Ísafold - 06.11.1897, Side 3
319
i
litlar, og þá fengu menn, að auglýsingum
fráskildum, 119 Isafoldarblaðsíður fyrir 3 krón-
ur. Þetta blað bauð þá betri kjör eu önnur
blöð hjer á landi og þótti ód/rt.
Síðasta ár, 1896, fengu kaupendur blaðsius,
að auglýsingum frátöldum, 242 ísafoldar-blað-
síður fyrir 4 krónur. Auk þess nemur stækk-
un blaðsins og aukning leturdrýgindanna, frá
því sem var 1875, 60 blaðsíðum. I ofanálag
á þetta fengu menn Sögusafn blaðsins, 8 ark-
ir. Væri blaðið nú selt tiltölulega með sama
verði eins og 1875, ætti það aðkostaað minnsta
kosti 8 krónur.
Þá, 1875, fengu kaupeudur blaðsins tæpar
40 bls. eða 10 tbi. (arkir) af auglýsingalausu
lesmáli fyrir 1 kr., en nú 78 bls., eða rjett að
segja tvöfalt, rjett reiknað, þ. e. þegar Sögu-
safnið er meðtalið og leturdrýgindin tekin til
greina.
Og þó er í ráði, eins og áður hefir auglýst
verið, að stækka blaðið enn um hjer um bil þriðj-
ung frá næstu áramótum, án þess að færa
verðið upp !
Einstöku frámunalegir hugsunarlcysingjar
hafa heyrzt heimska því út úr sjer, að það
væri auman fyrir kaupendurna, að þurfa að
vera að borga fyrir þetta auglýsingarusl,—að
blaðamennirnir skuli vera þeir okrarar, að
selja þeim dýrum dómum það, sem ekki sje
nema eintómar auglýsingar, En hver, sem
kann að leggja saman 2 og 2, sjer undir eins,
að því fer harla fjarri, að kaupendur blaða
sjeu nokkurn tíma látnir borga eina gómstærð
af auglýsingamáli í þeim. Það eru auglýs-
endurnir einir, sem borga þann hluta blaðs-
ins. Og þeir borga ekki einungis þann hlut-
ann allan, heldur miklu meira. Þeir borga
þar að auki svo og svo mikið af lesmálinu,—
borga það fyrir kaupendurna ■— gefa þeim
það — stundum jafnvel allt (í stórblöðum er-
lendis, þar sem kaupendur eru ekki látnir
borga nema sem svarar pappírnum).
Ætli bverjum meðalgreindum manni fari þá
ekki að skiljast það, að það sje í meira lagi
varhugavert, einmitt frá sjónarmiði blaða-
kaupendanna sjálfra, að bægja auglýsingum
frá blöðunum ?
Liggur ekki hverjum manni í augum uppi,
að það eru betri kaup að fá sem svarar 80
örkum af auglýsingalausu lesmáli,—þó að þess-
um 80örkum fylgi þarað auki, kaupendum að
kostnaðarlausu einna 20, 30 eða 40 arka við-
bætir, af auglýsingamáli, tómum auglýsingum,-—
fyrir sama verð og annars, þ. e. ef ekki fylgja
neinar auglýsingar, fást ekki fyrir nema 40
arkir 1 Eyrirsamagjald, semkaupendurísafoldar
fengu að eins 40 arkir af auglýsingalausu les-
máli fyrstu árin, fá þeir nú nærri 80 arkir
jafnstórar eða jafn-leturdrjúgar, sömuleiðis af
auglýsingalausu lesmáli, — auglýsingamálið
þar fyrir utan. Þetta gera auglýsingarnar að
verkum.
Og er — vjer segjum ekki, sanngjarnt —
heldur: er nokkur vitglóra í því, að setja íslenzk-
um blöðum, sem eiga að afla sjer kaupenda
meðal 70 þúsund manna, strangari atvinnu-
reglur heldur en blöðunum í stórlöndunum,
sem margar miljónir manna geta lesið.
