Ísafold - 12.02.1898, Blaðsíða 2

Ísafold - 12.02.1898, Blaðsíða 2
Litli-Hvammur. Eptir Einar Hjörleifsson. VII. Hann fjekk hana til að segja sjer, að einu sinni hefði maður beðið henn- ar. Sigurgeir þekkti manninn; hann var efnilegur og efnaður. Faðir henn- ar hafði fýst hana að taka honum. Sigurgeir spurði, hvers vegna hún hefði ekki gert það. •Auðvitað af því, að mjer þótti ekkert vænt um hann«, sagði hún. »Finnst þjer það þá svo óumflýjanlegt og sjálfsagt skilyrði?* Hún leit á hann undrunaraugum, og það var ekki trútt um þykkju í augnaráðinu. »Annars er það andstyggð«, sagði hún. — Sigurgeir hafði miklu meira henni að segja. Og þá valdi hann ekki af verri endanum. þ>ví að það er einkennilegur munur á því, sem ungir karlmenn segja vin- um sínum og vinkonum. Allt af sitja þeir í raun og veru um það, að segja eitthvað af sjálfum sjer. Æskunautn- in — hver sem hún nú er — verður nokkuð rýr, ef vjer getum ekki marg- faldað hana með því að gera öðrum mönuum hana skiljanlega. Og lagsbræðrum vorum segjum vjer langmest af ávirðingunum — þeim á- virðingum, sem mannfjelagið hefur komið sjer saman um að sje synd, sem vjer enda sjálfir viðurkennum að sje synd, en sem vjer samt sem áður — vísvitandi eða óafvitandi — stærum oss af innst í hjarta voru og teljum ekki synd. fað gengur allt örðugar a‘ð tjá þeim það, sem bezt er í oss, viðkvæmast, riddaralegast ogkarlmann- legast. Vjer geymum það handa vinkonum vorum — ungum eða gömlum. þ>ær kunna að hlusta á slíkar frásagnir. |>ær efast ekki um einlægnina. iþær trúa því, ef vjer segjum, að vjer elsk- um eða hötum. þær brosa ekki að raununum, enda þótt þær sjeu ímynd- un ein, nje að köstulunum, enda þótt þeir sjeu loptkenndir nokkuð. f>ær trúa á æskueldinn, vonareldinn, kær- leikseldinn heilaga í brjóstum vorum — að hann slokkni aidrei. Að minnsta kosti trúði Solveig — tríiði því afdráttarlaust, að ekki að eins sín heill, heldur og heill alls landsins ætti að hvíla á herðum þessa unga manns, sem svo margt hafði sjeð ng margt þarft lært, sem elskaði svo heitt rjettsýni og drengskap og hataði svo hjarfanlega alla rangsleitni og ó- dugnað og hræsni. Sumt skildi hún ekki hjá honum — sízt það, hvað hann var veiktrúaður á guð og annað líf. Hann hafði sagt henni það, enda þótt hann gerði sjer ekkert far um að halda trúarskoðunum sínum að henni, því að hann vildi helzt, að hún hjeldi áfram að vera nákvæm- lega eins og hún var. Trú h: ns hafði þoroað upp, gufað burt, næstum því án þess hann vissi af. Hann taldi sjer það engan ávinning — eiginlega hvorugt, því að hann þjáðist ekkert af heilabrotum um þá hluti — en henni að sjálfsögðu tjón, ef það sama ætti fyrir henni að liggja. Hún skildi ekkert í því, að hann, jafn-gáfaður maður, skyldi hafa getað komizt að slíkri niðurstöðu og verið án þess að biðja guð og trúa á hann. Henni fannst það svo fráleitt, einhver undarleg sjervizka. Hún hugsaði um móður sína, sem ekki átti annað ept- ir en liggja í rúminu alla sína æfi og ekkert hafði að hugga sig við annað en trú sína. Eins, eða þaðanaf verr og raunalegar, gat farið fyrir hverjum sem var. f>ó þótti henni næstum því undar- legra, að hún fann, að henni þótti Sigurgeir ekkert lakari fyrir þetta og var