Ísafold - 30.10.1897, Page 1
K emur út ýmist einu sinnieða
tvisy.iviku. Verð Arg.(90arka
minnst)4kr.,erlendis6 kr.eða
l*/s doll.; borgist fyrir mið.jan
júli(erlendis fyrirfram).
ÍSAFOLR
Dppsögn (skrifleg) bundin við
áramót, ógild nema komin sje
til útgefanda fyrir 1. október.
Afgreiðslustofa blaðsins er i
Austurstrœti 8.
Reykjavík, laugardaginn 30. okt. 1897-
XXIV. árg.
Ks’ Af þeim 11 ellefu blöðum, sem
eptir eru af þessum árgangi Isafoldar, koma
3 út næstu laugardagana 3 í röð, en
ekki miðvikudaga; hin 8 tvisvar í viku meiri
partinn vír því.
Bókmenntir.
Búnaðarrit. Utgefandi Her-
mann Jónasson. Ellefta ár.
Itvík 1897.
Það bvrjar á ritgjörð um Scemund heitinn
Eyjólfsson eptir prestaskólakennara síra Eirík
Briem, vel og einkar- hlvlega ritaðri að makleg-
leikum. Aðalkjaruinn í lýsingunni þetta: »eins
og hann lagði áherzlu á, að þeir kraptar, sem
eyddu gróðri landsins, mættu sín minna, ef
mennirnir gengju ekki í lið með þeim, en þeir
kraptar, er styddu gróðurinn, svo var honum
og eiginlegt í andlegum efnum, að hafa jafnan
fyrir augum þann sigur hins góða yfir hinu
illa, sem mönnunum með guðs hjálp er unnt
að ná«.
Magnvis Einarsson d/ralæknir ritar um fjár-
kláðann, sk/ra 1/sing á honum og verkunum
hans, og svo vvm meðferð hins sjúka fjár og
lækning þess. Kreólínbaðinu heldur hann
mest fram, með því að það drepi maura fullt
svo vel sem nokkurt annað bað, sje laust við
eiturefni, sem skaði skepnuna, skemmi ekki
ullina, sje ódvrt og auðvelt að búa það til.
Minnist jafnframt á karbóls/rubað, tóbaksbað,
walzbað og arseníkböð.
Þá kemur lengsta ritgjörðin í bókinni, um
4 arkir: 'i>Nokkrir sundurlausir þankar um bú-
skap«, eptir »uppgjafabónda«. Þar kennir
margra grasa, enda er sú grein í raun og veru
margar ritgjörðir, og flest þar gert að umtals-
efni, sem á góma ber, þegar talað er um hag
lands og þjóðar. Mergurinn alls málsins að
sanna það, að landið sje gott og landbúnaður
hjer ágætur gróðavegur, ef rjett sje að farið.
En hann ætlar líka vallardagsláttunni að gefa
af sjer 20 hesta af töðu, sem mun vera hjer
um bil helmingi meira en gerist að jafnaði og
það á allgóðum jörðum. Greinin er rituð af
greind og margháttaðri þekkingu; en skiptar
munu verða skoðanirnar um allmörg atriði
hennar. Vjer tökum til dæmis það, sem höf.
segir um vistarbandslausnina. Hann kennir
henni framar öðru um örðugleika bænda með
að fá verkafólk og lítur til hennar hornauga.
Það eru til þeir menn, og þeir hvorki óvitrir
nje ókunnugir, sem þakka það vistarbands-
lausninni, að bændur eru ekki í rneira fólks-
hraki en þeir eru, telja sem sje alveg víst, að
hún hafi hept vesturflutningana að stórum
mun. IJtgef. Búnaðarritsins er einn af þeim,
sem eklci er greinarhöf. samdóma í þessu efni
og gerir mjög skynsamlega grein fyrir fólks-
eklunni í neðanmálsgrein. Hann telur hana
stafa sumpurt af Vesturheimsfcrðum, en sum-
part valda henni líka breytingar í landinu
sjálfu: auknar fiskiveiðar, vaxandi framleiðsla
og eyðsla, sem hefir f .förmeð sjer meiri flutn-
inga og vinnu við verzlun, aukið skólanám,
meira látið eptir sjer, en af því leiðir /rnsa
n/ja viunu á heimilum og ferðalög; batnandi
hvísakynni, meiri húsbúnaður, dyrari klæðnað-
ur, rneiri atvinna í þjónustu hins opinbera o.
m. fl. Bráðnauðsynlegt sje því að fá útlent
verkafólk til vinnu hjer á latidi, eins og bent
var á í ísafold nylega. — Meðal margs ann-
ars fróðleiks, sem er í grein »uppgjafabónd-
ans«, má benda á það, að honum telst svo til,
eptir landshagssk/rslum Stjórnartíðindanna,
sem gróði landsmanna á árunnm 1874—94 í
lifandi peningi að eins nemi allt að 1 :/2 milj.
króna.
Bogi Th. Melsteð sögufræðingvvr gefur út
brjef um fríverzlunina, sem bændur í Dyr-
hólahreppi í Vestur-Skaptafellss/slu sendu
stjórninni 1822, og ritar formála fyrir því.
Kaupmenn höfðu kvartað við stjórnina undan
illri vöruvöndun landsmanna, en bændur kenna
því um, að þeir, sem vandi vörur sfnar, sjeu
í engu látnir njóta þess, að vörur kaupmanna
sjálfra sjeu afarillar, og að allskonar skatt-
heimtumenn velji það bezta úr vörum þeirra,
með því að engir peningar sjeu manna á milli,
og því verði ekki eptir nema úrgangurinn
handa kaupmönnum. Líkindi eru til, að
Sveinn læknir Pálsson hafi sarnið brjefið.
