Ísafold - 06.04.1898, Blaðsíða 2

Ísafold - 06.04.1898, Blaðsíða 2
74 •jpegar vors konungs krýning skeði og Kvásis æða streymdi flóð úr öllum áttum, yrkja rjeði umgetið skáld vort snotran óð, með rúnaletri ritaðan, sem ræsir mjög vel álíta vann«. I »Klausturpóstinum« mun vera fyrsta kvæðið, sem prentað hefir ver- ið eptir síra Olaf Indriðason, föður þeirra skáldanna Páls og Jóns Olafs- sona. Magnús Stephensen kveðst af hendingu hafa orðið var við »ungt og upprennandi, efnilegt skáld í Múla- sýslu*, og prentar eptir hann þrjú er- indi uui Starmýrar í Alptafirði, sem enskt skip hafði þá nýlega strandað á, Erindin eru bnittileg og verkleg, og gætu vel verið eptir Bjarna Thoraren- sen eða Bólu-Hjálmar. Auglýsingar eru að vonum litlar í »Klausturpóstinum«, en auglýsiugalaus er hann þó ekki. I 3. árg. lýsir út- gefandinn yfir því, að hann hafi þá enn ekki þegið borgun fyrir neina auglýsinguna, og líklegast hefir hann aldrei gert það. Grafskriptir, erfiljóð og »sjerhver önnur siðsöm ljóð« hefir hann samt ætlað að taka borgun fyrir, prenta þess konar í %’iðaukablöðum sem aug- lýsingar, eins og útgefandi Norðanfara gerði. — |>að er að segja, ef því var ekki svo farið að efni, lengd og frá- gangi öllum, að honum þætti það eiga heima í ntinu sjálfu. það leynir sjer ekki, að hann hefir lengi verið í vand- ræðum með erfiljóðin, hefir fengið ó- sköpin öll af þeim og virzt þau »vitna mega um daufan smekk á snotrum vísindum«, eins og hann kemst að orði á einum stað. Og svo tekur hann loksins það til bragðs, að bjóða mönn- um þann kost, sem nú hefir verið frá skýrt. En einhverra hluta vegna hef- ir ekkert orðið úr prentun þessara aukablaða, og allt af streyma graf- skriptirnar til hans. þá býðst hann til að prenta þær á laus blöð á kostn- að hlutaðeigenda, eins og nú tíðkast. Yfirleitt má segja, að vel væri til »Klausturpóstsin8« vandað. |>ó að hann væri nokkuð þunglamalegur — töluvert strembnari en »Maanedstiden- der« Magnúsar Ketilssonar —, þá var hann einkar-þarft rit á sinni tíð og bar á ýmsan hátt vott um elju, vand- virkni og margháttaða þekkingu þess merkismanns, sem gaf hann út, um og eptir sextugs-aldur, og var þó mörgum öðrum störfum hlaðinn. Litli-Hvammur. Eptir Einar Hjörleifsson. XIV. Olaf grunaði, að dóttir sín mundi helzt vilja jafna sig á þessu í einrúmi, enda hafði hann ekkert meira aö segja. Svo hann fór út úr stofunni. Hann fann Sigurgeir úti fyrir og fór að rabba við hann um hitt og þetta. Hvorug- ur þeirra minntist einu orði á erindi hans. Solveig sat kyrr á stólnum, krosslagði handleggina á borðinu, grúfði andlitið niður í þá og stundi hátt. Grátiðgat hún ekki og hugsað gat hún ekki. Sorgin lagðist um stund eins og kol svört þoka yfir hug hennar og hún gat ekki áttað sig þar. Svo fór að rofa til eins og fyrir hvassviðri. Svona var þá komið — og þetta átti að verða endirinn á öllum hennar æskudraumum. Hann Sveinbjörn átti að verða maðurinn hennar! Hvað það var viðbjóðslegt — óútmálanlega and- styggilegt! Hún fór að hugsa um sögur af mönn- um, sem höfðu orðið að samrekkja huldufólki með óviðráðanlega óbeit í sál sinni og líkama. — Var hún heill- uð af óvættum? Eins og það væri ekki betra að vera heilluð af álfum inn í hóla og kletta, og geta falið þar sorg 8Ína og andstyggð og svívirðing fyrir augum mannanna, heldur en að dragast með það allt í sólarljósi mann- heima með Sigurgeir við hliðina á sjer! Svo kyrrði ofurlítið. Hafði hún ekki sjálf valið þennan kostinn? Atti hún þá ekki að reyna að standa við sinn eigin úrskurð mrð stillingu, hugprýði og þolinmæði? Jú, hún hafði valið — valið eins og ofsótt dýr, sem komið er fram á hamra- snös og á kost á því tvennu: að steypa sjer fram af hengifluginu eða láta drepa 8ig uppi á hömrunum. Eins og um nokkuð væri að velja, þegar átti að setja foreldra hennar á sveitina, rífa börnin frá móður hentiar í rúminu, þeyta þeim úb í tvistinn og bastinn og ef til vildi hrekja hana sjálfa frá manni sínurn og hola henni niður sem