ekki lifandi vitund hrædd um vel- ferð hans. Hún þekkti ekki muninn á sjiíkrí trú og heilbrigðri. Svona liðu nokkrar vikur. f>au höfðu enn ekki talað neitt utn ást sína. En öll þeirra afskipti voru í rauninni ástaratlot og hvorugt hafði minnsta efa um hitt. Sál Sigurgeirs drakk í sig hina hraustlegu, mjúku, björtu feg- urð hennar og hún hugsaði um hann vakandi og sofandi. þau voru að njóta frumgróðurs ástalífsins, sem ljúf- astur er af gæðum þessa lífs. |>au höfðu vakandi auga hvort á öðru, hverju einasta augnatilliti, hverju ein- asta brosi, hverri einustu hreyfingu. Og allt varð það að fögnuði og nautn og merkari stórviðburðum engerzt höfðu síðan heimurinn varð til. Sveinbirni var ekki farið að lítast á blikuna. Honum þótti þau draga sig nokkuð mikið saman, sonur hansog Sol- veig. Hann sá ekki beturen að þau væru saman, hvenær sem minnRta tilefni var til þess, og opt endranær. Auðvitað fór vel á því, að hlýtt væri milli þeirra, ef Solveig átti að verða stjúpa Sigur- geirs. En honum var ekki grunlaust um, að syni sínum mundi vera ljiifara að hugsa sjer Solveigu enn nákomn- ari sjer. Og auðsætt var, að henni var ekkert annt um að bægja honum frá sjer. Hvað átti hann að gera? Honum kom til hugar að láta samdrátt þeirra afskiptalausan. f>að var ekki nema eðlilegt, að Sigurgeir færi að svipast um eptir konuefni. Hann var kominn á þann aldur. Og Solveig var efnileg stúlka, þó aö hún væri fátæk. Fyrir- hafnarminnst var það, að fara nú ékki að standa í neinu stappi, heldur lofa þeim að eigast, ef þau kæmu sjer sam- an um það. En hann varð ofurlítið að hugsa um sjálfan sig. f>að var hart fyrir hann, jafn-efnaðan mann, með anuað eins heimili, að vera konulaus alla æfi. Og honum hafði ekki reynzt auðhlaup- ið að því að kvongast aptur. Hjer var loksins konuefni, sem hann var á- nægður með — og gat fengið. Hon- um datt ekki í hug að hann mundi fá hryggbrot hjá Solveigu. Auðvitað var ekki óhugsandi, að hún ljeti sjer fátt um finnast í fyrstu — ekki sízt, ef henni skyldi Iítast vel á Sigurgeir. En hann gerði sjer örugga von um, að faðir hennar mundi verða á sínu bandi, og það svp.vel, að dygði. Hann vissi vel, hvernig hann átti að fá Ólaf til þess. Og það var heldur ekki svo sem, að hjer væri um neitt skammar- boð að ræða. f>að voru engin neyðar- kjör fyrir bláfátæka stúlku, að setjast í búið í Stóra-Hvammi. — Auðvitað mundi Sigurgeir þykja fyrir að hætta við stúlkuna, ef honum var nokkur al- vara með hana, sem annars var ekk- ert víst. CJngir piltar ætla sjer ekki að éiga allar þær stúlkur, sem þeir láta líklega við. En hvort sem væri, þá mundi sú hryggð fljótlega rætast af honum. Hann var ungur og álit- legur, og mundi ekki verða á hjarni staddur, þó að ein gengi úr skaptinu. Og svo var það ekki nema sanngjarnt, að hann legði eitthvað í sölurnar fyrir föður sinn, eptir að hafa verið í öðru eins eptirlæti og fengið annað eins uppeldi. Hann styrktist æ betur og betur í því, að það væri beinlínis rangt af sjer, að sleppa þessu tækifæri til að gera hin efri ár sín ánægjuleg. En hann vildi fara að öllu með hægð og gætni. Heppilegast virtist honum að byrja á því, að gera Sigurgeir henni afhuga, og bezt var, að Solveig gæti sjálf sjeð, að því