
geti að liði orðið, ef vel er á haldið. Vjer
megum engu því sleppa, sem líkindi eru til
að geti orðið þjóð vorri til gagns og sóma í
framtíðinni.
Reykjavík 24. ágúst 1897.
Sig. þórólfsson.
Húsg-ögn (meubler).
Stórt úrval af alls konar stoppuðum(polstrede)
húsgögnum. Húsgögn í sali, borðstofur og
svefnherbergi. Járnrúm með heydjmum og
fjaðramadressum, kommóður, servantar, sofar
og chaiselonguer. Nægar birgðir af alls kon-
ar húsgögnum, lágt verð. Allt er selt með
fullkominni ábyrgð.
H- C- Petersen, Nörregade 17,
Kjöbenhavn K.
Oraelharmonium
frá 125 kr. tilbúin í vorum eigin verksmiðjum.
Fengu silfurmedalíu í Málmey 1896. Auk
þess höfum vjer harmóníum frá hinum beztu
þýzku, amerísku og sænsku verksmiðjum.
Vjer höfum selt harmóníum til margra kirkna
á íslandi og prívat-lvaupenda. Hljóðfærin má
panta hjá kaupmönnum eða hjá oss sjálfum.
Petersen & Steenstrup, Kjöbenhavn V.
Þvi optar sem jeg leik á orgelið í dómkirkjunni,
þess betur líkar mjer það.
Reykjavik 1894.
Jónas Helgason.
Meyer A. Schou
hafa hinar mestu og ódýrustu birgðir af
alls konar
bókbandsverkefni,
öll áhöld til bókbands, nj'justu vjelar, og stýl
af öllum tegundum.
Viingaardstræde 15. Kjöbenhavn K.
Steinolíutunnur
tómar kaupir
Th. Thorsteinsson
(Liverpool).