hrepps- ómaga í fhtið móti baðstol'udyrum hjá einhverjum ræflinum, sem vildi taka hana fyrir minnst meðlag! Ein3 og það væri nokkurt viðlit að lifa með það á samvizkunni, að hafa getað af- stýrt öðrum eins ósköpum og hafa ekki gert það! En ef þetta var óhjákvæmilegt til þess að bjarga foreldrum hennar og systkinum, var það þá ekki guðs vilji, að hún gerði'það? Atti hún ekki að beygja sig undir guðs vilja — ekki á þann hátt, sem hún gerði, með vonzku og ofsa, heldur með auðmýkt og undirgefni? Vitaskuld var þetta hart, en hans vegir voru óranndakan- legir. Efinn greip nú sál hennar í fyrsta sinn með heljarklóm síuum, kreisti hana, nísti og tætti hana sundur, eins og mögnuðustu draugarnir gera, þegar þeír ná í varnarlausar mannskepnurn- ar í náttmyrkrinu. Guðs vegir voru ekki betri fyrir það, þó að þeir væru órannsakanlegir. það, sem var ljótt og andstyggilegt og níðingslegt, varð ekki gott, þó að eitt- hvað gott kynni að geta af því hlotizt — einhvern tíma. það var guðs að sjá um, að níðingsverkin væru ekki unnin. Hann gat ekki þurft neitt á þeim að halda, og það voru engin útlát fyrir hann, almáttugan guð, að afstýra þeim. Hún, sem var ekki annað en syndug manneskja, mundi afstýra hverju níðingsverki, sem hún ætti kost á. Og svo gjörir almáttugur guð það ekki — hann, sem jafnframt er algóður! Var nokkurt vit í þessari kenningu? Nei, annaðhvort var guð ekki almáttugur, eða hann var ekki algóður — beinlínis vondur — eða hann var ekki til. Hún hafði veður af því, að hugsunin væri voðaleg. Hún var þá annað- hvort í höndunum á vondu valdi, eða hraktist fyrir einhverju, sem hvorki var gott nje vont — ekkert annað en afl — eins og reiðalaust og stýrislaust skipsflak í stórsjó. En henni fannst einhver friðun í voðanum. Hann stælti mótstöðuaflið og dró hugann burt frá andstyggðinni. Og hún sagði sjer það hvað eptir annað — eins og móðir hennar hafði haft það upp fyrir henni hvað eptir annað, sem hún með engu móti mátti gleyma, þegar hún var lítil —: ann- aðhvort er guð vondur, eða hann er ekki til. En Sveinbjörn var til — því miður — og hún átti að verða konan hans. Nú fór hún að svala sjer á honum í huganum. Hún fór aptur að hugsa um dýrið á klettasnösinui. Hraust dýr búast til hefnda, þegar ekki verð- ur undankornu auðið. Skyldi hún ekki geta látið hann iðrast þess arna? Hvað hún skyldi kvelja hanu! Hvað hún skyldi eitra fyrir honum lífið! Hvað hún skyldi eyða og spenna fjár- munum hans, af því að hann elskaði þá! Hvað hún skyldi svívirða hann napurtí annara viðurvist, hve nær sem hún kæmist höndunum undir! Hvað hún skyldi hella yfir hann miklu af brigzlyrðum, þegar þau væru tvö ' ein saman! Hvað það skyldi vera henni mikill fögnuður að lúta niður að hon- um á banastund hans og orga inn í eyrað á honum, að hann væri níðingur! Hurðinni var lokið upp og Sigur- geir kom inn í stofuna. Solveig sat þá upprjettvið borðið móti glugganum, lagði handleggina fram á það og kreppti hnefana. Sigurgeir gekk inn fyrir borðið og leit á hana. Hennivar mjög brugðið. Andlitið hálfgrátt og kinnarnar sýnd- ust rýrari en þær áttu vanda til. Hún einbl/ndi út í gluggann. Hann hafði aldrei sjeð hana neitt líka þessu, og það datt ofan yfir hann. »SoIveig«, sagði hann heldur lágt, en með öndina í hálsinum. Hún leit ekki við, sat grafkyrr eins og áður. • Solveig, Solveig — hvað gengur að þjer? Er þjer i!lt?« sagði hann nokkru hærra og tók utan um aðra höndina á henni. Hún hrökk við og kippti að sjer hendinni. Hann laut niður að henni og ætl- aði að kyssa hana. Hún ýtti honum frá sjer og sagði: »þú mátt ekki snerta mig«. það var ekki þykkja í röddinni og ekki heldur minnsta blíða — ekkert nema bláköld alvara. Sigurgeir þótti atferli hennar æ und- arlegra og óskiljanlegra. Var hún fárveik eða var hún orðin brjáluð? »Hvers vegna má jeg það ekki ?