væri svo farið, áður en bónorð- ið væri hafið. Og einfaldasta ráðið til þess var að segja honum hrein- skilnislega, hvað sjer byggi í brjósti — eða að minnsta kosti nokkurn veg- inn hreinskilnislega. Kristindómup forfeðra vorra. Eptir Chr. Brunn. I tímaritið »For Kirke og Kultur« hefir Chr. Bruun ritað all-langa grein um Noreg8sögu Sars prófessors, og lýkur, eins og allir aðrir, mjög miklu lofsorði á hana. Að því, er eitt at- nði snertir — þýðingu kristindómsins fyrir þjóðlíf Norðmanna —, greinir hann þó afdráttarlaust á við Sars. Sars ger- ir tiltölulega mjög lítið úr henni. f>að má lesa á milli línauna hjá honum í öllu hans mikla riti, að hann telur Norðmenn ávallt hafa verið óvenju- lega lítið guðrækna þjóð. Bruun kann- ast að sönnu við það, að kristindóm- urinn hafi verið veikur hjáNorðmönn- um á miðöldunum, á siðbótartímunum og enn í dag. En hann leiðir samt sem áður ýms rök að því, að Sars geri of lítið úr honum. Síðari hluti ritgerðar hans er um hina fyrstu kristni á Islandi og í Noregi, og göng- um vjer að því vísu, að lesendum Isa- foldar muni þykja hann bæði fróðleg- legur og skemmtilegur. Vjer prentum hjer þýðingu af honum — að örhtlum úrfellingum undanskildum. I. Ef guðhræddur og íhugunarsamur tilfinningatrúmaður(»pietistií),tekursjer í hönd rit Snorra Sturlusonar eða Njálu, fer að lesa um siðaskiptin í Noregiog á Islandi og sjer, hve sverðannaer að mörgu getið í því sambandi, þá er ekki að kynja, þótt glampandi stálið skrámi svo í 'augu honum, að hann sjái ekki annað en vopnin og stjórn- arbt-ellurnar. En mjer finnst næstum þvi sem prófessor Sars hafi farið á sama hátt. f>að er sannarlega annað að segja um siðaskipti þjóðflokks vors en það, sem hann leggur áherzluna á. f>að er sagt um hinn vitrasta og göf- ugaata mann á Islandi, Njál þorgeirs- son, að þegar hann frjetti, að von væri á hinum Dýja sið, hafi hann opt farið frá öðrum mönnum eiun saman og þulið — talað við sjálfaD sig um þetta þýðingarmikla mál. Og þegar menn mæltu svo, að það væru firn mikil að hafna fornum átrúnaði, þásagði hann, að sjer litist svo, sem hinn nýi á- trúnaður mundi vera miklu betri, sá mui di vera sæll, er þann fengi heldur, og ef þeir menn kærau til Islands, er þann sið byðu, þá mundi hann fyrir sitt leyti það vel flytja. Ef vjer nú viljum komast að raun um, hve ríkur kristindómurinn hafi verið í sannfær- ing og hugarfari Íslendinga, þá er þetta eina atriði þýðingarmeira heldur en öll sagan um »miðlun« f>orgeirs Ljósvetningagoðá á alþingi milli kristn- innar og heiðninnar, enda þótt Sars sje svo mikil ánægja að því að fara mörgum orðum um hana setn sönnun fyrir því, að siðaskiptin hafi í heild sinni vantað trúarlegt gildi. Af þessu sjáum vjer, að göfugasta sálin og á- gætasti vitmaðurinn á Islandi hneigð- ist fyrir fram að kristindóminum og þráði hann, enda fetuðu og margir af landsins beztu mönnum bráðlega í fót- spor Njáls í þessu efni. Allir mennt- aðir menn á þeim tímum höfðu auð- vitað nokkra spurn af hinum nýja sið. f>angbrandur hefir að Hkindum ver- I ið mestur ofsamaður af öllum trúboð- n m á þeitn tímum. Hann tók sjer fyrir hendur að sýna það á Islandi, að kristnir riddarar stæðu að engu leyti heiðnum köppum á baki — alveg