Eimskipaútgerðarlögin
og »H,jálmar«.
Mikið er búið að víta eimskipaútgerð lands-
sjóðs fyrir þá ráðstöfun, að leigja »Hjálmar«.
En jeg hef ekki orðið þess var, að neinn
hafi enn bent opinberlega á þá hlið málsins,
sem varhugaverðust er.
Allt hefir lent í því að finna að því, hve
»Hjálmar« er ljelegt skip. Hitt er þó eigi
síður athugavert, hvort þessi ráðstöfun er
ekki með öllu ólögleg.
»Hjálmar« var leigður samkvæmt 1. gr.
eimskipaútgerðalaganna, eptir því setn auglýst
var í sumar.
Hvað stendur svo í þessari grein?
Þar stendur fyrst, að taka skuli eimskip
á leigu á kostnað landssjóðs; þar næst eru
nákvæmar reglur um, hvernig það skip skuli
úr garði gert; svo ákvæði um, hve hátt leigu-
gjald megi vera og kostuaður við útgerð þess;
þar á eptir lieimild til »að leigja auk aðal-
skipsins antiað skip um nokkurn hluta ársins,
ef nauðsyn krefur«, og við það ákvæði mun
vera átt í auglýsing farstjóra í sumar. Síðari
hluti þessarar 1. greinar er um lcaup á eim-
skipi, sem ekkert kemur þessu máli við.
Jeg fæ ekki sjeð, að þessi grein veiti neina
heimild til þess, sem gert hefir verið, að taka
aðalskipið út úr þjónustu landsjóðsútgerðarinn-
ar og setja í þess stað annað skip, sem allt
öðru vísi er á sig komið.
I hverju skyni skyldi lagagreinin líka kveða
svo nákvæmt á um það, hvernig aðalskipið
eigi að vera, ef setja má í staðinn fyrir það
eitthvert annað skip, hvenær, sem ' farstjórn-
inni ræður svo við að hafa?
En næsta greinin, 2. gr., finnst mjer taka
af allan vafa. Þar stendur: »Eimskip það,
sem um ræðir 1. gr., skal haft í förum milli
Islands og annara landa og kringum strendur
landsins, til að flytja póstflutning, fólk og
varning samkvæmt ferðaáætlun, er farstjóri
ákveður með ráði fargæzlumanna og lands-
höfðingi samþykkir«. Mjer virðist það liggja
í augum uppi, að ferðalag Vestutil Frakklands
í haust komi í bága við þessi fyrirmæli lag-
anna.
Það má að minnsta kosti mikið vera, ef þetta
er ekki hrein og bein lögleysa. Jeghefhugs-
að um málið frá fleiri hliðum en jeg hef hjer
minnzt á, og komizt að sömu niðurstöðu. En
mjer finnst þetta nægja til að vekja máls á
því, sem fyrir mjer vakir. Vitaskuld getur
mjer skjátlazt. Þess vegua þætti mjer mikils
um vert að læyra, hvað mjer lögkænni menn
segja um þetta.
Verði nú niðurstaðan sú, að lögin hafi ver-
ið brotin, varðar það þá ekki neinni ábyrgð
fyrir fargœzlnmann, sem settur er af þinginu
til þess að sjá um að allt fari fram sem hag-
anlegast og lögum samkvæmt, að verða til
þess að ráða skipið úr þjónustu landsstjórn-
arinnar í sína eigin þjónustu?
Skattþegn.
Tapazt hafa lyklar á götum bæjarins.
Finnandi skili á afgreiðslustofu Isafoldar gegn
fundarlaunum.
Gnissvöröur
í túni síra Eiríks Briem, á hinu fyrirhugaða
barnaskólastæði, verður seldur, og risti kaup-
endur ofan af og flytji burt.
Þeir sem kaupa vilja, komi ástaðinn mánu-
dagsmorguninn 8. þ. m. kl. 9.