« spurði hann vandræðalega. Hún þagði við nokkra stund, og sagði svo: »Af því jeg ætla ekki að verða kon- an þín, heldur stjúpa þín«. Sama þykkjuleysið í röddinni, sama blíðuleysið, sama alvaran. Og ekki leit hún við enn, heldur einblíndi út í gluggaun. Leikirnir í Iðnaðarmannahúsinu. Frænka Charleys. Skrípaleikur þessi er afar-hlægilegur, euda hefir hann verðið leikinn víðs- vegar um heim. það er engin fegurð í honum og hann setur ekkert í hreyf- ingu hjá nokkrum manni annað en hláturvöðvana. En það gerir hann líka svo um munar. Sjerstakt íag þarf til þess að gera hann nokkra stund leiðinlegan á leiksviðinu. Ekki er trútt um það lag hjá Leik- fjelagi Reykjavíkur. ílkki fyrir það — sum hlutverkin eru þar vel við- unanlega leikin, og það ekki svo örfá. það væri dauður maður, sem ekki hlægi að þeim Sigurði Magnússyni og Kristjáni þorgrímssyni. Og frk. Gunn- þórunn Halldórsdóttir og frú Stefanía Guðmundsdóttir leika láglega. þá er nú í raun og veru upp talið það, sem er vel ánægjulegt. Eins og vjer höfum áður tekið fram, er Friðf. Guðjónssoo ávallt snotur á leiksviðinu. þeim, sem þetta ritar, finnst allt af, að sá leikari mundi geta staðið sig betur með góðum undirbún- ingi. Skerpuna vantar auðvitað; það er eins og hann draii stöðugt af sjer. Og að”óreyndu verður ekki sagt, hvort það getur lagazt. En að öðru leyti er það, sem einkum er ábótavant hjá honum í þessum leik, fólgið í smá- munum, sem laga má. Rjett til dæm- is skal þess getið, að þagar hann sazt við borðið í leikbyrjun og feraðskrifa, þá sjer hver glöggskygn maður, að hann er ekki skóla- og háskólageng- inn maður, sem hann þó á að vera. Um þorvatð þorvarðarson er það að segja, að hann leikur ifimmtugan hermann og er prýðislaOegur á leik- sviðinu. Elann ætti sjálfsagt fremur að l--ika aldraða menn en unga, sem hann hefir hingað til optast neyðzt til að gera. En þetta hlutverk misskildi hann frá upphafi til enda og þess vegna mistókst honum algerlega. Allt, sem hann segir og gerir, þessi her- maður, bendir ótvíræðlega á, að hann sje æringi. Hann var leikinn með hátíðlegu þunglyndi, og varð furðu- leiöinlegur. Borgþór Jósepssyni varð svo sem ekkert úr þjóniuum, sem hann ljek, En margfalt myndarlegri var þó hans leikur en þeirra þriggja, sem nú eru ótalin. Kynleg ráðgáta virðist það vera, hvernig því víkur við, að Davíð Heil- mann skuli hafa villzt inn í nokkurn leikflokk, og það hvað eptir annað. Hann hefir aldrei sýnt, að hann ætti þar heima. Hæfileika-skortur hans sem leikanda er víst svo augljós flest- um, sem hafa sjeð hann á leiksviðinu, að það tekur því ekki að fara fleiri orðum um hann hjer. Svo eru tvær stúlkur, sem ljeku ung- ar og auðugar heimasætur enskar-. þær hafa ekki leikið áður r fjelaginu og leika að líkindum ekki optar, nema þeim auðnist að taka sjer fram til muna. þess vegna er sanngjarnt að nefna þær ekki. Osagt skal látið, að hve miklu leyti það var að kenna ti sagnarskortí, að þeim tókst ekki bet- ur. Til annarar þeirra heyrðist e.kk- ert orð framan af, í œiðju húsinu, og eptir að til hennar fór að heyrast, var grandvart um, að liún segði nokkra setningu neitt líkt því, sem nokkur rnaður mundi segja hana t samræðu. Sama stúlkan óð með stóran hníf of- an í humrafat við morgunverðinn. það að minnsta kosti hefði mátt banna henni, ef hún befur gert það á æfingunum. Hinni tókst ekki jafn-ófimlega; en fjarri var hún því, að geta nokkuð leikið, svo mynd væri á. jpað er illa farið, að fjelagið skuli ekki vanda betur til leika sinna. Reykjavík er að komast á það stig, að góðir leikar ættu að geta þrifizt hjer nokkurn veginn vel, og það mundi hafa talsverð menningar-áhrif, eigi að eins á bæinn, lieldur og allt landið — mundi meðal annars að öllum lík indum verða til þess, að þjóð vor auðgaðist að innlendum leikritum. Eins og nú stendur, er fjelaginu ekki fáandi neiun góður leikur í hendur. |>ví miður er það auðsætt, að fjelagið hefur enn ekki gert sjer ljóst, að þaú hafi tekizt neinn vanda á hendur; að því finnst, sem ekkert geri til, hvað bæjarbúum er boðið, ef leikendur fá ein- hverja þolanlegaþóknun fyrir ómak sitt.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.