Páll Brienv amtmaður hefir samið útdrátt úr
búnaðarskýrslum Norður- og Austuramtsins
fyrir árið 1896, og sömuleiðis samanburð á
búnaðarsk/rslum þessara amta frá 1856, 1876
og 1896. Nautgripum hefir fækkað að mun
sfðan 1856 á þessu svæði, en sauðfjárræktin
jafnframt aukizt og breytzt, fjeð yfirleitt ekki
látið verða eins gamalt. Hestaræktin hefir
tekið nokkrum breytingum, brúkunarhestum
fækkað, en tryppum fjölgað. Þilskipum fjölg-
aði fram að 1876, en síðan hafa þau fækkað.
Opnum skipum fjölgað mjög í Múlas/slum, en
fækkað f öllum hinum. Þúfnasljettur hafa
mjög aukizt, Húnavatnss/sla þar langfremst,
en í Múlas/slunum svo sem ekkert gert í þá
átt. Túngarðahleðsla staðið í stað í Húnavatns-
og Eyjafjarðarsyslum, en minnkað f öllum hin-
um. í niðurlagi greinar sinnar minnist amt-
maður dálítið á búskaparlag og framfarir í
Rangárvallasyslu, meðal annars þess, að á ár-
unum 1890—1894 hafi búfje fjölgað þar svo,
að nema muni 200 þús. krónum.
Stefán Stefánsson kennari við Möðruvalla-
skólann skrifar um hmgnaormasýki, sem kom-
ið hefir upp í fje hans og hann athugað mjög
vandlega. -— Gunnar Olafsson og Finnur Jóns-
son á Kjörseyri rita .báðir um hesta, annar um
tamningu þeirra, hinn um ymsa meðferð á
þeim. — Ouefndur höf. sk/rjr frá, hvernig
þúfurnar verði til — aðallega af frosti og
kulda, en ekki eingöngu af vatnsaga, eins og
optast hafi verið sagt. Telur uauðsynlegt að
berja niður frostbólur, sem myndist á sljett-
aðri jörð, meðan jörðin. er að þiðna, því að
þær bólur verða að þúfum. — Magnús Einars-
son d/ralæknir skrifar um húsdýrasjúkdóma
og ætlar að halda því áfram í ókomnum ár-
79. blað.
göngum Búnaðarritsins. — Loks ritar Vil-
hjálmur Jónssou yfirlit yfir síðastliðið ár, að
því er atvinnumál snertir.
Af því, sem hjer er sagt, ætlumst vjer til,
að þeim, sem ekki hafa enn lesið Búnaðarrit-
ið fyrir þetta ár, verði það Ijóst, að það er
þarft rit og gott, eins og að undanförnu.
Ribbaldar í hempu.
I hinu fróðlega riti Páls amtmanns Briem,
»Lögfræðiugi«, er sk/rt frá lögum, sem fyrir
fáum árum hafa öðlazt gildi í Svíþjóð, og með-
al annars kveða svo á, að ef prestur liggvvr í
deilum og ófriði, svo að honum má kenna
um, við embættisbræður sína eða sóknarfólk
sitt, þá varði það áminningu, embættismissi
um tiltekinn tíma eða að fullu og öllu.
Er ekki ástæða til að vekja máls á slíkri
löggjöf hjer á landi?
Að minnsta kosti er ekki ástæðulaust að
ætla að lslendingar sjeu orðnir sárleiðir á
þeim ófriði, sem /msir prestar þeirra hafa
svo þráfaldlega staðið í.
Það þarf engar málalengingar til þess að
sanna það, að slíkur ófriður hafi átt sjer stað
nje að mikil brögð hafi verið að honum sum-
staðar. Það er öllunv íslendingum kunnugt,
að meðal presta þeirra hafa verið orðlagðir
ribbaldar, sem hvað eptir annað hafa verið
í málaferlum við menn. Surnir hafa sótzt
optir þrasinu með því að gerast málafærslu-
menn fyrir aðra. Og óhætt mun að fullyrða,
að aldrti hefir myndazt hjer á landi föst venja
í þá átt, að prestar s/ndu að sjálfsögðu ná-
unganum meiri tilslökun en hverjir sem
helzt aðrir menn.
Þessu er allt annan veg farið að minnsta
kosti í flestum öðrum kristnum lönduvn.
Annarsstaðar þykir það stök ósvinna, að prest-
ar lendi í málaferlum, nema þeir sjeu þá al-
veg til knúðir, þurfi t. d. að hrinda af sjer
ærumeiðandi illyrðum. Hjer á landi er víst
ekki sjerlega sjaldgæft að heyra presta þykj-
ast af því, að þeir láti ekki gera á hluta
sinn að ósekju og sjeu ávallt reiðubúnir að
sækja mál sitt að lögum, hvenær senv eitt-
hvað ber á rnilli.
Sænska löggjöfin, sem þegar hefir verið á
minnzt, bendir á, hvernig litið muni vera á
slíkan hugsunarhátt presta í Svíþjóð. I fyrra
vetur gerðust atburðir í Danmörku, sem.s/na
áþreifanlega, að hið sama verður uppi á ten-
ingnum þar. Prestur á Sjálandi lenti í rnála-
ferlurn við einn sóknarmanna sinna. Það þótti
svo mikið hneyksli, að sóknarmenn gerðu sam-
tök um að sækja ekki guðsþjónustu prestsins.
Og þegar Sjálandsbiskup fjekk að vita urn
þetta þras, skrifaði hann prestinum og kvaðst
vona, að hann segði af sjer tafarlaust. Env-