eins og konungur hans, ólafur Tryggvason, lagði stund á þetta í Noregi. En jafn- vel þótt hann væri ótrauður til að- færa áþreifanlegar sannanir fyrir því, að Kristur gerði sína menn eins vopn- djarfa eins og hinir fornu æsir, þá voru þó vígaferlin jafnvel ekki hjá honum aðalatriðið. f>angbrandur boðaði orðið. Hann kom til Islands við annan mann. Og enda þótt hann kynokaði sjer ekki við að vega heiðingja í einvígjum, þá liggur það í augum uppi, að ekki hefir hann getað kúgað menn til kristni. Hann fór úr einni sveit í aðra og •boðaði kristni«, eins og svo opt er um hann sagt, og sneri því i villu, er heiðingjar mæltu í móti honnm. Og margir hinna beztu manna og ríkustu höfðingja á Islandi voru fúsir á að þiggja skírn af hans hraustu hönd- um. Og hvað sannar nú »miðlun« f>or- geirs Ljósvetningagoða? I raun og veru sannar hún ekki annað en það, að engum hugsandí mönnurn á íslandi, hvorki heiðingjum nje kristnum mönn- um, duldist það, að þótt kristindóm- urinn hefði færri áhangendur, þá væri hann þó heiðninni fremri að andlegum mætti, og að ekki væri unnt að afstýra því, að hann bæri hærra hlut. Og heiður sje þá gámla. lögsögumanninum, sem lætur þokast fyrir kristindóminum, en notar jafnframt leifarnar af afli he.iðninnar til þess að brjóta oddinn af umburðarleysi kristninnar, sem ef til vill hafði átt mestan þátt í að fæla bæði hann og aðra frá hinum nýja sið. Mikil hamingja hefði það verið fyrir Noreg, ef Olafar vorir hefðu haft aðra eins hyggni og annað eins frjáls- lyndi til brunns að bera. það er sarna að segja urn Sars eins og guðfræðinga vora — hann skortir allt of mikið bæði vilja og hæfileika til að komast vel í skilning nm, hvern- ig hugsunum og tilfinningum manna, að því er trúarmál snerti, var farið á þeim tímum. Arnljótur gellini kom til Olafs helga á Stiklastaði að morgni dags, orustu- daginn sjálfau. Konungur* ljet bisk- up skíra skógarmanninn, en sjálfur tók hann að sjer að veita honum fræðslu. »Kendi konungr hánum þat af trúnni, er hánum þótti skyldast vera, og skip- aði hánum í öndverða fylking ok fyrir merki sínu«, þar sem honum var vís- astur baui búinn. Sjálfsagt hefir sú fræðsla verið mjög fáorð. En jeg er ekki viss um, að hver einasti yfirhers- höfðingi hefði gefið sjer tímatil hennar, ekki lengri en hún hefir verið, fáein- um augnablikum áður en teningunum átti að varpa um kórónu hans og líf. Og hafi Ólafur þennan morgun komizt til þess að veita heiðingja, sem skír- ast átti, tilsögn í kristnum fræðum, þá er ástæða til að ætla, að hannhafi ekki heldur endranær verið með öllu áhugalaus í því efni. Og hann hefir naumast; haft mjög ljelegan jarðveg í að sá hjá þessum Arnljóti, sem er orð- inn þreyttur á sjálfum sjer og því lífi, sem hann hefir lifað, og hlustar á orð trúarinnar á sömu augnablikunnm, sem hann er að ganga út í dauðann. Áður en Olafur Tryggvason lætur pynda Eyvind kinnrifu, bað hann hann »blíðum orðum at taka við kristni ok sagði hánum marga skynsemi ok svá biskup«. Jeg get ekki neitað því, að mjer þætti fróðlegt að vita, hvernig sú »skynsemi« hefir verið, sem á þeim tímum var haklið að þverúðarfullum heiðingjum. Jeg vona, aðáókomnum

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.