Reykjavík 6. nóvember 1897.
Skó labyggingarne, fndin.
Ferðataska er í óskilum úr farangri sem
fluttur var í land úr »Thyra« (siðustu ferÖ).
Rjettur eigandi vitji hennar í húð H. Helga-
sonar.
Hjá undirskrifuðum fæst þarfanaut, fyrir 3 kr.
Nest 1. núvenber 1897.
Sigurður Olafsson.
Góð rnjólk' fæst keypt í Þingholtstræti nr.
22, hjá Sig. Þórólfssyni. — Helzt óskast að menn
vildu hafa mjólkina pantaða yfir lengri eða skemmr
tima.
Danskar kartöflur fást hjá
C. Zimsen.
Aukanæturvörður
í lieykjavík verður skipaður í næsta mánuði
í stað Arna Zakaríassonar, sem hefur fengið
lausn frá þeirri sýslan. Aukanæturvarzlan
stendur yfir frá 1. október á haustin til 15.
marz á vorinu og kaupið er 45 kr. á mánuði.
Þeir sem vilja sækja um sýslan þessa sendi
bónarbrjef sín, stýluð til bæjarstjórnarinnar,
hingað á skrifstofuna fyrir lok yfirstandandi
mánaðar.
Bæjarfógetinn í Reykjavík 5. nóvember 1897.
Halldór Daníelsson.
Auglýsinfr.
I sambandi við proclama dags. 19. þ. m.,
er hjer með skorað á þá, sem áttu óborgaðar
skuldir til Sigurðar heitins Jónssonar á Stóru-
Vatnsleysu, að borga þær hingað innan sama
tíma; að öðrum kosti verða þeir lögsóttir.
Skiptaráðandinn í Kjósar- og Gullbringusýslu,
30. okt. 1897.
Franz Siemsen.
OFNAÍL
2 smáofnar eru til sölu hjá
J. Nordmann.
Hollenzkar laukplöntur
sem hlómgast haust og vetur, o. fl., selur
Guðm. Guðinundsson
læknir.
Fundur verður haldinn í Framfarafjelagi
Reykjavikur kl. 4 e. m. á morgun, og fram-
vegis á hverjum sunnudegi á samatíma.
St j ór nin.
Harðfiskur
góður fæst hjá
C. Zimsen
Kennsla.
Eins og að undanförnu tek jeg að mjer að
kenna stúlkum alls konar hannirðir, þar á
meðal maigt nýtt, er jeg hef numið erlendis
síðastliðið sumar; öllu verkefni, sem þarf til
hannirða og ýmislegu fleiru er kvennfólk þarfn-
ast, hef jeg útsölu á fyrir Brynjólf bróður
minn. Sömuleiðis tek jeg að mjer áteiknan
á alls konar tau og ljerept og annað þess
konar.
Inugangur um austurdyr hússins nr. 7 Aðal-
strceti.
I. Bjarnason.
Ullarkambarnir góðu og ódýru
komnir til
C. Zimsen.
aptur
Seld óskilahross í Mosfellshr. haustið 1897.
1. Jarpur foli 2 v. mark: sneitt fr. v.
2. Grásokkótt hryssa 3 v. mark: sneitt a. h.
3. Rauð hryssa 1 v., mark: stig fr. h.
Álafossi 31 okt. 1897.
B. Þorláksson.
Nýjar rúsínur Og svezkjur eru komn-
ar til
C. Zimsen.
Fundizt hefur budda með peningum í.
Rjettur eigandi vitji á afgreiðslustofu þessa
blaðs.
Falleg og ódýr kort, kveiinhanzka, mjög
hentug efni í jóla og afmælis gjafir Og
fl.
I. Bj arnason.
Spilin góðu og ódýru eru nú komin til
C. Zimsen.
Messufali í dóinkirkjunni enn á morgun vegna
aðgerðar.